Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÁ Robben-eyju, þar sem Nelson Mandela var fang-i í 18 ár. FANGAKLEFI Mandela á Robben-eyju. Matarílát hans eru ofan á ábreiðunum. Aðstaða fyrir sendi- ráðsmann í Mósambík SIGRIÐUR Snævarr afhenti Nelson Mandela, forseta Suður-Afríku, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Suður-Afríku í apríl 1996. Myndin var tekin við það tækifæri. SIGRÍÐUR Á. Snævarr er að ljúka störfum sem sendiherra gagnvart Suður-Afríku, Mósambík og Na- mibíu og taka við sem sendiherra í París. I hennar tíð sem sendiherra hefur vegabréfsáritunarskyldu til Suður-Afríku verið aflétt. Núna þarf eingöngu áritun til Mósambík af þessum löndum. Nú hillir undir að starfsmaður sendiráðs Islands gagnvai-t Mósambík taki upp fasta búsetu í iandinu. Sigríður gegndi sendiherrastöðu gagnvart Namibíu í fimm ár, fyrst í Stokkhölmi, og hélt því starfi áfram þegar hún lét af sendiherra- embættinu þar. í apríl 1996 afhenti hún Nelson Mandela, forseta Suð- ur-Afríku, trúnaðarbréf sitt og í ágúst 1998 var komið að Mósam- bík. Sigríður er nýkomin úr heim- sókn til Mósambík og Suður-Af- ríku. Sigríður segir að sú hugmynd hafi komið upp í fyrra að íslenskur sendiráðsmaður yrði starfandi í Mósambík. Ástæðan fyrir því að Mósambík verður fyrir valinu sem dvalarstaður er sú að þar verður umfangsmesta þróunaraðstoð ís- lendinga til Afríkuríkis. Þegar Halldór Asgrímsson utan- ríkisráðhen-a var í opinberri heim- sókn í Mósambík í fyrra bauðst honum húsnæðisaðstaða fyrir Is- land í sameiginlegu húsnæði Dana og Norðmanna. Sendiherra íslands yfir Mósambík yrði hins vegar staðsettur á Islandi. Bygging sendiráðsins hefst í apríl og er gert ráð fyrir að byggingartíminn verði 18 mánuðir. „Þetta gæti orðið okkur til góðs því sendiráðsmaðurinn ætti auðvelt með að ferðast til annarra landa í suðurhluta Afríku og gæta hags- muna íslands í þessum heimshluta. I Mósambík er talinn einna mestur uppgangur í Afríku og mörg þróun- arsamvinnuríki eru þar staðsett og jafnframt standa fyrir dyrum mikl- ar stórframkvæmdir í landinu, svo sem lagning járnbrautarkerfis og gasleiðslu, vegagerð og bygging ál- vers,“ segir Sigríður. Hún segir að myndast hafi sam- skipti á menningarsviðinu við Mó- sambík í tengslum við Listahátíð sl. sumar. Þróunarsamvinnustofnun hafi veitt atbeina sinn til að koma verkum tveggja mósambískra lista- manna til Islands og voru þau sýnd í Ráðhúsi Reykjavíkur. Framhald verði á þessum samskiptum við listamenn til eflingar starfsins í Mósambík. Einn ræðismaður er starfandi í Port Elizabeth í Suður-Afríku og þrír aðrir hafa verið útnefndir í Pretoríu, Jóhannesarborg og Durban. Dvalið á Robben-eyju Sigríður segir að í samstaríí við norrænu ráðherranefndina hafi verið staðið að menningarsam- skiptunum Shuttle 99 þar sem þátt- takendur hafa verið frá Norður- löndunum og Suður-Afríku. Gagn- kvæm bókmenntakynning kom í hlut íslands og átti Sigríður fund haustið 1997 með Zakes Mda, rit- höfundi frá Jóhannesarborg, sem áður var prófessor í bókmenntum við Yale-háskóla, um ráðstöfun fjárins sem ætlað var til samskipta á sviði bókmennta. Á fundinum fæddist hugmynd um bókmennta- smiðju og í henni hafa starfað rit- höfundarnir Olga Guðrún Árna- dóttir og Sjón, rithöfundar og bókaskreytingamenn frá hinum Norðurlöndum ásamt sex rithöf- undum frá Suður-Afríku. Sigríður tók einnig þátt í nor- rænni ráðstefnu 10. febrúar sl. fyr- ir hönd utanríkisráðherra á vegum Non'ænu Afríkustofnunarinnar, Robben Island-safnsins og Maýibu- ye Center. Ráðstefnan var haldin á Robben-eyju þar sem Nelson Mandela var í átján ár í fangelsi. Forseti suður-afríska þingsins setti ráðstefnuna í gamla þinghúsinu í Höfðaborg sem Sigríður segir að hafi verið eitt helsta tákn aðskiln- aðarstefnunnar á sínum tíma. 130 ráðstefnugestir gistu tvær nætur á Robben-eyju, sem tekur um eina klukkustund að sigla til í suður frá Höfðaborg, og bjó Sigríður í fanga- varðahúsi þarna. „Lagt hefur verið mikið upp úr því að breyta sem minnstu þarna því landsmenn vilja að staðurinn verði skráður sem heimsminjar hjá UNESCO. Við vorum innan um gaddavírsgirðingar og gátum sett okkur íyrir sjónir aðstæðurnar sem Mandela hefur búið við. Robben- eyja er kölluð Fangaeyjan og er táknræn íyrir aðskilnaðarstefnuna og andstöðu blökkumanna gegn yf- irráðum hvítra. Eyjan var allt frá sautjándu öld geymslustaður fyrir þá sem voru taldir hættulegir um- hverfi sínu svo sem geðveika, trú- villinga, holdsveika, stjórnarand- stæðinga og pólitíska fanga,“ segir Sigríður. Sjónvarpið býður sérstakar textaðar útsendingar frá framboðsumræðum Félag heyrnarlausra vill táknmálstúlkaðar umræður í sjónvarpi STEFNA Félags heyrnarlausra á hendur Ríkisútvarpinu hefur verið þingfest. Félagið fer fram á að úr- skurður Sjónvarpsins um sérstak- ar útsendingar frá framboðsum- ræðum í sjónvarpssal íyrir næstu Alþingiskosningar verði dæmdur ólögmætur. Jafnframt að sjón- varpinu verði gert skylt að sjá til þess að umræðumar verði að- gengilegar fyrir heymarlausa. Hafdís Gísladóttir, framkvæmda- stjóri Félags heyi-narlausra, segir að farið sé fram á að umræðurnar verði táknmálstúlkaðar jafnóðum og þær fara fram. Bjarni Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sjónvarpsins, segir að með sér- stökum útsendingum yrði einnig hægt að texta umræðurnar og ná þannig til stærri áhorfendahóps. Ekki fullnægjandi „Við erum ekki að fara fram á textun eins og segir í frétt frá Al- þingi,“ sagði Hafdís. „I erindi okk- ar til Sjónvarpsins er farið fram á að framboðsumræðurnar verði táknmálstúlkaðar um leið og út- sending fer fram og að túlkur standi til hliðar og túlki jafnóðum. Við gerum okkur grein fyrir að það er mun minna mál en textun." Sagði hún að tilboð Sjónvarpsins um að endursýna þættina túlkaða og textaða í dagskrárlok seint á föstudagskvöldi og aftur snemma á laugardagsmorgni áður en kjör- staðir væru opnaðir væri ekki full- nægjandi. „Við erum að óska eftir að fá að fylgjast með stjómmála- umræðu rétt eins og aðrir lands- menn,“ sagði hún. „Þetta er útvarp allra landsmanna eins og segir í slagorðinu og við greiðum sem svarar helmingi afnotagjalda fyrir sjónvarj), þar sem útvarpið fellur út.“ Hafdís segist ekki hafa fengið skrifleg rök fyrir því frá Sjónvarp- inu hvers vegna ekki er hægt að túlka umræðurnar jafnóðum á táknmáli. „En ég hef rætt við framkvæmdastjórann og einu rök- in sem ég hef heyrt eftir að í ljós kom að túlkar telja þetta ekkert vandamál er að hann fór að tala um áferðina á myndinni," sagði Hafdís. „Ég skil það þannig að honum finn- ist ljótt að túlkur standi til hliðar. Um það snýst málið í raun og veru.“ Hafdís sagði að fyrir borgar- stjómarkosningamar sl. vor hefði einnig verið farið fram á að stjórn- málaumræðumar yrðu táknmáls- túlkaðar en þeh'ri ósk hefði verið hafnað. „Nú er þetta að endurtaka sig,“ sagði hún. „Við emm að okkar mati með góðan rökstuðning. Fyrsta bréfið var sent 6. nóvember, hálfu ári fyrir kosningar, þannig að und- irbúningurinn er góður. Við þurft- um að ítreka þetta bréf tvisvar og fengum svar 11. janúar, þar sem segir að málið hafi verið rætt innan Sjónvarpsins og að ekki sé hægt að verða við beiðni félagsins. En síðan segir: „Komi hins vegar önnur hugmynd frá félaginu um stjórn- málakynningu í Sjónvarpinu fyrir heyi'narlausa þá sé sjónvarpið til- búið að kanna hvort það sé raun- hæft að framkvæma hana.“ Við lít- um ekki þannig á að hægt sé að líta á heyrnarlausa sem annars flokks fólk. Þeir eiga þessi réttindi." Hópur sem ekki kann táknmál Bjarni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sjónvarpsins, segir að hann hafi lagt fram tillögu um að lokaumræður fyrir alþingis- kosningarnar yrðu endursýndar rit- og táknmálstúlkaðar í dag- skrái'lok daginn fyrir kjördag eða nánast í beinu framhaldi af umræð- unum í sjónvarpssal og jafnframt að morguninn eftir yrði þátturínn endursýndur rit- og táknmálstúlk- aður áður en kjörstaðir væru opn- aðir. „Þetta hefur verið rætt hjá Sjónvarpinu og í útvarpsráði og er sú tillaga sem unnið er eftir þessa stundina,“ sagði hann. Bjarni benti á að innan Félags heyrnarlausra væri hópur sem ekki kynni tákn- mál og að með ritmálstúlkun væri verið að sinna stærri hópi og þá ekki eingöngu félagsmönnum í Fé- lagi heyrnarlausra heldur einnig heyrnarskertum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.