Morgunblaðið - 23.02.1999, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
PRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 15
FRÉTTIR
Skreið út um
bílgluggann
„ÞAÐ var engin leið að opna dyr
svo ég greip til þess ráðs að
skríða út um gluggann til að losa
vagninn aftan úr bílnum,“ sagði
Gísli Briem, bílstjóri hjá Land-
flutningum-Samskipum, en hann
lenti í hremmingum á Breiða-
merkursandi um helgina. Mjög
hvasst var á sandinum og fauk
flutningabíll á hliðina og einnig
tengivagn sem Gísli var með aft-
an í bíl sínum.
Gísli var á leið austur á land
aðfaranótt laugardags. Hann
sagði að veðrið hefði ekki verið
gott, en þó hefði vindstyrkur í
Sandfelli í Öræfum ekki verið
meiri en 5-6 stig. Hann sagðist
því hafa haldið áfram. Skammt
frá bænum Kvískerjum hefði
hann hins vegar ekið inn í mjög
sterkan vindstreng. Gísli sagði að
svo mikið hefði gengið á að hann
hefði gert sér grein fyrir að hann
gæti ekki haldið áfram. Hann
sagðist hins vegar ekki hafa get-
að snúið við á veginum með
tengivagninn aftan í. Hann hefði
því bakkað honum út í vegkant
og upp í veðrið. Ekki hefði verið
um það að ræða að hægt hefði
verið að opna hurð í þessum lát-
um og þess vegna hefði hann far-
ið út um glugga til að losa vagn-
inn aftan úr bflnum.
Eftir að Gísli hafði snúið við
fauk vagninn á hliðina. Flutn-
ingabfll sem var þama einnig á
ferð fór sömu leið.
Þörf fyrir vindmæli
stuttum kafla. Ég held að trygg-
ingafélögin hljóti að sjá sér hag í
að þrýsta á að þama verði settur
upp sjálfvirkur vindmælir.
Það getur einnig komið til
greina að Veðurstofan og Vega-
gerðin loki þessum hættulegu
stöðum. Það er krafa á okkur bfl-
stjóra að reyna að halda áætlun.
Við reynum að gera okkar besta,
en sjálfsagt erum við stundum að
taka of mikla áhættu,“ sagði Gísli.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
TENGIVAGN og flutningabíll fuku út af veginum á Breiðamerkursandi.
iimausN spamsKiRTEiNa
2,6. februar
er síáasti
Foktjón algengt á Breiðamerkursandi
„Það er mjög nauðsynlegt að
þarna verði settur upp sjálfvirk-
ur vindmælir. Það íjúka þarna
mörg tæki á ári. Þarna verður
bandbrjálað veður á tiltölulega
sldptidagur
Um fimmtungur starfs-
manna við kennslu hefur
ekki kennsluréttindi
Astandið
verst á Vest-
Qörðum
AÐEINS um 49% starfsfólks við
kennslu á Vestfjörðum síðastliðið
haust samkvæmt tölum, sem Hag-
stofan birti í gær um starfsfólk við
kennslu í grunnskólum haustið 1998.
Alls voru 4.045 starfsmenn við
kennslu í grunnskólum landsins í
lok október á síðasta ári. Um 83%
þeirra voru með kennsluréttindi en
leiðbeinendur voru um 18%.
Kennarar með kennsluréttindi
vom hlutfallslega flestir á höfuð-
borgarsvæðinu, eða um 94%, þar á
eftir fylgdi Suðurland en 80% kenn-
ara þar voru með kennsluréttindi,
næst komu Suðumes með 78% en
lægst var hlutfallið á Vestfjörðum
eins og áður sagði.
Af þeim leiðbeinendum sem em
við kennslustörf höfðu um 37% lokið
prófí á háskólastigi, 48% höfðu lokið
prófi á framhaldsskólastigi, en 16%
höfðu eingöngu lokið skyldunámi.
Konur voru sem fyrr hlutfallslega
fleiri en karlar en um 74% starfs-
fólks við kennslu voru konur. Hæsta
hlutfall karla meðal starfsmanna við
kennslu var á Suðumesjum en þar
voru 36% þeirra karlar, lægst var
hlutfall karla hins végar á höfuð-
borgarsvæðinu utan Reykjavíkur
eða 20%.
Þrátt fyrir að konur væm hlut-
fallslega fleiri en karlar við kennslu
voru fleiri karlar en konur sem
sinntu störfum skólastjóra, en 65%
skólastjóra voru karlar. Hlutfalls-
lega flestir kennarar em á aldrinum
40 til 49 ára eða um þriðjungur alls
starfsfólks.
Þeir einstaklingar semeiga spariskírteinií í.fl.D 1994 - 5 ár
(RS99-0310/K) með lokagjalddaga 10. febrúar síðastliðinn,
eiga þess kost að skipta þessum skírteinum yfir i ný spari-
skírteini til föstudagsins 36. febrúar.
Vaxtakjör taka mið af daglegum markaðskjömm. Öllum er
boðið að skipta spariskírteinunum í ríkisvíxla.
Starfsfólk Lánasýslunnar er reiðubúið að aðstoða á allan hátt
við innlausn skirteinanna ogvið skipti yfir í ný spariskírteini.
Mundu að síðasti skiptidagur er 26. febrúar.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 6040 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is