Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 17
LANDIÐ
Morgunblaðið/KVM
SLOKKVILIÐIÐ berst við eld í útihúsum og hlöðu á hænum Höfða í Eyrarsveit á Snæfellsnesi.
Eldsvoði á Höfða í Eyrarsveit
Grundarfirði - Fimm ær, þrjú lömb,
einn hrútur og 17 kanínur drápust er
útihús og hlaða brunnu til kaldra
kola á bænum Höfða í Eyrarsveit á
Snæfellsnesi að morgni laugardags.
Þá brann einnig lítil saumastofa og
lager sem Jónína Gestsdóttir, ábú-
andi á Búlandshöfða, hafði komið sér
upp sl. haust til að framfleyta sér.
Vegagerðarmenn í Búlandshöfða,
sem voru þarna á ferð upp úr kl. sjö
urðu eldsins varir og létu vita. Þeg-
ar slökkviliðið kom á staðinn voru
húsin alelda. I íyrstu var ógerlegt að
ráða við eldinn því erfítt reyndist að
komast í vatn þar eð töluvert brim
var í fjörunni og lítið rennsli er í
lækjum vegna kulda. Að lokum
fundu menn vök í bæjarlæknum.
Talið er að kviknað hafi í út frá raf-
magni.
Námskeið í fjar-
kennslu vel sótt
Neskaupstað - Dagana fímmta
og sjötta febrúar síðastliðinn var
haldið hér námskeið í meðhöndl-
un gigtarsjúkdóma á vegum end-
urmenntunarstofnunar Háskóla
Islands og Fræðslunets Austur-
lands.
Námskeiðið sóttu um 25 aðilar
hér fyrir austan en alls voru
þátttakendur 147 á landinu öllu.
20 sóttu námskeiðið í Neskaup-
stað og var kennt í gegn um fjar-
kennslubúnaðinn í Verkmennta-
skóla Austurlands. Auk þess
voru 3 nemendur á Vopnafirði og
tveir á Egilsstöðum.
Að sögn forsvarsmanna
Fræðslunets Austurlands komu
kostir fjarkennslubúnaðarins
mjög vel í ljós á þessu námskeiði,
því að lauslega áætlað hefði
kostnaður við hvern nemanda af
Austurlandi verið um 40 þúsund
krónur ef hann hefði þurft að
sækja námskeiðið til Reykjavík-
ur eða um ein milljón króna, auk
þess að trúlega hefðu miklu
færri sótt námskeiðið suður.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
NEMENDUR 4. bekkjar sungu hressilega fyrir áheyrendur.
SAMLESTUR úr verkum Ármanns. Nemendur bíða fyrir aftan
eftir að röðin komi að þeim.
Bókmenntahátíð í Sólvallaskóla á Selfossi
Selfossi - Nemendur Ijórða
bekkjar Sólvallaskóla héldu bók-
menntahátíð síðast liðinn fimmtu-
dag og buðu til sín foreldrum og
aðstandendum. Á hátíðinni
kynntu þeir verk Ármanns Kr.
Einarssonar og höfundinn sjálf-
an. Höfundurinn hugðist mæta til
hátíðarinnar en infiúensan setti
strik í reikninginn og hann komst
ekki. Dagskrá nemendanna var
hin líflegasta og greinilegt að
þeir höfðu unnið vel að verkefn-
inu og þekktu verk höfundarins.
Nemendur komu efninu til skila
með upplestri, leikþáttum, ljóða-
lestri, viðtalsþáttum og söng.
Veggir samkomusalarins voru
skreyttir myndum af verkefnum
nemendanna sem þeir hafa unnið
í skólanum undanfarnar vikur.