Morgunblaðið - 23.02.1999, Síða 21

Morgunblaðið - 23.02.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 21 NEYTENDUR Verðmerkingar í byggingavöru- verslunum 1988 Verðmerkingar í versiunum olíu- félaganna 1988 Verðmerkingar í byggingarvöru- verslunum og verslunum oliufélaganna Lakara ástand en í matvöruverslunum VERÐMERKINGAR í byggingar- vöruverslunum og í verslunum ol- íufélaganna eru mun lakari en í matvöruverslunum. Þetta kom fram í könnun sem Samkeppnis- stofnun lét gera á verðmerkingum í fyrrgreindum fyrirtækjum á síð- astliðnu ári. Að sögn Kristínar Færseth deildarstjóra hjá Samkeppnisstofn- un var í verslunum olíufélaga kannað hvort samræmi væri milli verðmerkinga framan á hillu og skráðs verð á kassa á 3.750 vörum. Ennfremur var kannað hvort vara væri verðmerkt í hillu. Niðurstöður sýndu að árið 1998 var samræmi milli hillu og kassaverðs í 83,5% til- vika. í byggingarvöruverslunum voru kannaðar samtals 1.127 vörur á síð- astliðnu ári. Niðurstöður sýndu að einungis var samræmi milli hillu- og kassaverðs í 77,1% tilvika." Til fróðleiks segir Kristín að megi geta þess að í matvöruverslunum var samræmi milli hillu- og kassaverðs í 93,2% tilvika. Samkeppnisstofnun hefur um árabil fylgst reglulega með ástandi verðmerkinga í mat- vöruverslunum. „Þetta virðist sýna okkur hvað eftirlit er nauðsynlegt. Öflugast er samt eftirlit neytenda og að þeir geri verslunareigendum viðvart ef verðmerkingum er ábótavant." Kristín segir að strikamerkingar á vöruumbúðum hafi leitt til þess að ýmsar verslanir hafi hætt að verðmerkja hverja vörueiningu. „Með því hefur kostnaðm- við verð- merkingar lækkað fyrir verslunar- eigendur. Þegar hætt er að merkja hverja vöraeiningu þýðir það á hinn bóginn fyrir neytendur að erf- iðara er að fylgjast með hvort rétt verð sé greitt fyrir þær vörar sem verið er að kaupa. Samkvæmt lögum er það skylda fyrirtækja að merkja vörur og þjónustu með söluverði. Hægt er að beita viðurlögum ef brotið er gegn þessum ákvæðum." Li'yinu lijnriíinii aöráöa! 1 Sólblóma er hátt hlutfall íjölómett- aðrar fitu og lítið af mettaðri. Með því að velja Sólblóma á brauðið dregur þú úr hættu á aukinni blóðfitu (kólesteróli) 815% lió%' I 411% ts ijs g £ Fita í 100 g Upplýsingar um uppruna ávaxta og grænmetis í VERSLUNUM Nýkaups er búið að setja upp skilti við ávaxta- og grænmetisborð þar sem koma fram upplýsingar um upprunaland vör- unnar, næringargildi í mörgum til- fellum og svo verð og mælieininga- verð. Lárus ísfeld, innkaupamaður hjá Nýkaup, segir að það sé mikilvægt fyrir viðskiptavininn að vita frá hvaða landi ávextirnir eru svo og grænmetið. „Þessar upplýsingar gefa fólki kost á að átta sig betur en ella á gæðum vörunnar og það á að geta gengið að því vísu að þegar það kaup- ir ananas frá Costa Rica þá bragðist hann öðruvísi en ananasinn sem kem- ur til dæmis frá Fílabeinsströndinni." Lárus segir að vinna við að koma þessum upplýsingum á framfæri til viðskiptavina hafi staðið yfir um skeið. Þegar hann er spurður hvort afbrigðaheitis ávaxta eða grænmetis sé einnig getið á þessum skiltum seg- ir hann að vilji sé fyrir því að koma þeim upplýsingum á framfæri líka. „Það þarf hins vegar að skoða betur því eins og málum er háttað núna er snúið að koma þeim upplýsingum á framfæri.“ Morgunblaðið/Kristinn Heilsan pm TTjamsKöffur aetur valdið slappleika leiða, námsörougleikum, lélegu úthaldi o.fl. VITABIOTICS - þar sem náttúran og vísindin vinna saman Fæst í flestum lyfjaverslunum Bókaðu í sólina www.urvalutsyn.is rfvrávori5'99!treymainri. reícWÚWlaSnýiumvorum. Til 28.febrúar seljum við valdar vörur með góðum afslætti. Úlpur, skíðagallar, peysur, íþróttafatnaður, skór o.fl. o.fl. asöÆ Nýtt greiðsluko rtatima b il Komdu og gerðu góð kaup! VINTERSPORT Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.