Morgunblaðið - 23.02.1999, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.02.1999, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 ÚR VERINU Morgunblaðið/Golli FJOLMENNI var á fundi Landssambands útgerðarmanna kvótalítilla báta á laugardag. Kvótaþingið á engan hljómgrunn hjá LUKS ________________________MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Forsetakosningar í Nígeríu Obasanjo þykir hafa styrkt stöðu sína Lagos, Abuja. Reuters. LANDSSAMBAND útgerðarmanna kvótalítilla skipa, LÚKS, samþykkti á laugardag að krefjast þess að Kvótaþing verði afnumið sem og veiðiskylda eða nauðsynlegar ráð- stafanir gerðar til rýmkunar fram- salsheimilda. I áiyktun fundarins kom einnig fram að gera yrði mönn- um, sem ættu lítinn eða engan kvóta, mögulegt að leigja hann á eðlilegu verði. Til fundarins var boðað vegna vanda félagsmanna. Jón Arnason, formaður LÚKS, sagði að félagið hefði verið stofnað í september sl. vegna stöðunnar - menn kæmust ekki á sjóinn. Hann sagði að Kvóta- þingið hefði verið til mikilla þreng- inga og í viðræðum við Sævar Gunn- arsson, fórmann Sjómannasambands Islands, hefði komið fram að hann hefði aldrei viljað Kvótaþing. „Það er ekkert því til fyrirstöðu að afnema Kvótaþing," sagði hann og bætti við að aðeins stjórnmálamenn vildu halda í það. „Ég legg til að það verði lagt niður því hlutur okkar er skert- ur með þessari lagasetningu.“ Allir á sama máli Fulltníum stjómmálaflokkanna var boðið að tjá sig og talaði Sighvat- ur Björgvinsson alþingismaður fyrir hönd Samfylkingarinnar. Hann sagðist alltaf hafa greitt atkvæði á móti kvótakerfinu en yfiriýsing Sæv- ars Gunnarssonar þess efnis að hann væri á móti Kvótaþingi kæmi sér mjög á óvart. Hún áréttaði að af- nema bæri Kvótaþing. ,Alþingi hlýt- ur að afnema þessa lagasetningu." Hins vegar sagði hann ekki miklar líkur á að mikill kvóti yrði í boði með frjálsum viðskiptum en jafnaðar- menn hefðu alltaf viljað veiðigjald. Hann sagði að breyta yrði kerfinu og vildi skoða það að gera svo í áföng- um. Minna flutt út frá Perú ÚTFLUTNINGUR sjávarafurða frá Perú féll um 59% á síðasta ári, úr 1,4 milljörðum bandaríkjadala í 580 milljónir samkvæmt upplýsingum samtaka sjávarútvegsins þar. Út- flutningur á fiskimjöli skilaði 330 milljónum dollara og lýsi 18 milljón- um. Útflutningur á niðursoðnum físki skilaði 39 milljónum og frystum físki 180 milljónum dollara. Heildar- fískafli varð 4,1 milljón tonna, sem er um 47% samdráttur frá árinu áður. A hinn bóginn er gert ráð fyrir að aflinn á þessu ári verði 6,6 milljónir tonna og verðmæti útflutnings um 930 milljónir dollara. Fundur samtak- anna krefst af- náms Kvótaþings Sjávarútvegsnefndarmaðurinn Arni Ragnar Arnason frá Sjálfstæð- isflokki sagði að ummæli Sævars hefðu vakið athygli allra, því allt fram að þessu hefði hann sagt að lög um Kvótaþing væru óaðskiljanlegur hluti niðurstöðunnar í kjaradeilu sjó- manna fyrir ári. Hins vegar fagnaði hann skoðun Sævars því hann sagð- ist aldrei hafa getað skilið að sjó- menn þyrftu á Kvótaþingi að halda. Arni Guðjónsson, sem var fulltrúi Kristilega lýðræðisflokksins, sagði að sjávarútvegsstefnan væri á kostn- að landsbyggðarinnar og las síðan upp tillögur flokks síns þar sem m.a. er lagt til að kvótakerfíð verði afnumið. Hann sagðist vilja sjá afla- gjald frekar en veiðileyfagjald og lagði áherslu á að greiða bæri hátt verð fyrir undirmálsfisk auk þess sem setja ætti útflutningsgjald á óunnar fiskafurðir. Hjörleifur Guttormsson frá Grænu framboði sagði það ný tíðindi fyrir marga ef Sjómannasambandið vildi Kvótaþingið út, ef rétt væri eft- ir haft, en vitnaði síðan í handbók flokksins um sjávarútvegsmál. Hann sagðist m.a. vera á móti frjálsu fram- sali veiðiheimilda en lagði áherslu á sjálfbæra þróun í sjávarútvegi og efla bæri smábáta- og bátaútgerð á nýjan leik. Veiðar verða-takmarkaðar Frá Framsóknarflokknum var Kristinn H. Gunnarsson, formaður sjávarútvegsnefndar. Hann minnti á að Kvótaþingið hefði verið sett á sem lausn í kjaradeilu í mars í fyrra og því teldi hann eðlilegt að talsmenn þessara samtaka kæmu skilaboðum til sjávarútvegsnefndai- eða sjávarút- vegsráðherra hafí þeir skipt um skoðun. Hann tók það fram að hann hefði ekki stutt frumvarpið og margt væri að í stjórn fiskveiða en ýmislegt væri samt ágætt í gildandi kerfi. Helstu vandamálin tengdust frjálsu framsali veiðiheimilda en menn yrðu að gera sér ljóst að veiðar yrðu tak- markaðar í framtíðinni. Eina lausn núverandi vanda fælist í auknum kvóta en ekkert væri í farvatninu í þá veru. Óskar Þór Karlsson, fulltrúi Frjálslynda flokksins, sagði að of- framboð væri á sjófrystum fiski en saltfisk- og ferskfiskmarkaðimir væru sveltir. Meinsemdin yrði ekki læknuð með veiðileyfagjaldi einu saman heldur yrði að fara alla leið, bjóða út veiðiheimildirnar, samanber stefnu flokksins, þar sem yrðu t.d. mörk á milli togara- og strandveiði- flota. „Grundvöllur fiskveiðistjóm- kerfis verður að vera heiðarleg sam- keppni á réttlætisgrundvelli,“ sagði hann. KOSNINGABARATTAN milli for- setaframbjóðenda í Nígeríu nær há- marki í þessari viku, en kosið verður næstkomandi laugardag. Úrslit þingkosninga um helgina þykja gefa til kynna að baráttan verði hörð en þar hafði flokkur Olusegun Oba- sanjo, fyrrum yfirmaður herforingja- stjómarinnar, betur þó að litlu hafi munað. Bundnar eru vonir við að kosningarnar um næstu helgi muni marka endalok fimmtán ára stjórnar hersins og verði upphaf efnahags- legra umbóta og stjórnarfarslegs stöðugleika í landinu. Hinn ráðandi stjórnmálaflokkur Nígeríu, PDP, sigraði naumlega í kosningum til nýs þjóðþings í Níger- íu sem fram fóru á laugardag. Obasanjo er í framboði fyrir PDP í forsetakosningunum og er með þessu talinn hafa styrkt stöðu sína. Olu Falae, fyrrverandi fjármálaráð- herra, er sameiginlegur frambjóð- andi vinstriflokkanna, APP og AD. Falae hefur sótt í sig veðrið síðustu daga en hann sagði, í samtali við Reuters-fréttastofuna um síðustu helgi vera þess fullviss að hann ætti eftir að bera sigur úr býtum í for- setakosningunum. „Nígeríubúar eru orðnir leiðir á hernum og herfor- ingjastjórn" sagði Falae. Báðir fram- bjóðendur heita umbótum í lýðræð- isátt og bættum kjörum almennings. Erlendir eftirlitsmenn sögðu kosn- ingamar hafa farið vel fram en kjör- sókn hafi hins vegar verið dræm og sögðust þeir vonast eftir betri kjör- FUNDI forsætisráðhen-a Indlands og Pakistans, þeirra Atal Behari Vaj- payee og Nawaz Sharif, í Lahore í Pakistan lauk á sunnudag með undir- ritun yfirlýsingar sem talin er marka upphaf þíðu í samskiptum ríkjanna tveggja. Mikil spenna hefur verið í samskiptum þeima frá þvl að þau gerðu bæði kjai-norkutilraunir í maí sl. Yfirlýsingunni hefur verið tekið með fyrirvara í pakistönskum fjöl- miðlum en forseti Indlands og ind- versk dagblöð lýstu mikilli ánægju með niðurstöðu fundarins í gær. Ríkin tvö hafa skuldbundið sig til þess að gera hvort öðru viðvart ef til- raunir verði gerðar með kjarnorku- vopn. Að auki munu þau gera viðvart ef eitthvað það hendir sem hleypt gæti af stað kjarnorkuátökum, t.d. vegna bilana í tækjabúnaði ellegar óleyfilegra aðgerða eða slysa. Atal Behari Vajpayee, ferðaðist með langferðabifreið til fundarins frá sókn næsta laugardag. Nýkjörið þing kemur í staðinn fyrir herforingjaþing sem farið hefur með löggjafarvald, en það hættir störfum 29. maí næst- komandi. Þann sama dag hefur nú- verandi leiðtogi landsins, herforing- inn Abdulsalami Abubakar, heitið því að hann muni fara frá völdum. Fjármagn skiptir niiklu Nígerísk stjórnmál þykja einkenn- ast af töluverðri spillingu og því talið nauðsynlegt fyrir forsetaframbjóð- endur að eiga aðgang að verulegu fjármagni, ekki síst þar sem margir kjósendur sjá sér leik á borði og selja atkvæði sín. Einnig setur tog- streita héraða og þjóðflokka mikinn svip á nígerísk stjórnmál. Báðir frambjóðendurnir, Obasanjo og Falae, eru af Yoruba-ættbálki frá suðvesturhluta Nígeríu. Meðal Yoruba er Falae talinn hafa meiri stuðning en Obasanjo, en á móti kemur að sá síðarnefndi er talinn sækja töluvert fylgi til annarra þjóð- arbrota sem byggja Nígeríu, sem er fjölmennasta ríki Afríku. Að auki er kosningasjóður Obasanjos talinn digrari en Falaes. Obasanjo var í forystu herfor- ingjastjórnarinnar í Nígeríu á árun- um 1976 til 1979 en afsalaði sér sjálf- viljugur völdum í hendur borgara- legrar ríkisstjórnar, sem Falae sat í sem fjármálaráðherra. Obasanjo nýtur góðs af því að hafa sagt af sér embætti, en á sama tíma gætu tengsl hans við herinn orðið honum að falli. Nýju-Delhí, höfuðborg Indlands, til landamæraborgarinnar Lahore i Pakistan. Þetta var fyrsta ferð áætl- unarbifreiðar yfir landamærin í 51 ár og þótti táknræn fyrir batnandi sam- skipti ríkjanna tveggja. Forseti Indlands, K.R. Narayanan, sagði í ræðu í indverska þinginu í gær að nýr kafli væri hafinn í samskiptum þjóðanna tveggja, sem framvegis mundu vinna saman að því að byggja upp trúnað og traust sín á milli. Margt er þó óleyst í samskiptum Pakistans og Indlands, sem hafa þrisvar sinnum á sl. hálfri öld háð stríð vegna deilunnar um yfirráð yfir Kasmír-héraði, sem skipt var á milli ríkjanna er þau hlutu sjálfstæði frá Bretum árið 1947. Benazír Bhutto, fyrrverandi for- sætisráðherra Pakistans, gagnrýndi Nawaz Sharif fyiir að hafa ekki tekist að semja um bann við kjamorkutil- raunum á leiðtogafundinum. Sævar Gunnarsson formaður SSI Rangi eftir haft SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands, sagði að formaður LÚKS hefði ekki verið með nein skilaboð frá sér á fundinum á laugardaginn og því hefði verið rangt eftir sér haft. „Hann var ekki með nein skila- boð frá mér, því ég flyt sjálfur málflutning Sjómannasambands- ins en ekki aðrir fyrir mig,“ sagði Sævar við Morgunblaðið. „Það er þannig, verður þannig og á því verður engin breyting. Hins veg- ar átti ég fund með þessum mönnum á fóstudaginn og við fór- um yfir málið. Ég sagði við þá í þessu sambandi að öll sjómanna- samtökin hefðu hreint ekki beðið um Kvótaþing á sínum tíma. Heldur ekki Verðlagsstofu eða lagasetningu almennt heldur hefðu þetta verið hugmyndir stjómmálamanna og ráðuneytis- stjóra nefndarinnar. Okkur hefði verið gert það að skyldu að taka allan pakkann eða ekkert og við hefðum tekið pakkann sem til- raun í tvö ár. Við báðum um að allur fiskur yrði verðmyndaður á markaði eða um markaði.“ Sævar var ekki á umræddum fundi og var óánægður með að vera bendlaður við málið á þenn- an hátt. „Það er með ólíkindum að menn skuli leyfa sér svona lagað því það er ekki nema einn tals- maður Sjómannasambandins og hann heitir Sævar Gunnarsson. I Ijósi þessarar umræðu sem þarna átti sér stað er þessum mönnum ekki treystandi að fara með nokkra hluti rétt. Þetta er alrangt sem eftir mér var haft. Að öðru leyti ítreka ég að þetta var hluti af pakka sem okkur var réttur og við þáðum en við áttum hvorki upphaf né hugmyndir að honum.“ Reuters FORSÆTISRÁÐHERRAR Pakistans og Indlands, Nawaz Sharif og Atal Behari Vajpayee, handsala Lahore-yfirlýsinguna, sem þeir undirrituðu á fundi um helgina. Lahore-yfirlýsingin markar timamót á Indlandsskaga Upphaf þíðu í sam- skiptum Pakistans og Indlands Karachi, Nýju-Delhí. Reuters.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.