Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 23
ERLENT
Framlengdur samkomulagsfrestur Serba og Kosovo-Albana rennur út í dag
Samningar ganga erfiðlega
í Rambouillet-kastala
Rambouillet, Pristina. Reuters.
Reuters
MILAN Milutinovic, forseti Júgóslavíu, á gönguferð við Rambouillet-
kastala unikringdur öryggisvörðum.
SIGLI viðræðurnar í strand
vegna óbilgirni Serba verða loft-
árásir gerðar, en segi Kosovo-Al-
banar nei verður öllum stuðningi
hætt við baráttu þeirra.“ Þessi
orð lét utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Madeleine Albright,
falla á laugardag er frestur samn-
ingamanna Serba og Kosovo-Al-
bana var framlengdur um þrjá
daga í von um að þeim takist að
semja um frið í Kosovo-héraði
fyrir þann tíma. Albright hefur
mjög þrýst á samningamenn í
Rambouillet-kastala um helgina
og setð á löngum fundum með
fulltrúum Serba og Kosovo-Al-
bana.
Frestur Serba og Kosovo-Al-
bana til þess að ná samkomulagi
um friðaráætlun Tengslahópsins
svokallaða var framlengdur til
klukkan tvö eftir hádegi í dag.
Pólitískt samkomulag virtist í
sjónmáli um helgina en stjórn-
völd í Belgrad létu ekki af and-
stöðu sinni við að hersveitir
NATO-ríkja þyrfti til þess að
framfylgja friðarsamkomulagi í
Kosovo.
Hótanir um loftárásir
enn í fullu gildi
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði á
laugardag að Slobodan Milosevic,
forseti Júgóslavíu, skyldi ekki
túlka frestinn með þeim hætti að
hótanir um loftárásir væra ekki
enn í fullu gildi. Fram kom í máli
Huberts Vedrine, utanríkisráð-
heraa Frakklands, á fréttamanna-
fundi utanríkisráðherra Tengsla-
hópsins, Bandaríkjanna, Bret-
lands, Frakklands, Ítalíu, Þýska-
lands og Rússlands, að fresturinn
hefði verið veittur vegna þess „að
mjög hefði miðað í samkomulags-
átt um pólitísk ágreiningsatriði í
viðræðunum."
Dini segir Kosovo-Albana einnig
bera ábyrgð á seinagangi
Albright sakaði Serbana um að
bera höfuðábyrgð á því hversu
seint og illa gengi á komast að
samkomulagi í Rambouillet-kast-
ala. Lamberto Dini, utanríkisráð-
herra Italíu, sagði hins vegar
rangt að skella allri skuldinni á
Serba. Samningamenn Serba
hefðu samþykkt tillögur um sjálfs-
stjóm Kosovo-héraðs en Kosovo-
Albanir héldu enn fast í kröfu sína
um þjóðaratkvæði um fullt sjálf-
stæði héraðsins að þremur áram
liðnum.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Rússlands, Alexander Avdejev, ít-
rekaði þá afstöðu rússneskra
stjórnvalda að það væri algjörlega
í höndum í stjórnvalda Júgóslavíu
að samþykkja vera NATO-herliðs
í landinu, auk þess sem NATO
hefði engan rétt til þess að grípa
til hemaðaraðgerða án umboðs til
slíks frá Sameinuðu þjóðunum.
„Ég vil leggja áherslu á að við
ætlumst til þess að deilendur nái
samkomulagi, þar með talið að
stjómvöld í Belgrad samþykki
komu NATO-herliðs til landsins,"
sagði Albright á blaðamannafund-
inum á laugardag. „NATO mun
fram halda undirbúningi hernað-
araðgerða þar til allir liðir friðar-
samkomulagsins hafa verið sam-
þykktir.“
Miðaði hægt á
sunnudag
Lítið vh-tist miða í samkomulags-
átt á sunnudag. Samninganefnd
Kosovo-Albana vildi ekki sam-
þykkja tillögur um sjálfræði héraðs-
ins án þess gengið verði til atkvæða
um sjálfstæði að þremur áram liðn-
um. Albright sat á fundi með nefnd-
inni í þrjár klukkustundir á sunnu-
dag í tilraun til þess að fá hana til
þess að falla frá kröfunni um þjóð-
aratkvæðagreiðslu, en án árangurs.
Milan Milutinovic, forseti Serba,
sat við sinn keip og lét ekki undan
kröfum utamíkisráðherra Banda-
ríkjanna um að leyfa vera NATO-
herliðs í Kosovo. Serbar lögðu fram
hugmyndir um að herlið frá Sam-
einuðu þjóðunum og Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu (ÖSE)
kæmi í stað NATO-sveita en slíkar
tillögur eiga engan hljómgrann í
Tengslahópnum.
Loft lævi blandið
Frá því að samningaviðræður
hófust fýrir rúmlega tveimur vikum
hafa samninganefndimar aðeins
einu sinni ræðst við augliti til
auglitis. Mikil tortryggni ríkir á
milli nefndanna. TO merkis um það
er að einn Kosovo-Albananna sagði
samninganefnd Serba hafa hótað
sér lífláti. En ekki er allt sem sýn-
ist. Heimildamaður breska dag-
blaðsins Time lýsti því er hann
gekk inn í herbergi serbnesku
samninganefndarinnar, þar sem
Milutinovic forseti og menn hans
vora í óða önn að semja breytinga-
tillögur við kafla áætlunar Tengsla-
hópsins um hernaðaraðgerðir.
„Þeir sátu ekki með hendur í skauti
og biðu þess að loftárásir yrðu
gerðar," hefur blaðið eftir heimilda-
manninum.
Honda á islandi • Vatnagörðum 24 • Sími 520 I 100
Opið virka daga kl.9-18 og kl. 12-16 á laugardögum
HONDA
- betri bíll
OKKAR MARKMIÐ ER AÐ ÞU NAIR ÞINU
Það krefst sérstakrar þekkingar og tækni að búa til þægilegan en jafnfamt kraftmikinn fjölskyldubíl.
Við nýtum reynslu okkar úr kappaksturskeppnum víða um heim til að gera spræka og kraftmikla
vél, þjált gírakerfi og sportlega fjöðrun. Við nýtum áratugalangt þróunarstarf okkar færustu
vísindamanna til að tryggja hámarks öryggi ökumanns og farþega. Við nýtum rannsóknir NASA
á líkamsstuðningi og plássþörf við hönnun innra rýmis
til að ná hámarksþægindum og nýtingu.
Takmark okkar er að búa til bil sem þjónar þér betur.
Frá 1.598.000 kr.
Prófaðu Honda Civic Aero Deck - og þú finnur um leið að okkur hefur tekist það býsna vel.