Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK í FRÉTTUM
Nr. var vikur Mynd Útgefondi Tegund
1. NÝ 1 Perfett Murder Warner myndir Spenna
2. 2. 2 X-files Mjvie, The Skífan Spenna
3. 3. 2 Deep Rising Myndform Spenna
4. 1. 2 Avengers Warner myndir Gaman
5. 4. 6 Six Days Seven Nights Sam myndbönd Gaman
6. 5. 3 Mnfia! Sam myndbönd Gaman
7. NÝ 1 Kissing a Fool Myndform Gaman
8. 6. 5 Senseless Skífon Gaman
9. 7. 7 Sliding Doors Myndform Gaman
10. NY 1 Disturbing Behavior Skífan Spenna
11. NY 1 Polmetto Warner myndir Spenna
12. 9. 4 Hope Floats Skífan Drama
13. 10. 6 Godzilla Skífan Spenna
14. 8. 10 Mercury Rising CIC myndbönd Spenna
15. 12. 8 Red Corner Warner myndir Spenna
16. 11. 3 1 Got The Hook-up Skífan Gaman
17. 14. 5 Wrongfully Accused Sam myndbönd Gaman
18. 13. 2 Bright Shining Lie Bergvík Drama
19. 16. 9 Lethal Weapon 4 Warner myndir Spenna
20. NÝ 1 Since You've Been Gone Skífan Gaman
IJLUillJLÍJlllUlilliaiOIlTTimnTÍTJJ
Tónleíkar
GUS GUS í FLUGSKÝLI 4
Tdnleikar Gus Gus, Grindverks og
Sigur Rósar í Flugskýli 4 á Reykja-
víkurflugvelli. Áheyrendur vel á ann-
að þúsund. Laugardagskvöldið 20.
febrúar.
GUS GUS-flokkurinn hefur haft
hægt um sig undanfarið, enda hefur
vinna við væntanlega breiðsldfu verið
í fullum gangi. Nú er þeirri vinnu lok-
ið, fyrsta smáskífan komin í útvarp og
við hæfi að hefja áhlaup á evrópska
plötukaupendur með tónleikum hér á
landi. Þeir tónleikar voru svo haldnir
í Flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli;
djörf ákvörðun og mikil áhætta sem
gekk fullkomlega upp.
Grindverk var fyrst á svið, skipuð
þeim Einari Erni Benediktssyni,
Sigtryggi Baldurssyni og Mark Bell,
í fjarveru Hilmars Arnar Hilmars-
sonar. Grindverk flutti hægfara
mulningsvélarokk/danstónlist og
gerði það mjög vel; hrekkti áheyr-
endur og hrinti til og frá; átti vel við í
hráu umhverfínu. Sérstaklega vai-
Mark Bell öflugur á hljóðsmala og -
sarpa.
Sigur Rós var framúrskarandi að
vanda og með Steindór Andersen
kvæðamann sér til halds og trausts í
upphafslagi tónleikanna. Steindóri
var vel fagnað af viðstöddum ung-
Morgunblaðið/Arnaldur
Á ANNAÐ þúsund áheyrenda var á tónleikunum.
Skak í
Skerjafirði
mennum, sem drukku í sig rímna-
kveðskapinn í bland við mótaða
hrynþunga bjögun. Sérdeilis gaman
var að heyra í sveitinni í öflugu
hljóðkerfí sem skilaði tónlistinni og
tónlistarvímunni vel út í salinn.
Biðin eftir Gus Gus var drjúg og
spennan magnaðist jafnt og þétt með
áheyrendum. Þegar sveitin birtist
síðan hóf hún leikinn á sinni nýjustu
smáskífu, grípandi stuðlagi sem hún
kallar Ladyshave. Aheyrendur
kunnu því bráðvel og fögnuðu ákaft,
sem gaf tóninn fyrir framhaldið.
Ekki var nema eitt gamalt lag á tón-
leikadagskránni þetta kvöld, Believe.
Það hljómaði reyndar eins og nýtt
með taktsyrpuna sem bar lagið uppi
á sínum tíma leitmotiv sem hvarf
jafnharðan og það laumaðist að. Féll
bráðvel inn í hina nýju nútímalegu
straumlínulaga Gus Gus og gaman
að heyra og sjá hversu vel tónlistin
féll í kramið þótt viðstaddir hafi ver-
ið að heyra nánast öO lögin í fyi-sta
sinn. Annars var lagalistinn sem hér
segir: Ladyshave, Teenage
Sensation, Starlovers, Very Import-
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Daníel Ágúst Haraldsson var
brennidepillinn á tónleikum
Gus Gus
ant People, Believe, Superhuman,
Acid Milk, Dominique og Love vs
Hate.
Það gerist ekki betra
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Sigur Rós: „Við gætum tryllt af
stað / út í óvissuna."
TÓALIST
bandavef Myndmarks www.mynd-
bond.is og voru léttar veitingar í
boði í tilefni af því.
Að því loknu var rútuferð í Gull-
hamra þar sem við tók borðhald,
happdrætti með glæsilegum vinn-
ingum og verðlaunaafhending und-
ir veislusijiírn Halldórs Backmans.
Það gerist ekki betra frá Skífunni
var valin besta gamanmynd og
mynd ársins. Wild Things frá Skíf-
unni var valin óvæntasta mynd
ársins. Newton Boys frá Skífunni
þótti besta frumsýnda mynd árs-
ins. Sam-myndbönd þóttu gefa út
bestu barnamyndir, leigumynd-
bönd. Besta listræna myndin var
valin Sling Blade frá Skífunni.
Good Will Hunting frá Skífunni
var besta dramamynd ái’sins og
Face/Off frá Sam-myndböndum
besta spennumynd ársins.
Að loknu borðhaldi og öðrum
uppákomum hélt Skitamórall uppi
Qöri á dansgólfinu fram á nótt.
Morgunblaðið/Arnaldur
HAFDÍS Huld söngkonan
í Gus Gus.
Daníel Ágúst Haraldsson er fyrir-
taks söngvari og frábær sviðsmaður
með sterka útgeislun og útpælda
framkomu. Hann er og brennidepill-
inn á tónleikum Gus Gus; þegar hann
er í formi og frískur gengur allt upp.
Svo var og þetta kvöld í Flugskýli 4,
en þegar Hafdís Huld og Magnús
Jónsson sungu datt stemmningin
heldm- niður. Þau stóðu sig reyndar
bráðvel, en stóðu og standa óneitan-
lega í skugganum af Daníel.
Tónlistin sem gaf forsmekkinn að
væntanlegri breiðskífu kom vel út,
fjörug og kraftmikil danstónlist.
Acid Rain var til að mynda geggjuð
ruðningsvél og Teenage Sensation
skemmtilegt með þungum dimmum
takti.
Gus Gus er fyrir augu ekki síður
en eyru og myndskreyting laganna
yfírleitt vel heppnuð og þegar mest
lét féllu mynd og hljóð saman í
ógleymanlega upplifun. Reyndar var
ekki nema myndskreytingin við
Superhuman misheppnuð, íyrirsjá-
anleg og banal.
Eins og getið er í upphafi tók Gus
Gus mikla áhættu með tónleikunum
en sú áhætta gekk fyllilega upp; tón-
leikar sveitarinnar voru frábær
skemmtun og gott innlegg í íyrir-
hugaða sókn sveitarinnar inn á Evr-
ópumarkað. Nú er bara fyrir aðra að
feta í fótspor sveitarinnar og halda
tónleika í Flugskýli 4, því það er
bráðgóður tónleikastaður.
Árni Matthíasson
VINSÆLU
MYNDBÖNDIN
A ISLANDI
. MIKIÐ var um dýrðir á Mynd-
bandahátíð ársins sem haldin
var á laugardag í Gullhömrum.
Veitt voru verðlaun í ýmsum
flokkum og bar hæst þegar Jó-
hanna Einarsdóttir hjá Mynd-
formi var valin sölumaður ársins.
Er það í fyrsta skipti sem kona
verður fyrir valinu í því kjöri.
Annars bar Skifan höfuð og
herðar yfír aðra myndbandaútgef-
endur að þessu sinni og hreppti
alls sjö verðlaun um kvöldið. Þar á
meðal voru verðlaun fyrir bestu
markaðssetningu og mynd ársins
sem valin var Það gerist ekki betra
eða As Good As It Gets með Jack
Nicholson og Helen Hunt í aðal-
hlutverkum. Sam-myndbönd og
Warner-myndir þóttu með besta
auglýsingaefnið.
Dagurinn var tekinn snemma á
þessum hápunkti á myndbanda-
markaðnum þegar efnt var til há-
- \ tíðarsýningar í Laugarásbíói á
Isson, Unnur
-ún Erlends-
lasta pússi.
gamanmyndinni „Biast From the
Past“ með Brendan Fraser og
Aliciu Silverstone í aðalhlutverk-
um. Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra vígði síðan nýjan mynd-
Paltrow
kemur
víða við
FULLKOMIÐ morð eða
„A Perfect Murder" er í
efsta sæti myndbandaiist-
ans þessa vikuna. Hún er
endurgerð á gömlu
Hitchcock-myndinni „Dial
M for Murder“ og fara
þau Gwyneth Paltrow og
Michael Douglas með að-
alhlutverkin. Aðrar nýjar
inyndir á listanum eru
„Að kyssa fáráð“ eða
„Kissing a Fool“ sem fer
beint í sjöunda sætið,
„Ruglað framferði" eða
„Disturbing Behavior“ og
„Palmetto“ í 10. og 11.
sæti. Gamanmyndin „Frá
því þú fórst“ eða „Since
You’ve Been Gone“ er í
20. sæti listans.
Gwyneth Paltrow er af-
ar vinsæl þessa dagana og
á lista vikunnar er hún
ekki eingöngu í efsta sæti
listans heldur er hún
einnig í sjöunda sæti list-
ans í myndinni „Sliding
Doors“. Þar að auki er
Paltrow tilnefnd til
Oskai-sverðlauna fyrir
bestan leik í aðalhlutverki
kvenna í myndinni
„Shakespeare in Love“
sem frumsýnd var um
helgina í Reykjavík.
Vinsælt virðist einnig
um þessar mundir að end-
urgera myndir gamla
meistarans Hitchcock því
önnur mynd meistarans,
„Psycho", verður sýnd í
bíóliúsum Reykjavíkur
bráðlega, en hún er ná-
kvæm endurgerð á fyrir-
rennara sínum, ramma
fyrir ramma. Ekki var sú
leið farin í „Fullkomnu
morði", heldur myndin
færð nær nútím-
anum.
Fyrri
myndin
eftir
meistara
Hitchcock
var gerð
árið 1954.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞAU sópuðu til sín verðlaunum: Stígur Sigurbjartarson fyrir
Sam/Warner, Ómar Friðleifsson fyrir Sam/Warner, Karl Dúi Karlsson
fyrir Skífuna og Jóhanna Einarsdóttir frá Myndformi sem valin var
besti sölumaðurinn.
BJÖRN Bjarnason opnaði vef-
síðu Myndmarks og með honum
á myndinni er Jón Valur og
hönnuður vefsíðunnar Ólafur
Jón Jónsson hjá Sporbaugi.
Myndbandahátíð Myndmarks
Myndbandalisti
vikunnar