Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Jöfn og spennandi keppni
dóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Unnur Elísa-
bet Gunnarsdóttir og Tinna Agdstsdóttir. I öðru
sæti hafnaði hópurinn Gossip frá Kópavogi og í
því þriðja hópurinn La Luna sem einnig er úr
Kópavogi.
Eyrún Arna
hlutskörpust
I einstaklingskeppninni bar Eyrún Arna Eyj-
ólfsdóttir úr Reykjavík sigur úr býtum, en í öðru
sæti var Sunna María Schram frá Reykjavík og í
því þriðja Linda Pétursdóttir frá Kópavogi.
Kynnir keppninnar var Björgvin Franz Gísla-
son sem hélt uppi góðri stemmningu með gam-
anmálum og söng og þótti ekkert gefa eldri og
þekktari fyrirrennurum sínum eftir. Var það
mál aðstandenda keppninnar að kvöldið hefði
heppnast vonum framar og Ijóst væri að sjaldan
hefði verið jafn mikill áhugi á keppninni og
núna í ár.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
EYRÚN Arna Eyjólfsdóttir sigraði í
einstaklingskeppninni.
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ fór fram íslands-
meistarakeppni unglinga 13-17 ára í frjálsum
dönsum einstaklinga og hópa í Félagsmiðstöð-
inni Tónabæ. Þessi keppni hefur aflað sér mik-
iila vinsælda þau átján ár sem hún hefur verið
haldin og í Tónabæ á fóstudagskvöldið var mikil
stemmning og húsið troðfullt af áhugasömum
áhorfendum.
Undankeppnir höfðu farið fram um allt land og
í lokakeppninni kepptu 20 hópar um vinningssæti
og tólf þátttakendur voru í keppninni í einstak-
lingsdansi. Dómnefnd var frá Dansráði Islands og
sögðu þau að erfitt hefði verið að gera upp á milli
allra því keppnin hafi verið jöfn og spennandi.
Kristall í fyrsta sæti
En þegar dómnefnd hafði gert upp hug sinn
var það gert opinbert að í hópakeppninni var það
hópurinn Kristall frá Reykjavík sem hreppti 1.
sætið, en í hópnum eru þær Hjördís Lilja Ornólfs-
Restaurant
Nightclub
BRAUTARHOLTI 20
SÍMI 552 8100
www.thorscafe.com
kynnir:
Föstudaginn 26. febrúar
Islandsmeistarakeppnin
í erótískum dansi 1999
Fjórréttuð máltíð með drykkjum, kr. 6.950
Grafinn lambavöðvi með rúsínusósu.
Grilluð risahörpuskel og humar með saffransósu
Nautalundir með rauðvínssósu og gratíneruðum jarðeplum.
Erótísk endalok.
Sérvalinn drykkur með hverjum rétti.
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4539-8700-0003-2001
4539-8700-0003-2019
4539-8100-0003-9374
4539-8100-0003-8897
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4543-3700-0024-0435
4507-4300-0022-4237
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
SIGURDANS Eyrúnar.
KRISTALL í frjálsri sveiflu.
KRISTALL vann hópakeppnina.
DÓMNEFNDIN átti úr vöndu að ráða.
Húsið opnað kl. 19.00.
Tekið verður á móti gestum með
fordrykk. Borðhald hefst kl. 20.00.
Keppnin sjálf hefst kl. 22.45 stundvíslega.
Sent út á Sjn og Mono t beinni
Kynnir: Rósa Ingólfsdóttir
Veislustjóri: Olafur Már Jóhannesson
Borðapantanir í síma 552 8100.
SÍÐASTA
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐIÐ..!
/ Viltu margfalda lestrarhraðann og auka afköst í starfi?
/ Viltu margfalda lestrarhraðann og auka afköst í námi?
Ef svarið er jákvætt, skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestrar-
námskeið vetrarins sem hefst fimmtudaginn 4. mars n.k.
Skráning er í síma 565 9500
HRAÐLESTRARSKÓLINN
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn