Morgunblaðið - 24.03.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 21
Kaupfélag Suðurnesja Úr ársreikningi 1998
fíekstrarreikningur 1998 1997 Breyt.
Rekstrartekjur Milljónir króna 2.243,0 2.119,6 +5,8%
Rekstrargjöld 2.163,0 2.068,2 +4,6%
Fjármunatekjur (tjármagnsgjöld) 1,5 -9,5
Hagnaður af reglui. starfsemi 81,4 41,9 +94,3%
Óreglul. tekjur og (gjöld) -0,4 2,2
Hagnaður ársins 59,6 30,4 +96,1%
Efnahagsreikningur 31.12.98 31.12.97 Breyt.
I Eignir: \ Fastafjármunir Milljónir króna Veltuf jármunir 412,5 380,3 426.4 299.4 -3,3% +27,0%
Eignir samtals 792,7 725,8 +9,2%
L Skuldir 00 eíaiú té: \ Sjóðir og eigið fé 302,6 238,7 +26,8%
Langtímaskuldir 184,4 199,5 -7,6%
Skammtímaskuldir 305,7 287,5 +6,3%
Skuldir og eigið fé samtals 792,7 725,8 +9,2%
Sjóðsstreymi 1998 1997 Breyt.
Handbært fé frá rekstri Milljónir króna 114,2 105,0 8,8%
Veltufjárhlutfall 1,2 1,0
Eiginfjárhlutfall 38,0% 32,9%
Kaupfélag Suðurnesja
Hagnaðurjókst
um 96,1
KAUPFÉLAG Suðurnesja skilaði
59,6 milljóna króna hagnaði árið
1998 sem er 96,1% aukning frá
fyiTa ári er hagnaður félagsins
nam 30,4 milljónum króna. Hagn-
aður af reglulegri starfsemi nam
81,4 milljónum króna samanborið
við 41,9 milljónir króna árið 1997.
Kaupfélag Suðumesja er alhliða
samvinnufélag og er tilgangur þess
að annast almenna verslunarstarf-
semi, iðnað og þjónustu ýmiskonar.
Félagssvæði þess er Suðurnes,
Hafnarfjörður, Garðabær og
Bessastaðahreppur.
Kaupfélagið rak á árinu átta
matvöruverslanir: þrjár Samkaups-
verslanir í Hafnarfirði, Njarðvík og
Isafirði, þrjár Sparkaups-verslanir
í Keflavík, Sandgerði og Garði, lág-
vöruverslunina Kasko í Keflavík og
síðan litla þjónustuverslun í Kefla-
vík. Þá rak félagið kjötvinnsluna
Kjötsel í Njai'ðvík.
prosent
I árskýrslu kaupfélagsins kemur
fram að í kjölfar umræðu í félaginu
á liðnum ámm um breytingu á
rekstrarformi þess var í lok ársins
stofnað hlutafélagið Samkaup með
það fyrir augum að það félag yfir-
tæki verslunarrekstur kaupfélags-
ins á ái'inu 1999. Hinn 1. janúar
1999 tók svo hið nýja félag, Sam-
kaup hf., við öllum rekstri verslana
og kjötvinnslu Kaupfélags Suðui--
nesja.
Samkaup stefna á markað
Stefnt er að því í framtíðinni að
Samkaup verði opið félag á hluta-
bréfamarkaði. Fyrirhugað er að fé-
lagsmönnum kaupfélagsins verði
boðinn forkaupsréttur við væntan-
lega hlutafjáraukningu í Samkaup-
um hf. síðar á árinu. Heildarhlutafé
Samkaupa er nú 225 milljónir
króna, allt í eigu Kaupfélags Suð-
umesja.
Lyfja kaupir hlut í Húsavíkur Apóteki
Samstarf vegna
verðsamkeppni
LYFJA HF. hefur keypt þriðj-
ungshlut í Húsavíkur apóteki af
Guðna Kristinssyni lyfsala og
eiginkonu hans Dagbjörtu Þyrí
Þorvarðsdóttur, sem eftir söl-
una eiga 2/3 hluta apóteksins.
Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Húsavíkur apóteki er
tilgangurinn með sölunni að
apótekið komist í samstarf við
sterkan aðila sem nýtur bestu
kjara hjá heildsölum og öðrum
sem apótekin versla við.
Guðni Kristinsson lyfsali í
Húsavíkur Apóteki sagði í
samtali við Morgunblaðið að
ekki hefði verið um annan
möguleika fyrir sig að ræða en
fara í samstarf við Lyfju. „Það
var enginn annar möguleiki,
fólk ber verð svo mikið saman
við það sem býðst á fjölmenn-
ari stöðum. Einyrkjar eiga litla
möguleika í þessari miklu sam-
keppni sem ríkir á lyfjamark-
aðnum,“ sagði Guðni.
Guðni sagðist vonast til að
geta lækkað verðið í apóteki
sínu umtalsvert í kjölfar breyt-
inganna. „Það er tilgangurinn
með þessu og ég á von á að fólk
verði vart við verðbreytingar
strax á fimmtudaginn.
Guðni segir að með þessu
telji hann apótekið verða sam-
keppnishæft við lyfjaverslanir
á Akureyri og í Reykjavík.
„Það er mikill fastakostnaður
við rekstur apóteks, hár launa-
kostnaður og annað, sem erfitt
er að draga úr, og því er erfitt
að hagræða í rekstrinum.
Ég er mjög bjartsýnn á
þetta samstarf og vona að fólk
þurfi héðan í frá ekki að leita
út fyrir bæjarmörkin eftir lyfj-
um,“ sagði Guðni.
Húsavíkur apótek og Lvfja
munu einnig hafa samvinnu af
ýmsu tagi og t.d. mun sam-
vinna verða við vinnu á
fræðsluefni sem bæði fyrirtæk-
in njóta góðs af, að sögn
Guðna.
818SIB'
HM QUARTZ
nXIKÍD"
Takmarkaður sýningafjöldi: mið. 24/3 : fim. 25/3
fös. 26/3 : mið. 31/3 : fim. 1/4 : mið. 7/4 : fim. 8/4 : fös. 9/4
„Mikið var skemmtilegt... að
fara niður í Iðnó í hádeginu,
borða súpu og horfa á leikrit”
S.A. DV 22/2
„Samskipti persónanna eru
tekin föstum dramatískum
tökum og vel er unnið úr
efninu” s.H. MBL 19/2
„Það var gaman að koma ... og
sjá einþáttung Kristjáns
Þórðar Hrafnssonar”
G.S. Dagur 23/2
„Sýningin er skemmtileg”
S.H. MBL 19/2
Einróma dómar
„Hádegisstundin í Iðnó er
hugguleg og ... vel heppnuð”
A.E. DV 19/2
„Verk Kristjáns er skýrt og
skemmtilegt” m.þ.i>. rúv 1/3
„Hlý og góðlátleg kímni litar
textann. Slíkur eiginleiki er
dýrmætur” G.S. Dagur 32/2
„Magnús Geir Þórðarson
leikstýrir verkinu bráðvel og
er sérstaklega útsjónasamur”
S.H. MBL 19/2
Borðhald hefst kl. 12:00. Sýningin hefst kL12:20 og lýkur um k!.12:50.
V
ferðaskrifstofa
stúdenta
Miðaverð kr.1.300,- Innifalið er rjómalöguð
sveppasúpa með heitu brauði.
Höfundur. Kristján Þórður Hrafhsson
Ijoikstjóri: Magnús Geir Þóiðarson
Leikendun Gunnar Hansson og Linda Ásgeirsdóttir
vaka hugafell Patitaðu tímanlegct ístma 5 30 30 30