Morgunblaðið - 24.03.1999, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 47
Olafur konungur
Tryggvason
vitj ar nafns
Það er ævaforn og jafnframt þjóðlegur
siður að nefna börn eftir söguhetjum,
köppum er gátu sér frægðarorð, hetjum,
sem fóru í fylkingarbrjósti á vígvelli,
herkonungum er lögðu undir sig lönd
og þjóðir, kristnuðu bændur og hótuðu
hörðu ef þeir köstuðu eigi trú feðranna
af frjálsum vilja. Pétur Pétursson
--------------- -----------------7-------
kann að segja frá því hvernig Olafur
Thors fékk Olafs-nafnið.
SAGA Ólafs konungs
Tryggvasonar, sem Tinna
Gunnlaugsdóttir les óm-
þýðri rödd um þessar
mundir í dagskrárþættinum Víð-
sjá, er eitt dæmi af mörgum um
menningargrundvöll þann er Is-
lendingar færa Norðmönnum á
silfurfati. Beram saman framlag
Holdös hins norska athafna- og
stórþingsmanns er réð ríkjum í
Krossanesi og mældi síld er ís-
lenskir sjómenn færðu að landi,
krafðist sjálfdæmis um stærð og
gerð sjálfum sér til hagsbóta og
sagnasjóð þann er Snorri Sturlu-
son færði Norðmönnum að gjöf án
kröfu um ritlaun fyrir stórvirki,
sem veitti þeim þjóðlegan metnað
og rétti hlut þeirra, efldi þrek og
þrótt og jók þeim lífsmagn og
löngun.
Gott var að Tinna lagfærði
framburð sinn á nafni Ástríðar
drottningar. Þess gætir oft að ung-
ir leikarar, sem standa nú í sviðs-
ljósi samtíðar, hafa farið, margir
hverjir á mis við nauðsynleg
sagnatengsl við fyi'ri tíð. Keflið
þarf að ganga hönd úr hendi.
Breyttir þjóðhættir, orð, sem
rekja uppruna sinn til atvinnu-
hátta fyrri tíðar, líkingamál, sem
er viðkvæmt og vandmeðfarið. Allt
er það sameiginlegur sjóður sem
ber að varðveita þótt heilsa beri
með fögnuði nýyrðum og frjóvgun
tungutaks.
Tinnu ber þökk fyrir greindar-
legan og góðan lestur.
Nú skal enn vikið að nafngiftum.
Mörgum foreldrum mun það minn-
issætt er velja skyldi nýfæddu
barni nafn. Þá var margs að gæta.
Ættmenni og vinir, sem hafa þurfti
í huga. Oft risu deilur og jafnvel
óvild vegna nafngiftar. Stundum
var gripið til tvínefna til þess að
sætta sjónarmið. Það henti einnig
að nafns var vitjað í draumi. Þá
var höggvið á hnút og vandi for-
eldra leystur.
Engum sögum fer af því hvort
Thor Philip Axel Jensen búhöldur-
inn mikli og útvegsbóndinn frægi
og eiginkona hans, Margrét Þor-
björg Kristjánsdóttir, hafí valið
barni því er frú Margrét bar undir
belti nafn þegar leið að fæðingu og
maður var sendur að sækja ljós-
móður aðfaranótt 19. janúar 1892.
Hjónin bjuggu í Borgarnesi þar
sem Thor Jensen var kaupmaður,
en hafði áður gegnt faktorsstöðu.
Sendimaðurinn ríður greitt í átt að
Rauðanesi í Borgarhreppi. Það er
8 km leið. Þar bjuggu þá hjónin
Helgi Þórarinsson, bróðir séra
Kristjáns Eldjárns Þórarinssonar,
afa Kristjáns Eldjárns forseta, og
kona hans, Jórunn Jónsdóttir frá
Ásbjarnarstöðum í Stafholtstung-
um. Jórunn hafði numið ljósmóð-
urfræði hjá Jóni Hjaltalín land-
lækni, ein hin fyrsta af nemendum
hans. Jórunn dvaldist um alllangt
skeið í Reykholti. Þar kynntist hún
Helga er þá dvaldist í fóðurgarði,
en Þórarinn faðir hans var um
skeið prestur í Reykholti. Prests-
syninum unga leist vel á ljósmóð-
urina. Gekk til hennar og ávai'paði
svofelldum orðum:
Viltu ei rjóða veigalín
vera góda konan mín.
Svo mjög treystu bændur í
Andakíl á „líknarhendur" Jórunn-
ar sem ljósmóður að þeir byggðu
út leiguliðum að Tungutúni til þess
að Helgi og Jórunn gætu búið í
héraðinu og sveitin notið þekking-
ar Jórunnar og þjónustu. En síðan
það gerðist voru liðnir áratugir og
bjuggu þau hjón nú í Rauðanesi,
sem fyrr segir. Rauðanes liggur að
sjó, eins og nafnið bendir tfí.
Þegar sendimaður Thors Jen-
sens ríður í hlað í Rauðanesi er
Jórunn ljósmóðir á fastasvefni „og
varð ekki vakin, mönnum til mikill-
ar undrunar“ segir Matthías Jo-
hannessen í bók sinni um Olaf
Thors. Þegar Jórunn vaknai' furð-
ar engan þó fast væri sofið. Slíkar
voru draumfarir hennar. Matthías
segir frá: „Loks vaknar Jórunn og
segir sig hafa dreymt undarlegan
draum. Til mín kom Olafur kon-
ungur Tryggvason og sagði: „Þú
munt á þessu dægri taka á móti
sveinbarni, og hann á að heita í
höfuðið á mér.“„ Ólafur Thors fór
ekki dult með skíi-narnafn sitt,
Ólafur Ti-yggvason. Ættarnafnið
Thors tóku þefí- bræður upp á
þriðja áratugnum.
Héðinn Valdimarsson síðar for-
maður Dagsbrúnar og forstjóri 01-
íuverslunar íslands var bekkjar-
bróðir Ólafs á æskuárum. Var talin
góð vinátta með þeim. Síðar
breyttist það og varð pólitísk óvfíd.
Ólafur rifjaði það upp í samtali að
Héðinn hafi skopast að honum í
blaðagrein fyrir að heita eftir Ólafi
Tryggvasyni. Kvað Ólafur það gott
að einhver hefði orð á því „því að
ekki get ég sjálfur haldið því á
lofti.“
Ingibjörg, eiginkona Ólafs, lét í
ljós óánægju vegna nafnsins. Hún
sagði: „Það er óskiljanlegt, að þú
skyldir vera látinn heita eftir Ólafi
konungi. Þetta var vondur maður
og grimmdarseggur.“ Öði-uvísi var
Kristjáni Albertssyni farið. Hann
var frændi Ólafs. Ki'istján sagði:
„Gerðarlegt og svipmikið andlits-
fall hans (Ólafs) og rismikill hár-
makki gátu minnt á ljónshaus - en
góðlegan ljónshaus. Um hann
mátti segja líkt og Heimskringla
segir um Ólaf konung Tryggvason
að hann væri manna glaðastur. Eg
hef alltaf viljað mega skilja þessi
orð svo, að Snorra muni hafa fund-
ist Ólafi konungi gefið hlýrra góð-
lyndi og meira fjör í hugsun á
góðra vina fundum en flestum eða
öllum öðrum.“
Sjálfur mun Ólafur hafa verið
sama sinnis. Hann brosti er Ingi-
björg kona hans nefndi grimmd
Olafs konungs. Hann vildi heita
eftir Ólafi konungi. Var stoltur af
nafna sínum. Hafði ungur eignast
sögu hans, lesið rækilega. Þótti
mikið til konungs koma. Nefndi
glæsimennsku, hugi'ekki og hug-
sjónir. Nefndi kristniboð Ólafs
konungs. Skrifaði grimmd trúboð-
ans og skapofsa og misjafnt athæfi
á reikning tíðarandans.
í samtali við danska blaðakonu
(„Ninka“ undimtaði hún greinar
sínar) segir Ólafur, og er þá e.t.v.
með nafna sinn í huga: „... en nú
verðið þér að vera svo góðar að
skilja á milli þess, hvenær ég er
einlægur og hvenær skúrkur - því
ég er hvorttveggja.“
Ein minnisstæðasta persóna
Ólafs sögu Tryggvasonar er Sig-
ríður drottning í Svíþjóð, er kölluð
var hin stórráða. Frásögnin um
gullhring þann hinn mikla er Ólaf-
ur tók úr hofshurðinni á Hlöðum,
bónorð hans við Sigríði drottningu,
álit smiðanna, sem telja hringinn
eirblandaðan, missætti Sigríðar og
Ólafs er hún neitar að ganga af trú
sinni og Ólafur kallar hana hund-
heiðna og laust í andlit henni
með glófa sínum, er hann hélt á.“
Svar Sigiíðar við kinnhesti kon-
ungs: „Þetta mætti verða vel þinn
bani.“
Norskir fræðimenn eru flesth’
sammála um að saga Sigríðar hafi
ekki átt við rök að styðjast. Hún sé
skáldskapur Snorra. Hvað sem því
líður hafa norskir listamenn teikn-
að myndir af samfundum Ólafs
konungs og Sigríðar stórráðu.
Erik Werenskjöld lýsir fundi
þeirra er þau ræða hjúskaparmál
og átrúnað, heiðni og kristni.
Vangasvipur Ólafs konungs er
sagður minna á Friðþjóf Nansen,
Norðmanninn nafnkunna.
Benedikt Sveinbjarnarson
Gröndal kunni vel til verka og fór
létt með að vitna í forn rit sem ný
er hann átti í ritdeilum. Honum
verður hugsað til Ólafs Tryggva-
sonar er hann þarf að ná sér niðri
á Þorsteini Gíslasyni ritstjóra í
umræðum um fortíðar- eða fram-
tíðardýrkun: „Og ekki er það síður
merkilegt, hvernig tíminn endur-
fæðist og sömu atburðimir endur-
nýjast, lagaðir í annað foi-m eftir
tímanum. Þorsteinn uxafótur ham-
aðist á Orminum langa og barði
með ás, þangað til Ólafur Tryggva-
son skipaði honum að hætta, og
berjast eins og maður; Þorsteinn
hamast á Bjarka (blaði Þorsteins
Erlingssonar) og berst með penn-
anum, þangað til Þorsteinn Erl-
ingsson skipar honum að hætta og
fylgja tímanum betur.“
Ymsar stjórnarathafnir Ólafs
Thors minna á sagnir um framferði
Ólafs Tryggvasonar. Er þetta
nefnt án þess að vitað sé um sann-
leiksgildi staðhæfinga pólitískra
andstæðinga Ólafs Thors. I eftir-
málum, sem urðu að loknum 9.
SIGRÍÐUR stórráða drottning
- „Þetta mætti verða vel
þinn bani.“
ÓLAFUR konungur Tryggva-
son - „Hví mun eg vilja eiga þig
hundheiðna?"
Teikning/Halldór Pétursson
ÓLAFUR Thors svarar Framsóknarmanni sem ber honum á brýn van-
þekkingu og segir hann ekki þekkja mun á þorski og ýsu: „Þetta er al-
veg rétt hjá þér, en ég þekki muninn á þorski og þér, en það eru ekki
allir sem gera það.“
nóvemberóeirðum í Góðtemplara-
húsinu þegar Héðinn Valdimars-
son fór fyrir baráttusveit verka-
manna, sem mótmæltu kauplækk-
un, komst sú saga í hámæli að Ólaf-
ur Thors hafi áformað að fangelsa
forystumenn verkalýðs og þá sem
gerðu aðsúg að bæjarfulltrúum og
lögreglu, handtaka þá og loka inni í
Sundhöll Reykjavíkur. Dæma þá
síðan í langa refsivist. Um þessi
áform - ímynduð eða þaulhugsuð
og skipulögð - urðu snarpar deilur
og kom jafnvel til handalögmála og
ryskinga milli Hermanns Jónas-
sonar og Ólafs Thors.
Ólafur Tryggvason Noregskon-
ungur varð frægur í sveitum Nor-
egs er hann tók bændur í gíslingu
og hótaði afarkostum ef þeir létu
ekki að vilja hans.
Á litríkum ferli sínum tengdist
Ólafur Thors traustum vináttu-
böndum við nafnkunna samherja.
Sumir þeirra snerust þó gegn Ólafi
og varð úr fáþykkja og óvild. Sig-
urbjörn kaupmaður í Vísi telur að
einhver „mestu vonbrigði Ólafs
Thors í stjórnmálum hafi verið
þegar Árni frá Múla skrifaði grein
um hann í Vísi og „þóttist vera að
fletta ofan aí honum“. Sigurbjörn
las grein Árna fyrir Ólaf. Hann
sagði í símann: „Og þú líka, bróðir
minn Brútus.“
Ámi kvað síðar vegna her-
stöðvakröfu Bandaríkjanna og af-
stöðu stjórnvalda:
Við skulum nota völdin römmu.
Við skulum bara selja mömmu.
Þegar Ámi varð viðskila við
forna samherja í Sjálfstæðis-
flokknum gaf hann út ljóðakver,
„Geiáiljóð". Ludvig Hjálmtýsson
formaður ungra sjálfstæðismanna,
góðkunningi og málvinur greinar-
höfundar, var einlægur vinur Árna
frá Múla. Hann tók að sér að selja
kvæðakver Árna. Gekk á fund
Ólafs Thors og spurði: „Þýðir
nokkuð að sýna þér þessa bók?“
„Láttu mig hafa 5 eintök en stein-
haltu kjafti,“ sagði Ólafur.
INGIBJÖRG og Ólafur Thors. Ingibjörgu
þótti Ólafur Tryggvason grimmdarseggur.
JÓRUNN Jónsdóttir
ljósmóðir í Rauðanesi.
Ólafur konungur
Tryggvason vitjaði
hennar í draurni og vildi
ráða nafni sveinbams
er hún tæki á móti. Jór-
unn tók á móti Ólafí
Thors. Ólafur var skírð-
ur Ólafur Tryggvason.