Morgunblaðið - 12.05.1999, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MULA leikfangið sem IKEA- verslunarkeðjan innkallar um þessar
mundir. Þeir sem keypt hafa Icikfangið skila kúlunni sem er á toppi
leikfangsins og fá teningslaga hlut í staðinn.
Ikea innkall-
ar leikfang
FRETTIR
Síðasti ríkisráðsfundur Þorsteins Pálssonar
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAÐ var enginn fortíðartregi yfír þeim Guðmundi Bjarnasyni og
Þorsteini Pálssyni, sem komu sem ráðherrar til ríkisráðsfundar á
Bessastöðum í gær, en fóru þaðan sem fyrrverandi ráðherrar.
IKEA- verslunarkeðjan hefur ákveð-
ið að innkalla leikfang af gerðinni
Mula eftir að fimm ára drengur
kafnaði þegar hlutur úr því festist í
hálsi hans og lokaði öndunarvegin-
um. Leikfangið er innkallað á mörk-
uðum um allan heim, meðal annars á
íslandi en á fjórða hundrað leikfong
af þessu tagi hafa verið seld hér á
landi frá þvi það kom á markað árið
1997. Leikfangið samræmist Evr-
ópustaðlinum IST-EN 71 um öryggi
leikfanga en olli samt sem áður slíku
óhappi. Samkvæmt upplýsingum frá
Löggildingarstofu verður staðallinn
mjög líklega endurskoðaður í kjölfar
þessa atburðar.
I rannsókn IKEA á slysinu kom í
ljós að efsti hluti leikfangsins, sem er
kúlulaga, getur valdið köfnun. Sam-
kvæmt IST-EN 71 staðlinum eru
settar fram kröfur í sambandi við
litla hluti á leikfóngum sem ætlaðir
eru bömum innan þriggja ára. Hlut-
imir eru prófaðir með pípu sem er
31,7 mm að þvermáli, en það sam-
svarar þvermáli öndunarvegs bams
frá barkakýli að lungum. Hluturinn
sem olli slysinu var hins vegar 37
mm í þvermál. Að sögn Bimu Hreið-
arsdóttur deildarstjóra markaðs-
gæsludeildar hjá Löggildingarstofu
kom í ljós í könnun sem stofan gerði
seint á síðasta ári að um 98% leik-
fanga vom með CE-merkingu en
leikfóng sem uppfylla kröfur um ör-
yggi hér á landi bera slíkt merki.
„Það hefur komið í ljós að þrátt
fyrir staðalinn er þetta leikfang ekki
ömggt og því er staðallinn ekki full-
kominn. Næsta skref er að breyta
staðlinum og þá þannig að kúlulaga
hlutir verða að vera stærri en 37
mm. Það hefur komið í ljós að ef
hluturinn er ferkantaður þá er stærð
samkvæmt staðlinum í lagi,“ sagði
Bima. Að hennar sögn fylgja lang-
flestir leikfangaframleiðendur IST-
EN 71 leikfangastaðlinum og það
heyri til undantekninga að CE-
merktar vörar séu ekki öraggar.
Fólk skili hlutnum
í næstu IKEA- verslun
IKEA hefur gripið til þess ráðs að
biðja alla sem keypt hafa þetta Mula
leikfang að skila efsta hluta þess, en
hann er rauður og kúlulaga inn í
næstu IKEA- verslun. Viðkomandi
fær þá afhentan nýjan hlut, sem er
teningslaga, í stað hans. í frétt frá
IKEA segir ennfremur að fyrirtækið
telji að nauðsynlegt sé að endur-
skoða staðalinn þar sem hann sé
ófullnægjandi.
í fréttinni segir um niðurstöðu
rannsóknar á slysinu: „Kúlulaga hlut-
ir sem era of stórir til að komast ofan
í barkann geta sem hægast orðið fast-
ir í kokinu ef bamið dregur snöggt að
sér andann og þar með lokað fyrir
loftstreymi í gegnum nef og munn.
Eðlileg viðbrögð bamsins era þau að
hósta og kúgast. Við þetta getur háls-
inn dregist saman, utan um hlutinn,
svo að hann situr enn fastar en áður.
Kúlulaga hlutir sem era undir 45 mm
að þvermáli era hættulegir öllum
bömum, sama á hvaða aldri þau eru,
því þeir geta valdið köfnun.“
Endur-
minninga-
skrif ekki
í augsýn
ÞORSTEINN Pálsson og Guð-
mundur Bjarnason voru í gær
leystir frá ráðherrastörfum af
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
íslands, á ríkisráðsfundi á Bessa-
stöðum. Þeir Davíð Oddsson for-
sætisráðherra og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra
skipta störfum þeira á milli sín
þar til ný stjórn verður mynduð.
„Ætli maður verði ekki að læra
að hegða sér eins og maður,“ sagði
Þorsteinn Pálsson með glettnis-
bros á vör í samtali við Morgun-
blaðið, er hann var spurður hver
munurínn væri á að hverfa frá
ráðherrastól og pólitískum störf-
um yfir á vettvang sendiherra.
Hann sagði að ekki væri endan-
lega ákveðið hvenær hann færi til
London, þar sem haim tekur við
embætti sendiherra íslands, en
það yrði fyrrihluta júm'.
Þorsteinn sagðist enn ekki hafa
haft tíma til að búa sig undir hið
nýja starf, en til þess gæfist von-
andi tími. Um það hver sá undir-
búningur yrði svaraði hann aðeins
af gáska að hann hlyti að þurfa að
læra góða siði, en kviði því ekki
að hverfa af hinu pólitíska sviði
yfir á hið ópólitíska, sem felst í
starfi sendiherra.
„Nei, ég hef ekki Ieitt hugann að
endurminningaskrifum," fullyrti
Þorsteinn og fannst spurningin
greinilega út í hött. „Mér finnst ég
enn alltof ungur til þess,“ sló hann
föstu.
Þorsteinn var kjörínn á þing
1983 og var formaður Sjálfstæðis-
flokksins 1983-1991. Þorsteinn
varð Qármálaráðherra 1985 og
sfðan forsætisráðherra 1987-1988.
Auk þess hefur hann gegnt emb-
ætti iðnaðarráðherra, en siðan
1991 hefur hann gegnt þeim ráð-
herraembættum, sem hann lætur
nú af.
Sfðasta embættisverk Þorsteins
var að leysa konu undan fslenskum
ríkisborgararétti. „Mér finnst
nokkuð sérstakt að enda ráðherra-
feril minn á þessu og það vekur
blendnar tilfinningar," segir Þor-
steinn. „Embættismenn mínir
segja mér að þetta sé í fyrsta
skipti sem slíkt hafi verið gert.“
Makar ráðherranna biðu annars
staðar í húsinu eftir að ríkisráðs-
fundi lyki; konurnar allar í ljósum
sumarfötum, eini karlmaðurinn f
hópnum, Haraldur Sturlaugsson,
eiginmaður Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðisráðherra, sá eini
dökkklæddi f hópnum.
Eftir ríkisráðsfundinn settust
ráðherramir og makar þeirra að
snæðingi. Á borðum var andalifr-
arkæfa með rifsberjasósu, heilag-
fiski með humarsósu og súkkulaði-
kaka og vanilluís. Með þessu var
drukkið Chardonnay-hvítvín.
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Íslandssíma
EYÞÓR Arnalds hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Íslandssíma hf.
Stjóm fýrirtækisins var einhuga um
ráðninguna en auk framkvæmda-
stjórans er nú unnið að því að ráða
fleiri starfsmenn. Íslandssími hf.
hyggst hasla sér völl á sviði síma-
þjónustu og gagnaflutninga.
Islandssími hf. var stofnaður á
síðasta ári og ný-
lega var hlutaféð
aukið. Meðal
stórra hluthafa
era Hof og
Burðarás en Páll
Kr. Pálsson er
stjórnarformaður
fýrirtækisins. Ey-
þór Amalds hefúr
sagt upp starfi
sínu sem þróunar-
stjóri hjá OZ þar sem hann hefur
starfað síðustu fjögur árin. Þá er
hann varaborgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og kveðst hann ætla að
draga sig smám saman út úr stjórn-
málunum.
„Það er spennandi tækifæri að fá
að koma að nýju fjarskiptafyrirtæki
og byggja það upp,“ sagði Eyþór
Arnalds í samtali við Morgunblaðið
í gær. Eyþór kveðst ætla að draga
sig út úr borgarmálunum smám
saman, hætta að sækja borgar-
stjórnarfundi og draga sig smám
saman úr nefndum sem hann hefur
setið í, í samráði við oddvita sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn, Ingu
Jónu Þórðardóttur.
„Verkefni sem þetta krefst
óskiptrar athygli og þess vegna
verða Oz og borgarmálin að bíða um
sinn,“ sagði Eyþór ennfremur. „Það
er ekki hægt að ætlast til annars en
að menn sinni óskiptir svo krefjandi
uppbyggingarverkefni. Næstu vikur
fara í að byggja upp öflugan hóp
starfsmanna hjá Íslandssíma og ger-
um við ráð fyrir að kynna í lok mán-
aðarins í hverju þjónusta íslands-
síma verður einkum fólgin en auk
gagnaflutnings verður það einnig
þjónusta á sviði hins almenna síma-
kerfis," segir Eyþór Arnalds að lok-
um.
Finnur þú ódýrari
fargjöld í sumar?
London
Kaupmannahöfn
Madrid
Gautaborg
Berlín
Verð frá
19.880 kr.
ffiSToí°
Samvinnuferðir
Landsýn
Á verðl fyrlr þig!
—
Þórður Sverrisson, framkvæmda stjóri
hjá Eimskipi, um bréf Torricellis
Vekur upp spurn-
ingar um tilgang
þingmannsins
ÞÓRÐUR Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs Eim-
skipafélags íslands, segir það at-
hyglisvert að bandaríski öldunga-
deildarþingmaðurinn Robert
Torricelli skuli skrifa dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna bréf
vegna dóms í máli skipafélaganna
Eimskips og Van Ommeren gegn
bandaríska hemum vegna flutn-
inga fyrir vamarliðið í Keflavík.
Það veki upp spurningar hvers
vegna öldungadeildarþingmaður
skrifi bréf sem þetta, og hvemig
tengsl hans era við þau fyrirtæki
sem hafa keppt við Eimskip um
flutningana.
í bréfinu fer Torricelli fram á
það að bandaríska dómsmálaráðu-
neytið áfirýi þeim úrskurði að
ákvörðun Bandaríkjahers um að
ganga að tilboðum Atlantssldpa í
Garðabæ og TransAtlantic Lines
samræmist ekki bandarískum lög-
um.
„Torricelli er öldungadeildar-
þingmaður fyrir New Jersey. Við
höfum átt í deilu við bandaríska
herinn og Transatlantic-fýrirtæk-
in, en ráðandi eignarhluti í þeim
er í eigu bandaríska skipafélags-
ins American Automar Inc. sem
starfrækt er í norðum'kjum
Bandaríkjanna. Automar á líka
helminginn í íslenska fyrirtækinu
Atlantsskip,“ segir Þórður.
Hann segir að spurning vakni
einnig um það hvað fái bandarísk-
an öldundgadeildarþingmann til
að setja sig inn í þetta mál, og
jafnframt hvaða önnur afskipti
hann hafi haft af málinu á liðnum
mánuðum.
Má höfða mál vegna milli-
rfkjasamnings
Þungamiðjan í bréfi Torricelli
til Janet Reno, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, snýr að
þeirri staðhæfingu hans að forseti
og utanríkisráðherra geti ekki
mótað og framfylgt utanríkis-
stefnu landsins hafi alríkisdómar-
ar rétt til að úrskurða um rétt-
mæti hennar og telur Torricelli
dóminn geta haft mikil áhrif á
stefnu landsins í utanríkis- og
hemaðarmálum.
í dómnum, sem kveðinn var
upp 3. febrúar síðastliðinn, segir
að hnekkja beri þeirri ákvörðun
Bandaríkjahers að ganga að til-
boðum TransAtlantic Lines og
Atlantsskipa, þar sem það sam-
ræmist ekki lögum og bjóða beri
flutningana út að nýju. I dómnum
var sérstaklega um það fjallað
hvort einkaaðilar geti höfðað mál
gegn bandaríska ríkinu vegna
milliríkjasamninga, í þessu tilviki
vegna meintra brota á varnar-
samningnum. Niðurstaða dómara
var sú að svo væri og vísaði hann
þar til fýrri málaferla af svipuðu
tagi, þ.e. Rainbow Navigation
gegn Bandaríkjaher.
Staðan í sjóflutningum fyrir
Varnarliðið nú er sú að skila á til-
boðum í flutningana 18. maí næst-
komandi.
Kemur á óvart
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, segir að það komi sér veru-
lega á óvart að þingmenn í Banda-
ríkjunum segi dómuram hvemig
þeir eigi að starfa. Auk Eimskips
ætla Samskip að bjóða í flutning-
ana.
„Okkar afstaða til þessa máls
hefur verið afar einfóld. Við höf-
um boðið í flutningana, fengið þá
af og til og misst þá. Við munum
bjóða í þetta aftur núna og sjá
hvað gerist,“ segir Ólafur.
Eyþór
Arnalds