Morgunblaðið - 12.05.1999, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
> Ei^ið fé Islenskra sjávarafurða hefur minnkað um 1,2 milljarða kr. á tveimur árum
1 1 I k r f „ Lall 1 ^ «HSUIU.T_vUís=' 1 IsíWMilkt V
Morgunblaðið/Árni Sæberg .. ,
HUSNÆÐI Þróunarseturs ÍS á Kirkjusandi verður selt. VORUHUS IS við Holtabakka er til sölu ásamt rekstrarvörulager.
V erksmiðj urnar
verða að skila
arði heim
Nýr forstjóri Islenskra sjávarafurða gerir ákveðnar arðsemis-
kröfur til dótturfélaganna erlendis. Segir að fyrirtækið í Banda-
ríkjunum verði að skila 80 milljónum kr. heim á ári og fyrirtækið
í Frakklandi 100 milljónum til að réttlæta fjárfestinguna. Eigið fé
IS hefur minnkað
Morgunblaðið/Porkell
FINNBOGI Jónsson, forstjóri ÍS, er farinn að láta til sín taka í
rekstri félagsins.
VEGNA taprekstrar dóttur-
félaga í Frakklandi og þó
aðallega í Bandaríkjunum
hefur eigið fé íslenskra
sjávarafurða hf. (IS) minnkað um
tæplega 1,2 milljarða króna á tveim-
ur árum, þrátt fyrir að selt hafi verið
hlutafé fyrir 340 milljónir kr. á síð-
asta ári. Nýr forstjóri IS, Finnbogi
Jónsson sem áður var framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar hf. í Nes-
kaupstað, hefur nú kynnt breytingar
á rekstri og skipulagi fyrirtækisins.
Hann leggur mikla áherslu á að
fjárfestingar ÍS erlendis skili góðum
arði. Vekur athygli á því að vegna
breyttra aðstæðna í fisksölumálum
sé meginhlutverk fjárfestingarinnar
nú að skila arði aftur til Islands.
Þannig hafi verið lagðar um 700
milljónir i hlutabréfakaup og hluta-
fjáraukningu í Iceland Seafood Corp.
í Bandaríkjunum og þurfi sú fjár-
festing að skila að minnsta kosti 80
milljónum kr. í arð á ári. Með sama
hætti þurfi Gelmer-Iceland Seafood í
Frakklandi að skila 100 milljónum
kr. í arð á ári til að réttlæta 900
milljóna kr. hlutafjárkaup og hluta-
fjáraukningu í því fyrirtæki.
Helstu breytingamar sem Finn-
bogi boðar eru að leggja niður Vöru-
hús og Þróunarsetur IS og sinna
þeim hluta starfsemi þessara deilda
sem talin er nauðsynleg á annan og
ódýrari hátt. Akveðið hefur verið að
leita samstarfsaðila um rekstur fisk-
réttaverksmiðjanna í Bandaríkjun-
um og Frakklandi til að auka nýt-
ingu þeirra og gera þær arðbærar.
Ekki eru hafnar viðræður við neina
aðila en Finnbogi vonast til að málið
skýrist á árinu. Loks er unnið að
breytingum á skipuriti sem nú þegar
hafa haft í för með sér breytingar á
æðstu stjóm fyrirtækisins.
Aukin samkeppni í sölu á
rekstrarvörum
Húsnæði Vöruhúss ÍS við Holta-
bakka og Þróunarseturs ÍS á Kirkju-
sandi hefur verið auglýst til sölu og
miðað við stærð húsnæðisins og op-
inbert mat má áætla að fyrir eignirn-
ar fáist á fjórða hundrað milljónir kr.
Rekstur Vöruhússins er tvískipt-
ur. Af rekstrarvörulager em seldar
ýmsar vörur til frystihúsa og frysti-
togara sem framleiða fiskafurðir fyr-
ir Islenskar sjávarafurðir. Af um-
búðalager era afgreiddar umbúðir til
framleiðendanna. í þeirri ákvörðun
að hætta rekstri vörahúss felst að ÍS
hættir sölu almennra rekstrarvara
en leitað verður tilboða í geymslu og
afgreiðslu umbúða.
Finnbogi Jónsson segir að rekstr-
arvörusalan hafi áður skilað góðum
hagnaði en litlu skilað undanfarin
tvö ár. Fleiri fyrirtæki hafi verið að
hasla sér völl á þessu sviði og sam-
keppni aukist. „Eg tel að
okkar sérþekking eigi
ekki að liggja á þessu
sviði. Mörg fyrirtæki hafa
það sem aðalverkefni að
selja vörar af þessu tagi,“
segir Finnbogi. Hann segir að auk
húsnæðisins eigi ÍS töluverðar
birgðir af rekstrarvöram og telur
æskilegt að selja þær með. Það gæti
til dæmis verið áhugavert fyrir aðila
sem þegar er í þessum viðskiptum að
kaupa húsnæðið og/eða lagerinn og
reyna að tryggja sér áframhaldandi
viðskipti núverandi viðskiptamanna
Vörahússins.
Á umbúðalagemum era umbúðir
um 1,2 milljarða kr.
á tveimur árum en
Finnboffl Jónsson
trúir því að fyrir-
tækið nái að vinna
sig út úr erfíðleikun-
um. Helgi Bjarna-
son kynnti sér
breytingarnar og
forsendur þeirra.
utan um fiskafurðir sem ÍS selur, að
hluta til með vöramerki ÍS. íslensk-
ar sjávarafurðir sjá um að láta fram-
leiða umbúðimar og afgreiðir þær til
frystihúsa og frystitogara. Finnbogi
segir að þær verði að uppfylla gæða-
kröfur IS og markaðarins og þurfi
auk þess að fást á hagstæðasta verði.
ÍS muni halda áfram að útvega fram-
leiðendum sínum umbúðir en ekki
liggi enn fyrir með hvaða hætti það
verði gert. Akveðið hefur verið að
leita tilboða í geymslu og afgreiðslu
umbúða, meðal annars hjá umbúða-
framleiðendum, og reynt að lág-
marka eigin birgðir IS.
Tilraunavinnslu hætt
í Þróunarsetri IS á Kirkjusandi
hefur verið rekin tilraunavinnsla fyr-
ir smápakkningar, lítið
frystihús sem þurft hefur
að standast ströngustu
kröfur verslanakeðja _ í
viðskiptalöndunum. ÍS
hefur ákveðið að hætta
tilraunavinnslunni enda segir Finn-
bogi að slíkar vinnslulínur séu nú
komnar í nokkur frystihús og unnt
að gera tilraunir í samvinnu við
framleiðendur. Annað þróunarstarf
sem verið hefur í Þróunarsetri ÍS
verður unnið frá aðalskrifstofum ÍS
við Sigtún, í samvinnu við framleið-
endur og sölufyrirtæki ÍS erlendis.
Fram kom þegar breytingarnar
voru kynntar, meðal annars sala á
húsnæði Þróunarseturs, að þróunar-
starf á vegum fyrirtækisins yrði eflt
og mörkuð heildstæð þróunarstefna.
Aðspurður segir Finnbogi að ekki
þurfi að felast mótsögn í þessum yf-
irlýsingum en áherslur breytist óhjá-
kvæmilega. Nefnir hann sem dæmi
að tilraunavinnslan hafi á sínum tíma
verið fyrirtækinu mikilvæg en hún
hafi engu skilað sem heitið geti síð-
ustu árin. Þróunarstarf hafi hins
vegar aukist annars staðar í sam-
stæðunni. Sem dæmi nefnir hann að
nýjar afurðir sem Gelmer-Iceland
Seafood í Frakklandi kynnti á sjáv-
arútvegssýningunni í Brassel hafi
vakið athygli og segir að miklar von-
ir séu bundnar við þær. „í fyrirtæki
sem þessu er öflugt þróunarstarf
grandvallaratriði. En það verður að
vera markvisst, þannig að Ijóst sé
hver njóti ávinnings þess og hver
greiði kostnaðinn á hverjum tíma.“
50% nýting á
verksmiðjunni vestra
íslenskar sjávarafurðir reka tvær
fiskréttaverksmiðjur erlendis,
Iceland Seafood Corporation í
Newport News í Virginíu í Banda-
ríkjunum og Gelmer-Iceland
Seafood S.A. í Boulogne-sur-Mer í
Frakklandi. Báðar verksmiðjumar
hafa verið reknar með tapi undanfar-
in tvö ár og mikill hallarekstur verk-
smiðjunnar í Bandaríkjunum er
meginástæðan fyrir því hve illa er
komið fyrir samstæðu íslenskra
sjávarafurða hf.
Báðar verksmiðjumar era van-
nýttar og hafa stjórnendur IS ákveð-
ið að kanna möguleika á að fá önnur
fyrirtæki til samstarfs um rekstur-
inn með það að markmiði að efla
starfsemi þeirra en draga um leið úr
áhættu. Finnbogi segir að allir
möguleikar verði skoðaðir í þessu
sambandi og tekur fram að ekki sé
víst að sami aðilinn komi að báðum
dótturfyrirtækjunum erlendis.
ÍS byggði nýja verksmiðju í
Newport News og lenti í miklum erf-
iðleikum með rekstur hennar.
Stjórnendur fyrirtækisins hafa sagt
að byrjunarerfiðleikarnir séu að baki
og tekist hafi að ná upp þeim afköst-
um sem reiknað var með í upphafi.
Enn er verksmiðjan illa
nýtt eða einungis um 50%
af framleiðslugetu hennar
og segir Finnbogi að meg-
inverkefnið sé að afla
verkefna til þess að unnt
verði að auka framleiðsl-
una. Ef það tækist yrði verksmiðjan
í tiltölulega góðum málum. Hann
segir að stjórnendur fyrirtækisins
séu að leita að samstarfsaðila sem
hefði þörf fyrii’ framleiðslu verk-
smiðjunnar með einhverjum hætti
og kæmi jafnframt inn í fyrirtækið
sem eignaraðili. Einnig kæmi til
greina að sameina verksmiðjuna öðr-
um og mynda þannig öflugri heild og
sterkari stöðu á markaðnum. „Þetta
er að mínu mati lykillinn að því að fá
hagnað út úr þessum rekstri. Margir
aðilar framleiða hliðstæðar afurðh-
og samkeppnin er tiltölulega mikil.
Hagnaður hefur verið lítill af þessum
fyrirtækjum, sem hlutfall af veltu, og
ég á ekki von á því að á því verði
mikil breyting nema hagræðing
verði aukin með stækkun eininga og
aukinni markaðshlutdeild," segir
Finnbogi.
Tilgangurinn að fá góðan arð
Hann rifjar það upp að bæði stóru
sölusamtökin, SH og ÍS, hafi í upp-
hafi byggt verksmiðjur sínar erlendis
í þeim tilgangi að ná lengra inn á
markaðinn með íslenskan fisk. Það
hafi tekist og verksmiðjumar skilað
íslenskum framleiðendum hærra
verði en framleiðendur í öðrum lönd-
um hafi átt kost á. Framleiðsla á
verksmiðjuframleiddum afurðum og
endursala dótturfyrirtækjanna á
flökum hafi síðan stutt hvort annað
og geri kannski enn. Hins vegar hafí
aðstæður breyst að því leyti að mjög
lítill hluti af hráefni verksmiðjanna
komi nú frá íslandi. „Tilgangurinn
með rekstri verksmiðjanna hlýtur því
fyrst og fremst að vera sá að fá góð-
an arð af þeim peningum sem í þeim
era bundnir," segir Finnbogi. I því
sambandi vekur hann athygli á því að
íslenskar sjávarafurðir hf. hafi lagt
um 700 milljónir kr. í hlutafjáraukn-
ingu og hlutafjárkaup í Iceland
Seafood Corp. á síðustu þremur ár-
um en íyrir þann tíma hafi sáralítið
eða ekkert fé verið lagt í reksturinn
héðan að heiman. Til þess að standa
undir þessari fjárfestingu þyrfti
reksturinn að skila að minnsta kosti
80 milljónum kr. í arðgreiðslur til
móðurfélagsins á hverju ári.
Finnbogi segir að aðra sögu megi
segja um Coldwater Seafood, dóttur-
félag Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna í Bandaríkjunum. Þar hafi Sölu-
miðstöðin sáralítið hlutafé lagt fram
og allt eigið fé byggst upp af af-
rakstri eigin starfsemi félagsins.
Hins vegar sé það staðreynd að Cold-
water skili ekki viðunandi arðsemi,
miðað við eigið fé fyrirtækisins.
Aðspurður segir Finnbogi ekki
útilokað að verksmiðjan í Bandaríkj-
unum yrði seld ef viðunandi tilboð
bærist. Það geti ekki verið stefna
fyrirtækisins að eiga verksmiðjuna
til frambúðar nema hún skili ásætt-
anlegri arðsemi. Hins vegar hafi hún
verið rekin með miklu tapi á síðasta
ári og eðlilegt að markaðurinn hafi
mikla fyrirvara um rekstrarmögu-
leika hennar. „Við ætlum okkur að
finna leiðir til að gera verksmiðjuna
að arðbærri rekstrareiningu," segir
Finnbogi.
Verksmiðjan í Bandaríkjunum var
rekin með hagnaði fyrstu
þrjá mánuði ársins og þó
hagnaðurinn sé lítill er
breytingin mikil frá
sama tíma fyrir ári þegar
gríðarlegt tap varð af
rekstrinum. Finnbogi
segir að þótt áætlanir geri ráð fyrir
að reksturinn verði í járnum á árinu
í heild sé ekki hægt að fullyrða út
frá afkomunni fyrstu þrjá mánuði
ársins að það gangi eftir. Næstu
mánuðir séu erfiður tími í þessum
rekstri. Þá sé verðlag á fiskafurðum
mjög hátt í Bandaríkjunum um
þessar mundir og ákveðin hætta á
að neysla dragist saman. Það myndi
Þarf að afla
verkefna fyrir
verksmiðjuna
Samstarf við
erlendan aðila
líklegra