Morgunblaðið - 12.05.1999, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
AÐALFUNDUR
Vinnuveitendasambands
íslands 12. maí 1999
Hótel Loftleiðum, þingsal 1
ólafur B. ólafsson.
formaður VSÍ
DAGSKRÁ
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
Pórarínn V.
Pórarínsson
framkvæmdastjóri VSÍ
Dirk Hudig
framkvæmdastjóri
UNICE
Kl. 11.30
Setning aðalfundar.
Kjör fundarstjóra og fundarritara.
Ræða formanns VSI, Ólafs B. Ólafssonar.
Kl. 12.00 Hádegisverður aðalfundarfulltrúa og gesta.
Samkeppnishæfni atvinnulífs.
Kl. 12.45 Ræða forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar:
Horfur í efnahags- og stjómmálum.
Ræða Dirk Hudig
framkvæmdastjóra UNICE:
Hvemig má bæta samkeppnishæfni
atvinnulífs Evrópu?
Nýtt skipulag hagsmunasamtaka atvinnurekenda.
Kl. 13.30 Nýtt skipulag hagsmunasamtaka
atvinnurekenda.
Kynning: Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri VSÍ.
Aðalfundarstörf:
Kl. 14.15
1. Skýrsla framkvæmdastjóra fyrir liðið starfsár.
2. Reikningar VSÍ fyrir árið 1998.
3. Tillaga um skipulagsmál, frestun kosninga og boðun
framhaldsaðalfundar VSI íseptember 1999.
4. Áherslur atvinnulífsins. - Ályktun aðalfundar VSÍ.
5. Ákvörðun árgjalda.
6. Önnur mál.
Kl. 15.00 Áætluð fundarslit.
'Á undan setningu aðalfundar kí. 11.15 verður stuttur fundur beinna meðlima.
Dilbert á Netinu ^ mbl.is
/\LLTAf= e/TTHVAÐ NÝTl
Forstjóri álsviðs Norsk Hydro í kynnisferð
Alver á Austurlandi
ekki í biðstöðu
PRÍR helstu ráðamenn álsviðs
Norsk Hydro komu í tveggja daga
kynnisferð til íslands á mánudag.
Skoðuðu þeir aðstæður á Reyðar-
firði en einnig var ætlunin að þeir
ræddu við iðnaðarráðherra, Finn
Ingólfsson, og fulltrúa Landsvirkj-
unar fyrir hádegi í dag áður en þeir
héldu heim á leið.
Gestimir em Jon Harald Nielsen,
nýr forstjóri álsviðsins, Tormod
Bjork, yfirmaður byggingadeildar
álsviðs og Jostein Flo sem nú er yf-
irmaður súrálsdeildar álsviðsins en
hefur sem fyrr ráðagerðimar um ál-
ver á Reyðarfirði á sinni könnu.
Flo hefúr oft komið hingað til
lands en að sögn Garðars Ingvars-
sonar, framkvæmdastjóra Fjárfest-
ingastofunnar-Orkusviðs, var helsta
markmiðið með ferðinni að gefa Ni-
elsen og Bjork tækifæri til að sjá að-
stæður með eigin augum og hitta ís-
lenska ráðamenn. Garðar var spurð-
ur hvort hugmyndin um álver væri í
biðstöðu en rekstur Norsk Hydro
hefur gengið verr undanfarin ár en
áður eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum.
„Nei það er alger misskilningur
að þetta hafi nokkum tíma verið sett
í biðstöðu, það hafa fjölmiðlar á Is-
landi búið til. Við höfum verið að
vinna að verkefninu, hægt og síg-
andi eins og eðlilegt er. Við höldum
alveg áætlun. Hins vegar hefur ver-
ið frestað að reisa álver á Trinidad
og ýmsu öðm verið frestað."
Hugmyndin er að reisa 120.000
tonna álver á Reyðarfirði ef af verð-
ur. „Við reiknum með því að á fundi
með íslenskum ráðamönnum í júní
verði komið fastara form á tíma-
setningu og annað. Þá verða næstu
stóm ákvarðanimar teknar. Við
vildum satt að segja ekki að þeir
kæmu hingað fyrir kosningar, þeir
hefðu komið fyrr ef þær hefðu ekki
verið.“
Jostein Flo sagði aðspurður að
engin breyting hefði orðið á þeirri
stefnu Norsk Hydro að vera ekki
meirihlutaeigandi í fyrirhuguðu ál-
veri. „Við viljum samstarf við ís-
lenska hagsmunaaðila og það hefur
ávallt verið stefnan. Heppilegast
væri að íslendingar ættu sjálfir
meirihluta og það höfum við sagt frá
upphafi. Fordæmið er að þegar litið
er á stóriðjuver í Noregi og forsögu
þeirra var það venjulega talið æski-
legt að norsk fyrirtæki ættu þar
meirihlutann." Flo sagðist telja að
orkuver vegna álversins myndu
verða reist af íslendingum án þátt-
töku Norðmanna.
Morgunblaöió/Anna Ingólfsdóttir
Jostein Flo: Heppilegast að íslendingar eigi meirihluta. Fremri röð frá vinstri: Garðar Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingastofunnar-Orkusviðs, Jon Harald Nilsen, forstjóri álsviðs Norsk Hydro, Tormod
Björk yfirmaður byggingadeildar álsviðs, Jostein Flo, yfirmaður súrálsdeildar álsviðs og Smári Geirsson, for-
maður SSA. í aftari röð: Magnús Ásgeirsson, starfsmaður STAR á Austurlandi, Andrés Svanbergsson, yfir-
verkfræðingur Fjárfestingastofunnar-Orkusviðs, Þorvaldur Jóhannsson, framkvæmdastjóri SSA, og Guð-
mundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
STUTTERLENT
Compaq fækkar
dreifendum
COMPAQ í Houston, stærsta tölvutyrirtæki heims,
hefur ákveðið að fækka heildsöludreifendum um
70% til að draga úr kostnaöi og auka skilvirkni
vegna neikvæðrar sölu á fyrsta ársfjóróungi. Fyrir-
tækið segir að nánara samband við færri dreifend-
ur muni einfalda afhendingu einmenningstölva og
draga úr kostnaöi.
Compaq hefur gengið illa aö einfalda dreifikerfi
sitt og það vandamál er talið tengjast slakri sölu
fyrirtækisins á fyrsta ársfjórðungi.
Vonbrigði með þá niðurstöðu leiddu til uppstokk-
unar hjá Compaq, meðal annars uppsagnar Eck-
hards Pfeiffers forstjóra.
Microsoft og Nextel
í samstarf
MICROSOFT hugbúnaðarrisinn hyggst kaupa 4,25%
hlut í þráölausa símafélaginu Nextel fyrir 600 millj-
ónir dollara. Þaö sem vakir fyrir Microsoft er að
flýta fyrir því að geta boðiö þráölausa net- og upp-
lýsingaþjónustu. Microsoft mun greiða 36 dollara á
bréf fyrir hlut sinn í Nextel Communications Inc.
Samvinnan mun gera viðskiptavinum Nextel kleift
að nýta sér hina kunnu Microsoft Network þjónustu
(MSN) á netinu.
Ráðgert er að þráölaus netþjónusta verði í boði
seinna á þessu ári um leiö og MSN þjónusta
Microsofts veröur stórbætt og efld.
Elf selur borpalla
I Norðursjó
FRANSKA olfufélagið Elf ætlar að selja helztu
mannvirki sín í Norðursjó. Borpallarnir Piper,
Claymore og Saltire verða seldir og sömu sögu er
að segja um Rotta stöðina á Orkneyjum og leiðslur
sem liggja til hennar.
Meðal þess sem verður selt er Piper B olíuborp-
allurinn, arftaki Piper Alpha sem sprakk í loft upp
1988 með þeim afleiöingum að 167 biðu bana.
Elf er eitt af 10 stærstu olíu- og gasfyrirtækjum
heims og salan mun gera því kleift að einbeita sér
að hinum ábatasömu Elgin- og Franklin olíuleitar-
svæðum í Noröursjó. Búizt er við að borun þar hefj-
ist í aprfl 2000.
47% minni hagnaður
BP Amoco
OLÍURISINN BP Amoco Plc, stærsta fyrirtæki Bret-
lands, hefur skýrt frá því að hagnaöur á fyrstu þrem-
ur mánuðum ársins hafi minnkað um 47% í 677
milljónir dollara eftir kostnað vegna samruna og sú
niðurstaöa er f samræmi við spár sérfræöinga. John
Browne aðalframkvæmdastjóri sagði aö fyrirtækið
hefði skilað góðum frumárangri við erfið skilyrði. Fyr-
irtækiö hefði notið góðs af bættri frammistöðu
vegna lægri kostnaöar í öllum deildum og kostir
samruna BP og Amaco væru að koma í Ijós.
Ef ekki er tekið tillit til kostnaöar af 55 milljarða
dollara samruna BP og Amaco minnkaði hagnaður
um 41% í 761 milljón dollara, sem er betri útkoma
en sérfræðingar höfðu búizt við.
Bretar losa sig
við gullbirgðir
VERÐ á gulll lækkaði um fimm dollara þegar brezka
fjármálaráðuneytið skýrði nýlega frá fyrirætlunum um
að selja um tvo þriðju 6,5 milljaröa dollara gull-
birgða sinna á næstu tveimur árum.
Bretar ætla að seija 126 tonn af gulli fjárhagsárið
1999-2000 á fimm uppboöum frá 6. júlí og er það
liöur í endurskipulagningu á varasjóðum lands-
manna. Síðan hyggst ráðuneytið selja 350 tonn til
viðbótar, en núverandi birgðir eru 715 tonn.
Að sögn ráðuneytisins mun erlendur gjaldeyris-
forði leysa gullbirgöirnar af hólmi og verða 40% hans
f Bandaríkjadölum, 40% í evrum og 20% f jenum.
Ráðuneytið segir aó Bretar veröi að leggja inn um
140 tonn af gulli í seðlabanka Evrópu (ECB), ef þeir
taki upp evru.