Morgunblaðið - 12.05.1999, Side 33

Morgunblaðið - 12.05.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999 33 LISTIR Þátttaka í alþjóðlegum listamessum Fá góða yfirsýn á stuttum tíma PÉTUR Arason verslunareigandi er einn fárra Islendinga sem sækja reglulega listamessur, nú síðast í Stokkhólmi um miðjan mars sl., þar sem honum var boðið að taka þátt í málþingi með safnstjórum nútíma- listasafna, en þar var aðalumfjöll- unarefnið innkaupastefna safna. A listamessunni í Stokkhólmi var einnig Edda Jónsdóttir, eigandi Gallerís Ingólfsstrætis 8, sem þá var nýkomin af alþjóðlegu lista- messunni Areo í Madríd. Það mun hafa verið í fyrsta sinn sem íslenskt gallerí tekur þátt í alþjóðlegri lista- messu. Edda lét þess getið í samtali við Morgunblaðið nýlega að Pétur væri í raun eini maðurinn á Islandi sem safnaði nútímamyndlist. „I sjálfu sér er þetta eins og hver önnur kaupstefna, þar sem gefnar eru miklar upplýsingar á stuttum tíma. Það var litið dálitlu hornauga fýrir nokkrum árum að þetta væri markaðstorg listarinnar en það hef- ur breyst mikið, núna heyrir maður ekki þessar neikvæðu raddir. Nú þykir þetta alveg nauðsynlegt fyrir safnara, menn sem hafa kannski ekki mikinn tíma til að þvælast á milli gallería en þarna fá þeir góða yfirsýn á stuttum tíma,“ segir Pét- ur. „Það er gífurlegur fjöldi sem sækir þessar messur; bæði þeir sem eru að kaupa, forvitnir áhorf- endur, listamenn og safnafólk - það er í rauninni allur listheimurinn sem mætir þama,“ heldur hann áfram. Pétur segir nokkrar lista- messur skera sig úr. „Sýnu stærst þeirra er sú í Basel í Sviss, sem haldin er í byrjun maí, á hæla henn- ar fylgir Köln í nóvember, svo hef- ur Berlín komið sterkt inn, og Frankfurt, að ógleymdri Arco í Ma- dríd og messunni í Stokkhólmi. Svo eru nokkrar minni í Bandaríkjun- um, t.d. í Chicago." Pétur segir mjög erfítt að fá inni á bestu messunum. „Galleríin verða að vera búin að sanna sig, menn hlaupa ekkert þarna inn. Fólk var mjög hrifíð af básnum hjá Eddu og hún fékk fólk strax með sér. Yfir- leitt hafa galleríin verið að kynna eina 20-30 listamenn, en nú er hugsunarhátturinn að breytast og mörg gallerí farin að leggja áherslu á að kynna frekar einn til tvo lista- menn eða verkefni, sérstaklega þau gallerí sem eru yngri og minna þekkt. Eddu tókst þetta mjög vel,“ segir hann. Aðspurður um hvert leiðin liggi næst á listamessu segir Pétur það fara eftir ýmsu. „Kannski verður það Köln - það kemur í ljós.“ Landsvirkj- unarkórinn í Grensás- kirkju LANDSVIRKJUNARKÓRINN heldur tónleika í Grensáskirkju á morgun, fimmtudag kl. 17. Auk kór- söngs verður einsöngur og tvísöng- ur. Flutt verða íslensk, dönsk og ensk lög, m.a. syrpa úr söngleiknum Oklahoma eftir Rodgers og Hammerstein. Einnig flytur rosk- inn „drengjakór" nokkur lög. Hann skipa 10 núverandi og íyrrverandi starfsmenn frá verkfræðistofunni Hönnun. Einsöngvarar eru Þuríður G. Sig- urðardóttir, sópran, Þorgeir J. Andrésson, tenór og Birna Ragn- arsdóttir, sópran. Undirleik á píanó annast Kolbrún Sæmundsdóttir, á harmonikku Guðni Þorsteinsson og á gítar Páll Eyjólfsson. Stjómandi Landsvirkjunarkórs- ins er Páll Helgason og raddþjálfari er Þuríður Guðný Sigurðardóttir. Kórinn er að ljúka sínu 8. starfsári. Hann var stofnaður í nóvember 1991. í kórnum eru 37 félagar um þessar mundir. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Jórukórinn á Selfossi YNGSTI kór Selfyssinga, Jórukór- inn, lýkur vetrarstarfinu með tvenn- um tónleikum á Selfossi. Fyrri tón- leikamir verða á uppstigningardag, fimmtudaginn 13. maí, kl. 20:30 í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Seinni tónleikamir verða í Selfosskirkju sunnudaginn 16. mai kl. 16. Efnisskrá kórsins samanstendur af íslenskum sönglögum, negrasálm- um og íslenskum og erlendum dæg- urlögum. Til liðs við sig hefur kórinn fengið söngkonuna Kristjönu Stef- ánsdóttur, sem verður einsöngvari á tónleikunum. Stjómandi er Helena Káradóttir og hljóðfæraleikarar eru Þórlaug Bjarnadóttir, Helgi E. Kri- stjánsson og Smári Kristjánsson. Súrefiiisyörur Karin Herzog Kynning i dag kl. 14—18 í Apóteki Keflavíkur, Keflavík, Fjarðarkaups Apóteki, Hafnarfirði, Apótekinu Smárartorgi, Kópavogi. - Kynningarafsláttur - EINFALT ■ AUÐVELT HANDHÆGT 0DEXION APT0N SMÍÐAKERF! -Snidld fyrir hvern og einn SINDRI -Pegar byggja skal með málmum Faxið til okkar hugmyndir og við sendum ykkur verðtilboð. Borgartúni 31 ■ 105 Rvik ■ sími 575 OOOO ■ fax 575 0010 ■ www.sindri.is Söngskólinn í Reykjavík 8. stigs tónleik- ar í Smár- anum SÖNGVARARNIR sem eru að ljúka 8. stigs prófl ásamt skólastjóranum Garðari Cortes. FJÓRTÁN nemendur tóku 8. stigs próf í einsöng í vetur, loka- próf úr almennri deild Söngskól- ans í Reykjavík. Lokaáfangi prófsins eru einsöngstónleikar sem verða í Tónleikasal Söng- skólans, Smára, Veghúsastíg 7. Á efnisskrá tónleikanna eru ís- lensk og erlend lög, söngvar úr söngleikjum og aríur og dúettar úr óperum. Píanóleikararnir eru allir kennarar við Söngskólann í Reykjavík. I kvöld, miðvikudag, kl. 20, syngja Ingibjörg Ólafsdóttir sópran og Kolbrún Sæmunds- dóttir leikur undir á pianó og Margrét Árnadóttir sópran og Iwona Jagla leikur undir á pianó. Á morgun, fimmtudag kl. 16, syngja Elísa Sigríður Vilbergs- dóttir sópran við undirleik Iwona Jagla á píanó og Þórhallur Barðason barítón við undirleik Katrínar Sigurðardóttur á píanó. Kl. 20 syngja sópransöngkonurn- ar Elíza María Geirsdóttir og Guðbjörg R. Þórisdóttir við pí- anóundirleik Ólafs Vignis Al- bertssonar. Sigurlaug Knudsen sópran og Iwona Jagla koma fram kl. 16 laugardaginn 15. maí. Þá syngur einnig Þórunn Día Steinþórsdótt- ir við píanóundirleik Láru Rafns- dóttur. Sunnudaginn 16. maí kl. 16 koma fram Rósalind Gísla- dóttir mezzósópran og Kolbrún Sæmundsdóttir, píanó og Gunnar Kristmannsson barítón og Katrín Sigurðardóttir, píanó. Mánudag- inn 17. maí kl. 20 syngja Þóra Gylfadóttir sópran við pianóund- irleik Elínar Guðmundsdóttur og Þorsteinn Guðmundsson tenór við pianóundirleik Hólmfríðar Sigurðardóttur. Þriðjudaginn 18. maí kl. 20 syngja Ragnheiður Hafstein mezzósópran við píanó- undirleik Iwona Jagla og Tryggvi Helgason barítón við pí- anóundirleik Katrínar Sigurðar- dóttur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.