Morgunblaðið - 19.05.1999, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SIGUR BARAKS
URSLIT ísraelsku kosninganna um embætti forsætisráð-
herra voru ótvíræð. Ehud Barak, forsætisráðherraefni
Verkamannaflokksins, hlaut 56% atkvæða en forsætisráðherr-
ann Benjamin Netanyahu um 44% atkvæða.
Það er ljóst að ísraelskir kjósendur krefjast breytinga. A
þeim þremur árum, sem liðin eru frá því Netanyahu náði kjöri,
hefur hann sætt harðri gagnrýni jafnt innanlands sem utan.
Hann hefur þrjóskast við að framfylgja friðarsamningum við
Palestínumenn, jafnvel þeim, sem hann undirritaði sjálfur í
Wye River í Bandaríkjunum á síðasta ári. Ekkert hefur miðað
áfram í viðræðum Israela við Sýrlendinga og ríkisstjórn Net-
anyahus hefur heimilað landnemum að leggja undir sig frekara
landsvæði. Fjölmörg hneykslismál hafa dregið úr tiltrú stjórn-
arinnar og loks er augljóst að Netanyahu hefur persónulega
kallað yfir sig andúð margra kjósenda.
Netanyahu vann sigur á sínum tíma með fyrirheitum um að
ekki yrði samið um frið á kostnað öryggis Israelsríkis. Flestum
ísraelum er hins vegar ljóst að fyrr eða síðar verður að finna
fyrirkomulag á samskiptum þeirra við Palestínumenn er báðar
þjóðirnar geta unað við. Það sama á við um samskiptin við ná-
grannaríki Israela. I stjórnartíð Netanyahus hefur hins vegar
miðað hægt áfram í þessum efnum enda var stjórnin að miklu
leyti í gislingu öfgaflokka. Þegar við bætist að efnahagur lands-
ins hefur gengið í gegnum erfitt samdráttarskeið gat Netanya-
hu ekki státað af miklu í kosningabaráttunni.
Verkamannaflokkurinn tefldi hins vegar fram Ehud Barak,
sem á að baki glæstan feril innan ísraelska hersins, er virtur
langt út fyrir raðir flokksins fyrir gáfur og vart frambjóðandi
sem hægt er að brigsla um að vilja tefla öryggi landsins í tví-
sýnu. Kosningabarátta Baraks, sem að stórum hluta var skipu-
lögð af bandarískum ímyndarsérfræðingum, þótti snilldarleg
og tókst honum að grafa algjörlega undan forsætisráðherran-
um án þess að gefa sjálfur afgerandi loforð um framtíðina.
Þrátt fyrir að stefnumið Baraks séu um margt óskýr og ljóst
að hann muni ekki síður en Netanyahu krefjast skýrra trygg-
inga fyrir öryggi ísraels í samningum við araba er kjör hans
líklegt til að hleypa nýju lífi í friðarumleitanir. Þar bíða hins
vegar flókin úrlausnarefni, sem ekki er sjálfgefið að takist að
leysa. Barak hefur gefið í skyn að hann sé reiðubúinn til samn-
inga um afhendingu frekara lands á Vesturbakkanum og hann
hefur ekki útilokað að hann geti fallist á stofnun sjálfstæðs rík-
is Palestínumanna. Barak hefur hins vegar tekið fram að hann
muni ekki afhenda allt það land er Israelar hernámu í sex daga
stríðinu og talið er að afstaða hans til samninga um Austur-
Jerúsalem sé jafnósveigjanleg og forverans. Þá munu Sýrlend-
ingar vart falla frá því skilyrði sínu fyrir friðarsamningum að
þeim verði afhentar Gólanhæðirnar að nýju. Samningar við
Sýrlendinga eru hins vegar forsenda þess að ísraelar losni úr
þeirri sjálfheldu er þeir hafa verið í í Suður-Líbanon í tæpa tvo
áratugi, en það var einmitt eitt helsta loforð Baraks að ísra-
elskar hersveitir yfirgæfu Líbanon innan árs.
Barak nýtur góðs af því að hafa skýrt umboð frá þjóðinni til
að stjórna landinu auk þess sem hann mun eiga auðveldara
með að finna bandamenn á alþjóðavettvangi en Netanyahu,
sem virtist hafa brennt flestar brýr að baki sér í þeim efnum.
Það dregur hins vegar úr bjartsýni að ísraelska þjóðin virðist
verða stöðugt sundurleitari og hörð innbyrðis átök trúarhópa
jafnt sem þjóðarbrota settu sterkan svip á kosningabaráttuna.
Og þrátt fyrir skýran sigur Baraks í forsætisráðherrakjörinu á
eftir að koma í ljós hvernig honum mun ganga að mynda nýja
ríkisstjórn. Verkamannaflokkurinn tapaði þingsætum í kosn-
ingunum og alls eiga nú fulltrúar fjórtán flokka sæti í Knesset.
Það verður hægara sagt en gert fyrir hinn nýkjörna forsætis-
ráðherra að koma saman starfshæfri ríkisstjórn úr þeim brot-
um og líklegt að hann verði annað hvort að veita flokkum ísra-
elskra araba aðild að stjórninni eða þá Shas, flokki heittrúaðra
gyðinga.
Vegna raunveruleika ísraelskra stjórnmála verður hins veg-
ar erfítt að ganga til viðkvæmra samninga við Palestínumenn
ef flokkur araba gegnir lykilaðstöðu í stjórninni og samstarf
við Shas er í augum flestra stuðningsmanna Baraks afleitur
kostur. Flokkurinn hefur iðulega verið í oddahlutverki í ríkis-
stjórn en hefur átt undir högg að sækja þar sem leiðtogi hans
var nýlega dæmdur fyrir spillingu. Flestum á óvart vann flokk-
urinn hins vegar verulega á í kosningunum og bætti við sig
þingsætum, sem styrkir enn stöðu Shas. Sú ákvörðun Aryeh
Deri, leiðtoga Shas, að segja af sér embætti í gær, gæti jafn-
framt gert flokkinn að líklegri valkosti við stjórnarmyndun
þótt vart muni hann teljast fýsilegur.
Þriðji kostur Baraks, sem myndi gera honum kleift að
mynda stjórn án flokka araba eða Shas, væri samstarf við
Likud-bandalagið. Það væri um margt athyglisverður kostur,
ekki síst í ljósi þess hversu mikilvægt er að breið samstaða ná-
ist í Israel í þeim flóknu friðarviðræðum sem framundan eru.
Hin afdráttarlausa höfnun ísraelskra kjósenda á stefnu Net-
anyahus og sú ákvörðun hans að hætta afskiptum af stjórnmál-
um gæti opnað leið fyrir slíkt samstarf.
Draumurinn um að
ríkisvaldið gufi upp
FRUMSAMDAR sonnettur um
börnin hans og eigin þýðingar
á kvæðum þýska skáldsins
Heinrich Heine, nýjustu
kenningar í þróunai'sálarfræði og mat-
aruppskriftir frá miðöldum renna jafn
lipurlega upp úr honum og framtíðar-
spá um að ríkisvaldið gufí upp. Þessi
lágvaxni, hnellni og stríðhærði prófess-
or í lögum við Santa Clara-háskólann
fæst við lög út frá forsendum hagfí-æð-
innar og sú sýn opnaðist honum ekki
síst eftir að hafa kynnst íslenska þjóð-
veldinu.
Hagfræðin er hans fag, þó hann
reyndi að forðast hana í lengstu lög.
Sem sonur Nóbelsverðlaunahafa var
ekki auðvelt að feta í sömu fótspor og
faðirinn, Milton Friedman. En David
Friedman hefur íyrir löngu unnið sér
sess með byltingarkenndum og
ögrandi hugmyndum um þjóðfélag án
ríkisstjórnar, þar sem góður orðstír
verður á ný gulli betri. Á Netinu er far-
ið að móta fyrir samfélagi á sömu nóL
um og Friedman hefui' rætt um í þrjá
áratugi.
Frá eðli efnisins til
eðlis þjóðfélagsins
Maðurinn, sem trúir því að löggild-
ing starfsgreina muni hverfa, hefur
sjálfur ekki próf upp á eigið hagfræði-
ágæti. Samhliða doktorsprófi í eðlis-
fræði skrifaði hann bók um hagfræði-
leg efni út frá nýstárlegu sjónarhomi,
„The Machinery of Freedom“, sem
kom út 1971.
Upp úr því lá leiðin i hagfræðileg við-
fangsefni. „Eg sá að mér fannst ein-
faldlega svo miklu skemmtilegra að
fást við hagfræði. I eðlisfræðitímum sat
ég þögull, meðan hinir töluðu, en í hag-
fræði var þessu öfugt farið. Upp úr því
gafst ég upp á að halda mig frá sviði
fóður míns, sem var ástæðan fyrir þvi
að ég valdi eðlisfræði upphaflega," seg-
ir Friedman með bros á vör.
Friedman lítur á sjálfan sig sem
íhaldsmann í stjómmálalegu tilliti, án
þess þó að nota hagfræðina til að und-
irbyggja stjómmálaskoðanir sínar. En
skyldi hann þá líta á hlutverk sitt í hag-
fræði sem hlutverk þess sem ögrar og
skelfir?
„Nei, alls ekki og orðstír minn er alls
ekki slíkur. Hugmyndir mínar era á
líkum nótum og Gary Beckers. Ég leitr
ast bara við að stunda góða hagfræði,
en orðstír minn er öllu heldur orðstír
viðvaningsins, því ég kem víða við.
Flestir hagfræðingar eyða ævinni í
að prjóna við einhverja eina hugmynd.
Ég er ekki þannig. Almennt má segja
að í umfjöllun um vitsmunaleg efni
gildi gamla hertæknin að „skjóta og
gleyma“.
Islenska þjóðveldið
sem fyrirmynd
Þú vitnar oft til íslenska þjóðveldis-
ins sem áhugaverðrar fyrirmyndar.
Hvað vekur þar áhuga þinn?
„Þjóðveldið er dæmi um raunveru-
legt þjóðfélag án ríkisvalds. í okkar
þjóðfélagi er gengið út frá því sem vísu
að það þurfi ríkisvald til að framfylgja
lögunum, en þjóðveldið er gott dæmi úr
raunverulega lífinu um að einkaaðilar
em fullfærir um að fram- _____________
fylgja lögunum.“
Það kynnu kannski ein-
hverjir að segja að ríki án
ríkisvalds hljómi fremur
sem lýsing á helvíti en —”“““
himnaríki. Getur þetta verið árennileg-
ur kostur?
„Það em þegar fyrir hendi stórir
hlutar samfélagsins, sem ganga vel án
afskipta ríkisvaldsins. Samskipti innan
fjölskyldunnar em eitt dæmi og svo
skipta félagsleg norm almennt miklu
máli. Aðhaldið er mikið því menn vilja
fylgja norminu. Annars vill enginn um-
gangast þá.
Það er til skemmtileg rannsókn á
sveitasamfélagi í Kalifomíu, sem fylgir
sterkum félagslegum normum. Eitt
þessara norma er til dæmis að ná-
grannar fara ekki í mál hver við annan,
svo þama er félagslegt ferli þessu til
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
„MIN framtíðarsýn er að ríkisvaldið hverfi smátt og smátt, svo þegar það er alveg horfið þá muni enginn taka
eftir því,“ segir bandaríski lagaprófessorinn David Friedman.
David Friedman hefur sett fram róttækar kenning-
ar um afnám ríkisvaldsins eins og Sigrún Davíðs-
ddttir heyrði er hún ræddi við og hlustaði á fyrir-
lestra próflausa hagfræðingsins, sem lítur á sig sem
íhaldsmann, þrátt fyrir stjórnleysishugmyndir sínar.
Ríkisvaldið til
óþurftar í eit-
urlyfjabaráttu
stuðnings, en mál ekki knúin fram með
lögum. Þetta er dæmi um hvemig ekki
þarf á ríkisvaldinu að halda til að fylgja
reglum eftir.
Annað dæmi um aðhald utan ríkis-
valdsins em rétttrúaðir demantasalar
af gyðingaættum í New York. Af trúar-
ástæðum leita þeir ekki til dómstóla, en
hafa hins vegar með sér strangt innra
réttarkerfi, þai' sem rabbíamir em.
Það væri til bóta að draga úr umsvif-
um ríkisvaldsins. Tollar em gott dæmi
um óhagkvæm afskipti, því þeir hafa til-
hneigingu til að vernda gamaldags iðn-
að. Ríkisvaldið hefur tilhneigingu til að
beita sér ekki til góðs, heldur eftir því
sem er pólitískt ábatavænlegt. Það tek-
ur og eyðir þjóðartekjum. Um síðustu
aldamót eyddi bandaríska ríkisvaldið
um tíu prósentum þjóðartekna, en nú
um 40 prósentum. Érum við einhverju
bættari?
Hvað gerir ríkisvaldið? Stundum eitt-
hvað gagnlegt, en það er líka virkt í tor-
tímingu eins og í baráttunni gegn eitur-
lyfjum, sem hefur kostað fjölda manns
lífið í Bandaríkjunum, að ónefndum
stríðsrekstri. Eða það heldur uppi háu
verði á matvælum eins og á Islandi. Á
því sviði gildir almennt að í fátækum
löndum beinast kraftar stjómvalda að
því að keppa um lágt verð og gera
bændur enn fátækari, en í ríkum lönd-
um er reynt að gera ríka bændur enn
ríkari með því að halda verðinu uppi.“
________ Dæmi um vel heppnaða
framfylgni reglna án afskipta
ríkisvaldsins era engu að síð-
ur sótt þangað sem ríkisvald-
ið er ramminn utan um kerf-
ið. Er þessi rammi ekki nauð-
synlegur, þó síðan geti reglum verið
framfylgt innan þess án afskipta þess?
„Nei, þvert á móti. I alþjóðaviðskipt-
um er algengt að deilur séu leystar án
afskipta ríkisvalds og sama gildir oft
manna í millum. Það er rangt að ríkis-
valdið sé nauðsynlegt til að framfylgja
lögum. Og því hefur verið haldið fram
að það sé einungis fyrir söguleg mistök
að ríkisvaldið setji lög.
En það verður ekki litið framhjá því
að ríkisvaldið gegnir megin hlutverld í
nútímaþjóðfélagi. Ég er enginn bylting-
armaður og er ekki að tala um að um-
bylta þjóðfélaginu svo ríkisvaldinu
verði ofaukið á morgun. Mín framtíðar-
sýn er að ríkisvaldið hverfi smátt og
smátt, svo þegar það er alveg horfið þá
muni enginn taka eftir því.“
Þú hefur haldið því fram að það ætti
að leyfa eiturlyf. Baráttan kosti líf og
ýti undir glæpi. En er hægt að tala um
hagkvæma eitm'lyfjaneyslu, þó hægt sé
að sjá hagkvæmni í því að leggja bar-
áttuna af?
„Ég er ekki að tala um að það leysi
öll vandamál að leyfa eiturlyf, en önnur
algengasta orsök eyðni í Bandaríkjun-
um em óhreinar nálar, sem sprautufíkl-
ar nota af þvi þeir fá ekki hreinar nálar.
Og ef eiturlyf væra leyfð væri einnig
hægt að fylgjast betm- með því að efnin
væra ekki enn hættulegri af því þau eru
svikin.“
Samfélög á Netinu eru að þróast ut-
an arma ríkisvaldsins, svo segja má að
framtíðin virðist ætla að halda sína leið.
Hver sérðu fyrir þér að þróunin verði?
„Það sem er að gerast á Netinu, í
tölvmýminu, er að þar myndast samfé-
lög, sem ekki lúta lögum ríkisvaldsins,
heldur gilda þar reglur, sem framfylgt
er af einkaaðilum.
Bitbeinið í viðleitni ríkisvaldsins til að
koma lögum sínum yfir Netið er
dulkóðun á Netinu, sem er lykillinn að
gi-eiðum viðskiptum um Netið, bæði til
að tryggja leynd og að maður geti sann-
að hver maður sé. Ég rökræddi þetta
efni eitt sinn í útvarpsþætti við dómara,
sem vildi greinilega bæði dulkóðun til
að tryggja netverslun, en ______________
um leið að stjómvöld gætu
lesið allt til að tryggja
hagsmuni ríkisvaldsins.
Þessi viðleitni ríkisvaldsins
er að mínu mati dæmd til "
að mistakast.
En tölvurýmið er ekki stjórnlaust, þó
það sé utan laga ríkisvaldsins. Þar
skiptir orðstírinn miklu máli. Hin ýmsu
samfélög Netsins hafa með sér eigin
reglur, sem er harðlega framfylgt.
Þeim, sem sendir til dæmis óviðkom-
andi efni inn á skoðanaskiptasvæði, er
úthýst þaðan. í því felst auðvitað sterkt
aðhald. Netið verður ekki eitt samhang-
andi samfélag, heldur mörg ólík samfé-
lög með ólíkum reglum.“
Það em þá væntanlega fyrirsjáanleg
átök milli raunheimsins og tölvurýmis-
ins?
„Já, það er ljóst og tölvurýmið er
Netið: Samfé-
lag án ríkis-
valds í augsýn
ekki vinsælt hjá öllum íTkisstjómum.
Mín ríkisstjóm er ekki ánægð með að
birtar séu myndir á Netinu af nöktu
fólki í ástaratlotum og alls ekki að það
séu börn. Þegar Netið verður orðið út-
breitt í Iran er ljóst að þar verður á döf-
inni hvort Múhameðstrú sé af hinu
góða eða ekki.
En tölvurýmið mun hafa áhrif víða,
til dæmis á skattstofninn. I Bandaríkj-
unum innheimta sum ríki söluskatt,
önnur ekki. Ég kaupi tölvu yfir Netið,
jafnvel þó framleiðandinn sé í nokkurra
kílómetra fjarlægð frá mér og þá frá
ríki, sem ekki innheimtir söluskatt. Ég
gæti þess líka að það sé ekki ríki, sem
er í bandalagi við Kalifomíu, þar sem
ég bý, um að miðla upplýsingum um
sölu milli ríkja.
Annað sem mun breytast er löggild-
ing starfa. Það verður áfram háð próf-
gráðu hvort maður getur fengið leyfi til
að reka mál fyrir rétti, en á Netinu get-
ur hver sem er veitt lögfræðiþjónustu.“
Dvínandi skattstofn óhjákvæmileg
afleiðing netþjóðfélagsins
Dvínandi skattstofn vegna áhrifa
tölvurýmisins mun væntanlega hafa
áhrif á velferðarkerfið?
„Já, undirstaða þess er að safna fé
með sköttum til að dreifa þeim aftur.
Þessi endurdreifing byggir á að fólk
geti ekki hreyft sig, en sú forsenda er
að breytast. Þetta er mikið rætt í Evi'-
ópu, en í Bandaríkjunum er þetta gam-
alt mál, þar sem lögð hefur verið
áhersla á að velferðarmál séu alríkismál
til að koma í veg fyrir að ríkin keppi á
þessu sviði.
En þegar rætt er um hreyfanleika er
annað sem mér finnst skipta máli og
það era innflytjendur. Þó ég líti á mig
sem íhaldsmann hef ég þó allt aðrai’
skoðanir á því máli en flestir íhalds-
menn. Ég álít að Bandaríkin
eigi að opna landamæri sín
og hleypa öllum inn sem vilja
koma. Ég væri ekki það sem
ég er ef afi minn og amma
hefðu ekki fengið að flytja til
Bandaríkjanna á sínum tíma frá Evr-
ópu.
Aðstreymi fólks til Bandaríkjanna
hafði meiri áhrif í átt til bættra lífskjara
en velferðarkerfið, því það liggur auð-
legð í fólki, ekki í landi. Og fyrst Milos-
evic í Júgóslavíu vill ekki skilja það og
rekur burt milljón manns hefðu Banda-
ríkin átt að taka við þessu fólki. Það
hefði líka sparað herútlát og mannslíf.
Öflugustu formælendur frjáls inn-
flutnings í Bandaríkjunum era há-
tækniiðnaðurinn, sem vildi eiga kost á
fleira fólki að velja úr. Innflytjendur
era yfirleitt hai'ðduglegir, duglegri en
við hinir.“
I
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 3£
Samstaða að skap-
ast um breytingar
á fæðingarorlofi
Pólitískur vilji virðist vera að skapast um að
nauðsynlegt sé að gera breytingar á fæðing-
arorlofí. ASI hefur lagt fram tillögur um
bætt réttindi foreldra og nú síðast lýsti for-
maður VSI yfír vilja vinnuveitenda til að
koma á móts við kröfur um breytt og aukið
fæðingarorlof. Egill Ólafsson rekur þær deil-
ur sem hafa verið um þetta mál og hvers
vegna svo flókið hefur reynst að koma á
breytingum á fæðingarorlofí.
REYNT hefur verið í mörg ár
að ná samkomulagi um
breytingar á fæðingarorlofi
með það að markmiði að
jafna réttindin milli launþega og
lengja orlofið. Stjórnvöld hafa tvívegis
skipað nefndir til að gera tillögur um
breytingar á fæðingarorlofi, en þær
skiluðu ekki tillögum vegna ágrein-
ings. Seinni nefndin hætti störfum
1997 og í kjölfarið samþykkti Alþingi
frumvarp heilbrigðisráðheira sem
kvað á um lagfæringar á fæðingaror-
lofi fjölburamæðra og mæðra barna
sem eiga við veikinda að stríða.
Ástæðan fyrir því að svo illa gengur
að ná samkomulagi um breytingar er
sú að réttindin era mismunandi milli
opinberra starfsmanna og launþega á
almennum markaði. Ef jafna á rétt-
indin með þvi að veita launþegum á al-
mennum markaði sama rétt til fæðing-
arorlofs kostar það mikla fjármuni
sem ekki hefur náðst eining um hvað-
an eiga að koma. Samtök opinbema
starfsmanna hafa ekki léð máls á að
jafna réttinn með því að skerða fæð-
ingarorlof opinberra starfsmanna. Inn
í þetta blandast kröfur um að lengja
fæðingarorlofíð og að jafna það milli
feðra og mæðra.
Mikill munur á greiðslum
í grundvallaratriðum er fæðingar-
orlof kvenna sem vinna hjá ríkinu og
sveitarfélögunum þannig að þær fá
greiðslur í þrjá mánuði sem eru með-
altal heildarlauna síðustu 12 mánaða
og föst laun í þrjá mánuði til viðbótar.
Þess má geta að meðaldagvinnulaun
opinberra starfsmanna voru 129 þús-
und á mánuði á síðasta ári, en meðal-
heildarlaun vora 188 þúsund á mán-
uði. Konur á almenna vinnumarkaðin-
um, sem rétt eiga á fullu fæðingaror-
lofí, fá um 72 þúsund krónur á mánuði
í 6 mánuði.
Á síðasta ári tóku gildi lög um
tveggja vikna fæðingarorlof feðra.
Greiðslur til feðranna eru eru 32 þús-
und krónur fyrir þessar tvær vikur
fyrir feður á almenna vinnumarkaðin-
um en feður sem starfa hjá hinu opin-
bera halda fullum föstum launum og
50% af yfirvinnugreiðslum. Þegar
lagafrumvarpið var til umfjöllunar í
Alþingi kom fram að stjórnvöld litu á
þetta sem fyrsta skref í því að jafna
rétt karla og kvenna til að taka fæð-
ingarorlof.
Deilur um greiðslur í fæðingarorlofi
hafa leitt til þess að dregist hefur að
bæta réttindi launþega á almennum
markaði. ASÍ hefur lagt fram tillögu
um að greiðslur í fæðingarorlofi verði
85% af viðmiðunarlaunum. Ef slík
regla ætti að ná til alls vinnumarkað-
arins myndi það leiða til breytinga á
réttindum opinberra starfsmanna því
þeir halda fullum launum í fæðingar-
orlofi.
Talverð umræða hefur verið um
breytingar á fæðingarorlofi á síðustu
árum og greinilegt er að þrýstingur á
breytingar er að vaxa. Feður hafa
þrýst fast á aukinn rétt og m.a. höfða
dómsmál á hendur ríkinu í því skyni.
Pólitísk samstaða virðist vera að skap-
ast um að breytinga sé þörf. Það sást
best í nýliðnum kosningum þar sem
allir stjórnmálaflokkar lofuðu lengi'a
fæðingarorlofi.
Vinnuveitendur lýsa sig tilbúna
að taka þátt í kostnaðinum
Ólafur B. Ólafsson, formaður VSÍ,
gerði fæðingarorlofsmal að umfjöllun-
arefni á aðalfundi VSI í síðustu viku,
en hann sagði: „Staða barnafólks á
vinnumarkaði hefur fengið aukna at-
hygli og einnig sú staðreynd að mikill
munur er á gildandi löggjöf um rétt
starfsmanna til fæðingarorlofs eftir
þ'ví hvort þeir starfa á einkamarkaði
eða hjá hinu opinbera. Vax-
andi þrýstingur er á nýjar
lausnir og hafa sjúkrasjóðir
verkalýðsfélaga tekið upp
greiðslur í fæðingarorlofi
sem hluta af sínu viðfangs-
efnum. Þetta er eðlilegt og getur gefið
færi á lausn þar sem fleiri leggja til.
VSI mun því leita eftir nýjum lausnum
á fyrirkomulagi fæðingarorlofs og
munu samtökin í tengslum við næstu
kjarasamninga reiðubúin til að standa
að breytingum, sem miðast við að
greiðslur nái tilteknu hlutfalli reglu-
bundinna launa, enda náist samkomu-
lag um fjármögnun og fyrirkomulag
fyrir allan vinnumarkaðinn.“
Elsa S. Þorkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs, sagði að
það væri fagnaðarefni að vinnuveit-
endur tækju til umræðu fjölskyldu-
þátt atvinnumála. Þessi ummæli Ólafs
væru merkileg og sýndu vel hvað
krafan um breytingar á fæðingarorlofi
væri orðin sterk.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSI, sagði í samtali við
Morgunblaðið að_ í lok síðasta árs
hefðu VSI og ASI orðið sammála um
að kalla eftir talnalegum upplýsingum
úr skattgögnum í þeim tilgangi að
gera mönnum betur grein fyi-ir kostn-
aði við breytingar á fæðingarorlofi.
Hann sagði að þessi gögn lægju enn
ekki fyrir, en VSI hefði hug á að halda
áfram viðræðum við ASI og önnur
launþegasamtök þegar þessi gögn
lægju fyrir.
„Sjúki'asjóðir stéttarfélaganna eru
farnir að greiða hluta af þessum
kostnaði, sem er eðlilegur þáttur í
starfsemi þeirra, og þá má segja að þá
hafi skapast fleiri mögu-
leikar á að fjármagna
lausnina. Við gerum okk-
ur grein fyrir því að
þetta er kosnaður sem
vinnuveitendur þurfa að
horfast í augu við.
Afstaða VSI hefur alla tíð verið sú
að það mætti ekki fella kostnað vegna
fjarvista kvenna af vinnustað ein-
göngu á atvinnurekendur þeirra. Það
stríðir gegn grundvallarviðhorfum í
jafnréttismálum. Það verður með ein-
hverjum hætti að fjármagna þetta í
gegn um skattkerfið með einhvers
konai' skattgreiðslum,“ sagði Þórar-
inn.
Þórarinn sagði að einnig hefði verið
nefnd sú lausn að mynda sérstakan
sjóð sem sæi um greiðslu fæðingaror-
lofs. Slíkur sjóður yrði þá hliðstæður
Ábyrgðarsjóði launa. Hann sagði að
þetta mál kynni að verða liður í lausn
næstu kjarasamninga og þess vegna
væri æskilegt að aðilar vinnumarkað-
arins reyndu að komast nálægt sam-
eiginlegri niðurstöðu áður en viðræð-
ur um gerð næsta kjarasamning
hæfust. Á þessu stigi væri engin leið
að segja fyrir um hvort mikill ágrein-
ingur væri milli samtaka vinnuveit-
enda og launþega um þetta mál, en
ljóst ætti að vera að erfiðara yrði að
leysa það eftir því sem kostnaðurinn
við lausnina yrði meiri.
Lausnin má ekki veikja stöðu
kvenna á vinnumarkaði
Elsa sagði að Jafnréttisráð hefði
alltaf lagt mikla áherslu á að greiðslur
í fæðingarorlofi kæmu ekki frá at-
vinnurekenda með beinum hætti held-
ur yrði kostnaðurinn
borinn upp af vinnu-
markaðinum í heild. Ef
þessar greiðslur kæmu á
vinnuveitandann með
beinum hætti myndi það
veikja stöðu kvenna á vinnumarkaði
og sömuleiðis stöðu ungra foreldra al-
mennt ef karlar færu að taka fæðing-
arorlof í meira mæli en nú væri.
Elsa sagði að mjög erfiðlega hefði
gegnið að samræma greiðslur í fæð-
ingarorlofi milli launþega á almennum
markaði og opinberra starfsmanna.
Það væri búið að reyna mikið til að
skapa samstöðu um að taka á þvi
mikla misrétti sem væri í dag. Það
hlyti einhvern tímann að koma að því
að menn segðu að samningaleiðin væri
fullreynd og löggjafinn yrði að taka á
málinu. „Það er að minnsta kosti mik-
ilvægt að þessi ágreiningur komi ekki
í veg fyrir lengingu orlofsins sem víð-
tæk samstaða virðist um,“ segir Elsa. -
Ágreiningur er um hvort fæðingar-
orlofsréttur opinberra starfsmanna er
hluti af samningsbundnum réttindum
þeirra. Ekki er kveðið á um þessi rétt-
indi í kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Um fæðingarorlof opin-
berra starfsmanna var sett sérstök
reglugerð sem fjármálaráðuneytið gaf
út árið 1989, en ráðuneytið hafði hins
vegar samráð við samtök opinberra
starfsmanna um efni hennar.
Tilskipun um fæðingarorlof
tekur gildi í haust
Það sem þrýstir á stjórnvöld um að
breyta fæðingarorlofi er að 27. sept-
ember nk. tekur gildi tilskipun á Evr-
ópska efnahagssvæðinu um þriggjft.
mánaða foreldraorlof. Tilskipunin átti
að taka gildi á síðasta ári, en íslensk
stjórnvöld fengu að fresta gildistök-
unni um eitt ár.
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri
ASI, sagði að gildistaka þessarar til-
skipunar gæfi tilefni til að endurskoða
réttindakerfi foreldra í heUd sinni. Til-
lögur ASÍ hefðu gegnið út á að búa til
tvíþætt réttindakerfi, annars vegar
hefðbundið fæðingarorlof sem tengdist
fæðingu barnsins og hins vegar for-
eldraorlof sem tengdist meira fyrstu
árum bamsins og þroska þess. Hug-
myndir ASÍ hefðu gengið út á að fjár-
magna þessar greiðslur með stofnun
sjóðs, sem yrði rekinn með svipuðum
hætti og Ábyrgðarsjóður launa. Fjái>
magn í sjóðinn kæmi með álagningu
launagjalda. Þess má geta að fæðing-
arorlof á almennum vinnumarkaði er í
dag fjármagnað að hluta til
með tryggingagjaldi.
Halldór sagði að þeir
þættir sem taka þyrfti á í
þessu sambandi væru
greiðslur í fæðingarorlofi,
lengd þess og sveigjanleiki. Hann
sagði að ASÍ hefði fallist á aðþaka á
þessu máli í tveimur áfóngum. I fyrsta
áfanga yrði lögfest þriggja mánaða
foreldraorlof án greiðslna. Tilgangur-
inn væri einfaldlega að uppfylþi
ákvæði EES-tilskipunarinnar. Sam1
hliða yrði hins vegar að liggja fyrir að
heildarendm-skoðun á réttindakerfinu
færi fram og að greitt yrði fyrii' þetta
foreldraorlof.
Halldór sagði ekkert liggja fyrir um
hver kostnaður væri við tillögur ASI.
Um það væri lítið hægt að segja fyrr
en þau gögn, sem búið væri að ka&a
eftir, lægju fyrir.
Mismunandi
réttindi í fæð-
ingarorlofi
Reiðubúnir að
taka þátt í
kostnaði