Morgunblaðið - 09.06.1999, Side 40

Morgunblaðið - 09.06.1999, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ 40 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 MINNINGAR + Móðir okkar, FRIÐBJÖRG FRIÐBJARNARDÓTTIR, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést laugardaginn 5. júní á Sjúkrahúsi Akraness. Börnin. t Ástkær móðir, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA GUÐVARÐARDÓTTIR, dvalarheimílinu Höfða, Akranesi, sem lést föstudaginn 28. maí sl., verður jarðsett frá Akraneskirkju föstu- daginn 11. júní kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á dvalarheimilið Höfða og Sjúkrahús Akraness. Birgir Þórðarson og fjölskylda, Þórður Magnússon og fjölskylda. t Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, ÞORVALDUR GUÐJÓNSSON brúarsmiður, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést föstudaginn 4. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudag- inn 11. júní kl. 13.30. Þórarinn Heiðar Þorvaldsson, Sigurlína Jónsdóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Aðalsteinn Þórólfsson, Hrafnhildur Þorvaldsdóttir. t Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hluttekningu, samúð og vinarhug við andlát og útför konu minnar, móður, tengda- móður og ömmu, SÚSÖNNU BRYNJÓLFSDÓTTUR, Hólavallagötu 3. Ásgeir Jónsson, Jón Ásgeirsson, Þorbjörg Skjaldberg, Ásgeir Jónsson yngri. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐMUNDU ÓLAFSDÓTTUR, Hvítingavegi 3, Vestmannaeyjum. fsleifur Ingvarsson, Ástþór Eydal ísleifsson og fjölskyldur. t Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út- för SVÖVU EYÞÓRSDÓTTUR, Blikahólum 4, Reykjavík. Finnur Tryggvason, Svava Helga Carlsen. t Innilegustu þakkir til allra sem sýndu mér samúð og vinarhug við fráfall og útför mannsins míns, SIGURJÓNS JÓNSSONAR, Vatnsendabletti 18, Kópavogi. Elín Stephensen. + Sigrún Jóns- dóttir fæddist 14. maí 1954 í Reykjavík en ólst upp í Kaliforníu. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 31. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar eru: Jón Sævar Jónsson, f. 10.6. 1926, og Hulda Birna Lárusdóttir, f. 15.6. 1931, búsett í Kaliformu. Systkini hennar eru: Lárus Bjöm Sævar, f. 29.6. 1952, kvæntur en bamlaus, búsettur í Kalifomíu; Jón Jökull, f. 15.1. 1958, kvænt- ur en bamlaus, búsettur í Kali- Með fáum orðum langar mig að minnast frænku minnar Sigrúnar Jónsdóttur, Lindargötu 28, sem lát- in er eftir löng og ströng veikindi. Allan tímann reyndi hún að gera sem mest sjálf og sjaldnast kom fyr- ir að hún bæði um aðstoð þótt sár- þjáð væri. Það eru einungis þrjú og hálft ár síðan við sáumst fyrst, en ég komst að því fyrir einskæra tilviljun að hún hefði flust til landsins frá Kalifomíu með tvo syni sína, en mjög ung hafði hún flust út með for- eldrum og eldri bróður. Þar átti hún mestallt sitt lífshlaup fyrir utan tíu ár sem hún bjó á Hawaii, en þar sagðist hún hafa átt sína bestu daga. Þangað fara svo hennar jarðnesku leifar. Þangað flytur þær yngri son- ur hennar og systir hennar, sem þar er búsett, tekur við þeim. Ekki veit ég hvort það voru örlög eða þessi einskæra tilviljun sem réð því að ég sat við sjúkrabeð hennar ásamt föður hennar þegar hún dó og upplifði með henni friðsælan fomíu; Lorraine Lee, f. 16.8. 1960, í sambúð en barnlaus, búsett á Hawali. Synir Sigrúnar era: Erik Sævar, f. 21.5. 1980, og Krist- jón Thor Víkingur, f. 29.7. 1991, báðir fæddir í Kaliforníu. Sigrún lauk skóla- námi í Bandaríkjun- um og vann þar við verslunarstörf. Eftir að hún fluttist til Is- lands vann hún á Kaffi Reykjavík á meðan heilsan leyfði. Sigrún var jarðsungin í kyrr- þey að eigin ósk frá Fossvogs- kapellu. dauðdaga eftir þjáningarfullan dag. Þegar maður situr við rúm deyjandi manneskju fer ekki hjá því að mað- ur rifji upp þau samskipti sem mað- ur hefur átt við viðkomandi, en til- viljanir komu mikið við sögu í sam- skiptum okkar. Eftir að ég íyrst frétti af henni bauð ég henni að koma á jólaball sem fjölskyldan heldur sameiginlega, og þar mætti ung og falleg ljóshærð kona með ungan son sinn að hitta foðurfólkið sitt í fyrsta sinn. Samskipti okkar voru ekki mikil í fyrstu en skömmu síðar frétti ég þó að hún hefði greinst með krabbamein og áfram leið tíminn, þessi tími sem við vitum aldrei hvað við eigum mikið af. Enn og aftur kemur tilviljunin til sög- unnar. Ég á smáerindi við ná- grannakonu mína, sem vill endilega sýna mér myndir úr ferðalagi sem hún var nýkomin úr, þar með var mynd af Sigrúnu. „Æ, þetta er frænka mín sem er svo mikið veik,“ sagði hún, „frænka þín?“ segi ég, „þetta er líka frænka mín.“ Þær voru systradætur, við bræðradæt- ur. A þessu ári sem liðið er síðan höfum við átt margar góðar stundir, stundir sem ég hefði ekki viljað missa af. Að auki hef ég líka kynnst föður hennar sem ég hafði ekkert haft af að segja áður og nú móður hennar. Lífshlaup hennar þekki ég ekki mikið, veit þó að hún lauk hefð- bundnu námi í bandarískum skóla, stundaði aðallega verslunarstörf og þar eignaðist hún syni sína tvo sem hún dáði og dýrkaði, og í veikindum sínum bar hún hag þeirra fyrst og fremst fýrir brjósti. Þeirra vegna vildi hún breyta lífi sínu og flytja til Islands og ala þá upp í litla húsinu á Lindargötunni sem feður okkar ólust upp í. Hún gerði einnig þær ráðstafanir fyrir þá sem henni voru mögulegar. Það hefur verið lær- dómsríkt að fylgjast með baráttu þessarar hugrökku konu sem ætlaði að bera sigur úr býtum í þessari ójöfnu baráttu og leyndi því eins lengi og hún gat hvað mikið veik hún var orðin. Ég efa ekki að hennar andlegi styrkur og gráglettni húmor fleytti henni langt og dró marga að henni, því ekki hafði hún búið hér nema u.þ.b. fimm ár. Ég veit líka að hún átti sínar erfiðu stundir og hugsaði margt, t.d. hvað tæki við eftir dauð- ann. Kvöld eitt fyrir nokkru settist hún upp í rúminu og á hana kom kíminn svipur um leið og hún spurði: „Ætli maður þurfi svo að fara í próf áður en ákveðið verður hvort maður fer upp eða niður?“ Ekki kunnum við hjónin sem hjá henni sátum þessa stund svar við því. Hins vegar vorum við viss um að hún hefði lokið öllum prófum í skóla lífsins á sem bestan möguleg- an veg. Við óskum henni velfarnað- ar á nýjum stað og þökkum henni fyrir samveruna hér. Við sendum sonum hennar, foreldrum og systk- inum okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum þeim Guðsbless- unar. Sigurlaug og Jens. SIGRUN JÓNSDÓTTIR BRIDS Umsjón Arnór Ragnarsson Minningarmót í Fljótum FYRIRHUGAÐ er að halda bridsmót íyrir konur að Sólgörðum í Fljótum helgina 19. og 20. júní nk. Mótið er haldið til minningar um Guðbjörgu Sigurðardóttur (Guggu) sem lést í júní 1997 langt íyrir aldur fram. Spilaður verður tvímenningur og er hægt að skrá sig til 10. júní hjá Kristrúnu í síma 467 1650, Stefaníu í 852 9743 og 467 1878, Ingu Jónu í 554 3521 og 899 2031. Þátttökugjald er kr.: 1.000 á spil- ara. Svefhpokapláss. Sveit Kristjáns M. Gunnarsson- ar vann bikarkeppnina á Suðurlandi Sveit Kristjáns M. Gunnarssonar Bridgefélagi Selfoss vann sveit Bergsteins Arasonar með 118 stig- um gegn 95 í úrslitaleik í bikar- keppni Bridgesambands Suður- lands, sem var spilaður 6. júní. Bikarmeistarar auk Kristjáns eru: Helgi Grétar Helgason, Sigurð- ur Vilhjálmsson og Bjöm Snorra- son. 15 sveitir hófu keppni. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Mánudaginn 31. maí 1999 spiluðu 22 pör Mitchell-tvímenning. Urslit urðu þessi: N.S. Ólafur Ingvarsson - Jóhann Lúthersson 258 Sigurleifur Guðjónss. - Oliver Kristóferss. 242 Albertforsteinss.-Au3unnGuðmundss. 238 A.V. ÞórarinnAmason-FróíliB.Pálsson 275 Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðsson 240 RagnarHalldórsson-HjálmarGíslason 234 Fimmtudaginn 3. júní spiluðu 18 pör Mitchell-tvímenning. Úrslit urðu þessi: Eysteinn Einarsson - Guðlaugur Sveinsson 274 Þorsteinn Laufdal - Magnús Halldórsson 255 Karl Adólísson - Viggó Nordqiúst 233 A.V. Ásta Erlingsdóttir - Sigurðm- Pálsson 274 AlbertÞorsteinss.-AuðunnGu(lmundsson 246 Theodór Jóhansson - Sigtryggur Ellertsson 215 Meðalskor 216 Sumarbrids Sunnudaginn 6. júní var spilaður Barómeter tvímenningur með þátt- töku 10 para. SpHaðar voru 9 um- ferðir með 3 spilum á milli para. Efstu pör voru: Jón Stefánsson - Jón Viðar Jónmundsson +26 SigurðurSteingrímsson-ÓskarSigurðsson +20 Stefán Garðarsson - Ámi Hannesson +10 Guðrún Jóhannesd. - Vilþjálmur Sigurðsson jr. + 8 Mánudaginn 7. júní var spilaður Mitchell tvímenningur með þátttöku 21 pars. Spilaðar voru 9 umferðir með 3 spil- um á milli para. Meðalskor var 216. Efstu pör í N/S: EðvarðHallgrímsson-ValdimarSveinsson 256 Guðmundur Baldursson - Jens Jensson 227 Jón Stefánsson - Óli Bjöm Gunnarsson 225 Steinberg Ríkarðsson - Gfeli Steingrímsson 224 A/V Gísli Þórarinsson - Þórður Sigurðsson 261 Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 240 Hannes Sigurðsson - Þórir Sigursteinsson 236 JónViðar Jónmundsson - Kristinn Karlsson 233 Bæði pörin ákváðu að draga sér vinning úr heitasta pottinum. Gísli og Þórður drógu frímiða í sumar- brids en þeir Eðvarð og Valdimar unnu sér inn langloku og kók á Skalla í Hafnarfirði. Jón Stefánsson efstur í bronsstigakeppninni Jón Stefánsson tók forystuna í bronsstigakeppni sumarsins með því að krækja sér í 3ja sætið. Hann er efstur með 130 bronsstig en Guðlaugur Sveinsson er í 2. sæti með 121 stig. Sigurvegarar hvers kvölds geta ráðið hvort þeir notfæra sér frí- miðann sinn eða draga úr heitasta pottinum. Sumarbrids og Samvinnuferð- ir/Landsýn standa að Sumarleik sem stendur frá upphafi sumar- brids til 30. júlí. Sá spilari sem fær flest bronsstig 4 spiladaga í röð vinnur sér inn 40.000 kr. ferðaút- tekt hjá Samvinnuferðum - Land- sýn. Sumarbrids er spilaður 6 daga vikunnar, alla daga nema laugar- daga. Spilamennska byrjar alltaf kl. 19:00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.