Morgunblaðið - 09.06.1999, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 45
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Silli
ÚTSKRIFTARNEMENDUR frá Framhaldsskólanum á Húsavík.
Skólaslit Framhalds-
skólans á Húsavík
Húsavík. Morgnnblaðið
Fjallað um
getuleysi á
norrænu
læknaþingi
UM 400 þvagfæraskurðlæknar og
200 hjúkrunarfræðingar sitja Nor-
rænt þing þvagfæraskurðlækna og
hjúkrunarfræðinga í Borgarleikhús-
inu 9.-11. júní. Þingið hefst með mót-
töku í Ráðhúsinu kl. 18.30 miðviku-
daginn 9. júní. Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra setur þingið í Borgarleik-
húsinu kl. 9.00 fimmtudaginn 10. júní.
Þingið er í reynd samsett ráðstefna
þessara tveggja faghópa og varð þátt-
taka mun meiri en vænst var. Búist
er við því að það sæki samtals nærri
700 manns. Slík þing eru haldin á
Norðurlöndum á tveggja ára fresti.
Fyrirlesarar verða frá Norðurlönd-
um, Englandi, Bandaríkjunum og víð-
ar. Auk þess kynna margir þátttak-
endur rannsóknir sínar og stór sýn-
ing fyrirtækja verður í Borgarleik-
húsinu, segir í fréttatilkynningu.
Efni ráðstefnunnar er meðal ann-
ars krabbameinssjúkdómar, svo sem
þvagblöðru-, blöðruhálskirtils- og
nýmakrabbamein, þvagleki, góð-
kynja stækkun blöðruhálskirtils og
getuleysi karlmanna.
í hópi fyrirlesara er Tom F. Lue
frá Bandaríkjunum, sem er mesti sér-
fræðingur í heimi í getuleysi karla
(ristruflunum). Hann fjallai' um ris-
truflanir á næsta árþúsundi og hefst
fyrirlesturinn kl. 13.30 fimmtudaginn
10. júní. Sama dag verður kynning á
viagra-lyfinu fyrir íslenska lækna en
senn líður að þvi að það fáist hérlend-
is gegn framvísun lyfseðils. Paul
Abrams frá Bretlandi verður með
fyrirlestur um þvagleka, sem er al-
gengt, hvimleitt vandamál hjá bæði
konum og körlum og hefur legið í
hálfgerðu þagnargildi, segir í tilkynn-
ingunni. Fyrirlesturinn verður kl.
9.15 fimmtudaginn 10. júní.
Framlag Islands verður um
krabbamein í blöðruhálskirtli hjá ís-
lenskum körium sem greindust árin
1983-1987. Það er afrakstur vinnu
Jóns Tórnassonar unglæknis og íleii'i.
Sérstaða íslands felst í þvi að hægt er
að lýsa þessum alvarlega sjúkdómi
vel hjá heilli þjóð. Fyrirlesturinn
verður klukkan 11.30 fimmtudaginn
10. júní. Einnig verður kynnt fyrsta
reynsla hérlendis af gerð nýrra þvag-
blaðra úr görn, eftir að þvagblaðran
hefur verið fjarlægð vegna krabba-
meins eða annarra sjúkdóma
HIN árlega íjölskylduhelgi Ferða-
félags Islands verður um næstu
helgi, 11.-13. júní, og er hún að
þessu sinni í samvinnu við Land-
græðsluna og Skógrækt ríkisins en
sérfræðingar þeirra stofnana í
landgræðslu og skógrækt munu
ásamt fararsljóra Ferðafélagsins
krydda dagskrá helgarinnar með
uppákomum fyrir börn og full- •
orðna.
Áhersla er á upplifun og skoðun
á gróðurfari, uppgræðslu og flóru
Þórsmerkur og einnig verður
minnt á sagnir og örnefni. Farið
verður í léttar gönguferðir og þátt-
takendur fá að planta birki. Af öðr-
um dagskrárliðum má nefna mynd-
list og skreytingar, reistur verður
Fjölmenni var við skólaslit og
brautskráningu nemenda frá
Framhaldsskólanum á Húsavík
laugardaginn 22. maí sl. Þá voru
36 nemendur brautskráðir, 22
með stúdentspróf, tveir af iðn-
braut, tveir með verslunarpróf og
10 af verknámsbraut.
I skólaslitaræðu simii ræddi
skólameistari, Guðmundur Birkir
Þorkelsson, um þær öru breyting-
ar sem eiga sér stað í íslensku
samfélagi og heiminum öllum.
Þessar aðstæður væru sannarlega
Skógræktarferð
í Heiðmörk
FERÐAFÉLAG íslands efnir á
hverju vori til þriggja kvöldferða í
skógarreit sinn í Skógarhlíðar:
krika innst í Heiðmörkinni. I
kvöld, miðvikudag kl. 20, verður
farið frá BSI, austanmegin og
Mörkinni 6.
Unnið er að hreinsun og grisjun
í reitnum og hefur Sveinn Olafs-
son haft umsjón með þessum ferð-
um í mörg undanfarin ár.
Á fimmtudagskvöldið 10. júní
er skógarganga Skógræktarfé-
lagsins. Brottför frá Mörkinni 6
kl. 20.
bjálkakofi með krökkunum, úti-
grill, varðeldur og kvöldvaka auk
annarra óvæntra uppákoma. Þó
verður fyrst og fremst lögð áhersla
á að þátttakendur eigi saman nota-
lega helgi í þessari náttúruparadís
sem nú er komin í blóma. Ferðin er
boðin á sérkjörum og er m.a. frítt
fyrir börn 9 ára og yngri með for-
eldrum sínum en böm og ungmenni
10-15 ára fá góðan afslátt. Pantan-
ir og farmiðar eru á skrifstofunni
að Mörkinni 6.
Ferðafélagið efnir þessa sömu
helgi til göngu- og æfingaferðar í
Botnsdal þar sem gist verður í skál-
anum Bratta og m.a. gengið á
Syðstu súlu. Brottför í báðar þessar
ferðir er kl. 19 á föstudagskvöldið.
spennandi en um leið fælust í þeim
auknar kröfur til skólanna. Náms-
greinar, námsefni og kennsluhætt-
ir þyrftu að vera í sífelldri endur-
skoðun. Símenntun kennara væri
mikilvæg og á upplýsinga- og
tækniöld væri kunnátta við að
leita upplýsinga og þekkingar sí-
fellt mikilvægari hluti menntunar.
Gunnar Baldursson, aðstoðar-
skólameistari, flutti yfirlit yfir
skólastarfið og Kristján Bjarni
Halldórsson, áfangasljóri, gerði
grein fyrir niðurstöðum prófa.
Karlar í leik-
skólum
Reykjavíkur
Á DÖGUNUM var haldið málþing á
vegum karianefndar Félags ís-
lenskra leikskólakennara og
fræðslu- og starfsmannaþjónustu
Leikskóla Reykjavíkur. Málþingið
bar heitið Karlar í leikskólum og
var öllum körlum, sem starfa hjá
Leikskólum Reykjavíkur, boðið að
hlýða á. Markmiðið var m.a. að
beina sjónum starfsmanna að stöðu
karla innan leikskólanna.
Málþingið tengdist framkvæmd
verkefna í jafnréttisáætlun Leik-
skóla Reykjavíkur fjTÍr árið 1999,
en samkvæmt jafnréttisáætlun
Reykjavíkurborgar 1996-2000 er
öllum borgarstofnunum skylt að
skila árlega starfsáætlun í jaifnrétt-
ismálum.
Meðal helstu markmiða jafnrétt-
isáætlunarinnar 1999 er að fjölga
■ GÖTULEIKHÚS Hins hússins
verður með uppákomu á Taltónleik-
um Hins hússins og Rásar 2 sem
verða á Ingólfstorgi í dag, miðviku-
dag, kl. 17. A þessum fyrstu tónleik-
um í sumar spila Sóldögg og Ensími.
LEIÐRÉTT
Jeu de Paume
í GREIN Morgunblaðsins af vænt-
anlegri sýningu Errós í París nú í
haust misritaðist nafn listasafnsins
sem sýninguna heldur. Nafn safns-
ins er Jeu de Paume en ekki Jeu de
Pomme og er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt föðurnafn
í frétt í gær um nýjan formann
Hringsins var fóðurnafn varafor-
mannsins rangt. Vai-afqmaðurinn er
Viggósdóttir og heitir Áslaug. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Ásgeir ekki Árni
í frétt um heiðursmerki Parkin-
sonsamtakanna a Islandi var rangt
farið með nafn Ásgeirs Ellertssonar
taugasérfræðings. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Bestum árangri á stúdents-
prófi náði Karl Hreiðarsson,
ágætiseinkunn, 9,1, en næst hon-
um komu Kristján Þór Magnús-
son og Petrea Guðný Sigurðar-
dóttir en þau tvö síðastnefndu
fluttu viðstöddum nokkur lög
ineð söng og saxafónleik.
AIls hefur skólinn útskrifað á
tólf ára starfsferli sínum 335
nemendur, þar af 60 af iðnaðar-
braut, 119 af öðrum starfsnáms-
brautum og 156 með stúdents-
próf.
karlmönnum í starfi hjá stofnuninni
um helming. Árið 1998 voru karl-
menn um 50 eða um 3% starfs-
manna, en fjöldi kvenna í starfi var
1638 eða 98,8%. Ýmsar aðgerðir eru
á döfmni til að ná settu markmiði,
s.s samstarf við karlanefnd FIL,
breyttar áherslur í atvinnuauglýs-
ingum stofnunarinnar og kynningar
Eftirlit sam-
keppnisyfír-
valda mikilvægt -
SAMTÖK iðnaðarins telja að sam-
keppnisyfirvöld eigi að fylgjast vel
með starfsemi markaðsráðandi fyr-
irtækja eins og Baugs hf., kemur
fram í fréttatilkynningu frá Sam-
tökum iðnaðarins.
Einnig segir: „Samtök iðnaðarins
telja að ekki eigi að gefa sér fyrir-
fram að markaðsráðandi fyrirtæki
misnoti stöðu sína en hins vegar
verði að fylgjast vel með háttsemi
þeirra, ekki síst gagnvart birgjum.
Svo háttar orðið til að Baugur hf. *
hefur verið markaðsráðandi á ís-
lenskum matvörumarkaði og hefur
enn styrkt stöðu sína verulega með
kaupum á verslunarkeðjunni Tíu-
ellefu um síðustu helgi.
Samtök iðnaðarins hafa sent
Samkeppnisstofnun bréf af þessu
tilefni:
Samtök iðnaðarins telja löngu
tímabært að samkeppnisyfirvöld
marki sér reglur og geri markaðs-
ráðandi fyrirtækjum ljósa grein
fyrir því að með þeim verði fylgst.
Má í þessu sambandi nefna nokkur
atriði sérstaklega. I fyrsta lagi
verði ekki liðið að umsamdir af-
slættir við birgja skili sér ekki til ±
neytenda. í öðru lagi sé þeim
óheimilt að selja vörur undir kostn-
aðarverði og í þriðja lagi að fylgst
verði með því að birgjar verði ekki
þvingaðir til ósanngjarnra við-
skiptaskilmála s.s. varðandi afslátt-
arkjör, afhendingarskilmála eða
skilareglur.“
í skólum. Einnig er stefnt að því að
skapa umræðuvettvang fyrir starfs-
menn, sem eru í starfi hjá Leikskól- *■
um Reykjavíkur, um jafnréttismál.
Þetta málþing var fyrsta skrefið í
því að gefa körlum í starfi tækifæri
til að hittast og ræða það brautryðj-
endastarf sem þeir vinna á vettvangi
sem áður hefur „tilheyrt" konum.
iö
«>
Kfi
Náttúrulegu
snyrtivörurnar frá ME
hafa marga þá eigin-
leika sem húðin
þarfnast til að viðhalda
mýkt og raka.
Nýja Bio-línan er
ómótstæðileg.
Kynnum náttúrulegu ME
húðvörunar frá Marja Entrich
í Hveragerðisapóteki,
í dag frá 14-18
^m%^nwngÆafslmtub
Heildsöludreifing: Evroís ehf. sími 698-2188
FRÁ Þórsmörk.
Fjölskyldu- og fræðslu-
helgi í Þórsmörk
Morgunblaðið/Ásdís
FRÁ málþinginu Karlar í leikskólum.