Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 35 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VERÐMÆT AÐSTAÐA Kyoto-bókunin, sem við Islendingar höfum enn ekki tekið ákvörðun um að undirrita, felur í sér, að rétturinn til að losa gróðurhúsalofttegundir verður takmörkuð og í raun kvótabundin auðlind. Gert er ráð fyrir, að viðskipti með losunarkvóta milli landa verði heimil, og jaftivel hefur verið rætt um uppboðssölu á kvótum. En jafnframt eru sterk rök, sem hníga að þvi að aðstaða til að byggja stóriðjuver eins og t.d. álver verði af augljósum ástæðum takmarkaðri en verið hefur og þar með mjög eftirsótt. I grein, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, þar sem fjallað var um þessi málefni, kvaðst einn viðmælenda blaðsins telja liggja í augum uppi, að Kyoto-bókunin gerði það að verkum, að slík aðstaða yrði takmörkuð auðlind og eftirsóknarverð verðmæti. Raunar eru ýmsir þeirrar skoðunar, að Kyoto-bókunin leiði til þess að verð- mæti álvera, sem nú eru starfrækt, stóraukist og sömuleiðis af- urðir þeiira. Aðrir telja þetta fráleitt og benda m.a. á, að bygg- ing álvera og annarra stóriðjuvera flytjist einfaldlega til þróun- arlandanna, sem geri ekki sömu kröfur. Þær röksemdir ganga ekki alveg upp. Þeir sem byggja álver eða önnur stórfyrirtæki eru ekki bara að leita að ódýrustu orkunni, þegar staður er valinn fyrir nýtt iðjuver. Þeir hinir sömu spyrja líka, hvernig stjómarhættir séu í viðkomandi ríki og hvort þar sé um þróað menningarsamfélag að ræða. Þótt hægt sé að fá ódýrari orku annars staðar vega þessi atriði þungt í mati fyrirtækjanna á því, hvar þau hafa áhuga á að fjárfesta. Augljóst er, að hin þróaðri ríki heims eru af þeim sökum eftir- sóknarverðari en ríki þriðja heimsins. Ymiss konar kostnaður, sem fellur til í þróunarríkjunum, er óþekktur á Vesturlöndum og fjárfestar eru öruggari um, að fjárfesting þeirra skili arði en ef þeir binda fé sitt í þróunarríkjunum. Þegar hugsanleg bygging álvers á íslandi er metin í þessu ljósi fer ekki á milli mála, að Island er eitt af þeim löndum, sem getur verið eftirsóknai’vert fyrir erlenda fjárfesta að koma til. Og það er kannski ekki tilviljun, að nú hafa tveir aðilar mjög ákveðið lýst áhuga á að byggja álver á Reyðarfirði. Hingað til höfum við leitað stíft eftir byggingaraðila, nú er allt í einu hægt að velja á milli tveggja aðila. Aðstaða til byggingar álvers á Reyðarfírði - eða annars staðar - á því ekki að vera ókeypis og það er heldur ekki ástæða til að íslenzk stjórnvöld leggi fram fé til þess að laða að hina erlendu fjárfesta. Þvert á móti sýnist dæmið hafa snúizt við. Hvað eru þeir tilbúnir að borga til þess að fá að byggja álver á Islandi? ATVINNA OG SAMGÖNGUR Iumræðum um atvinnumál á landsbyggðinni á undanförnum árum hefur Morgunblaðið ítrekað vakið athygli á því, að bættar samgöngur hafa gjörbreytt öllum viðhorfum til atvinnu- mála á landsbyggðinni. Varanlegt slitlag og í sumum tilvikum jarðgöng hefur leitt til þess að skamma stund tekur að fara á milli byggðarlaga. Þótt atvinnuvandamál komi upp í einu byggð- arlagi á fólk auðveldlega að geta sótt atvinnu í nærliggjandi byggð vegna betri samgangna. Reynslan er hins vegar sú, að fólk í einu byggðarlagi er afar tregt til að leita atvinnu annars staðar. Það er sambærilegt við það, ef Kópavogsbúar gætu ekki hugsað sér að vinna í Reykjavík eða Breiðholtsbúar gætu ekki hugsað sér að sælga vinnu vestur á Granda. Hér þarf hugarfarsbreyting til að koma. Það varð bylting í samgöngum á Vestfjörðum með Vestfjarðagöngunum. Þau gera fólki í byggðunum frá Þingeyri við Dýrafjörð til byggðanna við Djúp kleift að sækja vinnu á milli staða eftir því sem hentar hverjum og einum. Á milli Þingeyrar og Isafjarðar eru um 50 km. Það er álíka vegalengd og fjölmargir íbúar Suðurnesja fara á degi hverjum til þess að sækja vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Á þessu er enginn eðlismunur. í samtölum Morgunblaðsins við fólk á Vestfjörðum hinn 7. júlí sl. var því borið við, að þeir sem vildu sækja vinnu til ísafjarðar frá Þingeyri, til dæmis, yrðu að leggja af stað kl. 7 að morgni og kæmu ekki heim fyrr en kl. 18 að kvöldi. Leikskólinn á Þingeyri væri ekki opnaður fyrr en kl. 8 að morgni og honum lokað kl. 17 síðdegis. Við þessu er einfalt ráð en það er að breyta opnunar- og lokunartíma leikskólans á Þingeyri. Miðað við þann fjölda útlendinga, sem nauðsynlegt hefur reynzt að ráða í vinnu á Vestfjörðum, er alveg ljóst, að þar er næga vinnu að hafa fyrir þá, sem þar búa. Það er hins vegar lið- in tíð, að vinnan sé við bæjardymar. Það er liðin tíð hvort sem litið er til Reykjavíkursvæðisins eða Vestfjarða. Eitt helzta markmið Vestfjarðaganganna var að gera þessi byggðarlög að einu atvinnusvæði. Það voru líka rökin fyrir því að leggja svo mikla fjármuni í þessi göng af almannafé. Um leið og Vestfirðingar fara að líta á byggðarlögin á Vestfjörðum sem eina heild, sem þau eru orðin að því leyti til að þau eru orðin eitt sveitarfélag, mun mikið af þeim atvinnuvanda, sem menn telja að blasi þar við, einfaldlega hverfa. Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, ræðir 5 ára rammafjárhagsáætlun Stórt skref stigið í hag- ræðingu og- skipulagi Með því að setja fram fímm ára rammafjár- hagsáætlun leggur meirihluti bæjarstjórnar spilin á borðið, segir Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði í samtali við Sigríði ----------------7-------------------------- Tómasdóttur. I kjölfarið verður það auð- veldara fyrir bæjarbúa að gera sér grein fyrir áætlunum bæjarstjórnar. Morgunblaðið/Jim Smart „VIÐ setjum okkur ákveðin markmið og reynum að fylgja þeim út í ystu æsar.“ Þýzkir þingmenn í Islandsheimsókn Morgunblaðið/Sverrir ÞINGMENNIRNIR Rainer Eppelmann og Reinhard von Schorlemer. Vináttubönd treyst Þýzku þingmennirnir Rainer Eppelmann og Reinhard von Schorlemer segja sameiningu Þýzkalands aldrei hefðu getað orðið að veru- leika án þess trausts, sem byggzt hefur upp milli Þýzkalands og grannríkja þess í gegn um Evrópusamrunann. Þeir tjáðu Auðuni Arnórssyni að Island væri velkomið í ESB og sjálfsagt að sýna sjávarútvegshags- munum þess mikinn skilning. NÚVERANDI meirihluti sjálfstæðismanna og fram- sóknarmanna tók við stjómartaumum í Hafnar- fírði að loknum bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum fyrir rúmu ári. Nú á dögunum lagði meirihlutinn fram fimm ára rammafjárhagsáætlun og Magnús Gunnarsson bæjarstjóri er mjög ánægður með það skref sem stigið hefur verið til hagræðingar og skipulagningar í málum bæjarins. „Þetta er raunhæf og metnaðarfull áætlun sem við höfum samþykkt í bæjarstjórn. Hana munum við hafa til hliðsjónar á næstu árum. Hún er öll- um bæjarbúum aðgengileg á vefsíðu okkar. Þess utan er ætlunin að gefa hana og greinargerðina sem henni fylgir út og senda til allra bæjarbúa, þannig að þeir viti hvert við stefnum." Fjármál skipulögð til lengri tíma Aðspurður hvernig standi á því að bæjarstjórn, sem kosin er til fjögurra ára, leggi fram áætlun til fímm ára, þegar eitt ár er liðið af kjörtímabili, segir Magnús að fyrir því séu nokkrar ástæður. „Fyrst og fremst er hugsunin sú að horfa lengra en til eins kjörtímabils í skipulagi fjármála líkt og gert er í öðr- um skipulagsmálum. Skipulag er yfir- leitt gert til langs tíma og öllum þykir það sjálfsagt. Fjárfestingar og rekstur sveitarfélags eiga vitaskuld einnig að vera til langs tíma. Það er einnig kom- inn tími til að stjórnmálamenn hætti að hugsa eingöngu út frá kosningum. Með þessari fjárhagsáætlun leggjum við spilin á borðið og bæjarbúar geta fylgst með því sem við gerum.“ Magnús bætir því við að kannski sé auðveldara að eiga við gerð slíkra fjár- hagsáætlana í þeim stöðugleika sem nú ríki í þjóðfélaginu, samanborið við ástand áður þegar verðbólga og óvissa ríkti. Að sögn Magnúsar var nauðsynlegt fyrir bæinn að setja þann ramma sem fjárhagsáætlunin er vegna allra þeirra fjárhagslegu skuldbindinga sem Hafn- arfjörður stendur frammi fyrir á næstunni. Bærinn verði starfræktur innan ramma fjárhagsáætlunarinnar. Einsetning grunnskólans kostnaðarsöm „Það sem við Hafnfírðingar þurfum að kljást við er að bærinn er frekar skuldsettur. Með því að gera ramma- fjárhagsáætlun erum við fyrst og fremst að reyna að átta okkur á því hvernig við komumst í gegnum þær gríðarlegu fjárfestingar sem bærinn stendur frammi fyrir. Hér má nefna einsetningu grunnskólans, byggingu leikskóla og fleira. Þessu verðum við að sinna samtímis allri annarri þjón- ustu. Því verðum við að velta fyrir okk- ur hvemig við röðum framkvæmdun- um niður og hvemig við fáum til þeirra fjármagn. Fjárhagsáætlunin verður þó aldrei neitt annað en leiðarstika.“ Kostnaður við einsetningu gmnn- skóla í Hafnarfírði nemur um 3,8 milljörðum króna og það em ekki síst þessi miklu útgjöld sem bæjarstjórnin stóð frammi fyrir að loknum kosning- um. „Við leggjum mikla áherslu á þennan málaflokk og stefnt er að því að ljúka einsetningunni haustið 2004. Það þýðir hins vegar að við getum ekki lokið henni innan þeirra tíma- marka sem sett era í lögum um ein- setningu grunnskólans. Þau kveða á um að henni skuli vera lokið 2003. Ástæða þessa er fyrst og fremst sú hversu skammt á veg komin við vor- um hér í Hafnarfirði fyrir ári. Þá höfðu sum sveitarfélög nær lokið ein- setningu grannskólans en við vorum rétt að byrja.“ Fyrir kosningar lá fyrir áætlun um einsetningu grannskóla í Hafnarfirði og segir Magnús hana hafa verið full- komlega óraunhæfa. Gert hafí verið ráð fyrir að breytingarnar sem fylgja einsetningunni myndu kosta 1,5 millj- arða króna og tækju styttri tíma en raunin er. „Þegar við litum nánar á einsetn- inguna sáum við að hún var viðameiri en talið var. Það er náttúralega ekki einfalt mál að einsetja grannskóla. Við þurfum að mæta þeim kröfum sem sett era um húsnæði í dag, auk þess þurfum við að laga það húsnæði sem fyrii- er. Lagfæra branavarnir eins komið hefur fram í fjölmiðlum og fleira. Þetta era vitaskuld gríðarleg fjárút- lát fyrir sveitarfélög. Okkur þykir því að ríkið ætti að taka meiri þátt í þeim en nú er. Eins og málin standa nú greiðir ríkið 20% af kostnaði við ný- byggingu vegna einsetningar en ekki er tekinn með í dæmið kostnaður vegna endurbóta þannig að hlutur rík- isins verður minni.“ Einkaframtak reynt í skólamálum Til að mæta þessum kostnaði verða nýjar leiðir reyndar í framkvæmdum og tekur Magnús sem dæmi að skóli í Aslandi, nýbyggingarsvæði bæjarins, verði boðinn út sem einkaframkvæmd. Þannig verði gerður samningur, við fyrirtækið sem reisir og á skólabygg- inguna, um rekstur og viðhald hennar. Sömu hugmyndir hafa verið viðraðar í sambandi við kennslu, þá yrði hún boðin út og bærinn myndi gera samn- ing um kennslu við þá aðila sem fengju útboðið. „Þeir yrðu auðvitað að fylgja náms- skrá en hefðu frjálsari hendur en gengur og gerist," segir Magnús og bætir við að kostnaður foreldra myndi ekki aukast í kjölfarið. „Við viljum reyna nýjar leiðir í skólamálum. Þannig fáum við fjölbreytni og höfum samanburð. Auk þeirrar hagræðingar sem fylgir." Nú er einsetningu Öldutúnsskólans lokið og verður einsetningu Engidals- skóla vera lokið í haust. Framkvæmd- um við Setbergsskóla á að ljúka haust- ið 2000 en framkvæmdir vegna ein- setningar era komnar skemur á veg í hinum skólunum. Stefnt er á að þeim verði lokið haustið 2004. Auk skólamála segir Magnús að leikskólamál séu ofarlega á baugi í Hafnarfírði. Nú á næstu áram verði reistir fjórir nýir leikskólar og tveir stækkaðir. „Þetta er átak sem við ráðumst í vegna þess að við teljum að þetta séu kröfur sem að íbúar setja á oddinn og því gefum við þessu for- gang. En við getum ekki farið hraðar en fjárhagur leyfir okkur og því höf- um við einnig afráðið að fara þá leið að bjóða út byggingu og rekstur leik- skóla í Áslandi sem einkafram- kvæmd.“ Magnús segir að þegar á allt sé litið búi Hafnfirðingar vel að æskunni og í því samhengi nefnir hann íþróttamál- in, enda Hafnarfjörður mikill íþrótta- bær. „Við höfum hlúð vel að okkar fólki og það hefur svo sannarlega skil- að árangri. Skemmst er að minnast af- reks Arnar Arnarsonar á Evrópu- meistaramóti unglinga í sundi nú á dögunum. Nú höfum við uppi áætlanir um byggingu á nýrri íþróttamiðstöð Hauka, Fimleikafélagið Björk fær einnig nýtt húsnæði en það flytur inn í gamla hús Hauka og verður það stækkað og endurbætt.“ Gagnrýni minnihlutans vísað á bug Auk þess að fara þá leið að bjóða út rekstur bygginga grunnskóla hafa ýmsar aðrar leiðir verið inni í mynd- inni til að ná fram þeirri hagræðingu og sparnaði sem Magnús bendir á að er nauðsynleg til að Hafnarfjörður geti mætt sínum fjárhagslegu skuld- bindingum. „Það er af ýmsu að taka, við verðum jú einhvers staðar að fá það fjármagn sem vantar. Meðal hugmynda er hækkun ýmissa þjónustugjalda, hækkun gjaldskrár í heildagsskóla, gæsluvöllum verði fækkað, verkefni færð til og fleira. Við eram að kanna hagkvæmni þess að slökkviliðið verði sameinað slökkviliðum annarra sveit- arfélaga. Loks nefni ég að hluti af hag- ræðingunni mun felast í því að reynt verður að komast hjá því að bæta við starfsfólki á vegum bæjarins þrátt fyr- ir að íbúum fjölgi.“ Spurður um viðbrögð hans við gagn- rýni á fjárhagsáætlunina sem minni- hlutinn lét bóka og fól m.a. í sér gagn- rýni á hækkun þjónustugjalda og fleira segir Magnús að ljóst sé að til að mæta kröfum um aukna þjónustu verði að auka tekjur og draga úr útgjöldum því enginn vilji draga úr þjónustu. „En ég vísa gagnrýninni á áætlun- ina á bug. Hún er raunhæf og ég minni á að hingað til hafa fjárhagsá- ætlanir yfírleitt eingöngu náð til eins árs og hefur verið farið mjög misjafn- lega eftir þeim, jafnvel hefur verið far- ið fram úr þeim um hundrað milljóna króna. Hér er lögð fram metnaðarfull fjárhagsáætlun sem við eigum að geta staðið við. En það er ekki óeðlilegt að minnihluti viðhafi varnaðarorð, það er þeirra hlutverk að gagnrýna." Opnari stjórnsýsla færir okkur nær fólkinu Önnur hlið hagræðingarinnar í Hafn- arfírði era breytingamar á stjórnsýsl- unni á síðastliðnu ári. „Það var eitt af fyrstu verkum núverandi meirihluta að breyta skipulagi á stjórnsýslunni. Við töldum skilvirkni í stjórnskipan vera granninn fyrir árangi-i.“ Breytingarnar fólust m.a. í því að sviðum innan stjórnsýslunnar var fækkað úr sex í þrjú, stjórnsýslu- og fjármálasvið, fjölskyldusvið og um- hverfís- og tæknisvið. Undir hvert sviði heyra svo þær deildir og skrif- stofur sem tilheyra. Bæjarendurskoð- un Hafnarfjarðar var lögð niður og verkið boðið út. í kjölfar breytinganna var ýmis ný starfsemi sett á laggirnar, ráðinn var jafnréttisráðgjafi, fræðslu- og starfsmannafulltrúi og upplýsinga- stjóri. „Þessar breytingar allar era liður í því að opna stjórnsýsluna. Þar era upplýsingamál lykilatriði og þau hafa eins og kunnugt er tekið miklum breytingum á undanförnum áram og eru í stöðugri þróun. Sem dæmi um þetta má nefna að nú era fundagerðir bæjarráðs, bæjarstjórnar, nefnda og ráða aðgengilegar á vefsíðu okkar um leið og fundum er lokið. Það þýðir að fólk getur setið heima við og skoðað það sem er í gangi. Þannig færumst við í bæjarstjórninni nær fólkinu og það getur haft sitt að segja um það sem við gerum.“ Bæjarskipulag í öndvegi Ibúar bæjarins koma e.t.v. ekki tO með að fínna fyrir öllum þessum stjórnsýslubreytingum, enda finnur hinn almenni borgari fyrst og fremst fyrir því sem snýr að honum beinlínis, eins og skólamálum segir Magnús. Hinn almenni borgari kemur aftur á móti til með að sjá breytingar á Hafn- arfirði á næstunni því að mikið hefur verið lagt í skipulagsmál bæjarins. + „Við leggjum mikla áherslu á skipu- lagsmálin og höfum fengið til liðs við okkur breska arkitektastofu sem hef- ur lagt fram skýrslu með ýmsum til- lögum. Skipulagsmálin era vitaskuld innan ramma fjárhagsáætlunarinnar og skipulagsdeildin verður að taka til- lit til þeirra fjármuna sem era settir í málin. Núna höfum við t.d. stoppað skipulag í Hellnahrauni því við viljum að svæðið sé endurskipulagt í sam- ræmi við áætlunina. í þessu samhengi bendi ég á greinargerð skipulags- stjóra vegna skipulagsmála í fimm ára áætlun en þar segir að bær eigi að dafna í samræmi við fjárhagsáætlun en ekki fyrir tilviljun.“ Hluti af endurskipulagningu í Hellnahrauni er að bærinn hyggst rífa Stálbræðsluhúsið sem þar stendur og lítil prýði er af. „Þarna mun rísa at- vinnusvæði sem örugglega verður mjög eftirsóknarvert vegna nálægðar við stofnbrautir og hafnir og hversu auðvelt er að vinna land þarna í grenndinni." Annað sem verið hefur í ítarlegri skoðun er miðbærinn í Hafnarfirði og hvernig hann geti orðið enn líflegri en hann er, hvernig hægt verði að sinna verslun og þjónustu og menningu á sama svæðinu. „Varðandi menninguna þá má geta þess að nú hefur bærinn fest kaup á húseign bæjarútgerðar- innar sálugu við Vesturgötu og mun leikhópurinn Hermóður og Háðvör fá þar aukið húsnæði í kjölfarið. Þannig að menningin kemur til með að blómstra á hafnarbakkanum." Höfnin er miðja og lífæð Hafnar- fjarðar og er það hluti af framtíðar- skipulagi bæjarins að endurskipu- leggja höfnina. „Hugmyndin er sú að hafnsækin starfsemi verði flutt af Norðurbakkanum yfir á Suðurbakk- ann. Þá munu flotkvíarnar færðar út á Suðurbakkann og það verður léttir fyrir bæinn að losna við þær þaðan sem þær era núna.“ Fjölmörg tækifæri í Hafnarfirði Magnús bendir á að það liggi í aug- um uppi að tækifæri Hafnfirðinga séu fjölmörg. „Við erum með höfn, eigum nóg af háhita svo ekki sé minnst á landsvæði sem við eigum nóg af.“ Ekki er þó ætlunin að láta ónýtt land- svæði Hafnfirðinga afskiptalaust. Skipulag Áslandsins er í fullum gangi og segir Magnús að mikil áhersla verði lögð á að vinna samtímis að upp- byggingu þjónustu við íbúana og upp- byggingu íbúðarhverfis. „Svo komið sé aftur að fimm ára rammafjárhagsáætluninni og þvl skipulagi sem henni fylgir má benda á að með því að leggja línur í skipulagi geta íbúarnir fylgst vel með fram- kvæmdum sveitarfélagsins. Þannig geta þeir séð hvenær við bjóðum út lóðir og bragðist við því.“ Magnús segir að fyrir utan skipulag íbúðasvæða og hafnar sé annað brýnt mál á dagskránni, endurgerð Reykja- nesbrautar frá Kaplakrika að Hamar- kotslæk. „Það er 90% nýting á vegin- um þarna og ekki seinna vænna en að fara að breikka hana úr tveimur akreinum í fjórar. Það sem við höfum lagt til við Vegagerðina og verður lögð mikil áhersla á er að hún verði lögð í stokk. Það þýðir að hún mun verða grafin niður.“ Það má því ljóst vera að fram- kvæmdagleðin er mikil í Firðinum nú um þessar mundir og allt undir skipu- lagi og ramma fjárhagsáætlunarinnar. „Það sem við höfum rætt hér styður það sem við í bæjarstjórn höfum lagt áherslu á, að með því að gera ramma- fjárhagsáætlun þá hefurðu meiri yfir- sýn og virkari markmiðasetningu. Við setjum okkur ákveðin markmið og reynum að fylgja þeim út í ystu æsar.“ Það eru mikla breytingar sem liggja fyrir í Hafnarfirðinum nú um aldamót. En það liggur fleira á hjarta bæjar- stjórans. Það eru sameiningarmál sveitarfélaga sem hér er vísað til en Magnús hefur líst því yfir í ræðu og riti að sameining Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Bessastaðahrepps sé honum ofarlega í huga. „Ég hef ekkert legið á þessari skoð- un minni og tel að sameining myndi vera hið mesta þjóðþrifamál. En nú býð ég eftir því að forráðamenn og íbúar Garðabæjar og Bessastaða- hrepps lýsi yfir áhuga sínum. Það verður ekkert gert fyrr en það gerist. Um leið og sveitarstjórnarmenn lýsa yfir vilja sínum munu íbúarnir fylgja eftir, það efast ég ekki um.“ FYRIR skömmu var haldinn síð- asti þingfundurinn sem þýzka Sambandsþingið hélt í þing- húsinu á Rínarbökkum í Bonn. Þingið kemur næst saman í endumýjuðu Ríkisþinghúsinu í Berlín í haust. Fyr- ir utan það að flytja skjalabunka og önnur gögn sem tilheyra starfi þing- mannsins austui' til Berlínar taka þingmennfrnir 672, sem sæti eiga á Sambandsþinginu, sér ýmislegt fyrir hendur þær vikumar sem engir era þingfundimir. Tveir þeirra, Rainer Eppelmann og Reinhard Freiherr von Schorlemer, lögðu leið sína til Is- lands, að eigin sögn í þeim tilgangi að styrkja vináttutengsl við Islendinga. Þeir hittu hér íslenzka þingmenn og áttu fundi með biskupnum yfir Is- landi og meðlimum Þýzk-íslenzka verzlunarfélagsins. Þeim gafst einnig færi á að ferðast aðeins um landið. Báðir era þeir þingmenn sama flokks, Kristilega demókrataflokks- ins (CDU), en bakgrannur þeirra er býsna ólíkur. Rainer Eppelmann starfaði lengi sem prestur í Austur- Þýzkalandi, en er auk þess múrari að mennt. Sem prestur var hann and- stæðingur austur-þýzku kommún- istastjórnarinnar, en hann var kjör- inn inn á þing í fyrstu frjálsu kosn- ingunum til austur-þýzka þingsins árið 1990 og gegndi í kjölfar þess embætti varnarmálaráðherra Aust- ur-Þýzkalands. Hann var síðasti mað- urinn sem gegndi því embætti og sem slíkur átti hann virkan þátt í því að leggja niður Varsjár- bandalagið, hernaðar- bandalag Austantjalds- ríkjanna. Frá því Þýzka- land var sameinað haustið 1990 hefur Eppelmann átt sæti á þýzka Sam- bandsþinginu og gegnfr nú ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sinn flokk, sem er í stjómarandstöðu eftir ósigur í þingkosningum sl. haust. Reinhard von Schorlemer er hins vegar landbúnaðar- og skógræktar- fræðingur frá sveitahéraði í nágrenni Hannover og gekk í CDU þegar Kon- rad Adenauer var upp á sitt bezta, um miðjan sjötta áratuginn. Hann hefur átt sæti á Sambandsþinginu frá árinu 1980. Ólíkt Eppelmann, sem ekki fékk að ferðast út fyrir landsteina Austur- Þýzkaland fyrr en hann var 46 ára gamall, hefur von Schorlemer oft til Islands komið, fyrst fyrir 10 áram. „ísland tilheyrir Evrópu" „í okkar skilningi er ísland í fyrsta lagi evrópskt grannríki," sagði von Sehorlemer er Morgunblaðið náði tali af tvímenningunum. „Island tiheyrir Evrópu. Við vitum líka að Island á allt sitt undir fiskveiðum. Það þýðir að væri óþarflega mikið þrengt að mögu- leikum Islendinga til að stunda sinn sjávarútveg væri vegið að sjálfu sjálf- stæði landsins. Ég hef alltaf verið í hópi þeirra sem segja, að það beri að koma til móts við Islendinga á þessu sviði. Ég sæi ísland gjarnan gerast aðili að Evrópusambandinu. Það gæti sannarlega lagt sitt af mörkum og yrði meira að segja að nokkru leyti land sem legði fjárhagslega meira til ESB en það fengi til baka,“ sagði von Schorlemer. „En það er ekki aðalatriðið. Ég tel að ísland gæti lagt sitt af mörkum til nauðsynlegra umbóta á starfsemi ESB, til dæmis á sviði sameiginlegra utanríkis- og öryggismála. Ég teldi æskilegt að Island, sem NATO-land, tæki fullan þátt í þeirri endurskoðun sem í gangi er á því sviði. Eins og kunnugt er stendur til að sameina Vestur-Evrópu- sambandið Evrópusam- bandinu. [...] Ég er sann- færður um að Islendingar gætu í þessu sambandi lagt eitt og annað til málanna, sem skilaði Evrópu sem heild fram á veginn. En það er að sjálfsögðu Is- lendinga einna að taka ákvörðun um slíka þátttöku," sagði hann. Presturinn sem sagði A-Þýzka- land úr Varsjárbandalaginu Eppelmann, sem var í fyrstu Is- landsheimsókn sinni, var inntur eftir þætti sínum í endalokum Varsjár- bandalagsins. „Það verður ætíð mikil- væg stund í mínu lífi,“ sagði hann. „Ég skrifaði, fyrir hönd Þýzka al- þýðulýðveldisins, undir úrsögnina úr Varsjárbandalaginu. Fyrir hönd bandalagsins skrifaði rússneski hers- höfðinginn Pjotr Lúsjev undir og fyr- ir hönd Austur-Þýzkalands bygginga- verkamaðurinn sem skoraðist undan herþjónustu, presturinn Rainer Epp- elmann. Þetta er manni anzi minnis- stætt.“ Fyrirrennarar Eppelmanns í embætti vora allir yfirmenn í austur- þýzka hemum - lengst af var það Erich Mielke - en þeim her var sem kunnugt er stjómað líkt og sem útibúi frá sovézka hernum. Embættistíð Eppelmanns varði í rúmlega hálft ár, frá síðari hluta marzmánaðar fram í októberbyrjun 1990 - þá var ríkið sem hann var vamarmálaráðherra fyrir ekki til lengur. Þetta viðburðaríka tímabil leið mjög hratt, að sögn ráðherrans fyrrverandi, og breytingamar hrað- ar. „Með hverri vikunni sem leið, varð Volkskammer [a-þýzka þingið] smátt og smátt meira að Sambands- þingi. Er það kom fyrst saman [í marz 1990] var það alls ekki þannig,“ sagði Eppelmann, enda skolaði þá anzi mörgum inn á þing, sem ör- skömmu áður höfðu sízt af öllu átt von á því að verða þingmenn. Eink- um vora það a-þýzkir menntamenn - og prestar ekki sízt - sem höfðu getið sér orð fyrir andóf gegn kommúnista- stjórninni. Eppelmann var einn þeirra, en hefur síðan þá verið kjör- inn þrisvar sinnum inn á Sambands- þing sameinaðs Þýzkalands. „Gleymið ekki litlu nágrönnunum" Báðir sögðust þeir Eppelmann og von Schorlemer vera sannfærðir um að hin giftusamlega sameining Þýzkalands - sem varð að veruleika haustið 1990, innan við ári eftir að Berlínarmúrinn féll - hefði aldrei verið möguleg án Evrópusamrunans. Áratugalöng þátttaka Vestur-Þýzka- lands í honum hefði byggt upp það traust, sem var forsenda sameining- arinnar. Eppelmann vakti athygli á því, að einmitt af þessari ástæðu stæðu Þjóðverjar í þakkarskuld ekki sízt við grannríki sín í austri, einkum Pólland, Tékkland og Ungverjaland. Hið sameinaða Þýzkaland væri skuldbundið til að gera það sem það gæti til að hjálpa nágrönnum sínum að ná því markmiði að gerast jafn- gildir meðlimir evrópsku þjóðafjöl- skyldunnar - í Evrópusambandinu. „Gleymið ekki litlu nágrönnunum," sagði von Schorlemer að Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari, hefði lagt áherzlu á í þingræðu á síðasta þing- fundinum í Bonn. Valdhafar Þýzka- lands yrðu að rækta tengslin við grannríkin, ekki sízt þau smærri. Einungis með því varðveittist það traust, sem Þýzkalandi væri nauð- synlegt, stærðar sinnar, sögu og framtíðar vegna. „Við vitum að ísland á allt sitt undir fiskveiðum"
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.