Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 68
Eru upplýsíngar
lengi á leiöinni
í þínu fyrirtæki?
Þaö er dýrt aö láta starfsfólldð biöa!
ajíölvukerfi sem virkar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Grindavík ákjdsanlegur
staður fyrir Lýsi hf.
VIÐRÆÐUR forsvarsmanna Lýsis
hf. við hugsanlega kaupendur að lóð
og húseign Lýsis hf. við Grandaveg
í Reykjavík hefjast á næstu vikum,
að sögn Andra Þórs Guðmundsson-
ar, aðstoðarforstjóra Lýsis hf.
Frumhönnun á nýju húsnæði
fyrirtækisins lýkur í haust og er
ákjósanleg staðsetning í Grindavík,
að sögn Andra Þórs, en arðsemis-
útreikningar á staðarvali verða for-
senda ákvörðunar.
Núverandi húsnæði er talið of
stórt og ekki nægilega hagkvæmt
og verður fyrirhugað húsnæði mun
minna. Að sögn Andra Þórs stefnir
fyrirtækið að hagræðingu í rekstr-
inum þar sem vinnuferlar verða
teknir til endurskoðunar. Starf-
semi Lýsis hf. hefur verið í þróun
og markmiðið með fyrirhuguðum
flutningum er að auka hagkvæmni.
Lýsi hf. fær 75% af tekjum sín-
um af útflutningi og eru helstu
markaðssvæði í löndum Asíu. Sala í
Póllandi lofar góðu og stefnir fyrir-
tækið á auglýsingaherferð þar í
landi í haust.
■ Hagræðing/20
Sjóðheit
litadýrð
EINS og sjá má á þessari mynd
er litadýrðin mikil í svokallaðri
Hverarönd, austan Námaskarðs í
Mývatnssveit. Þar er eitt mesta
leirhverasvæði landsins og má
rekja hinn ljósleita blæ þess til
útfellinga af brennisteini og
gipsi. Hættulegt er þó að láta
fegurðina glepja sig um of því
mikill hiti er í leirhverunum og
eru nokkur dæmi þess að menn
hafi brennt sig er jarðvegurinn
gaf sig undan þunga þeirra.
Morgunblaðið/RAX
Veikur íslending-
ur í Taílandi nýtur
ekki trygginga
TR stefnt
vegna
synjunar
LÖGMAÐUR 73 ára gamals ís-
lendings sem slasaðist í Taflandi í
maímánuði sl. hefur stefnt Karli
Steinari Guðnasyni, forstjóra
Tryggingastofnunar ríkisins,
vegna þeirrar ákvörðunar trygg-
ingaráðs að synja manninum um
sjúkratryggingu. Óskað hefur ver-
ið eftir flýtimeðferð vegna ástands
mannsins, sem slasaðist í Taflandi
um miðjan maí og veiktist hastar-
lega í kjölfarið.
Fljótlega eftir að maðurinn var
fluttur á sjúkrahús hófst rekistefna
um tryggingar og hvemig hann
greiddi fyrir sjúkrahúslegu sína.
Fjölskylda hans leitaði til TR til að
fá staðfest að hann væri sjúkra-
tryggður á íslandi, en stofnunin
hafnaði því að gefa út slíka staðfest-
ingu, á þeim grundvelli að þar sem
hann sé ekki búsettur á Islandi,
njóti hann ekki tryggingarverndar.
Vekur efa um réttarstöðu
„Þó svo að hann hafl dvalist úti
seinustu mánuði er hann fæddur á
Islandi, hefui- verið búsettur hér
alla sína ævi og átt hér lögheimili,
seinustu áratugi í Reykjavík þar
sem hann hefur starfað," segir
Dóra Sif Tynes, hdl., fulltrúi á lög-
mannsskrifstofu Andra Arnasonar
hrl., sem annast mál mannsins hér-
lendis.
Dóra Sif kveðst telja að þessi af-
staða TR hljóti m.a. að vekja
spurningar um réttarstöðu þeirra
mörgu Islendinga sem hafa fest
kaup á húsnæði t.d. á Spáni og
dveljast þar mikinn hluta ársins.
Hún segir manninn í bráðri lífs-
hættu fái hann ekki skjóta og af-
dráttarlausa læknismeðferð á
sjúkrahúsi í Taflandi.
■ Liggur fárveikur/10
Hæstiréttur klofnaði er Kio Alexander Briggs var sýknaður
Mínnihluti dómaranna
taldi sekt sannaða
Ljósleiðaranet fs-
landssíma og Línu
Boðið út í
næstu viku
ÚTBOÐ vegna framkvæmda
við fyrsta áfanga í lagningu
ljósleiðaranets Islandssíma og
Línu, dótturfyrirtækis Orku-
veitu Reykjavíkur, á höfuðborg-
arsvæðinu verður í næstu viku.
Fyrirtækin hafa náð sam-
komulagi um samstarf um upp-
byggingu ljósleiðaranets á
svæði Orkuveitunnar til gagna-
flutnings, fjarskipta- og síma-
þjónustu. Að sögn Þorsteins
Sigurjónssonar, framkvæmda-
stjóra tæknisviðs Línu, er um
að ræða fyrsta 10 kílómetra
ljósleiðarahringinn sem leggja á
frá höfuðstöðvum íslandssima í
Borgartúni út í Laugarnes og
inn á Suðurlandsbraut. I gær
voru opnuð tilboð í 12 km ljós-
leiðarastreng hjá Línu. Barst
töluverður fjöldi tilboða og fara
starfsmenn Línu yfir tilboðin
um helgina._____________
_ ■ Samkeppni/6
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
sýknudóm héraðsdóms Reykjavíkur
yfir Kio Alexander Ayobambele
Briggs, sem var handtekinn 1. sept-
ember sl. við komu sína hingað tfl
lands, þegar 2.031 e-tafla fannst í
fórum hans. Dómurinn klofnaði hins
vegar í afstöðu sinni og taldi minni-
hluti hans að sekt Briggs væri sönn-
uð þannig að hún væri hafin yfir all-
an velígrundaðan vafa.
Eiturlyfín voru gerð upptæk og
ákveðið að allur sakarkostnaður
greiddist úr ríkissjóði, þar á meðal
réttargæslu- og málsvamarlaun
skipaðs verjanda Briggs. Kio
Briggs neitaði frá upphafi allri vit-
neskju um efnin eða ástæður þess
að þau komust í tösku hans, en var
sakfelldur í héraðsdómi Reykjavík-
ur 11. mars sl. Málinu var áfrýjað til
Hæstaréttar með kröfu um ómerk-
ingu dómsins eða sýknu, og laut
fyrmefnda krafan einkum að því að
héraðsdómari hefði ekki lagt nauð-
synlegt mat á framburð eins helsta
vitnisins í málinu, Guðmundar Inga
Þóroddssonar.
Var sýknaður í héraði
I dómi Hæstaréttar 20. maí sl. var
fallist á að dómarinn hefði ekki átt
að víkja þessum framburði til hlið-
ar, heldur leggja mat á trúverðug-
leika og þýðingu hans og taka rök-
studda afstöðu til hans. Héraðsdóm-
urinn var því felldur úr gildi og mál-
inu vísað heim í hérað til nýrrar að-
almeðferðar og dómsálagningar að
nýju. Var dómaranum jafnframt
talið rétt að kveðja tvo aðra héraðs-
dómara með sér við nýja meðferð
málsins. Héraðsdómarinn ákvað
með úrskurði 21. maí að eigin frum-
kvæði að víkja sæti í málinu á þeirri
forsendu að ákærði gæti dregið
óhlutdrægni hans í efa. Briggs var
síðan sýknaður í héraði.
Hæstaréttardómaramir Pétur
Kr. Hafstein, Arnljótur Bjömsson,
Haraldur Henrysson, Hjörtur
Torfason og Hrafn Bragason
dæmdu í málinu. Amljótur Bjöms-
son og Hrafn Bragason skfluðu sér-
atkvæði og kemur þar fram það mat
að Briggs hafi verið óstöðugur í
skýrslum um ferðir sínar, dvalar-
staði og hverja hann umgekkst síð-
ustu daga fyrir förina til Islands.
Sekt talin sönnuð
Frásögn hans um hvemig hann
ætlaði að fjármagna dvöl sína hér-
lendis sé fjarstæðukennd. „Þegar
þess er gætt að verulegt magn
fíkniefna fannst í fórum ákærða, og
alls annars sem að framan er rakið,
verður að telja að ákæruvaldinu
hafi tekist að sanna sekt ákærða og
sé hún hafin yfir allan velígrundað-
an vafa,“ segir í sératkvæði dómar-
anna. Þeir telja ennfremur að með
tilliti til sönnunaraðstæðna í málinu
verði að leggja til grundvallar að
Briggs hafi tekið að sér að flytja e-
töflurnar til landsins fyrir aðra,
þótt ekki sé upplýst hverjir það
voru. En þar sem meirihluti dóms-
ins telur með tilliti til sönnunarað-
stæðna, að sýkna beri Briggs, sé
ekki tilefni til í sératkvæðinu að
ákveða ákærða refsingu eða taka
afstöðu til upptöku eða sakarkostn-
aðar.