Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Karlmaður í gæsluvarð- hald vegna e-töflusmygls Lögreglan fann hníf í íbúð hins látna sem hlaut bana af stungusárum Víðtæk leit að hinum grunaða árangurslaus VÍÐTÆK leit stendur yfír í Dan- mörku og öðrum Evrópulöndum að grunuðum manni vegna rannsóknar í manndrápsmáli, sem upp kom í fyrradag, þegar lögreglan fann karl- mann á fimmtugsaldri látinn á heim- ili sínu. Morðdeild Kaupmannahafn- arlögreglunnar leitaði mannsins í gær án árangurs, en sérstök áhersla er lögð á leit þar í landi þar sem vit- að er að hinn grunaði fór til Kaup- mannahafnar sl. miðvikudagskvöld. Maðurinn sem lögreglan fann lát- inn í íbúð sinni á fimmtudag hét Agnar W. Agnarsson, 47 ára, til heimilis að Leifsgötu 28 í Reykjavík. Hann var fæddur 10. september árið 1951 og var ókvæntur og barnlaus. A hinum látna fundust stungusár og virtist sem honum hefði verið ráð- inn bani. Ki'ufning leiddi síðan í ljós að Agnar hlaut bana af áverkum sem honum voru veittir með hnífstungu. Lögreglan í Reykjavík rannsakar alla þætti þessa máls, þar með talið hvort átök hafi átt sér stað á vett- vangi og hvort rán hafi verið framið í íbúð hins látna. Hafa skýrslur verið teknar af fjölmörgum aðilum sem hugsanlega kynnu að skýra tildrög málsins. Lögreglan hefur ennfremur morð- vopnið undir höndum, sem er hnífur og fannst í íbúð hins látna þegar lög- reglan kom íyrst á heimili hans í fyrradag. Hinn grunaði stöðvaður af iögreglu Rúmlega fertugur karlmaður, sem grunaður er um verknaðinn og er eftirlýstur vegna málsins, var stöðv- aður af lögreglu klukkan 2.21 aðfara- nótt miðvikudags í bifreið á Skúla- götu. Var það tæpum einum og hálf- um sólarhring áður en lögreglan fann hinn látna í íbúð sinni. Vegna gruns um ölvunarakstur var hann færður á lögreglustöð og var hann í haldi fram á miðvikudag þar sem ummerki gáfu til kynna að hann hefði lent í átök- um. Voru föt hans blóðug og gaf hann þá skýr- ingu að hann hefði lent í slags- málum við fjóra menn á Vestur- götu um nóttina. Þar sem ekki var talinn grundvöllur fyrir áframhald- andi varðhaldi var honum sleppt úr haldi. Ekki tengsl við glæpsamlegt athæfi Að sögn lögreglu voru engin gögn, sem byggjandi var á, fyrir hendi til að rökstyðja kröfu um gæsluvarð- hald yfir manninum. Voru sömuleiðis engin tengsl mannsins við glæpsam- legt athæfí. Þá bæri þess að geta að lögreglan gæti ekki gengið lengra en heimild leyfir varðandi vistun fólks í fangageymslu. Lögreglan lagði engu að síður hald á hluta fatnaðar mannsins og sendi blóð úr fótunum til DNA-rannsóknar erlendis og er von á niðurstöðum þeirrar rannsóknar í næstu viku. Hinn grunaði var dæmdur í þriggja ára fangelsi í maí árið 1995 fyrir auðgunarbrot og var ennfrem- ur gert að greiða 20 milljónir í sekt fyrir að hafa svikið um 38 milljónir króna úr ríkissjóði. Voru svikin framin á árunum 1992-1994 á þann hátt að maðurinn skilaði vikulega röngum virðisaukaskattskýrslum. Hann var ennfremur dæmdur fyrir að hafa ranglega tilkynnt hlutafé- lagaskrá um 60 milljóna hlutafjár- aukningu útflutningsfyrirtækisins Vatnsberans og fyrir að svíkja út or- lofsfé úr Abyrgðarsjóði launa. Var hann auk sektar og fangelsisvistar dæmdur til að endurgreiða ríkissjóði þær 38 milljónir sem hann sveik út. KARLMAÐUR á fimmtugsaldri var í gærkvöld úrskurðaður í gæslu- varðhald til 28. júlí í tengslum við rannsókn lögreglunnar í Reykjavík á innflutningi á 969 e-töflum nýlega. Maðurinn var handtekinn aðfai-a- nótt föstudags vegna málsins og lagði lögreglan fram gæsluvarð- haldsbeiðnina til héraðsdóms í framhaldi af því. Tvær erlendar nektardansmeyj- ar og íslenskur karlmaður sitja nú þegar í varðhaldi vegna málsins en einum karlmanni hefur verið sleppt. Alls voru því fimm úrskurð- aðir í gæsluvarðhald vegna máls- ins. Eiturlyfið fannst í hraðpóstsend- ingu 7. júlí síðastliðinn þegar leitar- hundur tollgæslunnar þefaði uppi töflumar. Hafði sendingin verið merkt einum mannanna, sem vai’ handtekinn vegna málsins. Stúlkurnar tvær, sem eru frá Hollandi og Eistlandi, em um tvi- tugt og er ferill þeirra til rannsókn- ai- þar ytra. Einn mannanna sem sitja í varðhaldi með þeim tengist starfi þeii’ra og rennur varðhald allra þriggja út 20. júlí. Agnar W. Agnarsson Handtökuúrskurð ur liggur fyrir VEGNA rannsóknar máls, sem upp kom í fyrradag og varðar mann- dráp, þar sem karlmanni var ráðinn bani á heimili sínu á Leifsgötu í Reykjavík, hefur lögreglan í Reykjavík í samstarfi við alþjóða- deild ríkislögreglustjóra lýst eftii’ rúmlega fertugum karlmanni, Þór- halli Olveri Gunnlaugssyni. Er hann eftirlýstur um alla Evrópu og hefur alþjóðadeild ríkislögreglustjóra sent mynd af honum ásamt öðram upplýsingum um hann til lögreglu í Evrópu í gegnum Interpol. Fyrir liggur handtökuúrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur og ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um framsal hins gmnaða. Vitað er að hinn granaði fór undir fölsku nafni til Kaupmannahafnar síðast- liðið miðvikudagskvöld og er ís- lenska lögreglan í stöðugu sam- bandi við lög- regluna í Kaup- mannahöfn vegna rannsókn- ar málsins. Eftir að lýst hafði ver- ið eftir hinum grunaða um mið- nætti aðfaranótt föstudags hóf morðdeild Kaupmannahafnarlög- reglunnar leit að hinum grunaða strax í gærmorgun og vinnur nú í málinu af fullum þunga. A fyrsta degi könnunar dönsku lögreglunn- ar, þ.e. í gær, bárust íslensku lög- reglunni hins vegar ekki nytsamleg- ar upplýsingar frá dönsku lögregl- unni. Þórhallur Ölver Gunnlaugsson Morgunblaðið/Halldór Svanur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Básafells, um sölu Sléttaness Enginn á Vest- fjörðum treysti sér í kaupin STJÓRN Básafells leitaði eftir kaupendum að Sléttanesinu og þeim aflaheimildum sem því fylgdu á Vestfjörðum áður en það var selt til Reykjavíkur. Verðið á skipi og afla- heimildum var um einn og hálfur milljarður króna. „Því miður treysti enginn sér til að fjárfesta í þessum pakka og því neyddumst við til að selja skipið og heimildimar frá okk- ur,“ segir Svanur Guðmundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Svanur telur aðstæður til rekstr- ar sjávarútvegsfyrirtækja á Vest- fjörðum góðar og segir að kvóta- kerfið hafi ekki komi verr út fyrir Vestfirðinga en aðra landsmenn. „Það eru margar ástæður fyrir því að mörgum fyrirtækjum á Vest- fjörðum gengur illa, en engin ein meginástæða og alls ekki kvóta- kerfið," segir Svanur. „Menn á Vestfjörðum hafa fjárfest í skipum í stað aflaheimilda. Víðast annars staðar var lögð áherzla á að auka veiðiheimildir og fyrir vikið eru þeir aðilar með rýmri aflaheimildir og ódýrari skip til að sækja þær. Viðhorf manna sums staðar á Vest- fjörðum hefur verið það að bíða eft- ir að fá einhverjar bjargir. Þegar þingmenn Vestfjarða og margir aðrir segja að það eigi að koma ein- hverjum peningum til Vestfjarða einna fara margir að trúa því. Þeir hugsa þá sem svo að því vemi sem staðan sé þeim mun meiri peningar komi. Þeim finnst ekki borga sig að gera eitthvað í sínum málum, þeim verði bjargað. Að mínu mati eru þetta gylliboð stjórnmálamanna sem standast ekki og ég trúi ekki að verði framkvæmd. Því gera gylliboðin illt vera.“ ■ Við verðum að/22 Helguðu sér landskika í F ossvogi ÁHUGAMENN um umhverfismál í Reykjavík., sem að undanförnu hafa verið að leggja þökur á blett við Brúnaland í Fossvogi, leiddu í gær kú umhverfis reitinn að hætti landnámsmanna til að helga sér hann. Búkolla virðist hafa látið sér vel líka enda kannski vön mannfólkinu og ýmsum uppátækjum en kýrin var sótt í nágrannabæjarfélagið Mos- fellsbæ. Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is „Það er bara föstudagur“/B4 • ••••••••<!••••••••••••• Enn eitt Islandsmetið hjá Erni/B1 Sérblöð í dag HSS0M ALAUGARDÖGUM 1 LLöDO ;U\BLAÐSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.