Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Jónas Baldursson ÍBÚÐARHÚS var á dögunum flutt frá Ártúni í Grýtubakkahreppi þar sem það var smíðað og að Laufási en þar var það sett niður. Myndin var tekin þegar farið var yfir gömlu brúna yfir Fnjóská í Dalsmynni. Ibúðarhús flutt yfir Fnjóská Kirkju- starf AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 á morg- un, sunnudag. Þátttakendur á Sumartónleikum taka þátt í messunni. Ferðafólk velkomið og æskilegt að sjá sem flest safnaðarfólk. Messað verður á Hlíð kl. 16. Sumartónleikar í Akureyrarkirkju kl. 17. Morg- unbæn í kirkjunni kl. 9 á þriðjudagsmorgun. GLE RÁRKIRKJA: Kvöld- guðsþjónusta verður í kirkj- unni kl. 21 á sunnudagskvöld. Séra Hannes Örn Blandon prófastur þjónar. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag kl. 18 og á morgun sunnudag kl. 11. ÞÓRARINN Pétursson og Hólm- fríður Björnsdóttir fluttu nýverið hús sitt sem verið hefur í smíðum í Ártúni að Laufási. Fenginn var bíll frá Arnarfelli á Akureyri til að flytja húsið, en fara þurfti yfir gamla brú yfir Fnjóská í Dals- mynni. Vel gekk að flytja húsið yfir, en hiutverki þessarar brúar lýkur senn, því síðar í sumar verður ný brú lögð yfír Fnjóská. Það er mikið um að vera í Laufási þessa dagana, fyrir skömmu var lokið við að grafa fyrir 300 kinda fjárhúsi á bæn- um, en þeir feðgar Þórarinn og sr. Pétur Þórarinsson eru að reisa þau. Hafa þeir fengið þá feðga í Ártúni til að byggja þau. Þórarinn fór ásamt fríðum hópi félaga sinna á dögunum með fé í afrétt, en ferðin tekur um þijá sólarhringa. Féð er rek- ið í Keflavíkurdal, sem er næstur Eyjafirði og er farið úr Fjörðum vestur og inn Látraströnd til Grenivíkur. Bændur í Grýtubakkahreppi eru þessa dagana að koma síð- asta fé sínu í afrétt í Fjörður. Óvenjumikill snjór er nú á Leir- dalsheiði og eru þess dæmi að reka hefur þurft allt að sjö kíló- metra á samfelldri fönn út yfir heiðina. Ljóst er því að fært verður í Fjörður í seinna lagi á þessu ári. Árið 1995 varð fyrst fært í Fjörður um verslunar- mannahelgi, en þá voru síðustu skaflarnir mokaðir af veginum. Morgunblaðið/Sverrir ÞAU Hanne Gesvig og Dag Audun Hokstad voru hrifin af ís- lensku kjötsúpunni. Má bjóða þér íslenska kjötsúpu? góð og brauðið lostæti. Þau sögð- ust vön svipaðri súpu frá sínum heimaslóðum þannig að þetta væri þeim ekki alveg ný reynsla. Þau sögðust hiklaust geta mælt með íslensku útgáfunni. Hrifnir af súpunni Hulda Sigríður Sverrisdóttir og Stefán Pétur Sólveigarson, starfsmenn í Gamla bænum, segja að ferðamennimir séu upp til hópa mjög hrifnir af súpunni. Ekki sé merkjanlegur munur á vinsældum súpunnar eftir þjóð- emum. Hins vegar séu Bretarnir oft afskaplega ánægðir með þennan íslenska rétt. Oft komi það meira að segja fyrir að ferða- mennimir fái sér ábót, þannig að greinilegt er að landinn þarf ekki að skammast sín fyrir að bjóða upp á gömlu góðu kjötsúpuna. ERLENDIR ferðamenn sem eiga leið um Island hafa stundum kvartað yfir því að veitingastaðir hér á landi bjóði ekki upp á hinn dæmigerða íslenska mat. Allt of mikil áhersla sé lögð á hamborg- ara og annan skyndibita. Sumir veitingastaðir hafa bmgðist við þessari gagnrýni og æ algengara er að menn sjái íslenska kjötsúpu á boðstólum. Þegar blaðamaður og ljósmyndari vom í Reykjahlíð á dögunum rákust þeir á skilti í veitingastaðnum Gamla bænum sem á var letrað að boðið væri upp á íslenska kjötsúpu og hverabakað rúgbrauð. Morgun- blaðið leitaði eftir viðbrögðum erlendra ferðamanna og hvort kjötsúpan færi vel í þeirra maga. Norska parið, Hanne Gesvig og Dag Audun Hokstad, var á einu máli um að súpan væri mjög Stórleikur Olís og Simoniz Morgunblaðið/Margrét Póra PÁLL Baldursson útibússtjóri Olís á Akureyri afhendir Ásdísi Jens- dóttur miða fyrir tvo á leik Manchester United á Old Trafford. Vann ferð á Old Traffford AKUREYRINGURINN Ásdís Jensdóttir datt í lukkupottinn þegar nafn hennar var dregið út í Stórleik Olís og Simoniz. Hún hlýtur að launum ferð fyrir tvo á fyrsta heimaleik Manchester United á Old Trafford í október, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá Olís. Ásdís kveðst ekki hafa riðið feitum hesti frá þátttöku í happdrættum hingað til en nú hafi heldur betur orðið breyting á. geta þess að hún er aðdáandi Manchester United, „þó ég hafi nú ekki mikið vit á þessu,“ sagði hún. Svo skemmtilega vill til að Ásdís á fimmtugsafmæli í októ- ber og fagnar þeim tímamótum á Old Trafford. Stórleikur Olís og Simoniz fer þannig fram að í hvert sinn sem viðskiptavinur kaupir Simoniz- bílahreinsivörur á Olísstöðvum fær hann þátttökumiða til að fylla út og er hann þá orðinn ’ TT ; r *r? q •v' 1 * í * f I Blómaskálinn Vín fímmtán ára Sýningin „Akur- eyrarskáldin“ í Sigurhæðum, húsi skáldsins í SIGURHÆÐUM, húsi skáldsins, verður næstkomandi sunnudag, 18. júlí, sýningin ,Akureyrarskáldin“, en sýningin var einnig opin síðastliðinn sunnudag. Á sýningunni hanga uppi á veggjum verk látinna Akureyrar- skálda og lifandi skáld ganga á gólf og flytja kveðskap fullum hálsi. Sýn- ingin verður „á heila tímanum“ kl. 14,15,16 og 17. Minningarstofa séra Matthíasar verður einnig opin. í fréttatilkynningu segir að allir séu velkomnir gegn greiðslu hóflegs að- gangseyris. í TILEFNI af því að næstkomandi þriðjudag, 20. júlí, eru liðin fimmtán ár frá því að Blómaskálinn Vín hóf starfsemi, hyggjast forráðamenn hans fagna afmælinu með veglegum hætti. Meðal annars verður boðið upp á Vínarís, kakó, kaffi og pönnu- kökur á sama verði og fyrir fimmt- án árum. í fréttatilkynningu frá Blóma- skálanum segir að hjónin Hreiðar Hreiðarson og Þórdís Bjarnadótt- ir hafi opnað gróðurskála við Hrafnagil í Eyjarfirði fyrir fimmt- án árum og gefið honum nafnið Blómaskálinn Vín. Einnig segir að frá upphafi hafi verið lögð áhersla á að bjóða upp á ferskleika í vöru og þjónustu ásamt góðu blómaúr- vali. Á afmælisdaginn mun Benedikt Grétarsson matreiðslumeistari baka pönnukökur í sal Blómaskál- ans og Gunnar Tryggvason flytur tónlist. Einnig verður boðið upp á leiktæki, hoppkastala og minigolf. íslandsbærinn, torfbærinn sem ris- ið hefur við Blómaskálann, verður opinn gestum og gæddur lífi með vinnu- og munasýningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.