Morgunblaðið - 17.07.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 23
ÚR VERINU
enginn sem bjargar þér nema þú
sjálfur. Kvótakerfið hefur ekkert
með þetta að gera. Þegar skorið var
niður, var það sama hlutfall alls
staðar. Það eina sem hefur gerzt á
Vestfjörðum er að þeir seldu frá sér
heimildir til að fjárfesta í skipum.
Það var ekki kvótakerfið sem skað-
aði þá. Þeir sköðuðu sig sjálfir.
Kerfið gerði þeim ekkert erfiðara
fyrir en öðrum. Það voru þeir sjálfir
sem gerðu það með röngum ákvörð-
unum. Það þýðir ekkert að segja að
það sé vitlaust gefið og hengja
þannig bakara íyrir smið. Þetta er
ósköp einfalt. Hver og einn ber
ábyrgð á sjálfum sér.
Það versta sem gæti gerzt nú er
að farið væri að breyta fiskveiði-
stjómuninni í grundvallaratriðum.
Við það skapaðist mikið óvissuá-
stand. Maður verður að vita hvað er
framundan. Eg þarf að skipuleggja
reksturinn mörg ár fram í tímann.
Menn em að taka lán, sem á að
borga á 15 til 20 áram. Þegar það er
gert verða þeir að hafa ákveða yfir-
sýn yfir fiskveiðistjómun í framtíð-
inni, en eiga ekki að þurfa að búast
við sífelldum breytingum. Auðvitað
breytist alltaf eitthvað í árferði,
fiskigengd og svo framvegis og þá
breyta lánastofnir fyrir alla, sé þess
þörf og reglum fyrir heildina má
einnig breyta. Hins vegar er það al-
gjört glapræði að breyta gmndvall-
arreglum fyrir einhverja sérhópa.
Staðan verst þar
sem mest er styrkt
Það hefur komið í ljós að atvinnu-
starfsemi á svæðum sem mest er
styrkt, stendur ávallt verst. Þetta á
við Island og á við í Noregi líka.
Þegar sjávarútvegur í Noregi naut
mestra ríkisstyrkja, var hann verst
staddur og samkeppnisstaða hans
vonlaus. Nú er búið að minnka
styrkina verulega og fyrir vikið
stendur útvegurinn betur. Stjóm-
endur margra fyrirtækja em búnir
að átta sig á því að þau verða að
vera markaðsdrifin. Önnur fyrir-
tæki era svæðisdrifin og styrkja-
drifin og þau munu deyja.“
Ekki of seinir
Það hefur verið talað um að Vest-
firðingar hafi verið of seinir að fara
út í sameiningu fyrirtækja og fara
með fyrirtæki sín á hlutabréfa-
markaðinn. Ertu sammála því?
„Nei. Sameiningar og skráning á
verðbréfaþingi er ekki það sem
breytir rekstri fyrirtækja. Það að
fara inn á þingið er viðurkenning
inni í fyrirtækinu, sem er búin að
eiga sér stað áður. Þá er búið að
taka þá ákvörðum að fyrirtækið
verði arðbært og rekið á markaðs-
legum forsendum. Það gengur ekki
að fara með fyrirtæki inn á þingið
til að ná einhverjum peningum í
hlutafé, ef reksturinn er ekki í lagi.
Þá refsar þingið þér og verðið á
hlutabréfunum verður lægra en það
þyrfti að vera, þar sem ekki er verið
að spila eftir þeim leikreglum sem
gilda. Breytingin verður að gerast
áður. Reksturinn og framtíðarsýnin
þarf að vera í lagi. Ef svo er er sjálf-
sagt mál að skrá fyrirtækið á þing-
ið, sé það viiji eigendanna. Það gerir
öðram kleift að komast inn og þeim
eigendum, sem ekki viija eiga í því
kleift að komast út. Allt þarf að vera
í lagi, áður en farið er á þingið eða í
sameiningar.“
Velti mér ekki
upp úr fortíðinni
Miklar deilur hafa staðið um
Básafell að undanförnu og tveir
stjómendur þess hafa vikið úr
starfi. Telur þú þig hafa nægilegan
frið til að sinna starfi þínu?
„í fyrsta lagi ætla ég ekki að tala
um einstaka starfsmenn fyrirtækis-
ins eða það, sem gerzt hefur áður en
ég kom að því. Eg hef enga löngun
til að velta mér upp úr fortíðinni.
Það sem gerzt hefur er búið og
gert.
Eg er að reyna að kynnast starfs-
mönnum fyrirtækisins, en hef því
miður fengið allt of lítinn tíma til
þess. Ég þarf að fá fólkið til að
vinna með mér. Það er mikið af
góðu og hæfu starfsfólki hjá Bása-
felli. Það veit upp á hár hvert svona
fyrirtæki þarf að stefna og hvað
þarf til að ná það þangað. Það þarf
hver einasti starfsmaður vita þetta
og hvað hann sjálfur þarf að gera til
að markmiðin náist. Allir verða að
vinna sem ein heild að sama mark-
miði. Náist það er það meiri auðlind
en kvótinn. Ég trúi því að ég nái
þessu sambandi við starfsfólkið.
Þegar menn hætta að trúa þessum
lygasögum, sem eru í gangi, fæ ég
fólkið til að vinna með mér.
Ekki allt í kaldakoli
Það er ekkert allt í kaldakoli á
Vestfjörðum þótt sumum gangi illa.
Mörg fyrirtæki era að gera það
mjög gott. Það era önnur svæði á
landinu og fyrirtæki annars staðar á
landinu sem eiga virkilega erfitt.
Það er hins vegar þannig að þegar
eitthvað gerist á Vestfjörðum, era
svo margir á svæðinu tilbúnir til að'
vera með stórar yfirlýsingar. Það
verður alltaf svo mikill hasar úr
engu og allt sem gerist verður eftir-
sóttur fjölmiðlamatur. það er fjöldi
fyrirtækja á landinu búinn að selja
skip og aflaheimildir án þess að það
hafi vakið slík viðbrögð og fyrir
vestan. Það er gífulegt magn afla-
heimilda sem skiptir um eigendur á
hverju ári um allt land. Menn era
stöðugt að laga til í rekstrinum og
selja skip og kvóta eða kaupa. Ger-
ist það á Vestfjörðum fer allt í háa
loft. Það er eins og menn þrífist á
orrahríðinni.
Þessi mikla orrahríð, styr og yfir-
lýsingar sem hafa gengið á víxl,
vegna stöðunnar á Vestfjörðum hef-
ur komið öllum illa. Hugmyndir
þingmanna um að nauðsynlegt sé að
fara út í einhverjar séraðgerðir fyr-
ir okkur Vestfirðinga, gera bara illt
verra. Það veldur mér erfiðleikum í
rekstrinum. Ef ég er að selja skip
eða veiðiheimildir, eiga viðskipti af
einhverju tagi, er maður spurður
hvort maður ráði nokkra. Hvort
þetta verði ekki bara stoppað af ein-
hverjum öðram. Slíkt hefur komið
fyrir áður. Stjómmálamenn hafa
farið í pólitískan leik til að stjóma
fyrirtækjum. Slíkt vildi ég allra sízt
fá yfir mig. Ég og stjóm félagsins
verðum að fá að ráða ferðinni án af-
skipta annarra. Ég kem með tillög-
ur til stjómar og hún samþykkir
þær eða breytir og kemur með aðr-
ar tillögur. Síðan vinn ég eftir því.
Ef eitthvert annað „yfirvald" ætlar
svo að fara að skipta sér af þessu á
einhverjum öðram forsendum, en
þeim sem við þurfum að vinna eftir,
gengur dæmið aldrei upp. Ég tel að
óeðlileg afskipti stjórnmálamanna
geti þannig skaðað fyrirtækið og
frábið okkur þau.
Á móti sértækum lausnum
Ég er á móti öllum sértækum úr-
lausnum, en því miður er staðan á
Þingeyri slæm. En það á ekki að
blanda fyrirtækinu inni lausn þess
vanda. Það er verk sveitarstjómar
að leysa vandann. Það er sjálfsagt
að velta fyrir sé hvaða leiðir eru
færar í bæjarfélögum, þar sem at-
vinnutækifæri era lítil sem engin.
Það á hins vegar ekki að gerast í
gegn um fyrirtækið sem ég stjóma.
Abyrgðin þar er skýr. Það era hlut-
hafar sem eiga þetta fyrirtæki. Þeir
velja sér stjórn, stjómin ræður
framkvæmdastjóra, sem falið er að
framkvæma hlutina. Þannig á það
að vera og önnur afskipti af stjórn
fyrirtækisins era bæði óeðlileg og
óæskileg. Það er á hinn bóginn
sjálfsagt að Básafell hugi að þeim
kosti að koma með einhverja starf-
semi til Þingeyrar, séu fyrir því
rekstrarlegar forsendur.“
Ljósritið skilið eftir
Það virðist sem gögnum hafi ver-
ið stolið af skrifstofu fyrirtækisins,
sem leitt hafi til rangra frétta um
áform þess. Hvað verður gert í því
máli?
„Það er alveg ljóst að blaði, sem
skrifað var upp eftir umræður á
fyrsta vinnufundi mínum með
stjóm félagsins, hefur verið stolið.
Þetta var blað með ýmsum hug-
myndum og vangaveltum sem ekki
hafði verið farið yfir. Enginn
stjómarmaður hafði þetta blað
undir höndum. Það var aðeins til í
einu eintaki á skrifstofu Básafells,
hafði ekki einu sinni verið ljósritað.
Það er svo allt í einu komið í DV.
Það er alveg ljóst að þessu blaði var
stolið og það ljósritað á skrifstof-
unni. Ljósritið var skilið eftir í
fundargerðabókinni, en frumritið
var tekið.
Þetta mál er í rannsókn og við er-
um að skoða þann fnöguleika að
kæra þjófnaðinn. Það er ljóst að
þama er kæragrandvöllur, þar sem
menn era að hnýsast í og dreifa
gögnum, sem þeim era óviðkom-
andi. Viðurlög við því geta verið
fangelsisvist í allt að einu ári. Við
eram sem sagt að skoða það hvort
við kæram þetta til siðanefndar
Blaðamannafélagsins eða sem opin-
bert sakamál nema hvort tveggja
sé. Það sem mér er hins vegar efst í
huga er hvemig ég fæ mestan frið
til nauðsynlegra aðgerða með því
fólki, sem ég er að vinna með. Ég er
ekki að reyna sakfella neinn í þessu
máli, ég er fyrst og fremst að hugsa
um hag fyrirtækisins, hvernig hon-
um er bezt borgið,“ segir Svanur
Guðmundsson.
Revena
fótakrem
vlð þreytu,
bólgum og
pirríngi í fótum
Fæst í apótekum
Fasteignir á Netinu ^mbl.is
ALL.TAf= e!TTH\S>\£) A/ÝTJ
í tilefni 100 ára afmælis skipulagörar skógræktar á íslandi,
munu skógræktarfélögin halda skógardaga
I7.-I8. júlí víðsvegar um land.
Skógræktarfélögin bjoöa aila velkomna ó skógardaga,
sem haldnir veröa ví&svegar um land.
Mætum öll á skógarhátíð félaganna.
Skógræktarfélag Skogarsvæói Dags. kl.
A-Húnavalnssýslu GunnfríSarstaSir 18.7 14:00
Ausfurlands EyjólfsstaSaskógur 17.7 14:00
Björk BarmahlíS 18.7 14:00
Dýrafjarðar Botnsskógur 18.7 14:00
HafnarfjarSar ViS Hvaleyrarvatn 17.7 14:00
Kópavogs GuSmundarlundi/Vatnsenda 17.7 15:00
Mosfellsbæjar HamrahlíS 17.7 14:00
N-Þingeyinga AkurgerSi 17.7 14:00
Rangæinga Gunnlaugsskógur/Gunnarsholti 17.7 14:00
SeySisfjarSar Selhjallaskógur 18.7 13:30
SkagafjarSar VarmahlíS 18.7 14:00
| Önnur félög halda skógræktardaga síðar í sumar.
Samstarf við FÍH
Dagskrá skógardaganna verður með fjölbreyttum hætti
en sérstök áhersla verður lögð á tónlistarflutning í skóginum.
í tilefni þessa verður tekið upp formlegt samstarf við
Félag íslenskra hljómlistarmanna.
Undirskrift samstarfssamnings verður við hátíðlega athöfh,
í Hamrahlíð í Mosfellsbæ laugardaginn 17. júlí kl. 14,
við upphaf skógardags hjá Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar.
Skógáakihi
Þar verður jafhframt afhjúpað fyrsta skógarskiltið af þeim 70 sem
skógræktarfélögin munu setja upp víðs vegar um land í sumar.
Mikil þörf hefur verið á því að kynna þau fjölmörgu
skógarsvæði sem eru í umsjón félaganna. Verkefhi þetta er
unnið með tilstyrk Húsasmiðjunnar o.fl. stuðningsaðila.
Á skógardeginum í Hamrahlíð mun Dixieland hljómsveit
Áma Isleifssonar skemmta auk annarrar dagskrár
sem boðið verður upp á.