Morgunblaðið - 04.08.1999, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Mannskætt
úrhelli í Asíu
Seoul, Manila. Reuters.
GÍFURLEGT úrhelli hefur
steypzt yfir nokkur lönd Austur-
Asíu undanfarna daga. Hefur regn-
magnið víða mælzt það mesta í ára-
tugi. Að minnsta kosti 70 manns
hafa fallið í valinn af völdum rign-
ingarinnar, tugþúsundir hafa
neyðzt til að yfirgefa heimili sín og
akrar og samgöngumannvirki hafa
orðið eyðileggingu að bráð.
Fellibylurinn Olga stefndi í gær
frá Gulahafi inn yfir Kóreuskaga.
Höfnum og flugvöllum í Suður-
Kóreu var lokað og almannavarnir
settar í viðbragðsstöðu. Norður-
Kóreubúar, sem hafa á undanförn-
um árum sætt miklum búsifjum af
völdum þurrka og flóða á víxl,
bjuggu sig í gærkvöldi undir að
úrhelli steyptist yfir þá með felli-
bylsvindhraða.
Frá því á föstudag hafa a.m.k. 54
farizt eða týnzt í flóðum og aur-
skriðum í Suður-Kóreu. Tvennt dó
eftir að hafa orði fyrir fljúgandi
grjóti og járni nærri vesturströnd-
inni í gær, þar sem fellibylurinn
slengdi sjó langt upp á land, án
þess þó að kaffæra það í flóðbylgju.
Frá því á föstudag hefur mikill
fjöldi húsa, járnbrauta, vega og
önnur mannvirki farið á kaf.
Samkvæmt upplýsingum frá
opinberri fréttastofu Norður-
Kóreu voru í gær um 40.000
ferkm. ræktarlands komin undir
flóðvatn en þess vænzt að Olga
færði enn stærra landsvæði á kaf.
Búizt var við að fellibylurinn
skylli á n-kóresku hafnarborginni
Haeju í gærkvöldi, og halda þaðan
áfram í átt að höfuðborginni
Pyongyang.
Flóð lama Filippseyjar
Flóð stönzuðu meira eða minna
allt athafnalíf í Manila, höfuðborg
Filippseyja, og í Taílandi voru mikl-
ir vatnavextir hafnir í ánni Mekong.
I Víetnam var gefin út beiðni um
neyðaraðstoð við flóðasvæði í land-
inu.
Á Filippseyjum var í gær búið að
staðfesta 29 dauðsföll af völdum
vatnsflaumsins, eftir að fréttist af
manni sem dó er húsveggur hrundi
yfir hann. Að sögn almannavarna
Filippseyja voru heimili um 60.000
manna komin undir vatn og um
30.000 höfðu verið flutt úr húsum
sem í stefndi að færu á kaf.
Fellibylurinn Olga gekk yfir Fil-
ippseyjar í síðustu viku og sögðu
veðurfræðingar það hafa gert illt
SUÐUR-kóreskir hermenn bjarga fólki út úr húsi í borginni Paju í gær.
Reuters
verra ur monsunngningunum sem
annars er alltaf von á á þessum
árstíma.
I Taílandi höfðu á undanförnum
dögum á að gizka 32.000 manns flú-
ið heimih' sín vegna fióða og hús um
60.000 annarra skaðazt. Almanna-
varnir voru í gær í viðbragðsstöðu í
landbúnaðarhéruðum í norðurhluta
slandsins, þar sem vatnavextir
héldu stöðugt áfram í Mekong-
ánni.
Meó einu
handtaki býróu
ti! boró í
mióaftursætinu.
Einnig fáanlegt
meó kæliboxi.
4 loftpúóar:
bílstjóri. farþegi
í framsæti
og hlióarpúóar.
„Flugsætisboró"
fyrir yngri
farþega
í aftursæti.
Mikió
farangursrými sem
hægt er aó stækka
enn meira.
Auðvelt er aó taka
aftursætin úr, eitt,
tvö eóa öli þrjú.
Þau eru
ótrúlega létt.
Tvö hólf ígólfi fyrir
framan aftursæti.
Renault Mégane varvalinn öruggasti bfli ársins f sínum flokki í Evrópu 1998.
Grjótháls 1
Sími575 1200
Söludeild 575 1220
AlkþetíawmúUiMéfme Scénk
Aukabúnauur i mynd: Alfclgur