Morgunblaðið - 04.08.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 13
FRETTIR
Samkomulag við ESB um inn-
flutningsgjöld vegna bókunar 2
Bætir samkeppn-
isstöðu íslensks
útflutnings
NÁÐST hefur samkomulag um
föst innflutningsgjöld til íslands
og ESB vegna vegna bókunar 2
við gömlu fríverslunarsamning-
ana.' Bókunin fjallar um unnar
landbúnaðarvörur, pasta, súpur og
fleira.
Samkvæmt upplýsingum utan-
ríkisráðuneytis þýðir samkomulag-
ið að samkeppnisstaða íslensks út-
flutnings á þessum vörum mun
batna. Gjöld inn til ESB munu
lækka, sérstaklega þó á súkkulaði.
Gert er ráð fyrir 500 tonna kvóta,
sem er meira magn en nú er flutt
út, með 50% lægri gjöldum. Einnig
verða lægri gjöld á sterku áfengi
inn tfl ESB.
Magntollur í innflutningi til ís-
lands á vörum bókunar 2 lækkar
um 5% að meðaltali. Heildargjöld
lækka þó minna vegna tvískipting-
ar álagningar í verðtoll og magn-
toll.
Stefán H. Jóhannesson, skrif-
stofustjóri utanríkisráðuneytisins,
segir samninginn vel viðunandi
fyrir íslands hönd. Hann skapi
aukin sóknarfæri fyrir íslenskan
iðnað í útflutningi til ESB og styrki
stöðu iðnaðar í sívaxandi alþjóða-
samkeppni.
Bókun 2 var gerð fyrir gildistöku
EES-samningsins en þá voru í
gildi tvíhliða fríverslunarsamning-
ar mffli EFTA-ríkja og EBE. í
þeim voru ákvæði um viðskipti með
vörur sem innihalda landbúnaðar-
hráefni í sérstakri bókun, bókun 2.
I gildi var verðjöfnunarkerfi, þar
sem verðjöfnunargjöld á innflutn-
ing endurspegluðu þann verðmun á
landbúnaðarhráefni sem framleið-
endur standa frammi fyrir.
í bókun 3 við EES-samninginn
var gert ráð fyrir sambærilegu
kerfi en ekki náðist að semja um
hvernig reikna ætti út verðjöfnun-
argjöldin, því var bókun 2 áfram í
gildi.
Er samningur Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar (WTO-samningur-
inn) tók gildi var lagt bann við
álagningu breytilegra innflutnings-
gjalda. Ekki hafði náðst samkomu-
lag um reiknireglur fyrir verðjöfn-
unargjöld í bókun 3 og því þurfti að
semja um föst gjóld, fyrst vegna
bókunar 2 vegna þess að hún var
enn í gildi og svo vegna bókunar 3
við EES-samninginn. Samninga-
viðræður um hana standa yfir og
munu byggjast á samkomulagi
vegna bókunar 2.
Ráðstefna um konur og lýðræði við árþúsundamót
Flestir þátttakendur
hafa verið valdir
LISTAR yfir þátttakendur á Ráð-
stefnu um konur og lýðræði við ár-
þúsundamót, sem haldin verður í
Reykjavík í haust, liggja að mestu
leyti fyrir. Að mati Sigríðar Dúnu
Kristmundsdóttur, formanns fram-
kvæmdanefndar ráðstefnunnar, tek-
ur afar breiður hópur kvenna og
karla þátt í henni. Fólkið á það sam-
eiginlegt að hafa starfað að málum
er varða konur og lýðræði í þeim
löndum sem standa að ráðstefnunni.
Bandaríkjamenn hafa ekki lokið við
að velja sína þátttakendur auk þess
sem ekki liggur enn fyrir hverjir
mynda hóp framkvæmdaaðila sem
ætlað er að framkvæma þau verkefni
sem mótuð verða á ráðstefnunni.
Sigríður Dúna segir rúm á ráð-
stefnunni fyrir 300 þátttakendur og
framkvæmdaaðila. Hún segir að
gengið hafi verið út frá því við val á
fulltrúum að 25 þátttakendur kæmu
frá hverju baltnesku landanna, 50
frá Rússlandi og sami fjöldi frá
Bandaríkjunum. Miðað var við að 15
þátttakendur kæmu frá hverju
Norðurlandanna að íslandi frá-
töldu, sem hefur 29 fulltrúa á ráð-
stefnunni. Peim verða send bréf um
þátttökuna í næstu viku, að sögn
Sigríðar Dúnu.
Víðtækt samráð við val
á þátttakendum
Þátttakendur voru valdir með
þeim hætti að skrifstofa ráðstefn-
unnar sendí 700 bréf til einstaklinga
og stofnana í þátttökulöndunum að
höfðu samráði við fjölmarga aðila.
„Við leituðum í smiðju allra sem við
vissum að þekktu til í þessum lönd-
um og notuðum ráðstefnulista frá
öðrum ráðstefhum. Við reyndum að
finna alla sem við gátum hugsan-
lega ímyndað okkur að ættu erindi
á þessa ráðstefnu," sagði Sigríður
Dúna. Hún segir sendiráð íslands
og Bandaríkjanna einnig hafa aflað
mikilla upplýsinga um hugsanlega
þátttakendur.
Mögulegir þátttakendur voru
beðnir um að gera grein fyrir því
hvar þekking þeirra á viðfangsefni
ráðstefnunnar lægi, hvernig þeir
skilgreindu þau vandamál sem taka
þyrfti á, hvaða lausnir þeir hefðu á
vandanum og með hverjum þeir
gætu hugsað sér að leysa hann. Um
340 svör bárust skrifstofu ráðstefh-
unnar. Fyrir starfsmönnum hennar
lá svo að fara yfir svörin og gera til-
lögu um þátttakendur til samstarfs-
nefndar allra þátttökulandanna. Til-
lagan var samþykkt á fundi nefndar-
innar nýlega með þeim fyrirvara að
skrifstofa ráðstefnunnar gæti breytt
honum lítillega ef þurfa þætti.
„Með þessari leið við val á þátt-
takendum vorum við að leggja
eyrað að jörðinni í þátttökulöndun-
um og finna út hvað brennur á kon-
um þar," sagði Sigríður Dúna. Hún
segir karla einnig eiga ríkt erindi á
ráðstefnuna því allt sem snerti kon-
ur og lýðræði snerti karla líka.
ísland í forystu
tveggja nefnda
10 álíka stórir vinnuhópar voru
myndaðir út frá svörum hugsan-
legra þátttakenda. Hóparnir nálg-
ast umfjöllunarefnið konur og lýð-
ræði hver á sinn hátt. íslenskar
konur eru í forystu fyrir tveimur
hópanna. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri stýrir hópi sem
fjallar um beina þátttöku kvenna í
hinu opinbera lýðræðisferli og Sól-
veig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra stjórnar vinnuhópi um aðferð-
ir til að ná forystu.
Sæti verða frátekin fyrir 100
boðsgesti á ráðstefnunni og þar
verður rúm fyrir um 140 frétta-
menn. Heildarfjöldi ráðstefnugesta
verður því nálægt 540 manns, en
fleiri rúmast ekki í sal Borgarleik-
hússins.
Stfetchbtmjf
St. 38-50 - Frábært úrval
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
HR-V öQrdndi og fjórhjólcadrinnn
0 Nú er tími til að gleðjastþvíítilefni af50 ára afmælisári Honda bjóðum við Honda HR-Vá sérstöku
afmælistilboði. Honda HR-Vertímamótabíllíumferðinni, ögrandi útlit, ótrúlegtrými.
Komdu og skoðaðu ípakkana.
Hondc3 HR-V. MxM
frá 1.G99.000 Icr.
Jjfiti i sætuni)
X Samlitir stuðarar )
( Geislaspilari og hátalarar l^
- betri bíll
Vatnagörðum 24 ¦ Sími 520 1100 ¦ www.honda.is
Akranes: Bílver sf., sími 4311985. Akureyrí: Höldurhf., sími4613000. Egilsstaðin Bíla- og búvélasalan hf., sími4712011. Kellavík: Bílasalan Bílavík, slmi4217800. Vestmannaeyjan Btlaverkstæðið Bragginn, sími 4811535.