Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STOFNUÐ hafa verið Samtök fjár- málafyrirtækja og eiga öll helstu fjármálafyrirtæki landsins aðild að þeim, þeirra á meðal tryggingafé- lög, viðskiptabankar, sparisjóðir og aðrar lánastofnanir, alls 51 fyrir- tæki. Formaður samtakanna er Hall- dór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans og formaður Sam- taka íslenskra viðskiptabanka, en varaformaður er Axel Gíslason, for- stjóri VIS og formaður Sambands íslenskra tryggingafélaga. Aðrir stjómarmenn eru Bjami Armanns- son, forstjóri FBA og formaður Sambands lánastofnana, Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings og formaður Samtaka verðbréfafyi’ir- tækja, og Þór Gunnarsson, Spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarð- ar og formaður Sambands íslenskra sparisjóða. Samtök fjármálafyrirtækja munu taka þátt í stofnun nýrra heildar- samtaka atvinnurekenda, Samtaka atvinnulífsins, 15. september næst- komandi. Samkvæmt fréttatilkynn- ingu telja Samtök fjármálafyrir- tækja mikilvægt að taka þátt í heildstæðum hagsmunasamtökum með öðmm atvinnurekendum og leggja þannig sitt af mörkum við að móta almenn starfsskilyrði fyrir- tækja í landinu. Samtökin undir- strika að fjármálaþjónusta er mikil- væg atvinnugrein og í örum vexti en til að viðhalda honum þurfí að búa íslenskum fjármálafyrirtækjum hliðstæð starfsskilyrði og erlendum keppinautum. Einnig kemur fram að samtökin muni vinna að því að skapað verði raunverulegt frelsi í lífeyrismálum og að sparnaður í þjóðfélaginu auk- ist enn frekar. Samtökin munu freista þess að ná fram breytingum á tillögum að nýjum alþjóðlegum eiginfjárreglum lánastofnana og Frá stofnfundi Samtaka fjármálafyrirtækja. Finnur Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra viðskiptabanka, Þór Gunnarsson, Halldór J. Kristjánsson, formaður, Bjarni Ármannsson, Axel Gíslason, varaformaður, og Sigmar Ármannsson, framkvæindastjóri Sambands íslenskra tryggingafélaga. Stofnun Samtaka fjármálafyrirtækja 011 helstu fjármála- fyrirtæki eiga aðild fyrirtækja í verðbréfaþjónustu en þær munu að óbreyttu hafa veru- lega neikvæð áhrif á lánsfjárkostn- að allra íslenskra aðila í útlöndum, að því er segir í tilkynningunni. Ennfremur segir í tilkynning- unni: „Samtökin telja brýnt að regl- ur um starfsemi fjármálafyrirtækja séu skýrar og einfaldar og sniðnar að því sem gengur og gerist í öðrum vestrænum ríkjum. Þau minna á að starfsemi fjármálafyrirtækja bygg- ist að verulegu leyti á trausti. Því er mikilvægt að starfsemi þeirra og þær reglur sem um hana gilda, s.s. um eignarhald, eigið fé, stjómkerfi og starfshætti, miði ávallt að því að viðhalda þessu trausti." Sérstaða fjármála- fyrirtækja í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Halldór J. Kristjánsson að mikill ávinningur fælist í því fyrir fjármálafyi’irtæki að eiga aðild að heildarsamtökum atvinnulífs á Is- landi. Hins vegar væri Ijóst að sér- staða fjármálafyrirtækja væri nokkur og því hefði verið mikil- vægt að öll fjármálafyriræki, þar með talin tryggingafélögin, sam- einuðust um stofnun sérsamtaka. Aðspurður um þá umræðu sem fram hefur farið um dreifða eignar- aðild að bönkunum sagði Halldór að nákvæm stefnumótun samtak- anna um einstök atriði lægi ekki fyrir en a.m.k. væri ljóst að við- skiptabankarnir hefðu lagt mikla áherslu á að tryggja sjálfstæði bankanna. „Ein leið tU að tryggja sjálfstæði og öryggi fjármálafyrirtækja og stuðla að því að efla traust á þeim í samfélaginu er að sjá til þess að þau séu í sem dreifðastri eign og óháð hagsmunum stórra atvinnu- fyrirtækja sem jafnframt eru stórir lántakendur á markaðnum. Sjónar- mið Landsbankans um þetta kom fram í útboðslýsingu sem bankinn birti síðastliðið haust, þar sem gerð var grein fyrir þeim reglum sem gilda um eignarhald á viðskipta- bönkunum. Þær reglur gera til dæmis skylt að tilkynna það ef eignarhlutur einstaks hluthafa fer yfir 10% en það telst virkur hlutur í skilningi laga um viðskiptabanka. Dreifð eignaraðild felur í sér að eignarhlutur hvers og eins verði undir 10% og það er reyndar sú samsetning eignarhalds á við- skiptabönkum sem tíðkast í flest- um löndum í kringum okkar. Þar er algengt að stærstu aðilar séu með 5-9% eignarhlut í bönkum og eru stærstu eigendur þeirra gjarn- an fagfjárfestar og stofnanafjár- festar en minna ber á aðild at- vinnufyrirtækja og þannig er þessu einnig varið varðandi aðild að Is- landsbanka hf,“ sagði Halldór. Grunnskólar í Húnaþingi vestra sameinaðir að ári Fámennið knýr menn til breytinga Morgunblaðið/HBj. Jóhann Albertsson skólastjóri. SVEITARSTJÓRN Húnaþings vestra hefur ákveðið að sameina alla fjóra skóla sveitarfélagsins. Hafið er sameiningar- ferli sem lýkur næsta naust með því að einn skólastjóri verður yfir stofnuninni. Enn um sinn verða fjórir kennslustaðir. „Við höfum markað þá stefnu að sameina skólana fjóra í Grunn- skóla Húnaþings vestra sem tekur til starfa hausið 2000. Skólastjóri verður Jó- hann Álbertsson sem nú er skólastjóri Laugarbakkaskóla. Hann tekur í haust einnig við stjómun Bamaskóla Staðarhrepps og Vest- urhópsskóla og verður í vetur verk- efnisstjóri við undirbúning sameig- inlegs grannskóla," segir Elín R. Líndal, oddviti sveitarstjómar Húnaþings vestra. Frá næsta hausti verður Jóhann því einn skólastjóri en aðstoðarskólastjórar á Hvamms- tanga og Laugarbakka. Breyting- arnar eru meðal annars grundvall- aðar á faglegri úttekt Rannsókna- stofnunar Háskólans á Akureyri. Undirbúningur í vetur „Ætlunin er að eftir veturinn verðum við með fullmótaða stofnun og undirbúningur að henni unnin af þeim sem munu vinna við hana, það er að segja kennuram og skóla- stjórnendum," segir Jóhann Al- bertsson skólastjóri. Hann segir að nemendum á svæðinu hafi fækkað mikið á undanfomum árum og tiltölulega dýrt að reka marga skóla. „Eg er ekki endilega að segja að skólinn verði miklu ódýrari en vonast til þess að það fáist betri nýting fjármuna og von- andi mun betra skóla- starf. Samfélagið er að breytast. Fyrir tíu áram var verið að biðja skól- ann um allt annað en í dag. Þá var fræðslu- skyldan talin mikilvæg- ust en nú er ekki síður lögð áhersla á uppeldis- hlutverk skólans," segir Jóhann. Elín segir að með sameiningu yf- irstjómar skólanna fáist betri yfir- sýn og meiri samvinna milli kennslustaðanna. „Við eram lítið samfélag með tæplega 1.300 íbúa og liðlega 200 nemendur í grannskóla. Það er faglega og fjárhagslega betra að reka skólann sem eina stofnun, þannig fáum við enn betri skóla.“ Hún leggur á það áherslu að tiltölulega góð samstaða hafi verið um breytinguna. „Við höfum reynt að vinna þetta í samstarfí við skóla- fólkið og það hefur verið tilbúið að ræða málið og taka á því með okk- ur. Ég met það mikils," segir Elín. Stjómun tveggja minnstu skól- anna, Vesturhópsskóla á Vatnsnesi og Bamaskóla Staðarhrepps á Reykjum í Hrútafirði, hefur verið sameinuð Laugarbakkaskóla í Mið- firði. Áfram verður kennt á þessum stöðum. Jóhann segir að vegna fjar- lægðar og erfiðra samgangna sé ekki unnt að leggja niður kennslu í Vesturhópsskóla þótt þar verði að- eins sjö böm í vetur. Skólinn á Reykjum er hins vegar í ágætu vegasambandi við Miðfjörð og Hvammstanga en þar era um 20 börn og sveitarstjóm hefur ákveðið að starfrækja kennslustaðinn í tvö ár. Þriðjungur bamanna gengur þá upp úr skólanum og útlit fyrir mikla fækkun þannig að framhaldið er óá- kveðið. Jóhann segir að fjögur böm úr Bæjarhreppi í Strandasýslu séu í skólanum á Reykjum og telur hann of langt að aka þeim í Miðfjörð. Það vandamál er því óleyst. Fólkið ekki tilbúið Skólarnir á Hvammstanga og Laugarbakka era heldur ekki stór- ir, um 100 nemendur eru á Hvammstanga og um 80 á Laugar- bakka. Aðspurður telur Jóhann að Grannskóli Húnaþings vestra verði á endanum ein stofnun á einum stað en vill ekki fullyrða hvort það gerist eftir fimm ár eða tuttugu ár. „Fá- mennið knýr menn til breytinga. Skóli lýtur ekki öðram lögmálum en fyrirtæki eða sveitarfélag að þessu leyti. Við sjáum hvað er að gerast í þjóðfélaginu með sameiningu fyrir- tækja og sveitarfélaga. Nútíminn krefst einfaldlega stærri eininga til þess að við getum verið hæf til að takast á við nýja öld. Skólinn verður að vera í takt við samfélagið. Þróun- in verður ekki stöðvuð, hvorki í skólastarfi né á öðram sviðum þjóð- félagsins,“ segir hann. Laugabakkaskóli er einn af best búnum grannskólum í dreifbýli. Húsnæðið er stórt og nýlegt. Skól- inn er einsetinn og þar era allar sér- greinastofur. Hvammstangaskóli hefur búið við húsnæðiseklu en hús- næðið er engu að síður gott. Jóhann segir að með tiltölulega litlum breytingum sé unnt að sameina alla kennsluna á Laugarbakka. Hins vegar þyki ekki eðlilegt að leggja niður kennslu í helsta þéttbýl- iskjarna sveitarfélagsins. Einungis 8 eða 10 kílómetrar eru milli skól- anna og fjöldi nemenda ekki meiri en svo að hann samsvarar einni bekkjardeild. Jóhann segir ekki áform um að sameina árgangana, að minnsta kosti ekki í vetur. Segir hann að þótt búið sé að sameina sveitarfélögin sé hrepparígur land- lægur og fólkið einfaldlega ekki til- búið til þess enn að sameina skólana á einn stað, hvort sem það yrði á Hvammstanga eða Laugarbakka. Hvalfjarðargöng Lækkun á gjaldi um mánaða- mótin STEFÁN Reynir Kristinsson framkvæmdastjóri Spalar ehf. segir að reikna megi með því að gjaldskrá Hvalfjarðarganga muni lækka um mánaðamótin. „Við eigum eftir að halda stjómarfund en samþykkt hans þarf til að breytingarnar gangi í gegn,“ sagði Stefán í samtali við Morgunblaðið. Stakar ferðir munu ekki lækka Stefán segir að lækkun gjaldskrár sé mismunandi, ódýrasta fargjald verði nú 400 kr. ferðin sem miðist við kaup á 100 ferða korti, staðgreiddu. Það er 33% lækkun frá ódýrasta fargjaldi eins og það er í dag. Stefán segir hins veg- ar ekki gert ráð fyrir að stakar ferðir lækki í verði. Skýring lækkunarinnar er aðallega sú að umferð um göngin hefur verið meiri en ráð var gert fyr- ir. Endurbætur á öryggismálum Aukin umferð er einnig ástæða þess að verið er að skoða endurbætur á öryggis- kerfi í göngunum. „Það er ver- ið að skoða öryggiskerfi og endurbætur á því. Engar ákvarðanir hafa verið teknar enn um hvað verður gert, þessi mál þarfnast mikils undirbún- ings en það er verið að skoða ýmsar hugmyndir," segir Stef- án. Eb'n R. Líndal oddviti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.