Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 15 AKUREYRI Enn er ólga meðal húsasmiða á Akureyri Smiðir farnir að segja upp störfum ENN er töluverð ólga meðal húsa- smiða á Akureyri, sem hafa að und- anförnu staðið í kjarabaráttu. Smið- ir hjá nokkrum verktökum sögðu upp yflrvinnu nýlega en hættu við aðgerðir í þeirri von að ná fram bættum kjörum með viðræðum við atvinnurekendur sína. Lítið hefur •þokast í málinu og er nú farið að bera á uppsögnum húsasmiða, sem stefna á að halda suður á bóginn, þar sem þeir telja sig fá betri launa- kjör. Guðmundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags byggingamanna, sagðist hafa heyrt af því að smiðir væru farnir að segja upp störfum sínum á Akureyri og stefndu suður, þar sem verið væri að bjóða mönn- um upp á allt önnur laun. „Það hef- ur líka lítið gerst í málum smiða á Akureyri og þetta er orðið spurning um hvort einhver lausn fæst nú eða hvort þetta bíður næstu kjarasamn- inga. Samningar eru lausir 15. febr- úar á næsta ári og ef ekkert gerist á næstunni mun kröfugerðin hér fyrir norðan taka mið af því í samningun- um. Málið er geymt en ekki gleymt,“ sagði Guðmundur Ómar. Launin helsta ástæðan Sigurður Þórisson, smiður hjá Hyrnu, hefur sagt upp starfi sínu en hann sagði þá ákvörðun ekki beinast gegn því fyrirtæki, heldur launamál- um almennt á Akureyri. „Það er kominn tími til að skoða þessi mál af alvöru en helsta ástæðan fyrir því að fólk er að flytja suður snýr að launa- málum. Líkurnar á að ég fari suður eru meiri en minni en ég get eins farið að vinna á bensínstöð hér í bænum, því launin eru ekkert verri en ég hef í dag.“ Sigurður sagði að fyrirtæki fyrir sunnan sæktu það stíft að fá smiði að norðan og sjálfur hafði hann verið beðinn að útvega 6 smiði þangað. Hann sagði að stærstur hluti smiða á Akureyri væri orðinn miðaldra, fer- tugir og eldri, og að karlar um sex- tugt væru enn að vinna í mótavinnu. Hins vegar færu ungir smiðir sem væru lausir og liðugir í burtu. Ekki góð auglýsing fyrir bæinn ,Ástandið á Akureyri er ekki góð auglýsing fyrir bæinn og það er dá- lítið einkennilegt að Akureyringar skyldu hafa efni á að hafna fram- kvæmdum upp á einn milljarð á Akureyrarvellinum og höfuðstöðvum IS, (Islenskra sjávarafurða). Það eru að koma aldamót og kominn tími til að menn fari að hugsa samkvæmt því og láti af þessum hugsunarhætti sem tíðkaðist um miðja öldina,“ sagði Sigurður. FSA fái fulla við- urkenningu sem háskólasj úkrahús AÐALFUNDUR Eyþings, Sam- bands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, samþykkti fjár- veitingu upp á þrjár milljónir króna til að vinna að frekari út- færslu á aðgerðaáætlun sambands- ins. Aðgerðaáætlun, sem unnin var af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, var lögð fram á aðal- fundinum sem haldinn var í Gríms- ey. FSA fái fulla viðurkenningu sem háskólasjúkrahús Þá samþykkti aðalfundur Eyþings að hefja nú þegar formlegt samstarf við Samband sveitarfélaga á Austur- landi, SSA, sem miði að því að sam- tök sveitarfélaga í væntanlegu Norð- austurkjördæmi verði eins samstíga og frekast er kostur og geti starfað sem öflugur málsvari allra sveitarfé- laga í nýja kjördæminu. I aðgerðaáætluninni er lagt til að Eyþing ráði sér fjölmiðlafulltrúa til að kynna svæðið, útbúa kynningar- efni og koma tilkynningum til fjöl- miðla með skipulögðum hætti. Einnig kemur þar fram að Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri, FSA, fái fulla viðurkenningu sem há- skólasjúkrahús með kennslustöðum við Læknadeild HÍ að auki við þær stöður sem eru bundnar HA. Þá er lagt til að Eyþing beiti sér fyrir því að hafin verði kennsla í ljósmæðra- fræðum við Sjúkrahúsið á Húsavík og FSA. Nám í heimilislækningum I aðgerðaáætluninni er jafnframt lagt til að Eyþing beiti sér fyrir því að sjúkraflugvél verði staðsett á Akureyri, til öryggis fyrir íbúa landsbyggðarinnar, sem búa við skerta þjónustu sé miðað við að- stæður á höfuðborgarsvæðinu. Þá er lagt til að Eyþing stuðli að því að kennsla í heimilislækningum hefjist á Norðurlandi eystra. Nánari upplýsingar á skrifstofu VMA (8.15-15.00) og hjá kennslustjóra öldungadeildar í sfma 461 1710. Skrifað undir samning um smíði brúar yfír Fnjóská Verður lengsta bogabrú landsins Boðið er upp á nám í eftirtöldum greinum: - Byrjendaáfangar í bókferslu, dönsku, ensku, félagsfræði, frönsku, grunnteikningu, íslensku, líffræði, sögu, stærðfræði, tjáningu, tölvufræði, vélritun og þýsku. - Framhaldsáfangar í dönsku, ensku, íslensku, stærðfræði og þýsku. Nýjungar eru verklegir áfangar í fatasaumi og hollustufræði. VEGAGERÐIN hefúr skrifað undir samning við fyrirtækið Arnarfell ehf. á Akureyri um smíði brúar yfir Fnjóská hjá Laufási í Grýtubakkahreppi. Um er að ræða stálbogabrú með steyptri yfirbyggingu með 92 metra löngum boga úr stáli og steypu og 144 metra langri og 7 metra breiðri tvíbreiðri akbraut. Þetta verður jafnframt lengsta bogabrú hérlendis og leysir af hólmi gamla einbreiða brú fyrir Frgóská. Lengsta bogabrú lands- ins í dag er yfir Jökulsá á Dal en heildarlengd hennar er 119 metr- ar. Framkvæmdir hefjast í næstu viku en verklok eru áætluð 1. ágúst á næsta ári. Nýja brúin verður norðar en sú gamla og með tilkomu hennar styttist leið- in til Grenivíkur um 4 km. Jafn- framt er þetta síðasti kaflinn í Iagningu bundins slitlags til Grenivíkur. í útboði Vegagerðarinnar voru tveir valkostir, annars vegar steypt bogabrú og hins vegar stálbogabrú með steyptri yfir- byggingu, sem varð fyrir valinu. Arnarfell átti lægsta tilboðið í þá framkvæmd og bauðst til að vinna verkið fyrir tæpar 134 miHjónir króna, sem er um 88% af kostnaðaráætlun og hljóöaöi upp á 153 milljónir króna. Auk Arnarfells buðu ístak hf. og Eykt ehf. í verkið. Bylting fyrir íbúana Sigurður Oddsson, deildar- sljóri framkvæmda hjá Vega- gerðinni á Akureyri, sagði að til- koma nýju brúarinnar yrði algjör bylting fyrir íbúa í Grýtubakka- hreppi og þá ekki síst yfir vetrar- timann. Þetta er jafnframt stærsta einstaka verk á Norður- landi á þessu ári og aðeins Múla- göng eru dýrari framkvæmd. Morgunblaðið/Kristján Sigurður Oddsson deildarstjóri framkvæmda hjá Vegagerðinni á Akureyri og Sigurbergur Konráðsson framkvæmdasljóri Arnarfells ehf. skrifuðu í gær undir samning um smíði brúar yfir Fnjóská hjá Laufási. Hér skoða þeir félagar gögn rétt við brúarstæðið. Nýja brúin yfir Fnjóská verður mikið mannvirki og jafnframt lengsta bogabrú á íslandi. „Þetta er virkilega krefjandi og ekki byggð önnur eins brú hér á ögrandi verkefni bæði fyrir verk- landi á næstu árum,“ sagði Sig- kaupa og verktaka og það verður urður. ■........................ s -i' ■? =. ~~~ ■■»■ ..; Verkmenntaskólinn á Akureyri Öldungadeild/meistaraskóli Innritun til náms á haustönn 1999 stendur yfir (til 27. ágúst). Kennslan í öldungadeild og meistaraskóla hefst mánudaginn 30. ágúst. Til sölu Galtalækur gegnt flugvellinum á Akureyri Um 545 fm húsnæði á einni hæð. Húsið er í ágætu standi og hentar vel fyrir ýmiskonar starfsemi. Nánari upplýsingar veitir FASTf.iGNA SALAN.. EiGNA KJOR SKIPAOOrt/ H.HkXl 4*1 1044 462644 / ra Kirkju- starf AKUREYRARKIRKJA: Há- tíðarguðsþjónusta kl. 14 sunnudaginn 22. ágúst. Sr. Birgir Snæbjömsson kveður söfnuðinn. Sóknamefnd býður upp á kaffiveitingar í safnaðar- heimili eftir guðsþjónustuna. Morgunbæn kl. 9 þriðjudaginn 24. ágúst og kyrrðar- og fyrir- bænastund kl. 12 fimmtudag- inn 26. ágúst. GLERÁRKIRKJA: Kvöld- messa verður sunnudaginn 21. ágúst kl. 21.00. Sr. Amgrímur Jónsson predikar. Sóknar- prestur. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund kl. 21 laugardags- kvöldið 21. ágúst. Sunnudaginn 22. ágúst verður biblíukennsla kl. 11:30 og vakningasamkoma kl. 20. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudaginn 22. ágúst verður bæn kl. 19:30 og almenn sam- koma kl. 20. AGLOW, kristileg samtök kvenna: Fundur í Félagsmið- stöð aldraðra, Víðilundi 22, mánudaginn 23. ágúst kl. 20. Gestur fundarins verður Dögg Harðardóttir frá Húsavík. Þátttökugjald er 350 kr. SJÁEINNIG FRÉTTIR FRÁ AKUREYRI Á BLS.39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.