Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 20

Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 20
20 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ ________________________________VIÐSKIPTI Árshlutauppgjör Haraldar Böðvarssonar hf. Minni hagnaður af reglulegri starfsemi HAGNAÐUR Haraldar Böðvarsson- ar hf. (HB) á fyrstu sex mánuðum þessa árs var 361 milljón króna sam- anborið við 270 milljónir á sama tímabili í fyrra. Tekjur vegna sölu á 7% hlut HB í Sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna hf. eru meginskýring aukins hagnaðar milli ára en afkoma af reglulegri starfsemi minnkar aftur á móti um 171 milljón, var 68 milljón- ir nú en rúmar 239 milljónir fyrri hluta síðasta árs. „Meginskýringin er sú að verð á mjöli og lýsi hefur verið að lækka síðan í haust,“ segir Har- aldur Sturlaugsson, framkvæmda- stjóri HB. „Þetta hefur þýtt að afla- verðmæti loðnuskipanna var 27% lægra, eða 114 miUjónum króna, á fyrri hluta þessa árs en á sama tíma- bili í fyrra, jafnvel þótt afli skipanna hafi verið 7.600 tonnum meiri nú. Þegar borin er saman afkoma milli ára verður líka að hafa í huga að fyrri hluti síðasta árs var mjög góður í rekstrinum en það breyttist nokkuð á seinni hluta ársins, aðallega vegna hærri fjármagnsgjalda.“ Veldur vonbrigðum Haraldur nefnir að til viðbótar erf- iðleikum vegna verðhruns á uppsjáv- arafurðum hafi einn ísfisktogari fé- lagsins, Sturlaugur, orðið fyrir vélar- bilun og þurft að vera frá veiðum í apríl og maí. „Þetta eru hlutir sem menn geta átt von á og það er engin ástæða til að kvarta vegna þessa. Endurskoðuð rekstraráætlun gerir ráð fyrir að afkoma félagsins á seinni hluta ársins verði í jafnvægi og að heildarhagnaður ársins verði um 350 milljónir. Undanfarin þrjú ár hefur loðnuveiðin verið góð í júlí og ágúst en veiðin í sumar hefur verið mun lakari. Spumingin er hvort það verð- ur meiri haustveiði í staðinn, sem áð- ur hefur gerst, en þetta er annars óvissan sem fylgir útgerðinni,“ segir Haraldur. „Afkoman veldur vonbrigðum og hagnaður af reglulegri starfsemi er ekki viðunandi, eins og fram kom í tilkynningu frá forsvarsmönnum fé- lagsins í gær,“ segir Guðni Haf- steinsson, verðbréfamiðlari hjá Fjár- vangi hf. „Við hjá Fjárvangi gerðum ekki ráð fyrir því að afkoma í upp- sjávarfíski yrði álíka og í fyrra en átt- um ekki von á svona mikilli sveiflu. Það veldur okkur einnig vonbrigðum að forsvarsmenn fyrirtækisins skuli ekki áætla betri heildarhagnað fyrir árið 1999 og bera fyrir sig óvissu- þætti sem einkenna rekstur sjávarút- vegsfyrirtækja almennt.“ Hjá Haraldi Böðvarssyni hefur verið unnið að ýmsum vöruþróunar- verkefnum að undanfomu og er loðnuþurrkunarverksmiðja í Sand- gerði þeirra umfangsmest, að sögn Haraldar Sturlaugssonar. Fram kemur í fréttatilkynningu að verk- efnin hafí haft í för með sér kostnað en séu ekki farin að skila framlegð enn. Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, og Morgunblaðið efndu til samkeppni um bestu Ijósmyndir fréttaritara frá árunum 1997 og 1998. í Vagninum á Flateyri hefur verið komið upp sýningu á þeim myndum sem dómnefnd taldi bestar. Myndefnið er fjölbreytt og gefst því kostur á að sjá brot af viðfangsefnum fréttaritara Morgunblaðsins sem eru um 100 talsins og gegna mikilvægu hlutverki í fréttaöflun blaðsins á landsbyggðinni. Sýningin stendur til þriðjudagsins 31. ágúst og eru myndirnar á sýningunni til sölu. plíjrgiiittMa&tþ Haraldur Böðvarsson hf. ■nillluppgjöri 1999 Rekstrarreikningur Miiijómr króna Jan.- júní 1999 Jan,- júní 1998 Breyting Rekstrartekjur (nettó) 2.033,5 2.270,3 -10% Rekstrargjöld (nettó) 1.703,5 1.815,7 -6% Hagnaður fyrir afskríftir 330,0 454,5 -27% Afskriftir 204,7 193,3 +6% Fjármagnsliðir nettó 47,0 12,4 +279% Eignaskattur 9,8 9,4 +4% Hagnaður af reglulegri starfsemi 68,4 239,5 -71% Aðrar tekjur 294,5 22,1 1.233% Áhrif hlutdeíldarfélaga -2,1 -8,1 -74% Hagnaður tímabilsins 360,9 253,4 +42% Efnahagsreikningur 3o.júní: 1999 1998 Breyting 1 Éignír: \ Milljónir króna Fastafjármunir 5.861,3 5.500,1 +7% Veltufjármunir 1.311,1 1.054,3 +24% Eignir alls 7.172,4 6.554,4 +9% 1 Skuldir oa eiaið fó: 1 Eigið fé 3.123,4 2.765,2 +13% Langtímaskuldir 3.487,4 2.881,7 +21% Skammtímaskuldir 561,5 907,6 -38% Skuldir og eigið fé alls 7.172,4 6.554,4 +9% Sjóðstreymi MHIjónir króna 1/1-30/6 ‘99 1/1-30/6'98 Breyting Veltufé frá rekstri 221,3 375,8 -41% Morgunblaðið/Golli Aðalfundur Norrænna markaðsfélaga AÐALFUNDUR Nordisk Markeds- föringsforbund, Norrænna mark- aðsfélaga, var haldinn á Islandi í fyrsta skipti í gær. ÍMARK, Félag fslensks markaðsfólks, gekk f sam- tökin í fyrra og tók því nú í fyrsta skipti þátt í vali á Markaðsmanni Norðurlanda, sem valinn er þriðja hvert ár. Á fundinum voru atburðir í starfsemi félaganna næstkomandi ár ræddir, sem og nánari sam- vinna milli Norðurlandafélaganna. Tekin var ákvörðun um hver hlyti kjör stjórnar sem Markaðsmaður Norðurlanda 1999. Fulltrúi íslands í þessu vali er Valur Valsson, bankastjéri íslandsbanka, en hann var valinn af sérstakri démnefnd, skipaðri Boga Ágústssyni, frétta- stjéra Sjénvarpsins, Halldéri Guð- mundssyni, formanni Sambands Is- lenskra Auglýsingastofa, Herði Sigurgestssyni, forstjéra Eimskips, Ingélfl Guðmundssyni, formanni ÍMARK og Þérði Friðjénssyni, ráðuneytissljéra í Viðskipta- og Iðnaðarráðuneytinu. Tilkynnt verður hver Markaðs- maður Norðurlanda verður ásamt afhendingu viðurkenningar á 75 ára afmæli danska markaðsfélags- ins þann 29. oktéber nk., en IMARK mun einmitt standa fyrir námsferð til Kaupmannahafnar á þessum tíma og verða ÍMARK fé- lagar þá viðstaddir þegar afhend- ingin fer fram. Fram kemur f fréttatilkynningu að rnikil gréska var í starfsemi ÍMARK á síðastliðnu starfsári og jékst félagafjöldi um tæp 43% og mikil aðsékn hefúr verið á fúndi félagsins. Nýtt starfsár er að hefj- ast nú f september og mun fyrsti atburður félagsins verða náms- stefna um beina markaðssetningu, sem haldin verður í lok september. Allt hlutafé selt til forkaupsréttarhafa HLUTAFJÁRÚTBOÐI íslenska hugbúnaðarsjóðsins er lokið og var allt hlutafé í útboðinu selt til for- kaupsréttarhafa, samtals 265 millj- ónir króna að nafnvirði. Verður því ekkert selt í almennri sölu sem vera átti frá 23.-26. ágúst næstkomandi. Forkaupsréttarhafar skráðu sig fyrir rúmum 368 milljónum króna að nafnvirði og því varð umframá- skrift upp á rúmar 103 milljónir króna. Fyrir útboðið voru hluthafar Is- lenska hugbúnaðarsjóðsins hf. 105 talsins en eftir útboðið eru þeir 166 og hefur því fjölgað um 61. Tíu stærstu hluthafamir eftir útboðið eru Landsbankinn-Framtak hf. með 16,9% hlut, Fjárfestingarbanki at- vinnulífsins, 8,00%, Lífeyrissjóður- inn Framsýn, 7,44%, Ólafur Daða- son, 6,78%, Eignarhaldsfélagið Al- þýðubankinn hf., 5,76%, Lífeyris- sjóðurinn Hlíf, 5,29%, Lífeyrissjóð- ur Austurlands, 5,06%, Hlutabréfa- sjóður Búnaðarbankans, 4,98%, Is- lenski fjársjóðurinn hf., 4,06% og Jóhann P. Malmquist, 3,58%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.