Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
________________________________VIÐSKIPTI
Árshlutauppgjör Haraldar Böðvarssonar hf.
Minni hagnaður af
reglulegri starfsemi
HAGNAÐUR Haraldar Böðvarsson-
ar hf. (HB) á fyrstu sex mánuðum
þessa árs var 361 milljón króna sam-
anborið við 270 milljónir á sama
tímabili í fyrra. Tekjur vegna sölu á
7% hlut HB í Sölumiðstöð Hrað-
frystihúsanna hf. eru meginskýring
aukins hagnaðar milli ára en afkoma
af reglulegri starfsemi minnkar aftur
á móti um 171 milljón, var 68 milljón-
ir nú en rúmar 239 milljónir fyrri
hluta síðasta árs. „Meginskýringin er
sú að verð á mjöli og lýsi hefur verið
að lækka síðan í haust,“ segir Har-
aldur Sturlaugsson, framkvæmda-
stjóri HB. „Þetta hefur þýtt að afla-
verðmæti loðnuskipanna var 27%
lægra, eða 114 miUjónum króna, á
fyrri hluta þessa árs en á sama tíma-
bili í fyrra, jafnvel þótt afli skipanna
hafi verið 7.600 tonnum meiri nú.
Þegar borin er saman afkoma milli
ára verður líka að hafa í huga að fyrri
hluti síðasta árs var mjög góður í
rekstrinum en það breyttist nokkuð á
seinni hluta ársins, aðallega vegna
hærri fjármagnsgjalda.“
Veldur vonbrigðum
Haraldur nefnir að til viðbótar erf-
iðleikum vegna verðhruns á uppsjáv-
arafurðum hafi einn ísfisktogari fé-
lagsins, Sturlaugur, orðið fyrir vélar-
bilun og þurft að vera frá veiðum í
apríl og maí. „Þetta eru hlutir sem
menn geta átt von á og það er engin
ástæða til að kvarta vegna þessa.
Endurskoðuð rekstraráætlun gerir
ráð fyrir að afkoma félagsins á seinni
hluta ársins verði í jafnvægi og að
heildarhagnaður ársins verði um 350
milljónir. Undanfarin þrjú ár hefur
loðnuveiðin verið góð í júlí og ágúst
en veiðin í sumar hefur verið mun
lakari. Spumingin er hvort það verð-
ur meiri haustveiði í staðinn, sem áð-
ur hefur gerst, en þetta er annars
óvissan sem fylgir útgerðinni,“ segir
Haraldur.
„Afkoman veldur vonbrigðum og
hagnaður af reglulegri starfsemi er
ekki viðunandi, eins og fram kom í
tilkynningu frá forsvarsmönnum fé-
lagsins í gær,“ segir Guðni Haf-
steinsson, verðbréfamiðlari hjá Fjár-
vangi hf. „Við hjá Fjárvangi gerðum
ekki ráð fyrir því að afkoma í upp-
sjávarfíski yrði álíka og í fyrra en átt-
um ekki von á svona mikilli sveiflu.
Það veldur okkur einnig vonbrigðum
að forsvarsmenn fyrirtækisins skuli
ekki áætla betri heildarhagnað fyrir
árið 1999 og bera fyrir sig óvissu-
þætti sem einkenna rekstur sjávarút-
vegsfyrirtækja almennt.“
Hjá Haraldi Böðvarssyni hefur
verið unnið að ýmsum vöruþróunar-
verkefnum að undanfomu og er
loðnuþurrkunarverksmiðja í Sand-
gerði þeirra umfangsmest, að sögn
Haraldar Sturlaugssonar. Fram
kemur í fréttatilkynningu að verk-
efnin hafí haft í för með sér kostnað
en séu ekki farin að skila framlegð
enn.
Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, og Morgunblaðið
efndu til samkeppni um bestu Ijósmyndir fréttaritara frá árunum
1997 og 1998.
í Vagninum á Flateyri hefur verið komið upp sýningu á þeim
myndum sem dómnefnd taldi bestar.
Myndefnið er fjölbreytt og gefst því kostur á að sjá brot af viðfangsefnum
fréttaritara Morgunblaðsins sem eru um 100 talsins og gegna mikilvægu
hlutverki í fréttaöflun blaðsins á landsbyggðinni.
Sýningin stendur til þriðjudagsins 31. ágúst og eru myndirnar
á sýningunni til sölu.
plíjrgiiittMa&tþ
Haraldur Böðvarsson hf. ■nillluppgjöri 1999
Rekstrarreikningur Miiijómr króna Jan.- júní 1999 Jan,- júní 1998 Breyting
Rekstrartekjur (nettó) 2.033,5 2.270,3 -10%
Rekstrargjöld (nettó) 1.703,5 1.815,7 -6%
Hagnaður fyrir afskríftir 330,0 454,5 -27%
Afskriftir 204,7 193,3 +6%
Fjármagnsliðir nettó 47,0 12,4 +279%
Eignaskattur 9,8 9,4 +4%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 68,4 239,5 -71%
Aðrar tekjur 294,5 22,1 1.233%
Áhrif hlutdeíldarfélaga -2,1 -8,1 -74%
Hagnaður tímabilsins 360,9 253,4 +42%
Efnahagsreikningur 3o.júní: 1999 1998 Breyting
1 Éignír: \ Milljónir króna
Fastafjármunir 5.861,3 5.500,1 +7%
Veltufjármunir 1.311,1 1.054,3 +24%
Eignir alls 7.172,4 6.554,4 +9%
1 Skuldir oa eiaið fó: 1
Eigið fé 3.123,4 2.765,2 +13%
Langtímaskuldir 3.487,4 2.881,7 +21%
Skammtímaskuldir 561,5 907,6 -38%
Skuldir og eigið fé alls 7.172,4 6.554,4 +9%
Sjóðstreymi MHIjónir króna 1/1-30/6 ‘99 1/1-30/6'98 Breyting
Veltufé frá rekstri 221,3 375,8 -41%
Morgunblaðið/Golli
Aðalfundur Norrænna
markaðsfélaga
AÐALFUNDUR Nordisk Markeds-
föringsforbund, Norrænna mark-
aðsfélaga, var haldinn á Islandi í
fyrsta skipti í gær. ÍMARK, Félag
fslensks markaðsfólks, gekk f sam-
tökin í fyrra og tók því nú í fyrsta
skipti þátt í vali á Markaðsmanni
Norðurlanda, sem valinn er þriðja
hvert ár.
Á fundinum voru atburðir í
starfsemi félaganna næstkomandi
ár ræddir, sem og nánari sam-
vinna milli Norðurlandafélaganna.
Tekin var ákvörðun um hver hlyti
kjör stjórnar sem Markaðsmaður
Norðurlanda 1999. Fulltrúi íslands
í þessu vali er Valur Valsson,
bankastjéri íslandsbanka, en hann
var valinn af sérstakri démnefnd,
skipaðri Boga Ágústssyni, frétta-
stjéra Sjénvarpsins, Halldéri Guð-
mundssyni, formanni Sambands Is-
lenskra Auglýsingastofa, Herði
Sigurgestssyni, forstjéra Eimskips,
Ingélfl Guðmundssyni, formanni
ÍMARK og Þérði Friðjénssyni,
ráðuneytissljéra í Viðskipta- og
Iðnaðarráðuneytinu.
Tilkynnt verður hver Markaðs-
maður Norðurlanda verður ásamt
afhendingu viðurkenningar á 75
ára afmæli danska markaðsfélags-
ins þann 29. oktéber nk., en
IMARK mun einmitt standa fyrir
námsferð til Kaupmannahafnar á
þessum tíma og verða ÍMARK fé-
lagar þá viðstaddir þegar afhend-
ingin fer fram.
Fram kemur f fréttatilkynningu
að rnikil gréska var í starfsemi
ÍMARK á síðastliðnu starfsári og
jékst félagafjöldi um tæp 43% og
mikil aðsékn hefúr verið á fúndi
félagsins. Nýtt starfsár er að hefj-
ast nú f september og mun fyrsti
atburður félagsins verða náms-
stefna um beina markaðssetningu,
sem haldin verður í lok september.
Allt hlutafé selt til
forkaupsréttarhafa
HLUTAFJÁRÚTBOÐI íslenska
hugbúnaðarsjóðsins er lokið og var
allt hlutafé í útboðinu selt til for-
kaupsréttarhafa, samtals 265 millj-
ónir króna að nafnvirði. Verður því
ekkert selt í almennri sölu sem vera
átti frá 23.-26. ágúst næstkomandi.
Forkaupsréttarhafar skráðu sig
fyrir rúmum 368 milljónum króna
að nafnvirði og því varð umframá-
skrift upp á rúmar 103 milljónir
króna.
Fyrir útboðið voru hluthafar Is-
lenska hugbúnaðarsjóðsins hf. 105
talsins en eftir útboðið eru þeir 166
og hefur því fjölgað um 61. Tíu
stærstu hluthafamir eftir útboðið
eru Landsbankinn-Framtak hf. með
16,9% hlut, Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins, 8,00%, Lífeyrissjóður-
inn Framsýn, 7,44%, Ólafur Daða-
son, 6,78%, Eignarhaldsfélagið Al-
þýðubankinn hf., 5,76%, Lífeyris-
sjóðurinn Hlíf, 5,29%, Lífeyrissjóð-
ur Austurlands, 5,06%, Hlutabréfa-
sjóður Búnaðarbankans, 4,98%, Is-
lenski fjársjóðurinn hf., 4,06% og
Jóhann P. Malmquist, 3,58%.