Morgunblaðið - 21.08.1999, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
UIKU
m
MORGUNBLAÐIÐ
Þær leynast víða nátt-
úruperlurnar á
--7-------------------
Islandi og hér fjallar
Bjarni E. Guðleifsson
stuttlega um eina, fagr-
an reit sem margir sjá
af hringveginum en of
fáir skoða í ró og næði.
Um er að ræða svæðið
umhverfis Hraun í
Oxnadal þar sem skáld-
ið og náttúrufræðingur-
inn Jónas Hallgrímsson
fæddist árið 1807. Nú
er rætt um að stofna
þama til friðlands til að
vemda svæðið og auð-
velda mönnum að njóta
þeirrar fögm náttúru
sem þama er.
Ljósmynd/B.E.G.
Horft til suðausturs af DrangaQalli rétt sunnan við Hraundranga. Hraunsvatn og Vatnsdalur nær, Þverbrekkuvatn og
Öxnadalur fjær, en Þverbrekkuhnjúkur aðskilur dalina.
Umhverfis
Hraun í
• •
Oxnadal
Horft til vesturs af þjöðvegi að vetrarlagi yfir
Hraunsstapa að Drangafjalli.
Ljósmynd/B.E.G.
Greinarhöfundur £ haustlitafeg-
urð í Hraunsstöpum.
ÞEGAR
hringvegurinn
er ekinn frá
Akureyri í átt
til Reykjavík-
ur er fyrst far-
ið inn Þela-
mörk í Hörg-
árdal, en þegar ekið er yfir Bægisána
er komið í Óxnadalinn, sem í raun er
hliðardalur Hörgárdals. Fjöllin aust-
an Öxnadals eru venjuleg íslensk fjöll
með fallegum afdölum, dalskorum,
giljum með lækjum og fossum. Þau
eru sums staðar litskreytt ljósum líp-
arítflekkjum. Vestan dalsins er hins
vegar óvenjuleg fjallasýn. Nyrst er
lágur kollóttur háls og dregur hver
hluti hans nafn af þeim bæjum sem
undir honum standa, en margir
þeirra eru nú komnir í eyði. Sunnar
tekur við afar áberandi fjall með
eggjum og athyglisverðum tindum,
og ber einn þeirra af, Hraundrangi,
en fjallið allt nefnist Drangafjall.
Fyrmefndur háls og Drangafjall að-
greina Öxnadal og Hörgárdal. Rétt
er að vekja athygli á því að rangt er
að tala um „Hraundrangana“ í fleir-
tölu, hann er bara einn. Enda þótt
drangarnir séu fleiri eru þei ónefndir
nema Drangakista, kistulaga kletta-
stapi sunnan við Hraundranga og
norðan hans eru minni drangar sem
stundum eru nefndir Drangakarl og
Drangakerling. Á móts við Hraun-
drangann hafa fallið berghlaup úr
fjöllunum beggja megin dalsins og
myndað mikla þyrpingu hóla, sem
„hálfan dalinn fylla“. Berghlaupshól-
ar eru á þessum slóðum nefndir
hraun (rótskylt orðinu hrun). Öxna-
dalur er langur dalur og nær langt
fram fyrir Bakkasel og Öxnadals-
heiði. Margir bæir Öxnadals eru
komnir í eyði og víða sjást bara tóft-
arbrot. Hefðbundnum búskap er þó
nýhætt á þeim tveimur bæjum sem
tengjast Hraunvatnssvæðinu, Hrauni
utar og Hálsi framar, og standa
byggingar á þeim báðum og er þeim
Ljósmynd/J.T.
Á leið fram Vatnsdal austan við Hraunsvatn. Drangafjall nieð Dranga-
kistu, Hraundranga og Halllok. Undir fjallshlfðinni eru Drangabollar
en við enda vatnsins sér í Hraunsstapa.
vel haldið við og þær notaðar til sum-
ardvalar en tún nýtt til slægna.
Vatnsdalur
Svolítið framan við hólana blasir
við þverhnýpt og tignarlegt fjall, sem
minnh- á tinda Alpafjalla og skiptir
það dalnum í tvennt. Óxnadalur ligg-
ur áfram austan við þetta formfagra
fjall sem nefnist Þverbrekkuhnjúkur,
en vestan hans er lítil dalskora sem
nefnist Vatnsdalur, og er undirlendi
hans talsvert hærra en láglendi
Öxnadals. Vatnsdalur er afdalur
Öxnadals og er hann kenndur við
Hraunsvatn, en í því drukknaði Hall-
grímur faðir Jónasar árið 1816, þegar
Jónas var 9 ára. Það gerðist þannig
að Hallgrímur var þar við silungs-
veiðar ásamt tveimur bændasonum.
Þeir veiddu í net og notuðu bátkænu
til að leggja netið og var Hallgrímur í
kænunni með öðrum manninum.
Hallgrímur lagði netið út og annar
bóndasonur réri en hinn var á strönd-
inni við hinn enda netsins. Kænunni
hvolfdi og komst róðramaður nauðug-
lega í land en Hallgrímur kom upp
með netinu og hafði flækst í því. Þá
kunnu menn ekki lífgunartilraunir og
skáldið og náttúrufræðingurinn, son-
ur hans, yrkir löngu seinna: „Man eg
þó missi/minn í heimi/fyrstan og
sárastan/er mér faðir hvarf.“
Það er einkum þrennt sem gefur
þessi svæði gildi til útivistar. I fyrsta
lagi er það umgerð fjallanna, í öðru
lagi ævintýraheimur hólanna og í
þriðja lagi Hraunsvatnið og sögu-
tengslin við Jónas Hallgrímsson.
(Jónas er orðinn alþjóðlegt viðfangs-
efni því nú er búið að þýða flest ljóðin
hans á ensku og geta menn vísað út-
lendingum á vefslóðina http://www.-
library.wisc.edu/etext/Jonas/.) Þetta
er upplagt svæði til gönguferða, bæði
léttra og erfiðra. Verða hér helstu
leiðir kynntar, en auðvitað geta menn
Horft til norðausturs úr Kiðlingsdal. Hraunsvatn á miðri mynd og
Hraunsstapar og Einbúi norðan þess. Drangafjall í vinstri jaðri.
Hægra megin vatnsins sér í hlíðar Þverbrekkuhpjúks en fjær er landa-
fjall handan Oxnadals.
farið vítt og breitt um svæðið. Sviga-
númer í millifyrirsögnum vísa til
númera á meðfylgjandi korti.
Hraunsvatn og
Hraunsstapar
Til að komast að svæðinu þurfa
menn að komast vestur yfir Öxna-
dalsá, en brú er að bænum Hrauni og
önnur að Hálsi. Þægilegast er að
leggja upp frá bænum Hálsi (240 m
yfir sjó), sem er framar en Hraun.
Stefnan er tekin upp að Hraunsvatni
(500 m), og er þá gengið upp slóð á
melunum norðan við bæjarlækinn og
norðan girðingar sem liggur þarna
uppeftir. Hliðarspor er að skreppa
suður við Þverbrekkuvatni, litlu vatni
spölkorn sunnan við bæjarlækinn.
Það tekur innan við klukkutíma að
komast að norðurenda Hraunsvatns
þar sem Hraunsáin rennur úr vatn-
inu, og þarna er hægt að njóta lífsins.
Talsvert er af smáfiski í vatninu (og
líka í Þverbrekkuvatni). Við norður-
enda vatnsins má sjá leifar af tilraun
Rafveitu Akureyrar árið 1934 til að
stífla ána við raforkuframleiðslu
(bóndinn í Hálsi gerði einnig mis-
heppnaða tilraun til að stífla Þver-
brekkuvatn árið 1961). Hraunsvatn
er talsvert stórt, um 500 m breitt,
1.500 m langt og 50-60 m djúpt, og
hefur myndast þegar berghlaupið úr
Drangafjalli stíflaði affall Vatnsdals-
ins. Hraunsá er að því leyti sérkenni-
leg að hún rennur aðeins skamman
spöl ofanjarðar en hverfur þá ofan í
grjótið og kemur oftast ekki aftur í
ljós fyrr en rétt áður en hún fellur í
Öxnadalsá. í miklum vatnavöxtum er
áin þó uppi, og gat hún þá verið far-
artálmi. Gengu sagnir um það að í
henni væri hrökkáll, skrímsli sem
skar á hásinar hesta og manna. Kann
þetta að eiga þá skýringu að í ánni
var af eðlilegum ástæðum mikið af
lítt sorfnu og hvössu grjóti sem gat