Morgunblaðið - 21.08.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 35
Camilla Söderberg og Snorri
Orn Snorrason koma fram á
lokatónleikum sumartónleika-
raðar Stykkishólmskirkju á
sunnudag.
Lokatónleik-
ar í Stykkis-
hólmskirkju
LOKATÓNLEIKAR í sumartón-
leikaröð Stykkishólmskirkju 1999
verða á morgun, sunnudag, kl. 17. Þá
koma fram Camilla Söderberg
blokkflautuleikari og Snorri Örn
Snorrason lútu- og gítarleikari.
Camilla leikur á blokkfiautur af
ýmsum gerðum og stærðum og
Snorri Öm leikur ýmist á lútu eða
gítar. Efnisskrá tónleikanna sýnir
mikla breidd í tónlistarsögunni, allt
frá miðöldum til vorra tíma. Yfrrleitt
eru verkin stutt og sýna þá mögu-
leika sem þessi hljóðfæri bjóða upp á.
Camilla hlaut Menningarverðlaun
VISA árið 1997, starfslaun lista-
manna írá Reykjavíkurborg 1998 og
starfslaun listamanna frá íslenska
ríkinu árið 1999.
Snorri Örn Snorrason er gítar-
kennari við Tónlistarskóla FIH og
Tónlistarskólann í Reykjavík.
-----------------
Styrktartón-
leikar í
Seltjarnar-
neskirkju
INGA Björg Stefánsdóttir
messósópran og Ólafur Vignir Al-
bertsson píanóleikari halda tónleika í
Seltjarnames-
kirkju annað
kvöld, sunnudags-
kvöld, kl. 20.30.
Inga hóf söng-
nám sitt hjá Guð-
mundu Elíasdótt-
ur. Eftir fimmta
stigið flutti hún
sig til Söngskóla
Reykjavíkur þar
sem hún naut
handleiðslu
Ólafar Kolbrúnar
Harðardóttur og þar lauk hún átt-
unda stiginu. Síðan lá leið hennar til
London þar sem hún stundar nám
við Konunglegu akademíuna og era
tónleikar þessir til styrktar áfram-
haldandi námi hennar þar.
Á efnisskrá eru verk eftir Sigvalda
Kaldalóns, Jón Þórarinsson, Karl Ó.
Runólfsson, Brahms, Schubert og
Donizetti ásamt fleirum.
Vagnhöfða 17
™ 112 Reykjavík
3 Sími: 587 2222
mm Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburö
Sm Tölvupústur: sala@hellusteypa.is
Frankie og Johnny í Iðnó
Æfíngar era hafnar hjá Leikfélagi
Islands í Iðnó á leikritinu Frankie
og Johnny eftir bandaríska leikrita-
höfundinn Terence McNally. Leik-
endur era tveir, þau Halldóra
Björnsdóttir og Kjartan Guðjónsson
og leikstjóri er Viðar Eggertsson. I
leikritinu er fjallað um hvernig
Frankie og Johnny verða óvænt ást,-
fangin, bæði komin á fertugsaldur
og kannski ekki alveg tilbúin að
hleypa ástinni að án frekari formála.
Að sögn leikenda er þetta ljúfsár
gamanleikur, nærgöngull og fynd-
inn. Eftir þessu leikriti var gerð vin-
sæl kvikmynd fyrir nokkrum árum
með stórleikuranum Michelle Pfeif-
fer og A1 Pacino í titilhlutverkunum.
Höfundurinn Terence McNally
er í hópi þekktustu leikskálda í
Bandaríkjunum. Eftir hann liggur
fjöldi leikrita og hafa þau verið
sýnd víða um heim á liðnum árum.
Þeirra á meðal er Master Class
sem sýnt var hér á landi fyrir
þremur árum. Verk hans hafa verið
kvikmynduð og honum hafa hlotn-
ast fjölmargar viðurkenningar fyrir
leikrit sín, þar á meðal hin eftir-
sóttu Tony-leiklistarverðlaun sem
veitt eru í New York.
Þýðandi Frankie og Johnny er
Kristján Þórður Hrafnsson, Jórunn
Ragnarsdóttir hannar leikmynd og
búninga og Kjartan Þórisson hannar
lýsingu. Framsýning er áætluð þann
24. september og verður það fyrsta
framsýning á nýju leikári í Iðnó.
Morgunblaðið/Arnaldur
Leikhópurinn sem stendur að Frankie og Johnny í Iðnó.
Alvöru Suzuki j eppi
á verði smábílsl
Flottur í bæ, seigur á fjöllum
Suzuki Jimny er sterkbyggður og öflugur sportjeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með hátt og lágt drif. Það
er sama hvort þú ætlar með vinina í fjallaferð eða á
rúntinn niður í bæ, Jimny er rétti bíllinn!
1.399.000,- beinskiptur
1.519.000,- sj álfskiptur
$ SUZUKI
—m*■ ' —
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sfmi 462 63 00. Egilsstaðir:
Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 2011. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sfmi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði,
simi 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, sfmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.
Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sfmi 451 2617.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is