Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 43 ^
MARGMIÐLUN
Það er gott að
vera vondur
LEIKIR
Dungeon Keeper II
fyrlr PC
Bullfrog gaf nýlega út leik að
nafni Dungeon keeper 2. Leikur-
inn er beint framhald hins geysi-
vinsæla Dungeon Keeper sem gef-
inn var út veturinn 1997.
í DUNGEON Keeper 2 tekur
spilandinn að sér að stjórna
stórri dýflissu fyrir æðri máttar-
völd og reka í burt góðar hetjur
sem haldið hafa dýflissunum
undir jörðinni í þúsundir ára.
Graflk leiksins er stórbrotin,
spilendur sjá dýflissuna að ofan
mestan part leiksins og hægt er
að stækka einstök svæði og snúa
myndinni að viid. Lýsing
dýflissunnar er ótrúlega flott og
ef spiiendur nýta sér einn af
göldnim leiksins er hægt að and-
setja dýrin í dýflissunni og sjá
allt sem hún hefur upp á að bjóða
í 100% þrívídd.
í raun er Dungeon Keeper 2
ekki mjög ólíkur fyrsta leiknum,
markmið leiksins er það sama og
stjómin hefur lítið breyst,
spilandinn stjómar með stórri
hendi sem ber heitið Hönd illsk-
unnar. Með hendi þessari er
hægt að færa dýr á milli staða,
velja grjót sem spilandinn vill
að sérstakir púkar grafi í
burtu eða slá dýrin til að
auka afköstin.
í byrjun leiksins koma
nokkrir möguleikar til
greina, spilendur geta val-
ið hvort þeir vilji fara í
stuttan bardaga, reyna
að byggja stærstu og
bestu dýflissu í heimi
eða fara í herferð gegn
góðum hetjum heims-
ins. Ein af skemmti-
legri nýjungum leiks-
ins er nýr valmögu-
leiki er ber heitið My
Pet Dungeon, eða
uppáhaldsdýflissan.
Þar er hlutverk
spilandans að
byggja eins stóra
og trausta
dýflissu og
hægt er og
stjómar
spilandinn þá
sjálfur
hvenær hetj-
umar gera
innrás.
Ein af stærstu breytingunum
sem greinarhöfundur kom auga
á er breytingamar í bardögum. I
fyrri leiknum var venjulega nóg
að taka bara helling af dýr-
um/skrímslum og henda þeim í
miðjan bardagann, en dýrin rot-
ast nú í stutta stund þegar þau
era látin detta og þarf þá lítið til
að slátra þeim. Þetta og það að
dýrin beijast með mismunandi
aðferðum neyðir spilandann til
að íhuga þróaðri leiðir til bardag-
anna. Hægt er að byggja sérstök
herbergi fyrir verði sem láta vita
ef einhver ræðst á dýflissuna,
einnig er hægt að nota smíða-
stofur leiksins til að búa til gildr-
ur, hurðir og viðvöranarkerfi.
Greind kvikinda leiksins hefur
verið bætt gífurlega frá fyrri
leiknum. Hvert kvikindi hefur
sinn eigin persónuleika, sem
dæmi era tröM ótrúlega löt og oft
þarf að læsa þau inni til að þau
ljúki því sem þau áttu að gera.
Hver tegund kvikinda hefur líka
sínar sérarfir, sum dýr þurfa
mikinn mat og gera sér alltaf
greni nálægt honum, sum dýr
hafa kalt blóð og reyna að gera
sér greni nálægt bráðnuðu
hrauni og svo framvegis.
Eitt af flottustu atriðum fyrri
leiksins var að hægt var að and-
setja dýrin með sérstökum álög-
um sem spilandinn gat lagt á
þau. Þetta er mun mikilvægara í
þessum leik, spilandinn getur til
dæmis andsetið þjóf og læðst inn
í óvinadýflissu og stolið gulli, eða
andsetið álf og notað
hann til að drepa
verði óvinarins úr fjar-
lægð. Þetta er þó aðeins
einn af fjölmörgum göldram
leiksins, spilandinn getur valið
úr fjölmörgum göldram ásamt
því að geta andsetið kvikindi þau
er hlotið hafa betri þjálfun en
önnur og nýta hæfileika
leirra til galdra.
Eitt af erfiðari atriðum
leiksins er að halda kvik-
indunum ánægðum. Til
þess þarf spilandinn að
eiga nóg af gulli til að
geta borgað laun
þeirra, nóg af mat
til að halda öllum
söddum að
ógleymdu
áfenginu og
fjárhættuspil-
inu; það er
ekki óalgengt að
sjá Ktinn púka
blindfullan að
dansa diskó í
spilavíti
dýflissunnar.
Fólk um
allan heim
hefur
vænst
mikils af
framhaldi
Dungeon
Keeper og
víst er að það
mun ekki
valda neinum
vonbrigðum.
Ótrúlega vana-
bindandi leikur
sem undirstrikar
að það er gott að
vera vondur.
Ingvi Matthías
Árnason
Hópvinnu-
kerfaglíma
HELSTU hópvinnukerfi heims eru Lotus Notes og
Microsoft Exchange. Lotus Notes, sem er í eigu
IBM, náði snemma yfírburða markaðsstöðu, en
Exchange frá Microsoft hefur gert að því harða
hríð.
Lotus Notes hefur ýmislegt upp á að bjóða sem
hópvinnukerfí, en margt annað fylgir með, þar á
mcðal póstforrit. Exchange er aftur á móti upphaf-
lega póstforrit sem Microsoft-menn hafa bætt við
hópvinnumöguleikum, ekki síst til að elja kapp við
Notes. f könnun bandaríska markaðsrannsóknafyr-
irtækisins IDC, sem sjá má á vefsetri fyrirtækisins,
www.idc.com, kemur meðal annars fram að fleiri
tóku upp Exchange á fyrri hluta ársins en Lotus
Notes vestan hafs, en í Evrópu var þessu öfugt
farið þar sem talsvert fleiri tóku upp Notes.
Fréttaskýrendur hafa gert því skóna að betri
árangur Exchange vestan hafs byggist ekki síst á
því að fjölmargir sem hafi fram að þessu notað
Microsoft Mail séu að bregðast við komandi
áramótum, enda MS Mail ekki tilbúið fyrir árið
2000. Lotus Notes hefur aftur á móti verið tilbúið
fyrir 2000 í nokkurn tíma.
Linux sækir á
MIKIÐ hefur verið látið með Linux slýrikerfið og
sumir gengið svo langt að segja það helstu ógn sem
Microsoft hafi staðið frammi fyrir á síðustu árum.
Æ fleiri nota Linux og þá helst innan fýrirtækja, en
samkvæmt nýlegri rannsókn hafa 13% fyrirtækja
vestan hafs tekið upp Linux. Fyrir tveimur árum
voru Linux-notendur ekki mælanlegir.
Markaðsrannsóknafyrirtækið IDC kannaði Linux
notkun og spurði um líkt leyti hvort fyrirtæki
hygðust taka upp Windows 2000 sem er væntanlegt
á næstu vikum. Niðurstaðan er nokkuð áfall fyrir
Microsoft, þvf í könnuninni kom ekki bara fram
mikil aukning á notkun á Linux heldur að fyrirtæki
ætli almennt að fara sér hægt í að taka upp
Windows 2000, ekki síst í Ijósi þess hve fyrri stýri-
kerfí Microsoft hafi reynst óstöðug og illskeytt í
fyrstu útgáfum. Samkvæmt því sem fram kemur á
vefsetri IDC ætlar helmingur fyrirtækja að bíða
með að selja upp Windows 2000 þar til næsta út-
gáfa stýrikerfisins kemur á markað.
Enn þykir nokkuð áfall fyrir Microsoft að æ fleiri
forritarar eru teknir að færa sig úr Windows-um-
hverfi í annað, til að mynda Linux/Unix, enda
skiptir Windows æ minna máli í Ijósi forritunar fyr-
ir Netið og dreifða vinnslu.
Nýi
"single"
diskurinn frá Björk.
Vengaboys
klikka ekki á þessum "Party Album".
Borga
þú of
mikið
Afhverju að borga meira en þú
þarft? Hjá BT býðst þér meira
úrval og betra verð!
Það er engin .
tiiviljun að
hagfræðingar
og snillingar
eins og
Gummi
versla
aðeins
ÍBT.
V
Nýjasta myndin frá Disney á VHS.
Skemmtileg og r——
hugljúf mynd 1 _
frá Disney sem 1 P^|
fjallar um söguna 1 ■ • v
um Arthur konung.l
Það er ekki að ástæðulausu sem
KINGPIN var bannaður börnum inna
16 ára. Leikurinn er það
| -----_____ raunverulegur
9 ~L aðþaðhálfa
’fe, MBI Æ& M væri helmingi
I/ of mikið.
Ef þú kaupir DVD mynd um
helgina færðu miða_______
á Inspector Gadget X-”
sem frumsýnd 1 Æ
verður 10. sept. 1^1
■S4MB1
Laugardaga 10:00-16:00
Sunnudaga 13:00-17:00
BT Skeifunni en lokað
BT Hafnarfirði.
Skeifunni 11 • 108 Rvk
Kr
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020