Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 43 ^ MARGMIÐLUN Það er gott að vera vondur LEIKIR Dungeon Keeper II fyrlr PC Bullfrog gaf nýlega út leik að nafni Dungeon keeper 2. Leikur- inn er beint framhald hins geysi- vinsæla Dungeon Keeper sem gef- inn var út veturinn 1997. í DUNGEON Keeper 2 tekur spilandinn að sér að stjórna stórri dýflissu fyrir æðri máttar- völd og reka í burt góðar hetjur sem haldið hafa dýflissunum undir jörðinni í þúsundir ára. Graflk leiksins er stórbrotin, spilendur sjá dýflissuna að ofan mestan part leiksins og hægt er að stækka einstök svæði og snúa myndinni að viid. Lýsing dýflissunnar er ótrúlega flott og ef spiiendur nýta sér einn af göldnim leiksins er hægt að and- setja dýrin í dýflissunni og sjá allt sem hún hefur upp á að bjóða í 100% þrívídd. í raun er Dungeon Keeper 2 ekki mjög ólíkur fyrsta leiknum, markmið leiksins er það sama og stjómin hefur lítið breyst, spilandinn stjómar með stórri hendi sem ber heitið Hönd illsk- unnar. Með hendi þessari er hægt að færa dýr á milli staða, velja grjót sem spilandinn vill að sérstakir púkar grafi í burtu eða slá dýrin til að auka afköstin. í byrjun leiksins koma nokkrir möguleikar til greina, spilendur geta val- ið hvort þeir vilji fara í stuttan bardaga, reyna að byggja stærstu og bestu dýflissu í heimi eða fara í herferð gegn góðum hetjum heims- ins. Ein af skemmti- legri nýjungum leiks- ins er nýr valmögu- leiki er ber heitið My Pet Dungeon, eða uppáhaldsdýflissan. Þar er hlutverk spilandans að byggja eins stóra og trausta dýflissu og hægt er og stjómar spilandinn þá sjálfur hvenær hetj- umar gera innrás. Ein af stærstu breytingunum sem greinarhöfundur kom auga á er breytingamar í bardögum. I fyrri leiknum var venjulega nóg að taka bara helling af dýr- um/skrímslum og henda þeim í miðjan bardagann, en dýrin rot- ast nú í stutta stund þegar þau era látin detta og þarf þá lítið til að slátra þeim. Þetta og það að dýrin beijast með mismunandi aðferðum neyðir spilandann til að íhuga þróaðri leiðir til bardag- anna. Hægt er að byggja sérstök herbergi fyrir verði sem láta vita ef einhver ræðst á dýflissuna, einnig er hægt að nota smíða- stofur leiksins til að búa til gildr- ur, hurðir og viðvöranarkerfi. Greind kvikinda leiksins hefur verið bætt gífurlega frá fyrri leiknum. Hvert kvikindi hefur sinn eigin persónuleika, sem dæmi era tröM ótrúlega löt og oft þarf að læsa þau inni til að þau ljúki því sem þau áttu að gera. Hver tegund kvikinda hefur líka sínar sérarfir, sum dýr þurfa mikinn mat og gera sér alltaf greni nálægt honum, sum dýr hafa kalt blóð og reyna að gera sér greni nálægt bráðnuðu hrauni og svo framvegis. Eitt af flottustu atriðum fyrri leiksins var að hægt var að and- setja dýrin með sérstökum álög- um sem spilandinn gat lagt á þau. Þetta er mun mikilvægara í þessum leik, spilandinn getur til dæmis andsetið þjóf og læðst inn í óvinadýflissu og stolið gulli, eða andsetið álf og notað hann til að drepa verði óvinarins úr fjar- lægð. Þetta er þó aðeins einn af fjölmörgum göldram leiksins, spilandinn getur valið úr fjölmörgum göldram ásamt því að geta andsetið kvikindi þau er hlotið hafa betri þjálfun en önnur og nýta hæfileika leirra til galdra. Eitt af erfiðari atriðum leiksins er að halda kvik- indunum ánægðum. Til þess þarf spilandinn að eiga nóg af gulli til að geta borgað laun þeirra, nóg af mat til að halda öllum söddum að ógleymdu áfenginu og fjárhættuspil- inu; það er ekki óalgengt að sjá Ktinn púka blindfullan að dansa diskó í spilavíti dýflissunnar. Fólk um allan heim hefur vænst mikils af framhaldi Dungeon Keeper og víst er að það mun ekki valda neinum vonbrigðum. Ótrúlega vana- bindandi leikur sem undirstrikar að það er gott að vera vondur. Ingvi Matthías Árnason Hópvinnu- kerfaglíma HELSTU hópvinnukerfi heims eru Lotus Notes og Microsoft Exchange. Lotus Notes, sem er í eigu IBM, náði snemma yfírburða markaðsstöðu, en Exchange frá Microsoft hefur gert að því harða hríð. Lotus Notes hefur ýmislegt upp á að bjóða sem hópvinnukerfí, en margt annað fylgir með, þar á mcðal póstforrit. Exchange er aftur á móti upphaf- lega póstforrit sem Microsoft-menn hafa bætt við hópvinnumöguleikum, ekki síst til að elja kapp við Notes. f könnun bandaríska markaðsrannsóknafyr- irtækisins IDC, sem sjá má á vefsetri fyrirtækisins, www.idc.com, kemur meðal annars fram að fleiri tóku upp Exchange á fyrri hluta ársins en Lotus Notes vestan hafs, en í Evrópu var þessu öfugt farið þar sem talsvert fleiri tóku upp Notes. Fréttaskýrendur hafa gert því skóna að betri árangur Exchange vestan hafs byggist ekki síst á því að fjölmargir sem hafi fram að þessu notað Microsoft Mail séu að bregðast við komandi áramótum, enda MS Mail ekki tilbúið fyrir árið 2000. Lotus Notes hefur aftur á móti verið tilbúið fyrir 2000 í nokkurn tíma. Linux sækir á MIKIÐ hefur verið látið með Linux slýrikerfið og sumir gengið svo langt að segja það helstu ógn sem Microsoft hafi staðið frammi fyrir á síðustu árum. Æ fleiri nota Linux og þá helst innan fýrirtækja, en samkvæmt nýlegri rannsókn hafa 13% fyrirtækja vestan hafs tekið upp Linux. Fyrir tveimur árum voru Linux-notendur ekki mælanlegir. Markaðsrannsóknafyrirtækið IDC kannaði Linux notkun og spurði um líkt leyti hvort fyrirtæki hygðust taka upp Windows 2000 sem er væntanlegt á næstu vikum. Niðurstaðan er nokkuð áfall fyrir Microsoft, þvf í könnuninni kom ekki bara fram mikil aukning á notkun á Linux heldur að fyrirtæki ætli almennt að fara sér hægt í að taka upp Windows 2000, ekki síst í Ijósi þess hve fyrri stýri- kerfí Microsoft hafi reynst óstöðug og illskeytt í fyrstu útgáfum. Samkvæmt því sem fram kemur á vefsetri IDC ætlar helmingur fyrirtækja að bíða með að selja upp Windows 2000 þar til næsta út- gáfa stýrikerfisins kemur á markað. Enn þykir nokkuð áfall fyrir Microsoft að æ fleiri forritarar eru teknir að færa sig úr Windows-um- hverfi í annað, til að mynda Linux/Unix, enda skiptir Windows æ minna máli í Ijósi forritunar fyr- ir Netið og dreifða vinnslu. Nýi "single" diskurinn frá Björk. Vengaboys klikka ekki á þessum "Party Album". Borga þú of mikið Afhverju að borga meira en þú þarft? Hjá BT býðst þér meira úrval og betra verð! Það er engin . tiiviljun að hagfræðingar og snillingar eins og Gummi versla aðeins ÍBT. V Nýjasta myndin frá Disney á VHS. Skemmtileg og r—— hugljúf mynd 1 _ frá Disney sem 1 P^| fjallar um söguna 1 ■ • v um Arthur konung.l Það er ekki að ástæðulausu sem KINGPIN var bannaður börnum inna 16 ára. Leikurinn er það | -----_____ raunverulegur 9 ~L aðþaðhálfa ’fe, MBI Æ& M væri helmingi I/ of mikið. Ef þú kaupir DVD mynd um helgina færðu miða_______ á Inspector Gadget X-” sem frumsýnd 1 Æ verður 10. sept. 1^1 ■S4MB1 Laugardaga 10:00-16:00 Sunnudaga 13:00-17:00 BT Skeifunni en lokað BT Hafnarfirði. Skeifunni 11 • 108 Rvk Kr BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.