Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 45

Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 45 ^- _________________UMRÆÐAN Hugmynd um fegrun Laugardalsins ÞAÐ ERU ekki bara við, sem búum í nágrenni Laugardalsins, sem erum andvíg umræddri lóða- úthlutun undir tvær stórbygging- ar, sem þekja myndu um 20 þús- und fermetra, auk stórra þjónustu- lóða og tilheyrandi gatnagerðar. Heita má að andstaðan gegn þess- um áformum sé orðin augljós og auðheyrt álit borgarbúa, án tillits til stjórnmálaskoðana. Laugardalurinn Svo hagar til að enn hefur ekki verið reistur minnisvarði um stofnun lýðveldis okkar á árinu 1944, segir Andres Pétur Rúnarsson. Og -------------------- er það þó einn merki- legasti áfanginn í sögu þjóðarinnar. Nú líður að því að lýðveldið eigi 60 ára afmæli - á árinu 2004. Trúlega hefur það lengi verið * ætlun Reykvíkinga að Laugardal- urinn verði útivistar- og íþrótta- svæði borgarbúa, kyrrlátt, gróið og fagurt. Vissulega hefur borgar- stjóm, bæði íyrr og síðar - og fer það ekki eftir stjórnmálaskoðunum - gert margt mjög vel til þess að gera dalinn eftirsóttan útivistar- stað. Má þar nefna Grasagarðinn, svæði tilkomumikillar trjá- og blómaræktar, Fjölskyldu- og hús- dýragarðinn, göngustíga, fuglatjarnir og margt annað. Allt er þetta fagurt og vel nýtt friðland fyrir þá, sem njóta vilja útivistar í heimabyggð sinni og eftirsótt af ferðamönnum. Og þá er að minnast íþrótta- mannvirkjanna, sem reist hafa ver- laugavegi 4, sími 551 4473 ið í dalnum. Laugardalsvöllurinn, hin glæsilega sundlaug, skautahöll- in og margt fleira. Hið sanna er að þessir tveir höf- uðþættir, iðkun íþrótta og gróin, opin svæði í nánd þeirra, fara svo órjúfanlega saman að ekki má með nokkmm hætti skaða þennan dýr- mæta friðarreit með því að leggja hluta dalsins undir atvinnusvæði. Það mundi m.a. leiða til mikillar viðskiptaumferðar, sem smám saman myndi leggja greipar sínar á enn stærri hluta dalsins og rjúfa þá friðsemd sem þar hefur þróast. Reykjavík er vaxandi borg. Við þurfum að sjá íyrir því að ungir sem gamlir eigi sér í framtíðinni friðland í borginni. Látum ekki skammsýni eða þvermóðsku eyði- leggja það. En nú mun einhver spyrja: „Hvað á þá að gera við óbyggðar lóðir í dalnum?“ Ég held að enginn þurfí að óttast að vandi verði að finna svör við því. Margir hafa nú og munu hafa einhverj- ar framtíðar óskir í þeim efnum. En þær verða að vera í sam- ræmi við nýtingu dals- ins eins og hann hefur þróast. Ég vil hins vegar nota þetta tækifæri til þess að bera fram eina hugmynd. Svo hagar til að enn hefur ekki verið reistur minnisvarði um stofnun lýðveldis okkar á árinu 1944. Og er það þó einn merkilegasti áfanginn í sögu þjóðar- innar. Nú líður að því að lýðveldið eigi 60 ára afmæli - á árinu 2004. Hvernig væri að efna til sam- keppni um gerð slíks minnisvarða í Laugardal? Sjálfsagt hafa hinir hugmyndaríku íslend- ingar margar hug- myndir um það efni. Mín er sú að byggður verði opinn súluskáli, qf úr íslenskum bergteg- undum, hugsanlega með þaki. Þar gætu hljómsveitir leikið á hátíðar- og tyllidög- um. Þar mætti setja á svið menningar- og skemmtiatriði og loks gæti fólk safnast sam- an að slíku minnis- merki og hlýtt á ræð- ur, ljóð eða söng á góðviðrisdögum undir berum himni. , - Höfundur er upphafsmaður stofn- unar samtaka um verndun Laugar- dalsins. Pottaplöntu Burkni kr 399 Verðáður kr.JSQ- - Nokkur verödæmi - 50°/« afsláttur / ukka kr. 360,- Áður kn-62CT Stofuaskur kr. 399,- 0 Áður kr.-625' Friðarlilja . 599,- Verð áður krr-9T0 Bergpálmi lm kr. 999,- Verð áður kr. 1650- Gullpálmi kr.439,- Verð áður kít-599 Drekatré / lm. 2 í potti kr. 999,- Verð áður kr. Jukka lm. 2 í potti kr. 999, Verð áður kr. 2275 \ Meira en so%* afsláttue Gróðurmold 61. kr. 159,- Verð áður kr J2J& Begónía kr. 599,- Verð áður krr749 Græna þruman kr. 349,- Verð áður kiv-549 Vörukynningar og tilboð Drekatré kr.499,- Ver áður -krr725" Andres Pétur Rúnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.