Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 49
Innlegg í pólitíska
dýrafræði
ÞAÐ ER virkilega
gaman að vera áhuga-
maður um pólitíska
dýrafræði þessa dag-
ana og fylgjast með því
hvemig postular frjáls-
hyggjunnar tileinka
sér orðfæri kommún-
ista og annarra sem
þola illa fleiri en eina
skoðun á hverju íyrir-
bæri. Undanfarið hefur
mátt lesa pistla eftir
Hannes Hólmstein þar
' sem þessi boðberi lög-
máls markaðarins og
valds fjármagnsins
hefur útlistað hvemig
sumir peningar lykta
vem en aðrir.
Hannes hefur verið duglegur við
að segja okkur hinum hvemig lög-
mál framboðs og eftirspumar sé
best til þess fallið að ráða öllu
gangverki mannfélagsins. Hann
hefur skrifað grein eftir grein þar
sem skýrt er út að ekkert sé óeðli-
legt við að sá sem á fjármagn kaupi
það sem hugur hans gimist. Hvort
sem það er vara, þjónusta eða
áhrif. En nú er komið annað hljóð í
strokkinn. í ljós hefur komið í
pistlum frjálshyggjumannsins að
undanförnu að það skiptir höfuð-
máli hver á peningana.
Rétta fólkið
í Vísi hinn 16. ágúst er höfð eftir
Hannesi sú mikla uppgötvun hans
„að Jón Ólafsson sé að kaupa sér
völd með aðild sinni að Orca SA“.
Það er undarlegt að sjá þetta haft
eftir boðbera frjálshyggjunnar eins
og einhver ný sannindi, þ.e. að með
kaupum á hlutabréfum vilji kaup-
andinn ekki aðeins tryggja sér
ávöxtun á fjármunum sínum heldur
líka völd. Þetta segir Hannes með
sömu andfælunum og Humphrey
ráðuneytisstjóri í „Já forsætisráð-
herra“, þegar hann sagði við einka-
ritara ráðhemans: „Veistu hvað
gerist ef rétta fólkið heldur ekki
um valdataumana? Þá fær rangt
fólk völdin.“ í áðumefndri grein í
Vísi kemur þetta líka fram: „Þetta
þjóðfélag snýst um peninga.
Tengsl við valdakjamann era í
gegnum peninga. Því meiri pening-
ar, því meiri tengsl. Frami í ís-
lensku þjóðfélagi er spurning um
þetta og að eiga vini, sem eiga vini.
Það er partur af þessum leik að
þekkja rétta menn.“
N ýkommú nisminn
og viðhorfín
Þetta er ekki lýsing á drauma-
veröld frjálshyggjunnar eins og
maður gæti haldið eftir lestur
greinabálka eftir Hannes Hólm-
stein. Nei, þetta er tilvitnun Hann-
esar í ummæli Jóns Ólafssonar í 12
ára gömlu timaritsviðtali. „Mér
finnst það viðhorf, sem kemur fram
í þessu viðtali, ekki geðfellt, þótt
hitt sé rétt, að Jón Ólafsson hefur
síðustu árin getað keypt sér
nokkra áhrifamikla vini,“ segir
hinn nýkommúníski Hannes og
sýpur hveljur. Hann á ekki til orð
yfir hversu óforskammaður Jón er.
Segir hann enda svífast einskis í
skjóli peninganna í endalausum tii-
raunum sínum til að ná meiri völd-
um.
Af þessu má ráða annað af
tvennu: Þeir efnamenn sem Hann-
es þekkir og era honum þóknan-
legir fjárfesta eingöngu af mann-
kærleik og kæra sig ekkert um
völd - eða efnamenn Hannesar era
rétta fólkið og hinir era ranga fólk-
ið. Hvar fellur lögmál markaðarins
inn í þessa mynd? Hannes tönnlast
líka á því að Jón Ólafsson eigi sér
skuggalegan feril sem fjölmiðlum
og yfirvöldum á íslandi beri að
rannsaka. Þetta styður Hannes
engum rökum öðrum en þeim, að
Jón svífist einskis í viðskiptum.
Skyldi nokkum undra
að við aðdáendur
Hannesar séum orðnir
dálítið raglaðir í rím-
inu?
í saurdreifingar-
herferð
Eftir að Hannes
hafði skrifað grein í
Morgunblaðið í einni
af saurdreifingarher-
ferðum sínum fyrir
„rétta valdhafa" brá
svo við að fjölmiðlar
sýndu greininni enga
athygli. Þetta er auð-
vitað í takt við það
sem haft er eftir
Hannesi í Vísi: „Það er full ástæða
til þess íyrir íslenska fjölmiðla að
rannsaka nákvæmlega umsvif og
athafnir Jóns Ólafssonar í Skífunni
... en þess er vitaskuld ekki að
Stjjórnmálaskrif
*
I ljós hefur komið í
pistlum frjálshyggju-
mannsins að undan-
fömu, segir Heimir
Már Pétursson, að það
skiptir höfuðmáli hver
á peningana.
vænta, að fjölmiðlar hans og
bandamanna hans, DV, Dagur,
Stöð tvö og Bylgjan, geri slíka
rannsókn.“
En Hannes á sér mikilvægan
bandamann í Bimi Bjarnasyni
menntamálaráðherra. Bimi líkaði
ekki sinnuleysi síns gamla blaðs,
Morgunblaðsins, við grein Hannes-
ar og ávítti blaðið á heimasíðu sinni
fyrir vikið. Nokkram dögum síðar
vora allir fjölmiðlar famir að fjalla
um þann „skuggalega" hóp sem
keypti hlutabréf í FBA, en ekld
leið á löngu þar til reiðarslag kom
yfir Hannes og félaga. Var ekki
Eyjólfur Sveinsson, fyrrverandi
aðstoðarmaður Davíðs Öddssonar,
í hópi þessara skuggabaldra. Nú
var bleik heldur betur bragðið.
Opinberlega og
í skúmaskotum
Maður sér fyrir sér tárin á
vanga Hannesar þegar hann játar
fyrir Vísi: „Ég verð að lýsa sér-
stakri undran minni á að sjá Eyjólf
Sveinsson, fyrrverandi aðstoðar-
mann Davíðs Oddssonar, sitja á
blaðamannafundi við hlið þeirra
Sigurðar G. Guðjónssonar og Jóns
Ólafssonar sem hafa ekki sett sig
úr færi að ráðast harkalega á Da-
víð Oddsson, jafnt opinberlega sem
í skúmaskotum. Það var dapurleg
sjón.“ Eins glaður og hress og
Hannes er með safaríkt skítkast
sjálfs sín og annarra í garð póli-
tískra óvina sinna verður hann
djúpt særður og hryggur ef ein-
hver vogar sér að segja svo mikið
sem eitt styggðaryrði um leiðtoga
hans Davíð Oddsson. Það er hinn
mesti höfuðglæpur sem Hannes
bregst við eins og ljónynja þegar
ráðist er á unga hennar. Og nú
hafa krosstré bragðist í þessum
efnum eins og öðram á heimili
frjálshyggjunnar. Fyrrverandi inn-
anbúðarmaður hjá Davíð hefur lagt
lag sitt við „ótínda glæpamenn".
Lögmál markaðarins, framboðs og
eftirspumar, hafa leitt þennan
góða mann á glapstigu. Þá er nú
betra að hafa þetta allt innan
Flokksins, hjá leiðtoganum, sem er
svo dæmalaust réttsýnn og góður
að hann má ekkert aumt sjá. Ekki
einu sinni aumar skoðanir.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
UMRÆÐAN
Heimir Már
Pétursson
aðein!
Vlr.«fpV'*u<
afsl. við kassi r X..
Ferskir kjúklingar &
■vwniga ' ' ■•-.»
kjúklingahlutar
r WÞF'--*
Giilsaso Tcwn áröy!
e~-':
Filofax
Þú kaupir 2/1-
Cheeriospakka og
færð korfubolta
í kaupbæti
rAÐ MORGUNKORN
UölRH. PRÖlBÍRto««óm*
HoBar MB fyrir liBa sgfiera
" KEA Vinarpylsur
“^^agnka^g^;
Jakob's pítubrauð, 6 stk.
s>
\ -.^fe
I— Opið sunnudaga frá 12-17
Alitaf von á góöu!