Morgunblaðið - 21.08.1999, Page 49

Morgunblaðið - 21.08.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 49 Innlegg í pólitíska dýrafræði ÞAÐ ER virkilega gaman að vera áhuga- maður um pólitíska dýrafræði þessa dag- ana og fylgjast með því hvemig postular frjáls- hyggjunnar tileinka sér orðfæri kommún- ista og annarra sem þola illa fleiri en eina skoðun á hverju íyrir- bæri. Undanfarið hefur mátt lesa pistla eftir Hannes Hólmstein þar ' sem þessi boðberi lög- máls markaðarins og valds fjármagnsins hefur útlistað hvemig sumir peningar lykta vem en aðrir. Hannes hefur verið duglegur við að segja okkur hinum hvemig lög- mál framboðs og eftirspumar sé best til þess fallið að ráða öllu gangverki mannfélagsins. Hann hefur skrifað grein eftir grein þar sem skýrt er út að ekkert sé óeðli- legt við að sá sem á fjármagn kaupi það sem hugur hans gimist. Hvort sem það er vara, þjónusta eða áhrif. En nú er komið annað hljóð í strokkinn. í ljós hefur komið í pistlum frjálshyggjumannsins að undanförnu að það skiptir höfuð- máli hver á peningana. Rétta fólkið í Vísi hinn 16. ágúst er höfð eftir Hannesi sú mikla uppgötvun hans „að Jón Ólafsson sé að kaupa sér völd með aðild sinni að Orca SA“. Það er undarlegt að sjá þetta haft eftir boðbera frjálshyggjunnar eins og einhver ný sannindi, þ.e. að með kaupum á hlutabréfum vilji kaup- andinn ekki aðeins tryggja sér ávöxtun á fjármunum sínum heldur líka völd. Þetta segir Hannes með sömu andfælunum og Humphrey ráðuneytisstjóri í „Já forsætisráð- herra“, þegar hann sagði við einka- ritara ráðhemans: „Veistu hvað gerist ef rétta fólkið heldur ekki um valdataumana? Þá fær rangt fólk völdin.“ í áðumefndri grein í Vísi kemur þetta líka fram: „Þetta þjóðfélag snýst um peninga. Tengsl við valdakjamann era í gegnum peninga. Því meiri pening- ar, því meiri tengsl. Frami í ís- lensku þjóðfélagi er spurning um þetta og að eiga vini, sem eiga vini. Það er partur af þessum leik að þekkja rétta menn.“ N ýkommú nisminn og viðhorfín Þetta er ekki lýsing á drauma- veröld frjálshyggjunnar eins og maður gæti haldið eftir lestur greinabálka eftir Hannes Hólm- stein. Nei, þetta er tilvitnun Hann- esar í ummæli Jóns Ólafssonar í 12 ára gömlu timaritsviðtali. „Mér finnst það viðhorf, sem kemur fram í þessu viðtali, ekki geðfellt, þótt hitt sé rétt, að Jón Ólafsson hefur síðustu árin getað keypt sér nokkra áhrifamikla vini,“ segir hinn nýkommúníski Hannes og sýpur hveljur. Hann á ekki til orð yfir hversu óforskammaður Jón er. Segir hann enda svífast einskis í skjóli peninganna í endalausum tii- raunum sínum til að ná meiri völd- um. Af þessu má ráða annað af tvennu: Þeir efnamenn sem Hann- es þekkir og era honum þóknan- legir fjárfesta eingöngu af mann- kærleik og kæra sig ekkert um völd - eða efnamenn Hannesar era rétta fólkið og hinir era ranga fólk- ið. Hvar fellur lögmál markaðarins inn í þessa mynd? Hannes tönnlast líka á því að Jón Ólafsson eigi sér skuggalegan feril sem fjölmiðlum og yfirvöldum á íslandi beri að rannsaka. Þetta styður Hannes engum rökum öðrum en þeim, að Jón svífist einskis í viðskiptum. Skyldi nokkum undra að við aðdáendur Hannesar séum orðnir dálítið raglaðir í rím- inu? í saurdreifingar- herferð Eftir að Hannes hafði skrifað grein í Morgunblaðið í einni af saurdreifingarher- ferðum sínum fyrir „rétta valdhafa" brá svo við að fjölmiðlar sýndu greininni enga athygli. Þetta er auð- vitað í takt við það sem haft er eftir Hannesi í Vísi: „Það er full ástæða til þess íyrir íslenska fjölmiðla að rannsaka nákvæmlega umsvif og athafnir Jóns Ólafssonar í Skífunni ... en þess er vitaskuld ekki að Stjjórnmálaskrif * I ljós hefur komið í pistlum frjálshyggju- mannsins að undan- fömu, segir Heimir Már Pétursson, að það skiptir höfuðmáli hver á peningana. vænta, að fjölmiðlar hans og bandamanna hans, DV, Dagur, Stöð tvö og Bylgjan, geri slíka rannsókn.“ En Hannes á sér mikilvægan bandamann í Bimi Bjarnasyni menntamálaráðherra. Bimi líkaði ekki sinnuleysi síns gamla blaðs, Morgunblaðsins, við grein Hannes- ar og ávítti blaðið á heimasíðu sinni fyrir vikið. Nokkram dögum síðar vora allir fjölmiðlar famir að fjalla um þann „skuggalega" hóp sem keypti hlutabréf í FBA, en ekld leið á löngu þar til reiðarslag kom yfir Hannes og félaga. Var ekki Eyjólfur Sveinsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Öddssonar, í hópi þessara skuggabaldra. Nú var bleik heldur betur bragðið. Opinberlega og í skúmaskotum Maður sér fyrir sér tárin á vanga Hannesar þegar hann játar fyrir Vísi: „Ég verð að lýsa sér- stakri undran minni á að sjá Eyjólf Sveinsson, fyrrverandi aðstoðar- mann Davíðs Oddssonar, sitja á blaðamannafundi við hlið þeirra Sigurðar G. Guðjónssonar og Jóns Ólafssonar sem hafa ekki sett sig úr færi að ráðast harkalega á Da- víð Oddsson, jafnt opinberlega sem í skúmaskotum. Það var dapurleg sjón.“ Eins glaður og hress og Hannes er með safaríkt skítkast sjálfs sín og annarra í garð póli- tískra óvina sinna verður hann djúpt særður og hryggur ef ein- hver vogar sér að segja svo mikið sem eitt styggðaryrði um leiðtoga hans Davíð Oddsson. Það er hinn mesti höfuðglæpur sem Hannes bregst við eins og ljónynja þegar ráðist er á unga hennar. Og nú hafa krosstré bragðist í þessum efnum eins og öðram á heimili frjálshyggjunnar. Fyrrverandi inn- anbúðarmaður hjá Davíð hefur lagt lag sitt við „ótínda glæpamenn". Lögmál markaðarins, framboðs og eftirspumar, hafa leitt þennan góða mann á glapstigu. Þá er nú betra að hafa þetta allt innan Flokksins, hjá leiðtoganum, sem er svo dæmalaust réttsýnn og góður að hann má ekkert aumt sjá. Ekki einu sinni aumar skoðanir. Höfundur er framkvæmdastjóri. UMRÆÐAN Heimir Már Pétursson aðein! Vlr.«fpV'*u< afsl. við kassi r X.. Ferskir kjúklingar & ■vwniga ' ' ■•-.» kjúklingahlutar r WÞF'--* Giilsaso Tcwn áröy! e~-': Filofax Þú kaupir 2/1- Cheeriospakka og færð korfubolta í kaupbæti rAÐ MORGUNKORN UölRH. PRÖlBÍRto««óm* HoBar MB fyrir liBa sgfiera " KEA Vinarpylsur “^^agnka^g^; Jakob's pítubrauð, 6 stk. s> \ -.^fe I— Opið sunnudaga frá 12-17 Alitaf von á góöu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.