Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 54

Morgunblaðið - 21.08.1999, Side 54
54 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ TOMAS JÓNSSON LÁRA BJÖRGVINSDÓTTIR + Lára Björgvins- dóttir fæddist í Reykjavík 19. maí 1960. Hún lést á Landspftalanum 8. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 20. ágúst. Elsku Lára, þökkum þér samfylgdina sem var svo allt of stutt. Við biðjum góðan Guð að vernda fjölskyldu þína og kveðjum þig með þessum orðum: yndisleg börn og góðan mann. Guð blessi þig, elsku Lára. Elsku Jón, Guðný, Björgvin, Páll Arnar, foreldrar, systkini og aðstandendur, megi guð styrkja ykkur í þeirri miklu sorg sem orðið hefur í ykkar lífi. Innilegar samúðar- kveðjur. Pín vinkona, Elma Eide Pétursdóttir. um hjá Hestamannafélaginu Stormi. Hafði áður en ég gaf loforð- ið tryggt mér þrjá kunna gæðinga- dómara úr Skagafirði til þess að fara með. Fór þetta allt sem ráðgert var og urðu það afleiðingar starfa okkar að ég fór með tilskilinn dóm- arafjölda með mér nokkur næstu árin vestur að Þingeyri sömu er- inda. Varð þá til orðtakið „Það er alltaf sólskin á Söndum“ og lýsir það vel þeim blæ sem ríkti á mótum þeirra Stormsmanna, þrátt fyrir, eða kannski sérstaklega, fyrir óvenjuerfiða félagsaðstöðu vegna sundurslitinna byggða og mikilla fjarlægða. Ekki leyndi sér hlutur Tómasar Jónssonar í sambandi við mótin á Söndum. Hann var ekki endilega skráður stjómandi en hann virtist óskráður samnefnari þess afls sem þurfti hverju sinni til þess að mótin tækjust eins og ætlað var að vera leikvangur hestamanna á Vestfjörð- um og mótuðust leikreglumar á þessum fyrstu áram félagsskapar- ins. Jóhannes á Kleifum hafði komið þar mjög við sögu sem leiðbeinandi og dómari og á þessu móti sem við norðanmenn létum til okkar taka reið hann með fimm til reiðar aftur og fram um völlinn. Þessi fyrstu mót Storms bára miklu fremur svip af leikjum en keppni og þátttakendur komu eins og þeir vora klæddir og ríðandi en aðkomnir kunnáttumenn í greininni sáust þar ekki fyrstu árin. 011 mótin enduðu síðan með fjölmennri hópreið um nágrennið þar sem Tómas Jónsson gegndi hlutverki er enginn annar gat að hefja hina þróttmiklu bassarödd sína og flytja gamanmál með tilheyrandi lát- bragði og áherslum. Þessari list- grein gat Tómas bragðið fyrir sig við ýmiss konar tækifæri þar sem gleði átti að ríkja. Annan sérstæðan hæfileika hafði Tómas að taka að sér söngstjóm er þörf krafði. Hljóð- færi vora honum ekki tiltæk nema til þess að gefa tóninn og þannig stjómaði hann bæði kirkjusöng og karlakór. Á starfsævi sinni annaðist Tómas mikil ábyrgðarstörf sem kennari, skólastjóri, sparisjóðsstjóri og fleira sem ekki verður hér upptalið og ég þekki ekki svo gerla. Þannig var uppistaðan í lífí Tómasar ábyrgð og alvara en ívafið fjölhæf listsköpun. Að vera gestur Tómasar Jónsson- ar og hans ágætu konu Sigríðar Steinþórsdóttur verður ógleyman- legt. Við félagamir að norðan sem komum á hestamót Storms á þessu árabili nutum þar gleði, söngs og góðra veitinga. Gott var líka að fara með þeim hjónunum á kvöld- skemmtun þeirra Stormsmanna á Þingeyri og kynnast þar velunnur- um hrossa og hestamennsku á Vest- fjörðum sem vissulega á sér land- fræðilega sérstöðu. r Blómabiáðln > k v/ PossvogsUi^kjwga^ð j, V SM: 554 0500 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Svenir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararsijóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan solarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Persónuleg kynni á milli þeirra hjónanna Sigríðar og Tómasar og mín og konu minnar urðu þvi nánari sem áranum fjölgaði. Mörg sumur hafa þau hjónin átt leið um Blöndu- ós og þá verið gestir okkar. Þau báru alltaf með sér góðvild, söng og gleði. Er Tómas Jónsson kenndi sjúk- dóms þess er nú hefur bundið enda á ævi hans var vitað að þáttaskil yrðu fyrr en síðar. Hann vissi sjálf- ur að hverju fór og tók því með æðraleysi og karlmennsku. Gott er að hin þunga raun sjúkdómsins er að baki. Framundan er tími saknað- ar og minninga um sérstæðan per- sónuleika sem gaf samfélaginu, og þó fyrst og fremst þeim sem þekktu hann best, svo mikið. Þessir eigin- leikar Tómasar Jónssonar tengdu saman landsfjórðunga með beinum og óbeinum hætti. Samhugur okkar hjóna skal að lokum tjáður eiginkonu hins látna vinar, börnum þeirra, bamabörnum og öðram nákomnum. Grímur Gislason. Heiðursmaðurinn Tómas Jónsson hefur fengið hvíldina. Eg hitti hann fyrst í júní árið 1983 þegar ég var undirleikari Karlakórs Isafjarðar og við héldum tónleika á Þingeyri. Samkomuhúsið var fullt og fín stemmning. Þegar síðasta aukalagið hafði verið sungið og tónleikamir á enda, að við héldum, þá stóð skyndi- lega upp snaggaralegur maður og í lok skemmtilegrar ræðu tilkynnti hann að nú ætluðu karlarnir í Kar- lakór Þingeyrar að leyfa fólkinu að heyra að þeir gætu líka sungið. „Já, já, nú skulum við syngja!" Karlamir drifu sig uppá svið og þessi fyndni maður fann tóninn á melodíku. Svo stjómaði hann þessum líka fína karlakór af feiknarkrafti við mikinn fögnuð viðstaddra. Þetta var enginn annar en Tómas Jónsson. Eftir þessa eftirminnilegu tónleika var okkur boðið til stórveislu þar sem við voram í góðu yfirlæti langt fram yfir miðnætti. Þetta vora stórkost- legar móttökur og seinna átti ég eftir að sannreyna að Dýrfirðingar era ákaflega gestrisnir og sannir höfðingjar heim að sækja. Ég kynntist svo Tómasi og Sig- ríði konu hans vel þegar ég flutti til Þingeyrar rúmum þremur áram síðar. Þau vora bæði í kirkjukórn- um, sem ég var að myndast við að stjóma, og við Tómas voram sam- kennarar við Tónlistarskólann og Grannskólann. Tómas kíkti oft til mín þegar ég var að kenna og bauð mér heim í mat. Hjá Siggu og Tomma smakkaði ég í fyrsta skipti signa grásleppu, mikið lostæti, og einhverju sinni bauð Tommi mér að smakka á soðnum lúðuhaus. Þegar ég afþakkaði það vandræðalega þá skellihló hann og sagði mér að böm- in hans gætu ómögulega skilið hrifningu hans á þessu óæti. Um helgar fengum við okkur stundum „sexara“, en það var gamall heldri manna siður á Þingeyri að fá sér göróttan drykk klukkan sex. Þannig hófust mörg skemmtileg kvöld sem liðu hratt við glasaglaum og söng. Á þessum kvöldum var Tómas hrókur alls fagnaðar. Tómas var ein aðaldriffjöðrin í tónlistarlífi Dýrfirðinga. Hann var lengi skólastjóri Grannskólans og þar kenndi hann bömunum að syngja við raust. Við Grannskólann kenndi hann einnig á blokkflautu og síðar við Tónlistarskólann á Þing- eyri. Hann stjórnaði kirkjukómum í áratugi og Karlakór Þingeyrar í nokkur ár. Það er óhætt að segja að tónlistin hafi verið hans líf og yndi. Tómas setti sterkan svip á mann- lífið á Þingeyri. Hann stóð iðulega upp á mannamótum og hélt smá tölu. Hann kom svo vel fyrir sig orði að fólk veltist um af hlátri. Hann hafði einstaklega næmt auga fyrir því spaugilega úr daglega lífinu. Það lá því létt fyrir honum að setja saman skondna pistla, þar sem hann gerði góðlátlegt grín að sjálf- um sér og meðborguram sínum. Tómas fæddist í Dýrafirðinum, einum fegursta firði landsins. Þar bjó hann í gæfuríku hjónabandi með henni Siggu sinni og eignaðist böm og barnaböm. Hann naut þess að spila bridds, syngja, segja sögur og ríða út með vinum sínum. Þetta kalla ég að lifa lífínu. Tómas krydd- aði tilveru þeirra sem honum kynnt- ust og ég gleðst yfir því að hafa kynnst þessum hlýlega og hæfileik- aríka lífskúnstner. Ég kveð minn kæra vin og minnist hans með virð- ingu og þakklæti fyrir allar sam- verastundimar. Við Oskar sendum fjölskyldu Tómasar okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guðbjörg Leifsdóttir. Það var í byrjun árs 1993 að Tómas Jónsson frá Þingeyri hafði samband við okkur hjónin og bauð okkur störf við Tónlistarskólann á Þingeyri, ásamt organistastarfí. Satt best að segja leist okkur lítið sem ekkert á það í fyrstu að fara vestur á fírði í þessum erindagjörð- um. En maðurinn var sannfærandi og við ákváðum að slá til. Aldrei höfum séð eftir þeirri ákvörðun, því þessi dvöl okkar á Þingeyri var í alla staði ákaflega ánægjuleg og minnumst við þessara ára með söknuði. Á Þingeyri kynntumst við mörgu góðu fólki, þar á meðal þeim heið- urshjónum Tomma og Siggu. Þau tóku okkur einstaklega vel, rétt eins og við væram þeirra eigin börn, og þeirra hlýja heimili stóð okkur ætíð opið. Alltaif vora þau tilbúin að ræða málin og miðla af reynslu sinni og reyndist það okkur dýrmætur og ómetanlegur stuðningur. Tómas kom víða við og var mikill máttarstólpi í menningarmálum á Þingeyri. Hans framlag til tónlistar- og söngkennslu á Þingeyri verður seint fullþakkað. Tónlistarskólinn á Þingeyri á Tómasi margt að þakka. Hann sat í skólanefnd í mörg ár, var tónlistarkennari og um tíma skóla- stjóri skólans. Auk þess stjómaði hann kirkjukómum og karlakórinn var hans fimmta bam. Við áttum því láni að fagna að fá Tómas sem nemanda við Tónlistar- skólann, þá tæplega sjötugan að aldri. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fá Tómas í tíma því maðurinn var svo sérlega skemmtilegur og mikill húmoristi. Ekki vafðist heldur fyrir honum hlutverk elgsins í uppsetn- ingu Tónlistarskólans á Dýrunum í Hálsaskógi. Þar var kynslóðabilið brúað eins og svo oft áður á Þing- eyri, því leikendur voru á bilinu 6-70 ára gamlir. Tómas var mjög sterkur persónu- leiki og erfitt er að lýsa hans góðu kostum í lítilli minningargrein. Það sem okkur finnst einna eftirminni- legast í fari Tomma var hans al- kunna gamansemi, létta lund og frá- sagnargleði. Hann var geysilega mikill sögumaður og gat fengið stóran áheyrendahóp til þess að engjast sundur og saman af hlátri og mæna á hann segja sögur með þvílíkum tilþrifum að lengi verða í minnum höfð. Hann var snillingur í því að koma auga á hið spaugilega í hversdagsleikanum. Við kveðjum Tómas vin okkar með söknuð í huga og full þakklætis fyrir það sem hann gaf okkur. Elsku Sigga, böm, tengdaböm og bamaböm, við sendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Tómasar Jónssonar. Guðmundur Vilhjálmsson, Helga Aðalheiður Jónsdóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, Mður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hlíf, Margrót, Dagbjört, Guðný, Þórður, Guðleif og Anna, Greiðslumiðstöð íslandsbanka. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja égvil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, ojg horfin ert burt þessum heimi. Eg minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir.) Með þessum orðum viljum við kveðja vinkonu okkar Lára Björg- vins eins og hún var alltaf nefnd í okkar hóp. Við viljum biðja góðan Guð að styrkja og styðja eiginmann hennar, böm og aðra ástvini í þess- ari miklu sorg. Blessuð sé minning hennar. Sólveig, Bryndís, Indjana, Kristín, Guðrún og Lára Ólafs. Elsku Lára, um leið og ég kveð þig þakka ég þér fyrir þær stundir sem við áttum saman. Ég kynntist þér árið 1988 á sameiginlegum vinnustað okkar. Tíu ára kynni era ekki mikið en á þeim tíma kynntist ég góðri konu. Áf mörgum góðum stundum sem við áttum saman minnist ég sérstaklega utanlands- ferðar og sumarbústaðarferðar sem við fóram saman fyrir fáeinum ár- um. Lífið virtist leika við þig. Þú áttir Það dró mjög snöggt fyrir sólu hjá okkur mánudagsmorguninn 9. ágúst þegar okkur barst sú sorgar- fregn að samstarfskona okkar, hún Lára, hefði kvatt þennan heim deg- inum áður, langt um aldur fram, að- eins 39 ára gömul. Þetta var okkur mikið áfall þó að vitað hafi verið að hverju stefndi. Sú spuming kemur upp í hugann hvers vegna lífið sé oft svona óréttlátt. Elsku Lára mín, margar minning- ar fljúga í gegnum huga okkar á slíkri sorgar- og kveðjustund. Meðal þeirra er minningin um þann góða dag í nóvember 1987 þegar þú hófst störf í Þarabakkanum, sem þá var Verslunarbankinn og síðar Islands- banki. Það var farsælt fyrir bankann að fá þig til starfa. Eftir að þú fluttir þig svo um set fyrir u.þ.b. einu ári og fórst til starfa í Lækjargötunni, fannst okkur frábært að eiga þig að sem okkar góða tengilið þar, því þú varst svo vandvirk og samviskusöm. Við sem urðum þeirrar gæfu að- njótandi að starfa með þér hjá bank- anum á þessum 12 áram viljum færa þér okkar bestu þakkir fyrir þær frábæra samverastundir, sem við höfum átt saman bæði í leik og í starfi. Alltaf geislaði frá þér góð- mennska og gleði og stutt var í glensið, enda oft mikið hlegið þegar tækifæri gáfúst. Við biðjum algóðan Guð að leiða þig og blessa um alla eilífð. Fjölskyldu Láru og öllum að- standendum hennar sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að veita þeim styrk í þeirra miklu sorg, sérstaklega Jóni, Guðnýju, Björgvini og litla Páli Arn- ari, því þeirra er missirinn mestur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umveíji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þásætteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum því veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Kveðja frá samstarfs- félögum í útibúi fslands- banka, Þarabakka. Elsku Lára frænka mín. Nú ert þú búin að fá lausnina frá þínum veikindum, horfin yfir móðuna miklu og komin þangað sem engin veikindi era til og ég er viss um að hún Lára amma okkar hefur nú tekið vel á móti þér. Það hrannast upp minn- ingamar frá því við voram litlar stúlkur sem munu lifa í hjarta mínu alla tíð. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Ég vil biðja góðan Guð að vera með fjölskyldu þinni og styrkja í þessari miklu sorg. Blessuð sé minning þín. Þín frænka Guðrún Sigurðardóttir. Handrit afmœlis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1116, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.