Morgunblaðið - 21.08.1999, Page 60
60 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Krínglunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Er vönun
ekki alvörumál?
Frá Guðvarði .Jónssyni:
ÞROSKAHEFTUM manni hafa ver-
ið dæmdar bætur úr rfkissjóði vegna
vönunar, hafði sú aðgerð farið fram
án hans leyfis eða vitundar.
Svona mannréttindabrot finnst
mér vera nokkuð niðrandi fyrir lýð-
ræðisríki og aðgerðin hlýtur að vera
blettur á mannorði embættismanna
og lækna sem að slíkri aðgerð stóðu.
Þó er það alvarlegasta í þessu máli,
ef alþingismenn ætla ekki að láta
gera könnun á því hvaða einstakling-
ar hafa verið teknir í vönunaraðgerð
óafvitandi og skila upplýsingum til
viðkomandi aðila. Þeir aðilar sem
voru vanaðir óafvitandi hljóta að
eiga lagalegan rétt til þess að fá upp-
lýsingar um það.
Á uppgangstímum Hitlersstefn-
unnar hrifust margir af kynbóta-
stefnu Hitlers á mannfólki. Þó þorðu
menn ekki að útfæra þá stefnu á
sama hátt og Hitler, að útrýma þeim
sem taldir væru óæskilegir í þjóðfé-
laginu. Aftur á móti var vönun talin
æskileg aðferð til þess að hindra
barneignir þeirra sem menn töldu
úrkynjaða þjóðfélagsþegna. Þessi
stefna hafði hljómgrunn hér og mun
einhver fjöldi einstaklinga hafa verið
vanaður, þjóðfélaginu til heilla að
mati Hitlers trúboða og með því létt
af ríki og sveitarfélögum uppeldi
bama þeirra. Með þessu var staðfest
að embættismenn teldu andlega
þroskahömlun arfgenga, beint í af-
kvæmum þeirra þroskaheftu, þó
mönnum væri ljóst að andlega og Iík-
amlega fötluð börn fæðast út af for-
eldrum í öllum stéttum þjóðfélags-
ins. Menn vita líka að blindir eða
heyrnarlausir fæða ekki af sér blind
eða heyrnarlaus börn, frekar en þeir
sem sjáandi og heyrandi eru.
Ymsir horfðu líka til annarra hópa
í þjóðfélaginu og töldu æskilegt að
fátækir væru vanaðir til þess að
minnka ómegð. Það hefur þó senni-
lega aldrei verið kannað hvort emb-
ættismenn hafi látið vana einhverja
til að draga úr fátækt.
Því má ekki gleyma að fjöldi fólks
er andlega og líkamlega fatlaður
vegna mistaka lækna, sjúkdóma og
slysa. Það mun flestum þykja nægi-
leg byrði að bera á lífsleiðinni þó ekki
bættist við tilbúin vönunarfotlun,
framkvæmd af aðilum sem ættu að
vera réttindaverndarar þessa fólks.
Flest heilbrigt fólk teiur það sína
mestu gæfu og gleði í lífinu að eign-
ast böm og fylgjast með þroskaferli
þeirra. Hvers vegna skyldi þá ein-
hverjum embættismönnum leyfast
að ákveða að þroskaheft fóik fái ekki
að njóta slíkrar lífsfyllingar bara
vegna þess að það gæti kostað þjóð-
félagið og sveitarfélog nokkrar krón-
ur vegna leiðbeininga við uppeldið?
Embættismenn eru ekki svona smá-
smugulegir þegar þeir ákveða alls-
konar fríðindi fyrir sjálfan sig ofan á
há laun.
Mannkynið verður ekki kynbætt
hvorki með vönunaraðferð gervinas-
ista, né gasklefaaðferð alvöru nas-
ista, því þeir sem framkvæma slíkt
eru úrkynjaðri en þeir sem verið er
að vana eða eyða.
Andlegur þroski þroskaheftra er
venjulega metinn á fyrstu grunn-
skólaárunum og að mestu stuðst við
það mat, þegar kerfið metur mögu-
leika einstaklingsins til sjálfræðis
síðar á ævinni. Kerfið virðist binda
sig við aðeins einn þátt vitsmuna,
bóknámsgáfur, en sem betur fer
eru vitsmunir mannsins ekki svo
einhæfir. Það er aftur á móti ekki
eytt miklum fjármunum í að kanna
hvað hæfir best hverjum þroska-
heftum einstaklingi til sjálfsbjarg-
ar, því ekki er hægt að búa til stað-
al fyrir hópinn. Margir þroskaheftir
geta verið vel hæfir til að sjá fyrir
heimili fái þeir mannlegan skilning,
tilsagnar stuðning og þá sérstak-
lega við meðhöndlun fjármuna.
Vandi þjóðfélagsins er ekki vegna
kostnaðar við uppeldi barna
þroskaheftra, heldur vegna stjórn-
sýslumistaka þeirra gáfuðu.
Svona mál er oft reynt að þegja í
hel, þegar um þá er að ræða sem
ekki geta varið sig.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5.
Smáfólk
DO YOU THIMK I
DID RH5HT 0Y NOT
60IN6 TO CAMP,
016 0ROTHER?
YOU CAN /SUReN
ALWAY5 /1 CAN
60 NEXT/THINK
YEAR.. JA0OUT
IT.
STAY THEKE..
I'LL 10AKE YOU
UP A6AIN
NEXT YEAR..
Heldurðu að ég hafí
ekki gert rétt með því
að fara ekki i
sumarbúðir, stéri
bróðir?
- Orugglega - Nei, það hefðir þú ekki - Þú getur alltaf
- Ég gæti hafa gert - Þú hefúr rétt fyrir farið næsta ár..
skemmt mér ve!.. þér..mér hefði þótt það - Vissulega, ég get
leiðinlegt.. ihugað það..
Haltu þig þama...
ég vek þig aftur að
ári...
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
"slim-line"
dömubuxur frá
gardeur
Qhmtv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
m s
I ALHLiÐA TÖLVUKERFI | 11 i
HUGBÚNAÐUR I FYRIRWINDOWS
Frábær þjónusta
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Simi 568 8055
www.islanilia.is/kerlisllironn
Gœðavara
Gjaídvara - malar oij kaffistell.
Allir veröflokkar.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versare.
VERSLUNIN
Laugnvegi 52, s. 562 4244.