Morgunblaðið - 21.08.1999, Síða 62
> 62 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
Hlutavelta
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu kr. 4.541 til styrkt-
ar Rauða krossi Islands. Þau heita Þórunn Guðmundsdóttir, Björg M.
Ólafsdóttir, Valdís Ingimarsdóttir og Kristján Már Ólafsson.
\ Þessir duglegu krakkar héldu tómbólu og söfnuðu kr. 2.338 til styrkt-
ar Rauða krossi íslands. Þau heita Henrik Biering Jónsson, Atli Dag-
ur Sigurðsson, Sólrún Dögg Sigurðardóttir, Bryndís Hall og Bjarki
Hall.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða kross ís-
lands og söfnuðu kr. 2.926. Þær heita Kristín Benediktsdóttir og Stef-
anía Karlsdóttir. Á myndina vantar Katrínu Ingvarsdóttur.
Morgunblaðið/Jim Smart.
Þessar knáu slúlkur tóku þátt í söfnunarátaki ABC hjálparstarfsins
og söfnuðu þær með tombólu 4.950. kr. Þær heita Eydís Ósk Hilmars-
dóttir, Oddný Ómarsdóttir og Emma Lovísa Diego.
Stjörnuspá á Netinu ^mbl.is
AL.L.7*kf= 6/7T//l^l£7 NÝT7
VELMKMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Var Kristur
aldrei á fyrsta
árinu?
ÉG hef aldrei þótzt vera
mikiill stærðfræðingur en
þegar talnaspekingar
halda því fram að árþús-
undamót verði ekki fyrr
en árinu 2000 sé lokið og
árið 2001 renni upp þá get
ég ekki á mér setið og
legg hér örfá orð í belg.
Hver einasti maður fæðist
árið 0, miðað við eigin ævi.
Síðan er hann á fyrsta ár-
inu þangað til hann verður
eins árs, þ.e.a.s. árið 1
rennur upp í lífi hans. Nú
er því haldið fram að árið
1 hafi runnið upp strax við
fæðingu Krists en það
finnst mér algerlega frá-
leitt. Þegar ártal er nefnt
hefur mér alltaf skilizt að
átt væri við tímann, í heil-
um árum talinn, fyrir eða
(oftast) eftir Krists burð.
Samkvæmt þessu er
Kristur núna á tvö þús-
undasta árinu og á tvö
þúsund ára afmæli um
næstu áramót en þá verða
auðvitað jafnframt árþús-
undamót.
Nú þykir mörgum ófært
að kalla fyrsta árið í ævi
Krists 0 en fram hjá því
má auðveldlega komast
með því að vera ekki að
tölusetja þann stutta tíma
í sögunni en nefna hann
bara fyrsta árið eftir
Krists burð. Lítum á hita-
mæli og látum hitann
tákna árin eftir Krist en
frostið tímann þar á und-
an.
Matthías Jónsson.
Um leið 7
VEGNA skrifa Erlu
Hlynsdóttur í Bréf til
blaðsins sl. fimmtudag um
leið 7 vil ég benda á að ein
leið til að leysa þetta
vandamál með misskiln-
inginn sem upp getur
komið við Hótel Loftleiðir
er að láta SVR setja upp
tvö biðskýli við hótelið þar
sem annað er fyrir þá sem
fara niður á Lækjartorg
og hitt jyrir þá sem fara
upp í Árbæ. Þannig ætti
að vera auðvelt að taka
alltaf réttan vagn (þ.e. ef
vagnstjórinn leggur við
rétt skýli).
Ottó Eiríksson,
Kleppsvegi 144.
Tapað/fundið
Gleraugu týndust
í Mjódd
GLERAUGU með lituð-
um glerjum í brúnni um-
gjörð með gyllingu týnd-
ust í innkaupakörfu í
Nettó í Mjódd þriðjudag-
inn 17. ágúst. Sá sem hef-
ur fundið gleraugun hafi
samband í síma 557 6525
eða skili þeim á lögreglu-
stöðina í Neðra-Breiðholti.
Myndavél
týndist
OLYMPUS-myndavél
týndist í byrjun ágúst við
Dimmuborgir, Námaskarð
eða í Sænautaseli á Jökui-
dal. Þeir sem hafa orðið
vélarinnar varir hafi sam-
band í síma 553 6239 eða
891 8912.
Kvenúr
í óskilum
FUNDIST hefur kvenúr
með stálkeðju við göngu-
stíginn við Birkigrund í
Kópavogi. Upplýsingar í
síma 554 4513.
Dýrahald
Páfagaukur
í óskilum
GRÆNN og gulur páfa-
gaukur (undulati) fannst á
Lágholtsvegi í Vesturbæ.
Upplýsingar í síma
552 8682.
skÆk
Svartur leikur og vinnur
23. - e5!! 24. fxe5 - dxe5 25.
Rxe5 - Re4+! 26. Rxe4 -
Hxd4 27. Hxd4 - Dxe5+ 28.
Df4 - Dxd4 og hvítur gafst
upp.
limsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á breska
meistaramótinu í sumar en
það var hald-
ið í Scar-
borough.
Christopher
Ward (2470)
hafði hvítt,
en Stuart
Conquest
(2555) var
með svart og
átti leik.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er í hópi hinna fjöl-
mörgu sem hafa furðað sig á
ummælum nýs umhverfisráðherra
í Eyjabakkamálinu. Málið snýst
nefnilega ekki um persónulegt feg-
urðarmat ráðherrans heldur um
náttúru- og dýraverndunarsjónar-
mið almennt. Víkverja er nefnilega
að verða æ betur ijóst hvað há-
lendið er dýrmætt. Og hann getur
tekið undir með frambjóðandanum
í varaformannskjöri Framsóknar-
flokksins fyrir tæpu ári, sem lýsti
því yfir í viðtali að „við værum í
hópi útvalinna þjóða hvað óspillta
náttúru varðar." Víkverji telur
líka, eins og frambjóðandinn, að
„við verðum að vernda hálendið,
sem og aðrar náttúruperlur". Hið
almenna sjónarmið Víkverja í
þessu máii er að „náttúran eigi að
njóta vafans og nota eigi bestu
tæki, svo sem umhverfismat, til að
dæma um áhrif framkvæmda“,
eins og frambjóðandinn komst svo
vel að orði í áðurnefndu viðtali,
sem birt var í Morgunblaðinu
skömmu fyrir varaformannskjörið
í Framsóknarflokknum.
Nú vill svo skemmtilega til að
títtnefndur frambjóðandi og nú-
verandi umhverfisráðherra eru ein
og sama manneskjan. Og gott ef
hún flutti ekki tillögu á flokksþingi
Framsóknarflokksins um nauðsyn
þess að friða Eyjabakka? Öllum er
að vísu frjálst að skipta um skoðun
í ljósi breyttra aðstæðna, þótt
erfitt sé að átta sig á hvað hefur
breyst á Eyjabakkasvæðinu síðan í
nóvember í fyrra. Hins vegar þarf
engum að koma á óvart kúvending
ráðherrans í þessu máli. Það er í
eðli íslenskra stjórnmála að segja
eitt í dag og annað á morgun. Is-
lenskir stjórnmálamenn skipta um
skoðun eins og aðrir menn um
nærbuxur. Þetta eru bara viður-
kenndar leikfléttur í refskák ís-
lenskra stjórnmála og hafa tíðkast
áratugum saman.
XXX
VÍKVERJI er talsmaður nátt-
úruverndar og ber umhverfis-
mál mjög fyrir brjósti. Hann er
hins vegar andvígur hvers konar
öfgum í þessum efnum og hefur
megnustu andúð á þeim samtökum
manna, sem undir yfirvarpi nátt-
úruverndar hafa sérhæft sig í því
að berjast gegn viðleitni fólks á
norðurhveli jarðar að lifa af lands-
ins gæðum og því sem til fellur í
hafinu umhverfis. Fram til þessa
hafa þeir einkum beitt sér gegn
hvalveiðum, en nú eru teikn á lofti
um að næsta skrefið sé að berjast
gegn fiskveiðum.
Víkverji er ekki að grínast. Úti í
hinum stóra heimi starfa samtök,
„People for the Ethical Treatment
of Animals“ sem í raun og sann-
leika hafa hafið baráttu gegn fisk-
veiðum. Rökin eru einkum þau að
fiskveiðar séu afar sársaukafullar
fyrir fiskinn, hann „engist á öngl-
inum, kremst í trollinu og kafnar
þegar hann er dreginn á land“.
Auk þess, segja talsmenn samtak-
anna, er fiskur „afar óhollur“. Það
versta í þessu sambandi er að
mönnunum virðist vera fúlasta al-
vara. Menn þurfa ekki annað en að
fara inn á slóð PETA-samtakanna
á Netinu til að sjá hvílík hætta hér
er á ferðinni fyrir okkur norður-
álfubúa. (http://www.peta.com)
Liðsmenn PETÁ-samtakanna
eru grænmetisætur og einn tals-
manna þeirra er Bítillinn Paul
McCartney. Víkverji hefur alltaf
borið virðingu fyrir McCartney
sem tónlistarmanni, en kannski er
hann lifandi dæmi um að „margur
verður af aurum api“. Það er sjálf-
sagt átakalítið fyrir Paul McCart-
ney, með alla milljarðana sína á
þurru í svissneskum bönkum, að
bíta gras á búgarði sínum í
Skotlandi, firrtur öllu veruleika-
skyni á lífsbaráttu venjulegs fólks.
En benda má Paul McCartney og
öðrum grænmetisætum á að jurtir
eru líka lífverur. Það hlýtur að
vera „sársaukafullt fyrir gulrótina
að vera rifin upp með rótum og ét-
in lifandi", svo beitt sé sömu öfga-
fullu bjálfarökunum og PETA-
samtökin gera varðandi fiskveið-
ar.