Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ
on&woort hnniíW(?,
UMRÆÐAN
38 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
V ísindasiðanefnd
beitt valdi
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing-
arinnar - græns framboðs hefur
sent frá sér ályktun þar sem varað
er við þeim breytingum sem heil-
brigðisráðherra hefur ákveðið að
gera á vísindasiðanefnd. Tvennt
hefur gerst að frumkvæði ráðherr-
ans.
I fyrsta lagi var nefndin sett af í
heilu lagi. Eins og flesta rekur ef-
laust minni til var meirihlutinn í
þeirri nefnd sem nú hefur verið
leyst frá störfum mjög gagnrýninn
á vinnubrögð ríkisstjómarinnar
varðandi gagnagrunninn á heil-
brigðissviði og hélt uppi faglegri og
málefnalegri umræðu um áform
stjórnvalda.
I öðru lagi skal nú annar háttur
hafður á við að tOnefna í nefndina.
Tilnefningu í hana er nú breytt á
LYFJA
Lyf á lágmarksveröi
Kynning í LyQu
Lágmúla í dag
kl. 14-16.
NV KYNQLOÐ V6. V6 DtNTAL
HRYLULEGA
0OTT TY0OI0ÚMMÍ
Jón Steinar Gunnlaugsson
Vafningalaus
svör óskast
Forsætisráðherra sagði á
dögunum, að hann teldi siðlaust,
jafnve) löglaust, ef verðbréfafyr-
irtæki eins og Kaupþing hefði
keypt hlutabréf í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins í nafni aðila
(með kennitölu eins og það var
nefnt), sem hefðu falið fyrirtæk-
inu fjárvörslu með almennu um-
boði, og látið svo þá sömu aðda
selja sjálfu sér bréfin, svo að
fyrirtækið gæti hirt meginhluta
þess hagnaðar, sem það hefði
talið sig sjá fram á að yrði vegna
verðhækkunar bréfanna. Virtist
ráðherrann telja, að fyrirtækið
hefði gert þetta, án þess að við-
skiptavinir þess vissu um þessi
tilteknu viðskipti.
Af þessu tilefni sendi forstjóri
Kaupþings frá sér yfirlýsingu. í
henni fólust tómir útúrsnúning-
ar og var ekki vikið einu orði að
ofangreindu efni málsins. Af
þessum sökum er eðldegt að
óska eftir svörum forstjórans
við eftirtöldum spumingum:
1. Lét Kaupþing aðila, sem
fyrirtækið hafði fjái-vörslu fyrir,
kaupa hlutabréf í FBA á grund-
velli almenns umboðs td verð-
bréfaviðskipta sem slíkir aðilar
höfðu látið Kaupþingi í té?
2. Hafi Kaupþing gert þetta,
lét þá fyrirtækið þessa sömu að-
ila selja sjálfu sér bréfin á eftir á
grundvelli slíks almenns um-
boðs?
3. Hafi Kaupþing gert þetta,
var þá viðskiptamönnunum gert
kunnugt um þessi viðskipti, áður
en þau áttu sér stað? Ráðlagði
fyrirtækið þeim þá að selja sér
bréfin?
4. Hafi Kaupþing gert þetta,
hefur fyrirtækið þá hagnast á
verðhækkun slíkra bréfa eftir að
hafa eignast þau?
Ég vona að Morgunblaðið geti
séð af rými fyrir forstjórann til
að svara vafningalaust þessum
einföldu spurningum.
Höfundur er
liæstaréttarlögnmður.
þann veg að í stað þess
að óháðir aðilar tilnefni
fulltrúa er sá réttur
færður til ráðherra í
ríkisstjórninni en með
því móti er vísindasiða-
nefnd hnýtt fastari
böndum framkvæmda-
valdinu en verið hefur.
Auk þess að fækkað er
í nefndinni um tvo er
tdnefningarrétturinn
nú tekinn af lækna-
dedd og lögfræðidedd
Háskóla Islands, Líf-
fræðistofnun, Lækna-
félagi íslands, Fél.
hjúkrunarfræðinga og
Siðfræðistofnun.
Landlæknisembættið heldur sínum
tdnefningarrétti en ráðherrarnir
sem koma til með að skipa í nefnd-
Vísindasiðanefnd
Með fullri virðingu fyr-
ir því fólki sem nú er
skipað í nefndina þá er
það fullkomið hneyksli,
segir Ogmundur Jón-
asson, að á þessu við-
kvæma stigi skuli vísað
úr vísindasiðanefnd
þeim einstaklingum
sem hafa kafað ræki-
legast í gagnagrunninn.
ina framvegis eru menntamálaráð-
herra og dómsmálaráðherra auk
heilbrigðisráðherra.
Vísindasiðanefnd hefur m.a. það
verkefni að úrskurða um ágreining
sem upp kann að koma í tengslum
við miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði en sem kunnugt er
fara nú fram samningar um það
efni á milli ríkisstjómarinnar og
íslenskrar erfðagreiningar. Með
fullri virðingu fyrh- því fólki sem nú
er skipað í nefndina þá
er það fullkomið
hneyksli að á þessu
viðkvæma stigi skuli
vísað úr vísindasiða-
nefnd þeim einstak-
lingum sem hafa kafað
rækilegast í gagna-
grunninn; hafa til að
bera þekkingu á þessu
sviði og hugrekki td
að standa við sannfær-
ingu sína. Aðfarir rík-
isstjórnarinnar vekja
spurningar um frjálsa
gagnrýna hugsun á Is-
landi. I þessu tiltekna
máli hefur slík hugsun
Jrvælst fyrir ríkis-
stjórninni. I stað þess að svara
gagnrýni með rökum er beitt valdi.
Arni Sigurjónsson benti á það í
grein í Morgunblaðinu í síðustu
viku að orka kunni tvímælis hverjir
séu óháðir og hverjir ekki. Þegar
allt komi til alls séu starfsmenn
Háskóla Islands opinberir starfs-
menn og undirseldir framkvæmda-
valdinu. Þá bendir hann á að víða
leynist hagsmunaþræðir, einnig í
háskólum. Þetta kann að vera sjón-
armið en engu að síður ganga hefð-
ir háskóla út á að standa vörð um
sjálfstæða, gagnrýna hugsun og
langur vegur þykir mér vera á milli
þess að Siðfræðistofnun Háskóla
Islands tilnefni í vísindasiðanefnd
eða Bjöm Bjarnason menntamála-
ráðherra sem reyndar hefur þegar
tdnefnt skrifstofustjóra sinn.
Allt þetta vekur spurningar um
aðskdnað framkvæmdavalds og
úrskurðaraðda á borð við vísinda-
siðanefnd. Heilbrigðisráðherra
telur sig hafa vald til að breyta
reglugerðum um þetta efni ein-
hliða. Að okkar dómi hefur heil-
brigðisráðherra farið offari í þessu
máli enda mun þingflokkur
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs beita sér fyrir því að
málið verði tekið til umfjöllunar á
Alþingi þegar það kemur saman í
byrjun október.
Höfundur er formaður þingflokks
Vinstri grænna.
Ögmundur
Jónasson
Fólk, viðtöl, dagskrá
Dagskrárblað Morgunblaðsins inniheldur dagskrá sjónvarps- og
útvarpsstöðva í hálfan mánuð.
í blaðinu er einnig að finna viðtöl, greinar, kvikmyndadóma,
fraega fólkið og stjörnurnar, krossgátu, yfirlit yfir beinar útsend-
ingar frá íþróttaviðburðum og fjölmargt annað skemmtilegt efni.
Hafðu Dagskrárblaó Morgunblaðsins alltaf til taks
nálaegt sjónvarpinul
(g'mbUs
Fréttagetraun á Netinu
Aðsendar greinar á Netinu
v'§> mbl.is
-ALLTAF= G/TTHXSAÐ A/ÝTT
fdiQ
tannlæknafélagið
með notkun á sykurlausu
tyggigúmmii á borð við V6.