Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður Heklu hf. 114 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins
Áætluð heildar-
velta á árinu 10
milljarðar
Ih| hekla hf. r Úr milliuppgjöri jan.-júní 1999 El
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 5.115,9 4.908,3 3.774,1 , 3.543,4 +36% +39%
Rekstrarhagnaður án fjármagnsliða Fjármagnskostnaður 207,6 (34,9) 230,7 (2,1) -10% +1562%
Hagnaður af reglulegri starfsemi Aðrar tekjur Reiknaðir skattar 172,7 0,5 58,9 228,6 5,4 74,4 -24% -21%
Hagnaður tímabilsins 114,3 159,6 -28%
Efnahagsreikningur 30. júní 1999 1998 Breyting
I Elgnir: \
Veltufjármunir Milljónir króna 2.285,4 1.434,3 +69%
Fastafjármunir 847,3 863,4 -2%
Eignir samtals 3.132,7 2.297,7 +36%
| Skuldir og eigið fó: | Skammtímaskuldir 1.765,4 1.088,9 +62%
Langtímaskuldir 252,7 341,6 -26%
Eigiðfé 1.114,6 867,2 +29%
Skuldir og eigið fé samtals 3.132,7 2.297,7 +36%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 i 1998 Breyting
Eiginfjárhlutfall 36% 38%
Veltufjárhlutfall 1,29 1,32
Veltufé frá rekstri Milijónir króna 153,6 182,9 -16%
HAGNAÐUR Heklu hf. fyrstu sex
mánuði ársins nam 207,6 milljónum
króna án fjármagnsliða, en að frá-
dregnum fjármagnskostnaði var
hagnaður af reglulegri starfsemi
172,7 milljónir króna. Að teknu tilliti
til annarra tekna og reiknaðra skatta
nam hagnaðurinn 114,3 milljónum
króna.
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu
hf., segist vera sáttur með afkomuna
fyrstu sex mánuði þessa árs þó
hagnaður hafi minnkað sem hlutfall
af veltu frá því sem var í fyrra.
„Það stafar af harðnandi sam-
keppni, en árið í fyrra var reyndar
það besta í sögu félagsins. Við bjugg-
umst aldrei við því að geta náð slík-
um árangri aftur og tölurnar sem nú
liggja fyrir standast þær áætlanir
sem við höfðum gert fyrir árið, en
við áætlum að heildarvelta Heklu í
ár verði 10 milljarðar króna,“ sagði
Sigfús.
Hann sagði að fólksbílamarkaður-
inn fyrstu sex mánuði ársins hefði
aukist um 25% frá því í fyrra, en á
sama tíma hefði hlutdeild Heklu hf.
aukist um 32%.
,Á sama tíma í fyrra höfðum við
17,3% markaðshlutdeild, en erum
núna með 20,7% hlutdeild og erum
við mjög sáttir við þá niðurstöðu.11
Sigfús sagði að bílamarkaðurinn
hefði verið mjög lélegur hér á landi í
mörg ár og meðalaldur bíla verið
orðinn mjög hár. Því hefði endurnýj-
unarþörfin verið orðin mikil, en bíla-
floti landsmanna mætti ekki verða
meira en tíu ára gamall vegna þess
hve dýr hann yrði þá í rekstri og
mengaði mikið.
„í okkar áætlun fyrir næsta ár
gerum við ráð fyrir minni bílasölu en
í ár því salan getur ekki haldið enda-
laust áfram eins og hún hefur verið
undanfarin misseri. Við erum hins
vegar mjög sáttir við það að í þess-
um stækkaða markaði skulum við
auka hlutdeild okkar,“ sagði Sigfús.
Hvað varðar véladeild Heklu hf.
sagði Sigíús að auknar framkvæmdir
í sambandi við virkjanir og vegagerð
hefðu þýtt mjög góða sölu á Ca-
terpillar-tækjum og Scania-vörubíl-
um.
„Þá seldum við á þessu ári stóra
Caterpillar-aðalvél í togskipið Börk
sem væntanlegt er til landsins nú um
mánaðamótim, en þar er Hekla kom-
in inn á nýjan markað því við höfum
ekki áður getað útvegað aðalvélar í
svona stór togskip. Við væntum mik-
ils á þessum markaði því þar er mikil
endurnýjunarþörf. Síðan var það
mjög ánægjulegt að við skyldum ná
samningi við Landsvirkjun vegna
Vatnsfellsvirkjunar með túrbínur og
rafbúnað frá General Electric.
Einnig náðum við samningi við
Landspítalann um kaup á sneið-
myndatæki frá General Electric,
þannig að alls staðar í fyrirtækinu
hjá okkur er góður gangur. Þá má
ekki gleyma því að nýja hafrann-
sóknaskipið er væntanlega að koma
til landsins í október, en það er með
Caterpillar-aðalvélar," sagði Sigfús.
íslenska sjón-
varpsfélagið
hf. kaupir
Nýja bíó
ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið hf. hef-
ur keypt kvilmiyndafyrirtækið Nýja
bíó að fullu. Á bak við íslenska sjón-
varpsfélagið standa Árni Þór Vigfús-
son, Kristján Ragnar Kristjánsson og
Hólmgeir Baldursson, auk ónefndra
aðila. Félagið festi nýlega kaup á
sjónvarpsstöðinni Skjá 1. Að sögn
Árna Þórs er ætlunin að „enduropna"
sjónvarpsstöðina í byrjun október
undir nafhinu Sl. „Kaupin á kvik-
myndafyrirtækinu eru liður í því
markmiði þar sem aðaláhersla verður
lögð á innlenda dagskrárgerð," segir
Ámi Þór.
Kvikmyndafyrirtækið Nýja bíó er
tíu ára á þessu ári. Með kaupunum
eignast Guðmundur Kristjánsson og
Guðbergur Davíðsson, fyrrverandi
eigendur Nýja bíós, 10% í íslenska
sjónvarpsfélaginu. „Aðalástæða fyrir
kaupunum er mikil rekstrarhag-
kvæmni þar sem við ætlum aðallega
að leggja áherslu á innlenda dag-
skrárgerð hjá Sl. Það er því mjög
hagkvæmt að eiga stúdíó og aÚan
búnað til kvikmyndagerðar. Það er
einnig mikill mannauður hjá fyrirtæk-
inu, starfsfólkið er mjög reynt í út-
sendingum og kvikmyndatöku," segir
Arni Þór. Að hans sögn verður Nýja
bíó áfram rekið sem sjálfstætt fyrir-
tæki með sama framkvæmdastjóra.
Ámi Þór segir viðræður við nokkra
sterka fjárfesta um að koma að Is-
lenska sjónvarpsfélaginu standa yfir
og niðurstöðu að vænta um miðjan
september.
SIÓVÁ - ALMENNAR F NIÐURSTÖÐUR ÚR MILLIUPPGJÖRI 1999
Rekstrarreikningur Vátryggingarekstur: króna: 1999 Jan,- júní 1998 Breyting
Eigin iðgjöld 1.931 1.667 +15,8%
Fjárf.tekjur af vátrygg.rekstri Eigin tjón 587 -2.001 392 -1.669 +49,7% +19,9%
Hreinn rekstrarkostnaður -367 -334 +9,9%
Hagnaður af vátryggingarekstri 150 56 +167,9%
Fjármálarekstur:
Fjárfestingartekjur 802 736 +9,0%
Fjárfestingargjöld Yfirfært á vátryggingarekstur -139 -587 -91 -392 +52,7% +49,7%
Hagnaður af fjármálarekstri 76 253 -70,0%
Önnur gjöld af reglul. starfsemi Skattar -22 -27 -11 -79 100,0% -65,8%
Hagnaður tímabilsins 177 219 -19,2%
Eignir:'' w króna: 30. júní 1999 31. des. 1998 Breyting
Eignir samtals: 17.428 15.531 +12,2%
Skuldir og eigið fé:
Eigið fé 2.569 2.374 +8,2%
Skuidir samtals Skuldir og eigið fé samtals 14.859 17.428 13.157 15.53L +12,9% +12,2%
Árshlutauppgjör Sjóvár-Almennra trygginga hf.
Bifreiðatjón valda
versnandi afkomu
HAGNAÐUR af starfsemi Sjóvár-
Almennra trygginga hf. nam 177
milljónum króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins en var 219 milljónir
króna á sama tímabili í fyrra. Vá-
tryggingarekstur félagsins skilaði
150 milljónum króna nú en skilaði 56
milljónum króna á sama tímabili í
fyrra. Hagnaður af fjármálarekstri
félagsins nam 76 milljónum króna
nú en var 253 milljónir króna í fyrra.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra, segir að
lækkun hagnaðar félagsins megi
fyrst og fremst rekja til aukningar
tjóna.
„Afkoma vátryggingarrekstrarins
fór versnandi á fyrri hluta ársins og
þar eru bifreiðatjónin að valda okk-
ur mestum erfiðleikum. Aukning
þeirra er langt umfram það sem
eðlilegt getur talist og endurspeglar
það sem við höfum verið að segja, að
afkoma í bifreiðatryggingum hafi
verið afskaplega slök. Það er ekki
fyrr en á seinni hluta þessa árs sem
væntanlega sést að við höfum náð að
snúa þessari þróun við. Þetta er því í
fullu samræmi við málflutning okkar
um að iðgjöld bifreiðatrygginga hafi
verið orðin alltof lág.
Það er tvennt sem veldur aukn-
ingunni. I fyrsta lagi hefur tjónum
fjölgað hjá okkur umfram fjölgun
trygginga og í annan stað, sem veg-
ur mun meira, fara tjónabætur
hækkandi vegna breytinga á skaða-
bótalögum, launaþróunar í landinu
og fleiri atriða.
Fjármálareksturinn hefur hins
vegar gengið vel, það sem af er ár-
inu og hann er í raun og veru uppi-
staðan í heildarniðurstöðu þessa
tímabils. Samkvæmt reglugerð er
tekjum úr fjármálarekstri skipt ann-
ars vegar á vátryggingarreksturinn
og hins vegar á fjármálarekstur fé-
lagsins. Því færast 587 milljónir sem
tekjuliður í vátryggingarrekstur fé-
lagsins og þannig má segja að fjár-
málareksturinn beri uppi afkomu fé-
lagsins.
I grófum dráttum má segja að við
séum nokkuð sáttir við þessa niður-
stöðu í ljósi þess að vátryggingar-
reksturinn er erfiðari nú heldur en
verið hefur. Við teljum að þetta sé
viðunandi miðað við ástandið á
markaðnum,“ segir Einar Sveins-
son.
Vestfjarðaleið
Ferðaskrifstofa
Skógarhlíð 10
og veislu í mat og
Fiogið er með Air Atlanta og
<xt(va'iarl ægð/ Æ
<t John s
* jjý verslunarborg’
Þar er verðlagið gott °9 afqreiðslutíma verslana
með góðum tWt-Líff %2£S*m- V
gist a fYrsta íl0 ^opafslættR
Brottför frá Keflavík:
8.nóv.kl.6.40og
heim 10. nov.kl. 23.50
Brottför frá Keflavík:
29.nóv. kl. 6.40 og
heim1.des.kl. 23.50
28.900,'
Bóhan irhey
S Urnmto'óHoMavnn.
lljhðað er við að ferðin se greidd
fyrir 15. septn.k.
Sími
562-9950