Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 23
Reuters
Hugo Chavez, forseti Venesúela, ræðir við fréttamenn.
Stjórnmáladeilur í Venesúela
Forsetinn
veitist að New
York Times
Caracas. Reuters.
HUGO Chavez, forseti Venesúela,
vísaði á sunnudag skoðunum leið-
arahöfundar bandaríska dagblaðs-
ins New York Times algerlega á
bug og kallaði leiðarann „stórkost-
legar lygar“ en þar er hann sakaður
um að hafa sniðgengið lýðræðis-
venjur. Sagði Chavez að blaðið væri
að reyna að blanda sér í innanríkis-
mál í Venesúela.
I vikulegum útvarpsþætti sínum
er kallast „Halló forseti" og sendur
var út á sunnudag, lýsti forsetinn
leiðaranum sem „dæmi um lágkúru
og skort á skilningi á því hvað hefur
gerst hér“.
Chavez, sem komst til metorða
árið 1992 er hann stjórnaði mis-
heppnuðu valdaráni, var kjörinn
forseti Venesúela í desember sl. og
hlaut fleiri atkvæði en nokkur annar
forseti ríkisins síðan lýðræði komst
á í landinu. I upphafi forsetatíðar
sinnar hét hann borgurum landsins,
sem eru orðnir langþreyttir á spillt-
um stjómmálaflokkum og út-
breiddri fátækt, miklum breyting-
um.
I leiðara New York Times á laug-
ardag voru starfsaðferðir forsetans
gagnrýndar harðlega og Venesúela-
búar hvattir til að fylgjast vel með
því sem hann tekur sér fyrir hend-
ur. „Hann hefur, til þessa dags, sýnt
málamiðlunum, sem eru lýðræðinu
nauðsynlegar, litla virðingu," sagði í
leiðara blaðsins. Þá er Chavez sak-
aður um að „draga til sín völd“ og
„misnota sérstakt stjómarskrár-
þing landsins," sem kjörið var til í
júlí og er ætlað að bæta stjórnar-
skrá landsins er rituð var árið 1961.
New York Times gagnrýndi þing-
ið, en 90% þeirra þingmanna er þar
sitja em stuðningsmenn forsetans,
fyrir að styðja tillögur Chavezar um
að yfirtaka sumar starfsskyldur rík-
isstjórnarinnar, þvert á dóm hæsta-
réttar landsins sem kvað á um að
hlutverk þingsins ætti eingöngu að
vera að endurskrifa stjómarskrána.
I gær lýsti Cecilia Sosa, forseti
hæstaréttar Venesúela, því yfir að
hún segði starfi sínu lausu til að
mótmæla dómi hæstaréttar þar sem
því var hafnað að stjónarskrárþing-
ið hefði dregið til sín of mikil völd
með því að geta rekið dómara og
breytt dómum. Sagði hún dóminn
vera kúvendingu frá fyrri dómum
og í raun hafi hæstiréttur landsins
framið „sjálfsmorð".
Líkt við öfgafullan
lýðskrumara
í leiðara New York Times var
Chavez húðskammaður fyrir að
skipa hershöfðingja og fyrrverandi
félaga sína frá því í valdaránstil-
rauninni í há embætti í ríkisstjóm-
inni og sakaður um að draga til sín
allt of mikil völd. „Það er erfitt að
sjá hvernig jakobínskar ákvarðanir
Chavez og þingsins geti hjálpað
Venesúela," sagði í leiðaranum sem
líkti Chavez við öfgafulla lýð-
skrumara í frönsku byltingunni.
Þrátt fyrir einn versta efnahags-
samdrátt í þessu fjórða stærsta
hagkerfi Suður-Ameríku sl. tíu ár
hefur Chavez notið mikillar hylli.
Sýna viðhorfskannanir að hann
njóti stuðnings um 70% landsmanna
sem em 23 milljónir.
DAELIH SÍMEVIVnJIVAR |
REYKJAVÍK BB. AELJST :
Borgarholtsskóli :
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins •
Verzlunarskóli (slands •
Viðskiptaháskólinn í Reykjavík
REYKJAJMES
Grindavík
Reykjanesbær
Sandgerði
Svartsengi
Vogar
I —
FRAMX/MIMOA.
HAEUft Pl/V/V
STARFSMENNTARÁÐ
FÉLAGSMALARADUNtYTISINS
Nokkrir umbótasinnar í Rússlandi taka höndum saman
Kynslóðaskipta
þörf í stjórnmálum
Moskvu. Reuters. .
NOKKRIR af þekktari umbótasinnum af yngri kynslóðinni í Rússlandi
urðu í gær sammála um að taka höndum saman fyrir þingkosningamar í
desember. Hinn nýi sameinaði flokkur hefur ekki enn hlotið nafn en verður
formlega stofnaður á fundi, sem haldinn verður um næstu helgi.
McCain
höfðar til
miðjunnar
Washington. The Daily Telegraph.
JOHN McCain, öldungadeild-
arþingmaður sem vonast eftir
að verða forsetaframbjóðandi
bandaríska Repúblikanaflokks-
ins, hefur hafnað andstöðu
flokksins við fóstureyðingar.
McCain lýsti því yfir að
hann myndi ekki styðja ógild-
ingu niðurstöðu Hæstaréttar
frá 1973 um að konur eigi
„rétt á að velja“ um fóstureyð-
ingu eða ekki. Segja frétta-
skýrendur að með yfirlýsing-
unni sé McCain að reyna að
höfða til miðjusinnaðra kjós-
enda flokksins, sérstaklega í
Kaliforníu, þaðan sem 54 af
þeim 538 fulltrúum, sem kjósa
forsetann, era. Getur stuðn-
ingur í Kaliforníu því skipt
sköpum er kemur að forseta-
kjörinu.
Sergej KMjenkó, fyrrverandi for-
sætisráðherra Rússlands, tilkynnti
að Borís Nemtsov og flokkur hans,
Unga Rússland, hefði samþykkt að
ganga til liðs við kosningabandalag
þeima Kiríjenkós og umbótasinnans
Anatólís Tsjúbajs, sem er fyrrver-
andi aðstoðarforsætisráðherra.
„Við upphaf nýs árþúsunds þurf-
um við hægt og sígandi að losa okk-
ur við hina öldraðu og afar, afar
sjúku valdhafa, ekki aðeins í Kreml
heldur einnig annars staðar," sagði
Nemtsov, sem er 39 ára, við frétta-
menn.
Þykir líklegt að Nemtsov hafi
þama ekki aðeins verið að vísa til
Borís Jeltsíns Rússlandsforseta
heldur einnig þess að Jevgení
Prímakov, fyrrverandi forsætisráð-
herra, er sjötugur að aldri en eins
og kunnugt er virðist kosninga-
bandalag Prímakovs og Júrís
Lúzhkovs, borgarstjóra í Moskvu,
vera sigurstranglegt í þingkosning-
um sem fram eiga að fara í desem-
ber.
Hefðu viljað breiðara
kosningabandalag
Frá hrani Sovétríkjanna árið
1991 hafa hinir ungu umbótasinnar í
Rússlandi, sem vilja auka frelsi í
efnahagsmálum, margsinnis klofnað
innbyrðis og þannig valdið því að al-
menningur hefur ekki séð þá sem
raunhæfan valkost við Kommún-
istaflokkinn, sem er stærstur þing-
flokka í dúmunni, neðri deild rúss-
neska þingsins.
Og þótt samstarf þeirra Kíríj-
enkós, Nemtsovs og Tsjúbajs teljist
áfangi á leið til að sameina sundraða
miðhægi’imenn er ljóst að mikið
verk er enn óunnið. Tilraunir til að
efna tO samstarfs fjögurra fyrrver-
andi forsætisráðherra, sem allir
hafa mátt þola brottrekstur úr emb-
ætti af höndum Borís Jeltsíns for-
seta á undanförnum átján mánuð-
um, fóra t.a.m. út um þúfur og ljóst
að þeir munu fara fram í kosningun-
um hver fyrir sinn flokkinn.
Fréttaskýrendur telja að það
hefði mjög styrkt stöðu umbóta-
sinna ef annaðhvort Sergej Stepas-
hín eða Viktor Tsjemómyrdín, sem
báðir era fyrrverandi forsætisráð-
herrar, hefðu samþykkt að ganga til
liðs við þá. Hinn frjálslyndi um-
bótasinni Grígorí Javlinský, leiðtogi
Jabloko-flokksins, neitaði einnig
öllu samstarfi við skoðanabræður
sínar. „Eins og þið hafið orðið vör
við hefur reynst erfitt að mynda
heildstætt kosningabandalag hægri
manna,“ viðurkenndi Kíríjenkó við
fréttamenn í gær. „Já, ég get svar-
að því vafningalaust að við hefðum
viljað að þetta bandalag væri breið-
ara.“