Morgunblaðið - 28.08.1999, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
1 ÍJ'J höfum txi/aðV l/,'£ iStuðurn vlð iölf-i/eitinga-yrajndar ri<S , 7 menn "V AÁ,<s '—JP'—Þr/svar- < j V ''S/ nn-urr^ ! þú ertfzv L-^þo.1 Ql&Su./- e,Yu semv/*fitöfiun7)/y>/g. '7/ver : íl Ki/tbto cko íí ezðo.1 uppi ■ \ ^zx~-%'(. i
Ferdinand
Smáfólk
TWI5 15 THE FIR5T
TIME I'VE EVER WATCHED
A BALL 6AME..
Þetta er í fyrsta skipti sem Langar þig í kaldan drykk?
ég horfí á boltaleik.. - Það væri inndælt..
Hingað..tvo,
þakka þér fyrir!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ófær skafl í Kinninni á Breiðadalsheiði 21. júlí sl.
Vestfjarða-
hringurinn
Frá Kristni Snæland:
MÖRGUM er kunnugt um það að
Vestfírðingar horfa með ólund til
þess er landsmenn aka hringveg-
inn um landið í frístundum sínum
en sleppa Vestfjörðum. Vestfírðir
eru þó um margt hin mesta ger-
semi. Margt mætti þó bæta. Sé ek-
ið norður Strandir og hringurinn
tekinn rangsælis þá má fyrst nefna
Arngerðareyri. Þann stað hefði
mátt varðveita og gera að safni. Nú
stendur þar eitt eftir íbúðarhúsið
með brotna glugga og mjög á
fallanda fæti. Þetta hús var á sín-
um tíma eitt vandaðasta og glæsi-
legasta hús á Vestfjörðum.
Litla laugin vegagerðarmanna í
ísafirði þyldi alveg smásnyrtingu
og þó ekki væri annað en að hægt
væri að leggja bfl þar við veginn.
Eftir langa ferð um Strandir eða
Djúp væri snyrtiaðstaða á öðrum
hvorum þessara staða eða báðum
vel þegin.
Á skemmtiferð skoðar fólk
gjaman söfn og þá er gott að koma
í Neðsta á ísafírði og í Ósvör við
Bolungarvík. Fólki á ferðalögum
þykir líka mikils um vert að kom-
ast á góða útsýnisstaði. Komin til
Isafjarðar væri góð hugmynd að
aka gamla veginn yfir Breiðdals-
heiðina, jafnvel úr skarðinu upp að
fjölsímasendunum, þar er nú út-
sýnið frábært. Ljúka svo þessari
fjallaferð með því að aka niður í
Önundarfjörð, kaupa gæðaharðfisk
í Breiðadal og aka loks göngin til
baka. Út úr munna ganganna kom-
in má virða fyrir sér eitt vanhugs-
aðasta tjaldsvæði landsins, þar sem
sólin er sest um hásumarið, svona á
þeim tíma sem flestir eru famir að
huga að því að grilla eða njóta
kvöldsólar við kvöldmatinn. Gallinn
við þessa hugsuðu ferð er sá að
ekki virðist hugsað íyrir því að
heiðin og toppur hennar hafi að-
dráttarafl fyrir ferðafólk. Veginum
úr skarðinu upp á toppinn þyrfti að
halda vel fæmm og auðvitað á að
opna gamla veginn um heiðina. í
sumar var skafl í Kinninni og neðst
að sunnanverðu var búið að ýta
veginum í sundur svo ekki varð um
það villst að ekki var ætlast til þess
að einhverjir væru að aka þar um
að þarflausu.
Við þá skemmtan að eyða ein-
hverjum dögum á Isafírði og í ná-
grenni og auðvitað krónum í mat
og gistingu þá dettur sumu fólki í
hug að gaman væri að skreppa yfir
í Skálavík og aka í leiðinni upp á
Bolafjall, þaðan er stórbrotið út-
sýni yfir í Jökulfirði og inn allt
Djúp. Vegurinn upp á fjallið var jú
gerður fyi-ir fullhlaðna steypubfla
svo þangað upp fer hver bfll auð-
veldlega. Þangað upp óku fornbfla-
klúbbsfélagar bflum sínum eitt ár-
ið. Nú er girt fyrir veginn og skýr-
ingin sem gefin er á skilti við
hlekkina er skröksaga. Með bann-
inu á að vera að vernda fólk gegn
geislun frá radarstöðinni. Væri
skrök þetta satt væri fjallið að
sjálfsögðu allt afgirt og algerlega
komið í veg fyrir að gangandi
kæmu á fjallið. Sannleikurinn kann
að vera sá að NATO þorir ekki að
hafa veginn opinn vegna banda-
rískrar hræðslu við að óhapp á veg-
inum kynni að leiða til bótakröfu á
varnarbandalagið. Slíkt væri ein-
falt að fyiirbyggja með því að nota
skiltið niðri við hlekkina til þess að
greina vegfarendum frá því að upp
á Bolafjall aki menn algerlega á
eigin ábyrgð. (Eins og við íslend-
ingar gemm á öllum öðrum veg-
um.)
í Selárdal þarf að gera átak án
tafar til að verja, vernda og byggja
upp hina stórkostlegu drauma
Samúels Jónssonar.
Að Hvallátrum þarf að byggja
upp verbúðirnar að hluta, a.m.k.
Allt það góða sem segja má um
Vestfirði og Vestfirðinga eftir
svona hringferð verður að bíða en
nefna má nokkur nöfn. Djúpavík,
Laugarhóll, Neðstikaupstaður,
Finnabær, Stekkjaból og Vagninn
á Flateyri, og ekki síst byggðasafn-
ið að Hnjóti.
KRISTINN SNÆLAND,
Engjaseli 65,109 Rvk.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.