Morgunblaðið - 28.08.1999, Qupperneq 76
1 tími í mat, 2x20
mínútur í kaffi og
2 tímar í biö á dag?
Það er dýrt að láta starfsfólkið biðai
Tölvukerfi sem virkar
563 3000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Álstyrkur í Elliða-
-ánum við hættumörk
ÁLSTYRKUR í Elliðaánum fer
upp í hættumörk fyrir seiði
ferskvatnsfiska í júní og júM, að
sögn Sigurðar Reynis Gíslasonar,
prófessors við Raunvísindadeiid
Háskóla íslands.
,Álið leysist líklega úr gruggi .á
botni Elliðavatns, eða jafnvel úr
gömlu mýrunum, sem var fleytt á
þegar stíflan var byggð,“ sagði Sig-
urður Reynir.
„Þegar þörungarnir eru á fuUu
að tUlífa í júní og júlí, hækkar ph-
gUdi vatnsins það mikið að ál fer að
losna og álstyrkurinn fer upp í
iijættumörk fyrir seiði ferskvatns-
fiska. Mengun sem þessi hefur ver-
ið stærsti skaðvaldurinn í lax-
veiðiám Norður-Ameríku og
Skandinavíu, en þar gerist þetta
þannig að súrt regn berst á berg
sem er viðkvæmt fyrir sýringu og
þannig leysist ál úr berginu og í ár
og drepur fisk.“
Þrjú léleg veiðiár
Að sögn Sigurðar Reynis eru tU
margar rannsóknir á eituráhrifum
áls við lágt ph-gUdi. Hér á landi
gerist þetta hinsvegar við hátt ph-
gildi og er það mjög sjaldgæft í
náttúrunni og því eru ekki til marg-
ar rannsóknir á eituráhrifum áls á
fisk við þetta háa ph-gUdi.
Laxveiði í Elliðaánum hefur
verið léleg sl. tvö ár og eru horfur
á að veiðin í ár verði einnig léleg.
Veiði í ánum hefur verið skráð
mestalla þessa öld og hefur það
ekki áður gerst að þrjú léleg veiði-
ár komi í röð. Von er á ítarlegri
skýrslu um lífríki Elliðaáa, en
borgaryfirvöld munu á grundvelli
hennar taka ákvörðun um aðgerð-
ir tU að styrkja fiskgengd og líf-
ríki ánna.
■ Ástæða/38
Kvikmynda-
hátíðin hafin
KVIKMYNDAHÁTÉÐ í Reykja-
vík var formlega sett í Háskóla-
bíói í gærkvöldi af Birni
Bjarnasyni menntamálaráð-
herra. Heiðursgestur hátíðar-
innar er serbneski kvikmynda-
leikstjórinn Emir Kusturica og
er kvikmynd hans „Svartur
köttur, hvítur köttur" jafnframt
opnunarmynd hátíðarinnar.
Kusturica hitti íslenska kvik-
myndagerðarmenn við opnun-
ina í gær og fór vel á með hon-
um og einum þekktasta kvik-
myndaleikstjóra fslands á er-
lendri grund, Friðriki Þór Frið-
rikssyni, þegar þeir hittust í
gær.
■ Skapmaður með/67
Kítín ehf.
40% hlutur
seldur á 85
milljónir
SR-MJÖL hefur selt allan hlut sinn,
40%, í fyrirtækinu Kítin ehf. á Siglu-
firði fyrir 85 milljónir króna. Kítín
ehf. framleiðir efnið kótósan, sem
unnið er úr rækjuskel og meðal ann-
ars notað í matvæla- og snyrtivöru-
iðnaði. Þórður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri SR-mjöls, segir
ástæðu sölunnar einkum vera erfið-
an rekstur í bræðslugeiranum.
Kaupendur bréfanna eru Þormóð-
ur rammi-Sæberg hf., sem nú á
73,91% hlut í fyrirtækinu, og Genís
ehf., sem á 26,09%. Þórður segir að
gott verð hafi fengist fyrir bréfin.
■ SR-mjöl/22
Gagnaflutningar
Landssímans
Lækkun
gjaldskrár
framundan
F^STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra tilkynnti í gær um lækkun
á gjaldskrá Landssímans hvað varð-
ar gagnaflutninga. Stefnt er að því
að lækkunin eigi sér stað í næsta
mánuði og í síðasta lagi fyrir 1. októ-
ber. Sagðist hann ekki geta tilgreint
um hversu mikla lækkun væri að
ræða en fullyrti að hún yrði „veru-
leg“.
Tilkynningin kom í kjölfar ávarps
samgöngumálaráðherra á opnunar-
hátíð Islenskrar miðlunar sem fram
fór, að viðstöddum forseta íslands,
hen-a Ólafi Ragnari Grímssyni, á
Þingeyri, Suðureyri og í höfuðstöðv-
um fyrirtækisins að Krókhálsi 5a í
Reykjavík þar sem ráðherra var
^K^taddur.
' ’ Samgöngumálaráðherra kvaðst
hafa rætt við forsvarsmenn Lands-
símans og Póst- og fjarskiptastofn-
unar um hvemig hægt væri að koma
til móts við fyrirtæki, svo sem Is-
lenska miðlun, sem hefðu áhyggjur
af háum kostnaði, svo og notendur út
um landið. „Nú hefur það verið upp-
lýst af hálfu Landssímans í viðræð-
um við mig að það muni verða gerð
breyting á gjaldskránni. Það er auð-
vitað gert vegna þess að gagnaflutn-
ingarnir eru að stóraukast.
Ég get staðfest að það verður
veruleg lækkun á kostnaði við
gagnaflutninga, svo mikil lækkun að
ég tel að það geti ef til vill skipt
sköpum um framtíð þessarar þjón-
-»&stu,“ sagði samgöngumálaráðherra.
■ Þáttaskil/6
------------
SH afskrifar
tap í Rússlandi
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna afskrifaði 362 milljónir króna á
fyrstu sex mánuðum ársins vegna
fjárfestinga í Rússlandi. Um er að
ræða varúðarafskriftir af hálfu fyr-
—sjjrtækisins vegna mikillar áhættu í
rússnesku efnahags- og stjóm-
málaumhverfi. Tapið vegna þessara
fjárfestinga verður eitthvað að sögn
Gunnars Svavarssonar en óljóst hve
mikið og því hafi þessi leið verið far-
in. Tap á rekstri SH fyrstu sex mán-
uði ársins nam 153,7 milljónum
króna.
■ Hagnaður af/22
Morgunblaðið/Þorkell
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi á Egilstöðum
Eindreginn stuðningur
við virkjun og stóriðju
SMÁRI Geirsson, formaður Samtaka sveitarfé-
laga á Austurlandi, sagði í setningarávarpi sínu á
aðalfundi samtakanna sem lauk í gær, að engin
áhersla væri lögð byggðaþáttinn í umræðu um
virkjun fallvatna á Áusturlandi eða íbúaþróun í
landshlutanum. Á fundinum var afgreidd ályktun
þar sem lýst er yfir afgerandi stuðningi við
Fljótsdalsvirkjun og var hún samþykkt með 42
atkvæðum gegn tveimur. Smári sagði eftir fund-
inn í gær að þessi niðurstaða væri mjög afger-
andi og sýndi mikla samstöðu.
I ályktuninni kemur meðal annars fram að
ekkert virkjunarsvæði hafi verið rannsakað jafn-
mikið og virkjunarsvæði Fljótsdalsvirkjunar, og
að allar úttektir sýni að tilkoma orkufreks iðju-
vers muni hafa jákvæð áhrif á íbúa- og efnahags-
þróun á Austurlandi.
Smári sagði að svo virtist sem almenningur
gengi út frá því að á Austurlandi væru einvörð-
ungu hreindýr, gæsir og háfjallagróður. „Eg á
fyrst og fremst við það að í allri umræðunni um
umhverfismat virðist sem menn leggi enga
áherslu á það að ræða byggðaþáttinn í þessu
máli,“ segir Smári.
Umfjöllun fjölmiðla gagnrýnd
Hann segir að sömuleiðis hafi ekki verið rætt
um íbúaþróunina á Austurlandi, hvernig hún
hafi verið og hvernig stóriðja í þessum lands-
hluta geti breytt henni. „Ekki hefur heldur ver-
ið rætt um hvaða máli þetta geti skipt fyrir
austfirskt atvinnulíf. Það eru margir fjölmiðlar
sem gefa þessum þáttum engan gaum en fjalla
þeim mun meira um gæsir og hreindýr," segir
Smári.
Smári kveðst hafa komið að þessu máli á aðal-
fundinum því fulltrúar á fundinum hafi fylgst
með umræðunni um þetta mál í forundran.
Aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi
lauk í gær. Þrjú mál voru helst til umfjöllunar,
þ.e. ferðaþjónusta á Austurlandi, tekjustofnar
sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga í
Ijósi breyttrar kjördæmaskipunar.
■ Virkjunarframkvæmdir/6