Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Könnun Náttúruverndarsamtaka Islands um Fljótsdalsvirkjun Um 73% vilja lögform- legt umhverfísmat MEIRIHLUTI íslendinga, eða um 73% lands- manna, telja að það skipti miklu eða öllu máli að fram fari lögformlegt mat á umhverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar. Þetta kom fram í skoðana- könnun, sem Gallup gerði fyrir Náttúruverndar- samtök íslands dagana 28. september tO 10. október. í fréttatilkynningu frá Náttúruverndarsam- tökunum segir: „Þessi afdráttarlausa niðurstaða er enn á ný skýr skilaboð til stjómvalda um að ráðast ekki í framkvæmdir án undangengins mats á umhverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar." í könnuninni var spurt: „Finnst þér það skipta öllu, miklu, litlu eða engu máli að fram fari lög- formlegt mat á umhverfisáhrifum Fljótsdals- vii-kjunar þar sem Eyjabakkalón yrði?“ Af þeim sem tóku afstöðu töldu 27% það skipta öllu máli, 46% töldu það skipta miklu máli, 13% litlu máli og 14% engu máli. Hlutfall þeirra sem afstöðu tóku var 85,6%. í könnuninni kemur einnig í ljós að um 50% íbúa á Austurlandi telja það skipta öllu eða miklu máli að fram fari mat. Þar af leiðandi telja um 50% að það skipti engu eða litlu máli. í samskonar könnun, sem gerð var í ágúst síð- astliðnum, töldu heldur fleiri, eða 79% lands- manna, það skipta öllu eða miklu máli að fram færi lögformlegt mat á umhverfisáhrifum. Þó eru niðurstöður kannananna mjög svipaðar ef tekið er tillit til vikmarka. í fréttatilkynningunni segir ennfremur: „Stjórnvöldum ber að virða þær leik- reglur sem Alþingi íslendinga og þjóðir heims hafa sett sér (sbr. Ríó-yfirlýsinguna, 17. mgr. frá 1992) um hvemig meta beri umhverfisáhrif stórra framkvæmda, þannig að aðkoma almenn- ings að ákvörðunarferlinu sé tryggð. Bráðabirgðaákvæði II við lög um mat á um- hverfisáhrifum virðist Fljótsdalsvirkjun óvið- komandi - öfugt við ítrekaðar fullyrðingar ým- issa ráðherra. Því ber stjómvöldum siðferðileg skylda til að endurskoða afstöðu sína og fyrir- skipa mat í samræmi við gildandi lög.“ Ýmsar tilfæringar þurfti að viðhafa til að koma Lödubílnum upp á jökulinn og var hann meðal annars útbúinn keðjum á öllum hjólum. 85 ný bílastæði í miðborginni Á Lödu-fólksbíl upp á Gígjökul TILLAGA að 85 nýjum bifreiða- stæðum í miðborg Reykjavíkur var lögð fyrir hagsmunaaðila á kynning- arfundi sem borgarverkfræðingur og framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs héldu í gær. Flest hinna nýju stæða, 29 talsins, em við Gunnarsbraut norðan Flókagötu, sem nýtast munu íbúum í Norðurmýrinni. Þá verða út- Lögreglan kvartar yfir rjúpnaskyttum ERILSAMT var hjá lögreglunni á Egilsstöðum um helgina. Alls komu 30 mál tengd rjúpnaskyttum til kasta hennar. Að sögn lögreglunnar var mikið um að menn stunduðu veiðarnar án þess að hafa tilskilin leyfi, einnig færu margir ógætilega með skotvopn. Þá kvartaði lögreglan undan umgengni skotmanna. búin 18 stæði við Hafnarhús, Naust og Gróf í samræmi við hugmyndir um breytt skipulag, einkum norðan við Hafnarhúsið. Auk nýju stæðanna 85 stendur til að breyta notkun alls 71 stæðis við Vesturgötu 2a, Grófartorg og Skúla- götu á svæðinu frá Barónsstíg vestur fyrir Vitastíg og gera þau gjald- skyld. Samhliða aðgerðunum verður komið á einstefnuakstri á nokkrum götum, sem aðgerðirinar ná til. Að sögn Stefáns Haraldssonar, framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs, er um að ræða bráðabirgðaaðgerðir til reynslu í eitt ár, sem eru ekki beinlínis í samræmi við langtíma- stefnu borgaryfirvalda í bflastæða- málum miðborgarinnar þar sem stefnt hefur verið að því umhverfis- markmiði að fækka stæðum við götukanta og draga þannig úr vægi bifreiða i götumyndinni. Uppi eru hugmyndir um að stuðla að frekari uppbyggingu miðborgarinnar með því að byggja fleiri sérhönnuð bif- reiðastæði utan göturýmisins. ÁHUGAMENN um gamaldags vegagerð fóru í haustlitaferð upp í Gígjökul í Eyjafjallajökli síðastlið- inn sunnudag. Fararskjótinn var Lada-fólksbjfreið á keðjum. Að sögn Áma Alfreðssonar, talsmanns áhugamannanna, þurfti nokkra útsjónarsemi til að finna góða leið fyrir fólksbifreiðina upp á jökulinn, en meðal jöklafara var mikill mannauður sem unnt var að hagnýta í þeim tilgangi að koma Lödunni á leiðarenda. Til stendur að nota bifreiðina til að auðvelda hreinsunarstarf á jöklinum en brak úr Gmmman Albatros-her- flugvél liggur á jöklinum. Var bif- reiðin skilin eftir á jöklinum og mun braki úr flugvélinnj verða safnað í hana. Að sögn Árna þarf ekki nauðsynlega sérútbúin tor- fæmtröll til að komast á jöklaslóð- ir heldur þarf fyrst og fremst að taka mið af aðstæðum án þess þó að slá af kröfum um öryggi, en hann segir að með tiltækinu sé hann öðmm þræði að ögra jeppa- mönnum sem fari um fjöll og fim- indi á stórum ökutækjum sínum. Þá segir Ámi að sú hugmynd hafi komið upp að bjóða upp á ferðir á jökulinn og hefur hann þegar boð- ið ömmu sinni í fyrstu ferðina, sem farin verður næstu helgi - á Lödunni. EKKI er enn ljóst hvað olli bilun- inni í Jámblendiverksmiðjunni á Grundartanga £ fyrradag, sem olli því að mikinn kísilreyk lagði upp úr skorsteinum verksmiðjunnar. Að sögn Bjarna Bjamasonar, forstjóra Járnblendiverksmiðjunnar, virðist sem stýribúnaður í reykhreinsibún- aði fyrir nýjasta ofninn hafi bilað. „Verið er að vinna í þessu dag og nótt,“ sagði Bjami. „Það bárast engin hættuleg efni út í andrúms- loftið, þetta var mest kísilryk.“ Stóra fíkniefnamálið Gæslu- varðhald framlengt GÆSLUVARÐHALDI tvítugs sakbornings í stóra fíkniefna- málinu lauk í gær. Lagði lög- reglan fram kröfu um fram- lengingu á varðhaldinu og féllst dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur á að framlengja varðhaldið til 12. nóvember. Maðurinn var sá fimmti sem lögreglan handtók vegna máls- ins og er sá yngsti í hóp þeirra tíu sakbominga sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna rann- sóknar málsins. Gæsluvarðhaldi yfir tíunda manninum, sem úrskurðaður var í gæslu að kröfu efnahags- brotadeildar ríkislögreglu- stjóra hinn 11. október, lýkur í dag, þriðjudag. Ekki hafði ver- ið tekin ákvörðun í gærkvöld af hálfu efnahagsbrotadeildarinn- ar um hvort lögð yrði fram krafa í dag um framlengingu á varðhaldi hans. Oskar eftir rannsókn á vörslu sjúkraskráa INGIBJÖRG Pálmadóttir heil- brigðisráðherra hefur farið þess á leit við landlæknisemb- ættið að það hefji tvíþætta rannsókn á hvemig vörslu sjúkraskráa sé háttað. Ástæð- an fyrir ósk heilbrigðisráð- herra er meðal annars sú að fram kom í fréttum nýverið að sjúkraskrár lægju á glámbekk á Heilsuverndarstöð Reykja- víkur. Heilbrigðisráðherra vill að landlæknisembættið rannsaki það ásamt því að skoða hvemig ástandið er á öðram heilbrigð- isstofnunum. Hefur ráðherra óskað eftir því að rannsókn málsins verði hraðað sem kost- ur er og að um framgang henn- ar verði haft náið samstarf við ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu. Að sögn Bjama er sá hreinsibún- aður sem notaður er í verksmiðj- unni mjög fullkominn. „Undanfarin tvö ár höfum við lagt mikla áherslu á að hafa þennan búnað í góðu lagi og hafa ofnar eitt og tvö aldrei gengið betur, en ofn þrjú var tekinn í notkun í byrjun september. Þess má geta að reyklosun síðustu tveggja ára nam 0,04% af rekstrartíma, sem er met og langt undir þeim mörkum sem em í starfsleyfi, en þau era 2%.“ Kísilryk lagði frá Járnblendiverksmiðjunni Ekki ljóst hvað bilaði ISérblöð í dag < Á ÞRIÐJUDÖGUM Guðjón yfirmaður knatt- spyrnumála hjá Stoke / B2 Eggert tilbúinn að kalla á Atla Eðvaldsson / B1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.