Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Til mikilla átaka kom í Mínsk á sunnudag er um 20.000 manns mótmæltu áformum Lúkashenkos forseta um
að sameina Hvíta-Rússland og Rússland. Slösuðust tugir manna og um 200 voru handteknir.
Fyrirhugaðri sameiningu Hvíta-Rússlands
og Rússlands mdtmælt í Minsk
Tugir manna særðust
í miklum átökum
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 29
Microson* Novell mmmmp Adobe
Eru hugbúnaðarmál í lagi
...hjá þfnu fyrirtæki?
Hugbúnaður er verndaður af lögum um höfundarétt.
Margir tölvunotendur skáka í því skjólinu að þeir viti
ekki hvort forrit eru afrituð eða ósvikin. Þetta er ekki
gild afsökun. Nú er verið er að skera upp herör gegn
hugbúnaðarstuldi — ert þú með hreina samvisku?
Fengi tölvan þín hreint sakavottorð?
©
559-4000
...hringdu núna
Þjónusturáðgjafar Tæknivals veita öll svör við
spurningum um hugbúnað og þau leyfi sem
nauðsynleg eru fyrir löghlýðna tölvunotendur.
Tæknival
www.taeknival.is
Andstæðingar Lúkashenkos forseta
handteknir eða hverfa sporlaust
Minsk. Reuters.
NOKKRIR tugir manna meiddust
á sunnudag er lögreglan í Hvíta-
Rússlandi lét til skarar skríða gegn
fólki, um 20.000 manns, er safnast
hafði saman til að mótmæla áætlun-
um Alexanders Lúkashenko, for-
seta landsins, um að sameina landið
Rússlandi. Ráðgjafi forsetans sagði
í gær, að lögreglan myndi beita
fullri hörku til að koma í veg fyrir,
að mótmæli af þessu tagi endur-
tækju sig.
Efnt var til mótmælanna í einu
úthverfa Minsk, höfuðborgar
Hvíta-Rússlands, en er fólkið
reyndi að ganga þaðan að forseta-
skrifstofunum í miðborginni réðst
óeirðalögregla gegn því með kylfur
að vopni. Grýttu þá mótmælendur
lögregluna og kom til mikilla átaka.
Var fjöldi manna fluttur á sjúkra-
hús og þar á meðal tveir lögreglu-
menn. Um 200 mótmælendur voru
handteknir, þar á meðal tveir leið-
togar stjórnarandstöðunnar í land-
inu. Sagt er, að 15 aðrir séu nú í fel-
um.
„Til Evrópu án
Lúkashenkos"
Mótmælendur héldu á loft hvít-
rússneska fánanum og Evrópufán-
anum og rifu í sundur drög að sam-
bandssáttmála Rússlands og Hvíta-
Rússland. Á spjöldum, sem fólkið
bar, stóð meðal annars: „Til
Evrópu án Lúkashenko."
Lúkashenko efndi til umdeildrar
þjóðaratkvæðagreiðslu 1996 og í
kjölfarið leysti hann upp þingið og
stjórnar nú í raun sem einvaldur.
Hafa margir leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar verið handteknir, yfir-
leitt fyrir eitthvert fjármálamisferli
að sögn yfirvalda, og sumir hafa
horfið sporlaust, nú síðast Víktor
Gontsjar, varaforseti þingsins, sem
Lúkashenko leysti upp.
Mótmælendum hótað
fangelsisvist
Míkhaíl Sazonov, ráðgjafi Lúka-
shenkos, sagði í gær, að lögreglan
myndi ekki taka neinum vettlinga-
tökum á þeim, sem hygðust efna
aftur til mótmæla, en tók þó fram,
að stjórnvöld vildu eiga viðræður
við stjórnarandstöðuna eins og
ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu, hefur krafist.
Rússneska fréttastofan Interfax
hafði hins vegar eftir Níkolaj Kúp-
ríjanov, ríkissaksóknara í Hvíta-
Rússlandi, að þeir, sem hefðu tekið
þátt í mótmælunum á sunnudag,
mættu búast við allt að fimm ára
fangelsi fyrir „að trufla almanna-
frið og reglu“.
Hitablásarar
K^Iþór hf
RaykjavOc - Akuneyri
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
adHHOMMÉSmMhA.'fu....
v>mia
Viö gerum tilboð,
þér aö kostnaðariausu,
■ gólfefni á stigahúsið.
Þú getur valið úr hundruðum lita í öllum
gerðum gólfefna.
Sérhönnuð gólfteppi og gólfdúkar.
Fagmenn okkar vinna svo verkið
bæði fljótt og vel.
Þú sparar tíma, fyrirhöfn og fé með því að láta
okkur sjá um málið frá upphafi til enda.
Tilboðin gilda til áramóta
í eftirtöldum verslunum.
Góðir greiðsluskilmálar.
Raðgreiðslur
VÍSA
Grensásvegi 18 s: 581 2444
iiliMi
Grensásvegi 18 s: 568 6266
TEPPABÚÐIN
Suðurlandsbraut 26 s: 568 1950
Viltu endurnýja
dúkinn eða teppið
á stigann
fyrir jól?