Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 37
Basknesk
kona hlýtur
Planeta-
verðlaunin
sem mála fyrir lífsnautnina, er
þannig ekki frá hársrótum til tá-
nagla upptekinn af fjarstýrðum
nýjungum, og drjúgur léttir að sjá
grafík sem ekki er einþrykk eða
gerð í 2-3 eintökum, að auki út-
færð í sígilda vinnulaginu. Aðal
sýningarinnar eru hin jöfnu og fág-
uðu vinnubrögð sem eru kenni-
mark gerandans hvar sem hann
ber niður á tæknisviði. Viðföng
sækir hann í næsta nágrenni eins
og nöfn myndflokkanna og mynd-
verkanna bera með sér; Á verk-
stæði Sigursteins, Beisli og blakk-
ir, Philips |49 (innvols úr útvarpi),
og nöfnin Kvika, Þorpið, Stóð,
Kræklingur o.s.frv. Að öllu saman-
lögðu er þetta sýning sem ber í sér
gildan neista sköpunar og hreyfir
við heilasellunum.
Bragi Ásgeirsson
Barcelona. AP.
LAURA Espido Freire, 25 ára
gömul basknesk kona, hlýtur verð-
laun Planeta-bókaforlagsins í ár,
að því er skýrt var frá á laugardag.
Eru þetta virtustu bókmenntaverð-
laun Spánar.
Espido hlaut verðlaunin fyrir
þriðju bók sína, „Frosnar ferskjur“
(Melocotones Helados), sem fjallar
um konu er leitar uppruna síns eft-
ir að fjölskylda hennar flyst búferl-
um. Var skáldsagan valin úr 377
verkum og verður hún gefin út hjá
Planeta-forlaginu. Fyrri bækur
Lauru Espido, „írland“ og „Þar
sem ávallt er október" hlutu mikið
lof spænskra gagnrýnenda.
Planeta-verðlaunin nema 50
milljónum peseta, eða um 23 millj-
ónum króna. Meðal þeirra sem áð-
ur hafa hlotið þennan heiður eru
úrúgvaíski rithöfundurinn Carmen
Posadas, og spænska nóbelskáldið
Camilo Jose Cela.
---------------------
Vil kynnast stjórnanda
með náið samband í huga!
B 7 í myndfiokknum Blakkur, vatnslitir 1999.
Fjölbreytni
MYMILIST
Stöðlakot
MYNDVERK
PÉTUR BEHRENS
Opið alla daga frá 14-18. Til 24.
oktdber. Aðgangur ókeypis.
PETUR Behrens, sem um þess-
ar mundir sýnir margvísleg mynd-
verk í Stöðlakoti á Bókhlöðustíg,
mun þekktastur íyrir hesta-
mennsku sem hann hefur stundað
um langt árabil, hvort tveggja
tamningu sem ræktun.
Þessi þýski alnafni landa síns og
nafnkennda hönnuðar æskustílsins,
hefur annars víða komið við um
dagana, var um skeið kennari í aug-
lýsingahönnunardeild Myndlista-
og handíðaskólans, er nú búsettur
að Höskuldsstöðum í Breiðdalsvík.
Eins og allir sem skoða sýninguna
mega gera sér grein fyrir, er um
vel skólaðan mann að ræða með
staðgóða þekkingu á grunnlögmál-
um myndlistar. Þannig vinnur hann
jöfnum höndum í akríl, gvass- og
vatnsliti, auk þess að munda penn-
ann og reyna fyrir sér í málmgraf-
ík, þ.e. ætingu, og er vel liðtækur á
öllum sviðunum. Hafi maður sér-
staka löngun til að finna að ein-
hverju, er það helst að maðurinn
skuli ekki hafa unnið meira og verið
virkari á vettvanginum því náttúru-
gáfan er auðsæ. Þá er meira en
greinilegt að þrátt fyrir meðfædda
leikni og þjálfun stenst Pétur þá
freistni að bregða fyrir sig fiffiríi og
ódýrum lausnum af ýmsu tagi til að
ganga í augun á fólki með ómótað-
an smekk. Hins vegar verður því
ekki neitað, að maður hefði viljað
sjá meiri og dýpri átök á myndflet-
inum, sem nást trauðla nema með
samfelldari vinnubrögðum. Pétur
virðist þó vera á þröskuldi þeirra
og mestu varðar að athugull skoð-
andi skynjar metnað og leitandi sál
að baki vinnubragðanna. Og þrátt
fyrir augljóslega alltof fá tækifæri
til myndsköpunar man ég ekki eftir
áugaverðari sýningu frá hendi Pét-
urs, svo ekki er hann að ryðga í fag-
inu.
Pétur er augljóslega einn þeirra
Samkeppni um
útvarpsþætti
EFNT verður til útvarpsþáttahá-
tíðarinnar Útvarp 2000 í Reykjavík
í tengslum við menningarborgarár-
ið dagana 8.-12. febrúar næstkom-
andi. Af því tilefni verður efnt til
samkeppni um gerð útvarpsþátta
um efni að eigin vali.
Þættirnir skulu vera 8 til 12
mínútur að lengd og skal skila
þeim á útsendingarhæfu formi (á
geisladiski, minidiski eða DAT-
spólu) fyrir 10. janúar 2000. Bestu
þættirnir að vali dómnefndar verða
fluttir á lokadegi hátíðarinnar, sem
og í útvarpi. Fyrstu verðlaun eru
ferðastyrkur á útvarpsþáttahátíð-
ina Prix Europa árið 2000.
Þættir í samkeppnina sendist
til: Útvarp 2000, b.t. Jóns Halls
Stefánssonar, Miðstræti 10, 101
Reykjavík.
Jafnvel vönduðustu tölvukerfi kreQast eftirlits, viðhalds
og endurbóta. Rekstrarþjónusta EJS feiur
í sér almennt og fyrirbyggjandi eftirlit
með vélbúnaði, álagi og öryggiskerfum.
Kostnaði og töfum vegna bilana er haldið
í lágmarki. Fræðsla og ráðgjöf bætir kunnáttu
starfemanna og eykur afköst þeirra. Þannig getur BS
hjálpað þér að lækka rekstrarkostnað og
vernda gárfestingu þína I tölvukerfinu.
Við leggjum til langtíma samband byggt
á gagnkvæmu trausti.
EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfi + EJS hf. 4- 5
\
\
\
I
l
i
I
i
I
I
I
I
I
I
3000 + www.ejs.ls + Grensásvegi 10 + 108 Reykjavík