Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ólíkar skýringar á lækkun götuverðs á hassi
Mínni áhugi á efnum
eða aukið framboð
SAMKVÆMT upplýsingum lög-
reglunnar í Reykjavík benda upp-
lýsingar hennar til að framboð á
hassi sé lítið um þessar mundir.
Segir Ómar Smári Armannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn að svo til
hasslaust hafi verið í höfuðborginni
og sé skýringanna að hluta til að
leita í þeirri miklu umræðu sem
skapast hefur um fíkniefnamál í
kjölfar stóra fíkniefnamálsins.
Samkvæmt athugunum SAA
virðist hinsvegar sem ekki sé vímu-
efnaskortur í landinu þrátt fyrir
góðan árangur lögreglu og toll-
gæslu við haldlagningu fíkniefna í
stóra fíkniefnamálinu.
Að sögn Þórarins Tyrfingssonar,
yfirlæknis á Vogi, benda upplýsing-
ar sem berast meðferðarfulltrúum
sjúkrahússins til þess að verðið á
grammi af hassi hafi hækkað úr
1.500 krónum í 3.500 krónur
nokkrum dögum eftir að upp komst
um stóra fíkniefnamálið, en nú sé
verðið á gramminu komið niður í
2.000 krónur.
„Verðlækkunin bendir til þess að
framboðið hafi aukist á markaðnum
og er vísbending um að búið sé að
fylla það skarð sem myndaðist þeg-
ar lögreglan upprætti starfsemina í
kringum stóra fíkniefnmálið," segir
Þórarinn.
Lögreglan leggur hins vegar ann-
an skilning í verðlækkunina og telur
að verðlækkunin sem SAA tilgreinir
þurfi ekki endilega að tákna að
nægilegt framboð sé á fíkniefnum á
markaðnum.
Minni áhugi getur
leitt til verðlækkunar
„Verðlækkunin getur alveg eins
merkt það að mun minni áhugi sé
hjá fólki á fíkniefnum, ekki síst í
kjölfar þeirrar umræðu sem verið
hefur um fíkniefnamál að undan-
förnu og alvöru neyslunnar,“ segir
Ómar Smári Armannsson. „Fólk er
sér betur meðvitandi um hvað hefur
verið að gerast og foreldrar beina
athyglinni meira að börnum sínum
en áður. Þetta gerðist t.d. í kjölfar
mikillar umræðu í fjölmiðlum um
ofbeldi á meðal unglinga árið 1989.
Umræða um neikvætt efni leiddi þá
til jákvæðrar niðurstöðu."
Að sögn Ómars Smára getur um-
rædd verðlækkun líka þýtt að fólk
bregðist harðar við áskorun þeirra,
sem tala fyrir afleiðingum fíkniefna-
neyslu og er ákveðnara en áður að
láta til sín taka í þeim málum. Þá geti
verðlækkunin líka þýtt að þau efni,
sem þegar séu í umferð, séu meira
drýgð en áður og séu því ódýrari, auk
þess sem lélegra efni geti verið í um-
ferð, sem leiði til verðlækkunar.
„Það er þvi ekki sjálfgefið að
meira eða jafnmikið sé um fíkniefni
í umferð nú og var áður en hald var
lagt á hið mikla magn sem raun ber
vitni,“ segir Ómar Smári Armanns-
son.
Morgunblaðið/Porkell
Stærra stykkið, sem vegur um 35 tonn, komið á pall.
Grásteinn og meintir íbúar fluttir úr stað
Gekk áfallalaust fyrir sig
ÁLFASTEINNINN sem stendur
við Vesturlandsveg við heimreiðina
að Keldum og kallaður hefur verið
Grásteinn var fluttur úr stað í gær-
morgun. Að sögn Sigursteins Hjart-
arssonar, verkfræðings hjá Vega-
gerðinni, gekk flutningurinn áfalla-
laust fyrir sig en sem kunnugt er
hefur oft gengið á ýmsu þegar
hróflað hefur verið við íverustöðum
huldufólks. Minniháttar slys hafa
orðið á mönnum og tæki og tól hafa
brotnað og bilað. „Það brotnaði ein
tréskófla. Það voru nú öll ósköpin,11
segir Sigursteinn.
Steinninn var fluttur um 37
metra til norðurs og vesturs, að
sögn Sigursteins og tók flutningur-
inn um fjórar klukkstundir. Grá-
steinn, sem upphaflega var heill,
brotnaði við flutninga um árið og er
í tveimur brotum, 15 og 35 tonn
hvort. Brotunum var komið fyrir á
smekklegan hátt, að líkindum í sátt
og samlyndi við hugsanlega íbúa.
Síðdegis í gær voru starfsmenn
Vegagerðarinnar að snyrta um-
hverfi Grásteins og þökuleggja í
kringum hann enda ekki ólíklegt að
unnendur huldufólks og álfa geri
sér ferð að steininum til að berja
hann augum.
Þjónusta númer eitt!
Opnunartlmi: Mánud. - fðstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16
BÍLAÞINPEKLU
Núrnc-r eirt í noh/?vm t>(luryi!
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
Til sölu Opel Astra 1600.
Nýskráður 22.07.1997.
Ekinn 52.000 km.
Beinskiptur, 4 dyra.
Ásett verð kr. 1.090.000.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu í sima 569 5500.
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
Morgunblaðið/Júlíus
Leifur Iljörleifsson smiður og Elvar Örn Þormar voru meðal fjöl-
margra sem „lyftu sér upp með slökkviliðinu“ og fóru upp í körfu
með slökkviliðsmanni. Nýr körfubíll slökkviliðsins getur lyft manni
upp í 32 metra hæð.
Biðraðir í körfubílana
Játaði á
sig rán í
söluturni
LÖGREGLAN í Hafnarfirði hand-
tók 19 ára gamlan pilt á laugardag,
grunaðan um að hafa framið vopnað
rán i sölutuminum Spesíunni í
Garðabæ laugardagskvöldið 9. októ-
ber.
Við yfirheyrslur játaði pilturinn
að hafa framið ránið og var honum
sleppt úr haldi, en rannsóknardeild
lögreglunnar í Hafnarfirði hefur
málið enn til rannsóknar.
Pilturinn huldi andlit sitt með
lambúshettu við ránið, ógnaði af-
greiðslumanni með riffli og rændi
50 þúsund krónum. Þýfið hefur ekki
verið endurheimt.
FJÖLDI manns heimsótti opið
hús Slökkviliðsins í Reykjavík sl.
sunnudag. Markmið dagskrár-
innar sem starfsmenn skipulögðu
var að kynna starfsemi slökkvi-
liðsins. Gestum var boðið að
„lyfta sér upp með slökkviliðinu11
með því að skoða aðstöðu þess í
Skógarhlíð og þiggja veitingar
en líka bókstaflega með því að fá
„salibunu" í körfu nýs körfubíls
og tveggja gamalla að auki.
Að sögn Jóns Viðars Matthías-
sonar varaslökkviliðssíjóra dreif
að hundruð manna þann tíma
sem dagskráin stóð yfír, milli kl.
14 og 17:30, og voru biðraðir í
körfubílana um tíma. „Við erum
ákaflega ánægðir með hvernig til
tókst og það var ekki annað að
sjá en fólkið væri ákaflega ánægt
með framtakið. Við höfðum ekki
undan að lyfta fólki, á öllum
aldri, upp í körfunni." Haldin var
sýning á eldri munum og göml-
um brunabílum og slökkviliðs-
menn sýndu hvernig þeir bera
sig að við sjúkraflutninga og
klippingar. Fengu gestir að
prófa að beita klippunum en síð-
an sýndu slökkviliðsmenn réttu
handtökin.
Sendiráð Norðurlanda í
Berlín opnuð á morgun
NÝTT sendiráð íslands í Berlín
verður opnað formlega á morgun, 20.
október, ásamt sendiráðum Dan-
merkur, Noregs, Finnlands og Sví-
þjóðar við hátíðlega athöfn. Halldór
Asgrímsson utanríkisráðherra og
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
verða viðstaddir athöfnina ásamt
þjóðhöfðingjum og utanríkisráðherr-
um hinna Norðurlandanna ásamt dr.
Jóhannes Rau forseta Þýskalands,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Sendiráð Norðurlandanna í Berlín
eru öll á sömu lóð við Rauchstrasse
við Tiergarten. Bygging tengir þau
saman og er henni ætlað að vera
vettvangur ýmissa viðburða sem
tengjast öllum löndunum.
Vegna formennsku íslands í Norð-
urlandasamstarfinu mun Halldór
verða í forsvari utanríkisráðherr-
anna á fundi þeirra með Joscha
Fischer utanríkisráðherra Þýska-
lands. Utanríkisráðherramir munu
einnig funda með forsætisnefnd
Norðurlandaráðs. Hann mun einnig
sitja fund, ásamt forsetanum, með
helstu viðskiptavinum íslenskra fyr-
irtækja í Þýskalandi, þar sem Bjarni
Ármannsson, framkvæmdarstjóri
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
verður aðalræðumaður. Daginn eftir
opnun sendiráðsins situr utanríkis-
ráðherra ráðstefnu Norðurlandaráðs
um samvinnu Norðurlanda og
Þýskalands í Evrópu nútímans.
Utanríkisráðherra mun einnig
sinna skyldum sínum sem formaður
ráðherranefndar Evrópuráðsins og
funda með Knut Vollebæk utanríkis-
ráðherra Noregs, sem er jafnframt
formaður ráðherranefndar Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu.
Forsetinn flytur ávarp fyrir
hönd Norðurlanda
í fréttatilkynningu frá skrifstofu
forseta íslands um sama efni kemur
fram að Ólafur Ragnar Grímsson
forseti muni flytja ávarp fyrir hönd
Norðurlanda við opnunarhátíð sendi-
ráðanna. Hann mun einnig í heim-
sókninni meðal annarra hluta snæða
hádegisverð með þýska forsetanum,
heimsækja Sambandsþingið og
Humboldt-háskólann.
Allt til reiðu í íslensku
Berlín. Morgunblaðið.
FYRIR utan sameiginlega sendiráðsbyggingu Norður-
landanna í Berlín gekk mikið á í gær. Unnið var að því
að setja upp svið fyrir opununarhátíð á morgun. I ís-
lensku sendiráðsbyggingunni var einnig verið að gera
allt til reiðu og stóð Pálmar Kristmundsson, arkitekt
hússins, í anddyrinu og var sjálfur að ganga frá áletrun-
inni fyrir útidyrnar.Dagskrá í tilefni heimsóknarinnar
hefst síðdegis í dag eftir að Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti kemur til Berlínar frá Bretlandi og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra frá Ukraínu.
Hápunktur dagskrárinnar verður opnunarathöfnin á
morgun. Þar mun Ólafur Ragnar flytja ávarp fyrir framan
sendiráðið og þegar hann hefur lokið máli sínu verður
dregið frá tjald þannig að hinar nýju byggingar blasa við.
Einnig taka Eberhardt Diepgen, borgarstjóri Berlínar,
sendiráðsbyggingunni
Johannes Rau, forseti Þýskalands, og Margrét Dana-
drottning til máls í athöfninni auk þess sem Kammeror-
kester Norden leikur verk eftir Grieg og Dag Viren.
í kvöld hlýða norrænu þjóðhöfðingjarnir og utanríkis-
ráðherrarnir hins vegar á tónleika Orkester Norden í
Berlínarfílharmóníunni.Utanríkisráðherra mun ekki sitja
auðum höndum í Berlín. Á morgun halda utanríkisráð-
herrar Norðurlandanna fund með Joschka Fischer, ut-
anríkisráðherra Þýskalands. Þá ræðast þeir við Halldór
og Knut Vollebæk, sem er formaður ráðherranefndar
Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og utanríkisráð-
herrar Norðurlandanna halda fund með forsætisnefnd
Norðurlandaráðs. Á fimmtudag verður haldin ráðstefna
Norðurlandaráðs undir yfirskriftinni „Þýskaland og
Norðurlöndin - sameiginlegar leiðir til nýrrar Evrópu“.
k.