Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reuters
Borys Tarasjúk, utanríkisráðherra Úkraínu, býður Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra og Walter Schwimmer velkomna til Kiev.
uppfylla sett aðildarskilyrði og hefur
afnám dauðarefsingar vegið þar
þyngst. Engri dauðarefsingu hefur
verið fullnægt frá árinu 1997, en
dómstólar halda enn áfram að fella
dauðadóma.
„Yið ræddum hvað úkraínsk
stjórnvöld þurfa að gera til að upp-
fylla skuldbindingar sínar,“ hefur
AP-fréttastofan eftir Halldóri.
Hafa einnig athugasemdir verið
gerðar við að Ukraínumenn skuli
ekki hafa staðfest samning Evrópu-
ráðsins um réttarstöðu tungumála
minnihlutahópa og nú síðast í júní
hótaði ráðið að útiloka Úkraínu
vegna kvartana fjölmiðlafólks undan
meintum ofsóknum stjórnvalda og
fyrir að hafa gert umbætur á stöðu
sveitarstjórna landsins eins og
stjórnvöld höfðu heitið að gera. Fall-
ið var frá útilokun eftir að ríkis-
stjórnin hét snarlegri bót og betrun.
Henni vai- gefinn frestur fram í janú-
ar næstkomandi til að hrinda umbót-
um í framkvæmd.
Titringur vegna komandi
forsetakosninga
í gærkvöldi hittu Halldór og
Schwimmer Olexandre Tkachenko,
forseta úkraínska þingsins Yerk-
hovna Rada), en hann er meðal 15
frambjóðenda í forsetakosningunum
sem fram fara í landinu í lok mánað-
arins. Hittu Halldór og Schwimmer
flesta hina frambjóðendurna einnig.
Einn þeirra, vinstrikonan Natalja
Witrenko, slasaðist í byrjun mánað-
arins er handsprengju var varpað að
henni.
Fundur með Leoníd Kútsjma for-
seta, sem sækist eftir endurkjöri,
var áformaður í dag, en forsetinn
hefur verið sakaður um að beita
ólýðræðislegum aðferðum í kosn-
ingabaráttunni, einkum með því að
ráðskast með fjölmiðla.
Walter Schwimmer tjáði blaða-
mönnum í gær að þeir Halldór
myndu í viðræðum sínum minna
ráðamenn á að Evrópuráðið fylgdist
með því að kosningarnar færu fram
með þeim hætti sem lýðræðislegu
réttarríki sæmdi. „Við höfum nú
þegar rætt þann vanda sem felst í
aðgengi forsetaframbjóðenda að fjöl-
miðlum, einkum þeim ríkisreknu, og
hvernig fjallað er um þá í ríkisreknu
fjölmiðlunum. Við höfum áhyggjur af
þessu,“ hefur Reuters-fréttastofan
eftir Schwimmer.
Mannbjörg þegar tveir bátar strönduðu á Vestfjörðum
Opinber heimsókn utanríkisráðherra til Úkraínu
Úkraínustjórn gagn-
rýnd fyrir vanefndir
Morgunblaðið/Júlíus
Glæsileg flugeldasýning við Kringluna í Reylqavík.
Litadýrð á flugeldasýningu
GLÆSILEG flugeldasýning var
haldin á laugardagskvöld við
Kringluna í Reykjavík í tilefni
þess að búið er að stækka og
endurbæta verslunarmiðstöð-
ina. Var það mál manna að sýn-
ingin hefði verið með þeim
glæsilegri sem haldnar hafa ver-
ið hérlendis.
Ekki voru þó allir jafn ánægð-
ir með framtakið en eitthvað
mun hávaðinn hafa hrellt íbúa í
nágrenninu, ekki síst eldri íbúa í
hverfínu sunnan Kringlunnar.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík var þó staðið vel að sýning-
unni í alla staði, tilskilinna ieyfa
aflað og hún auglýst. Hugsan-
lega hefur þó frestun sýningar-
innar, en hætt var við að halda
hana á fimmtudag vegna veðurs,
ekki komist nægilega til skila.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður ráðherranefndar
Evrópuráðsins, gagnrýndi í gær stjómvöld í Ukraínu fyrir að standa ekki
við skuldbindingar sínar sem aðildarríki Evrópuráðsins. Á blaðamanna-
fundi í Kiev eftir fund Halldórs og Walters Schwimmer, framkvæmda-
stjóra Evrópuráðsins, með Borys Tarasjúk, utanríkisráðherra Úkraínu,
sagði Halldór „dagljóst að Úkraína uppfyllir ekki þessi skilyrði".
Opinber heimsókn Halldórs og
Schwimmers, sem tók við sem fram-
kvæmdastjóri ráðsins í sumar, til
Úkraínu hófst í gærmorgun. Á fund-
inum með Tarasjúk utanríkisráð-
herra voru tvíhliða samskipti íslands
og Úkraínu rædd. Bar þar meðal
annars á góma mögulegt samstarf
ríkjanna á sviði viðskipta og nýtingu
jarðhita í Úkraínu, en tveir Úkraínu-
menn sækja nám við Jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóðanna á Islandi á
næsta ári.
Ráðherramir ræddu einnig mál-
efni Altantshafsbandalagsins, Orygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu
(ÖSE), stækkun Evrópusambandsins
(ESB) og málefni Sameinuðu þjóð-
anna, en Úkraína hlaut kosningu í ör-
yggisráð SÞ síðastliðinn fimmtudag,
meðal annars með atkvæði íslands.
Þá áttu þeir Halldór og
Schwimmer í gær einnig fundi með
Valeriy Pustovoitenko forsætisráð-
herra Úkraínu og Susönnu Stanik
dómsmálaráðherra. Aðalumræðuefn-
ið á þessum fundum var skuldbind-
ingar Úkraínu sem aðildarríkis að
Evrópuráðinu, en fjögur ár eru síðan
landið fékk inngöngu i það. Þing-
mannasamkoma ráðsins hefur á
þessum fjórum árum ítrekað rætt
hvort útiloka skuli Úkraínu frá þátt-
töku vegna meints seinagangs við að
Víkingur SU festist
milli kletta
í Barðanum
Skipverja bjarg-
að með slöngubáti
^ Morgunblaðið/Egill Egilsson
Björgunarsveitarfólk frá Flateyri, Þingeyri og Isafirði vann saman að
þvi að bjarga manni sem var um borð í trillunni Víkingi sem strandaði í
Barðanum á milli Dýraijarðar og Önundarfjarðar.
SJÖ tonna trilla, Víkingur SU,
strandaði sunnanvert í Barðanum á
milli Dýrafjarðar og Önundarfjarð-
ar, um fimmleytið aðfaranótt sunnu-
dags. Einn maður var um borð í trill-
unni sem var á leið frá Skagaströnd
til Hafnarfjarðar þegar hún strand-
aði og festist á milli tveggja kletta.
Björgunarbáturinn Gunnar Frið-
riksson frá Isafirði kom að trillunni
um klukkan sjö á sunnudagsmorgun
og þá var björgunarsveitarfólk frá
Flateyri og Þingeyri komið á stað-
inn. Pálmi Stefánsson, skipstjóri
Gunnars Friðrikssonar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að erfítt hafi
verið að komast að trillunni sjóleiðis
og því hafi tveir björgunarmenn frá
Flateyri klifrað eftir klettunum um
borð í trilluna til að bjarga mannin-
um. Þá hafí línu verið skotið yfir í
trilluna, slöngubátur dreginn þangað
og svo var einn maður dreginn í einu
yfír í björgunarbátinn. Pálmi vildi
taka það sérstaklega fram að það
hafi verið góðri samvinnu björgunar-
manna að þakka, hversu vel tókst til
við björgunina.
Maðurinn sem var um borð í trill-
unni fékk höfuðhögg við strandið og
fjöruna og var kjölurinn það eina
sem eftir var af honum.
Tveir menn björguðust eftir
strand í Patreksfirði
Sex tonna bátur, Garðar BA frá
Patreksfirði, strandaði við Hregg-
nesi sem er að sunnanverðu í Kolls-
vík við Patreksfjörð, um tíuleytið á
laugardagskvöld. Tveir menn voru í
bátnum og komust þeir í land af
sjálfsdáðum. Mennirnir sluppu
ómeiddir en voru blautir og kaldir og
flutti lögreglan þá til Patreksfjarðar.
Keran Ólason bóndi í Breiðdalsvík
kom fyrstur á strandstað og sagði
hann í samtali við Morgunblaðið að
fjaran þarna væri erfið og grýtt og
þar sem báturinn hafi fest á rnilh
tveggja steina hafi ekki verið hægt að
losa hann þarna um kvöldið. Vatn var
komið í lestina og báturinn byrjaður
að brotna. Um morguninn kom í ljós
að báturinn var stórskemmdur þai’
sem sjórinn hafði lamið hann niður í
grjótið og um hádegi kom svo brot á
bátinn svo hann gjöreyðilagðist.
Sjópróf fara fram á næstu dögum
þar sem orsakir slysanna verða
leiddar í ljós.
m
stækkað
svæði
því var farið með hann strax til Flat-
eyrar þar sem hann komst undir
læknishendur. Hann var síðan flutt-
ur á sjúkrahúsið á {safirði en fékk að
fara heim í gær. Björgunarmennirn-
ir sigldu aftur á strandstað og voru
komnir þangað undir hádegi. Þá
hafði flætt að og bátnum skolað upp í
Garðar BA lenti
upp í fjöru
sunnanvert
í Kollsvík
nieyra
:abulous Four
þriðjudagslcvölcl
19. október kl. 20
:innar fjalla um muninn á
Innskum bókum í tali og tónum
Einnig'verðuFíésið úr Ári hérans eftir
Aarto Paasilinna
Guðrún Sigurðardóttir les úr þýðingu sinni
Mál og menning
Laugavegi 18 • Sími 515 2500
malogmenning.is I
Laugavegl 18 • Síml 515 2500 • Síðumúla 7 • Simi 510 2500