Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 13
FRÉTTIR
Skýrsla um möguleika á fjarvinnslu og gagnavinnslu á landsbyggðinni
211 verkefnahug-
myndir um nýtingu
upplýsingatækninnar
í sumum tilvikum þarf hugarfars-
breyting að eiga sér stað fyrst og
fremst en í öðrum tilvikum þarf
fjárfestmg Og uppbygging sérfrseði- Frá blaðamannafundinum þar sem skýrslan var kynnt. Taldir frá
-----—---------------- vinstri: Egill Jónsson, formaður stjórnar Byggðastofnunar, Davíð Odds-
pekkmgar að koma til. son forsætisráðherra, Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðntæknistofnun-
ar, og Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar.
Mögulegt er að vinna verkefni af
margvíslegu tagi á landsbyggðinni
fyrir tilverknað upplýsingatækninn-
ar, en mismikla sérfræðiþekkingu
og stofnkostnað þarf til þess.
Verkefnahugmyndir voru annars vegar flokkaðar eftir eðli þeirra, þ.e.
hvort um þjónustu-, yfirfærslu- eða þróunarverkefni væri að ræða og
hins vegar eftir því hve flókið væri að hrinda þeim í framkvæmd.
SKÝRSLA Iðntæknistofnunar um
notkun upplýsingatækni við fjar-
vinnslu og gagnavinnslu á lands-
byggðinni var kynnt í gær, en í henni
er reynt að kortleggja þau tækifæri
sem nýst geta til uppbyggingar á
landsbyggðinni á þessu sviði. Skýrsl-
an er unnin fyrir Byggðastofnun og
forsætisráðuneytið auk Iðntækni-
stofnunar og í henni er að finna sam-
tals 211 verkefnahugmyndir, sem
skipt er annars vegar eftir stofn-
kostnaði og hins vegar eftir því hve
mikillar sérhæfni þau krefjast.
í höfuðatriðum má skipta verk-
efnahugmyndunum í þrennt, en um
sextíu manns víðsvegar að úr at-
vinnulífinu og stjórnsýslunni komu
að því að móta þær. I fyrsta flokk
falla þau verkefni sem snúa fyrst og
fremst að hugarfarslegum breyting-
um en kosta lítið fé. Dæmi um þetta
eru þjónustuverkefni af ýmsum toga,
svo sem gagnaskráning, símsvörun
og úthringiþjónusta. Mörg verkefni í
þessum flokki þarfnast ekki sér-
þekkingar og má koma af stað með
tiltölulega skjótum hætti.
í öðru lagi eru þau verkefni sem
gætu krafíst töluverðs stofnkostnað-
ar til að hrinda þeim í framkvæmd á
landsbyggðinni. Dæmi um þetta eru
yfirfærsluverkefni sem nú eru unnin
af fyrirtækjum og stofnunum á höf-
uðborgarsvæðinu, en hægt væri að
vinna annars staðar. I skýrslunni
segir að í undirmönnuðum fyrirtækj-
um og stofnunum geti slíkt verið
ákjósanlegur valkostur. I sumum til-
vikum þurfi að byggja upp þekkingu
og færni, sem síðar gæti orðið vaxt-
arbroddur frekari uppbyggingar.
í þriðja flokkinn falla síðan verk-
efni sem krefjast iðulega sérfræði-
menntunar og verulegrar þekkingar
og reynslu starfsmanna, en marg-
földunaráhrif starfa í þessum flokki
verða væntanlega mest, að því er
fram kemur í skýrslunni.
28 verkefni án
verulegs kostnaðarauka
Þegar nánar er litið á einstaka
ílokka kemur fram að 28 verkefna-
hugmyndir flokkast sem þjónustu-
eða aðlögunarverkefni án verulegs
kostnaðarauka. Meðal verkefna
þessarar tegundar má nefna sím-
svörun og úthringiþjónustu. I öðru
lagi er um að ræða yfírfærsluverk-
efni án verulegs kostnaðarauka, en
18 verkefnahugmyndir flokkast
þannig, þ.á m. viðhald heimasíðna og
hvers kyns þýðingarvinna.
Þá eru 22 verkefnahugmyndir á
sviði þjónustu sem kreíjast nokkurs
fjármagns, en þar á meðal má nefna
viðhald gagnagrunna og upplýs-
ingaveitna. 46 verkefnahugmyndir
eru á sviði yfirfærsluverkefna sem
krefjast nokkurs fjármagns, en
meðal þessa má nefna fjarkennslu
og skráningarvinnu. Þróunarverk-
efni sem krefjast nokkurs fjár-
magns eru 35 talsins, en meðal
þessara hugmynda má nefna skrán-
ingu gagna á heilbrigðissviði og
gerð gagnvirks upplýsingakerfís,
svo sem við íbúðakaup. Yfirfærslu-
verkefni á sérfræðistigi er eitt tals-
ins, en þar er um að ræða svonefnt
„benchmarking" (bestu viðmið).
Loks er 61 verkefnahugmynd á
sviði þróunarverkefna á sérfræði-
stigi, en meðal þessa má nefna gerð
sérhæfðra gagnagrunna, upplýs-
ingaveitna og hugbúnaðar.
Þýðingarmikið
að leita nýrra leiða
A blaðamannafundi í gær þar sem
skýrslan var kynnt, sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra að
vinnsla hennar væri mjög í sam-
ræmi við þá byggðaáætlun sem
unnin hefði verið af stjórn Byggða-
stofnunar og síðan samþykkt af Al-
þingi, en einn þáttur í þeirri áætlun
hefði einmitt verið að leita nýrra
leiða og kortleggja þær, leiða sem
myndu geta nýst í baráttunni fyrir
því að byggðirnar héldu velli og
hægt yrði að snúa vörn í sókn í þeim
efnum. Það væri afar þýðingarmikið
að leita nýrra leiða til þess að
standa að virkri byggðastefnu. Þó
að mikið væri rætt um kvóta og
sjávarútveg, sem væru auðvitað
mjög mikilvægir þættir, þá þyrfti að
koma til ný hugsun og ný vinnu-
brögð til að skapa viðfangsefni fyrir
landsbyggð í sókn. Þetta verkefni
væri kannski nokkuð ólíkt sumum
verkefnum sem menn hefðu áður
staðið að því þarna væri verið að
nýta hið nýja vegakerfi, þ.e.a.s. upp-
lýsingahraðbrautina, sem menn telji
að eigi að geta ýtt undir möguleika
landsbyggðarinnar. í skýrslunni
væri ekki aðeins verið að kortleggja
möguleikana með almennum hætti
heldur væri gerð greining á því með
hvaða hætti mætti nýta hina nýju
tækni landsbyggðinni í hag.
Egill Jónsson, formaður stjórnar
Byggðastofnunar, sagðist sannfærð-
ur um að nú yrði tekið til óspilltra
málanna við að koma þessum verk-
efnum á framfæri.
Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðn-
tæknistofnunar, sagði að um foratr
hugun væri að ræða á þessu sviði,
sem hefði falist í því að nota svokall-
aða rýnivinnu til þess að athuga hvað
kæmi til greina og hvaða leiðir væru
færar í þessum efnum. Þau svið sem
hefðu verið skoðuð væri vinnsla opin-
berra gagna og þjónusta á vegum
stjómsýslunnar, vinnsla gagna á heil-
brigðissviði, vinnsla gagna og öflun
upplýsinga á sviði rannsókna, vinnsla
gagna og þjónusta á sviði mennta-
mála og svo þjónusta og svæðisbund-
in verkefni á sviði opinberra stofnana.
Það sem sneri að fyrirtækjum væru
verkefni á sviði hugbúnaðar, fjar-
skipta og svo markaðsþjónusta sem
þeh' teldu að væri mögulegt að koma
fyrir hvar sem er. Verkefnin hefðu
verið flokkuð í samræmi við eðli
þeirra og úrvinnslu.
Hagkvæmniathugun
næsta skrefið
Hallgrímur sagði að þeir legðu
áherslu á að þarna væru fyrst og
fremst hugmyndir á ferðinni og
menn gætu valið úr þeim það sem
væri vænlegast. Hægt væri að styðj-
ast við flokkunina með tilliti til þess
hvað menn treystu sér til að fara út í
flókin verkefni. Hins vegar hlyti
markmiðið að vera að byggja upp sí-
fellt flóknari verkefni út á lands-
byggðinni eftir því sem aðstaða og
reynsla yrði til á hverjum stað fyi-ir
sig. Hugmyndirnar væru auðvitað
misgóðar, en þeir legðu áherslu á að
frumkvöðlar, sérstaklega á lands-
byggðinni, skoðuðu þá möguleika
sem þeim litist á. Eðlilegt næsta
skref í þessum efnum væri síðan
hagkvæmniathugun á einstökum
þáttum.
A: Verkefni án verulegs kostnaðarauka,
frekar auðveld í framkvæmd____________________________________________
A1 Þjónusta/aðlögun_______________________________________________________
1. Bein markaðssetning, markpóstur í bland við símaúthringingar.
2. Gagnainnsláttur (eldri gögn, og ný gögn séu skráð þar sem þau verða til).
3. Gagnaskráning stofnana, gögn þeirra sett í tölvutækt form.
4. Innheimtuþjónusta.
5. Markaðsgreining og viðhaldsskráning markhópa.
6. Markaðssetning fyrir fyrirtæki.
7. Sala í gegn um síma.
8. Símaþjónusta fyrirtækja og stofnana, gæti verið hvað sem er.
9. Símsvörun, bókhaldskerfi, vinnsla gagna.
10. Símsvörun fyrir fyrirtæki og stofnanir á kvöldin, aukin þjónusta sbr. Gula línan.
11. Símsvörun fyrir sameiginlegt símanúmer stjórnanráðsins.
12. Símsvörunarþjónusta opinberra stofnana, sbr. Iðntæknistofnunar og Rb.
13. Skönnun og skráning myndefnis.
14. Spyrlar Hagstofunnar (gætu verið hvar sem er).
15. Svarþjónusta, veita upplýsingar.
16. Söluþjónusta á ýmsum vörum/þjónustu.
17. Tölvupóstfangaskrá ráðuneyta og stofnana (skráning og viðhald).
18. Upplýsingasvörun fyrir opinberar stofnanir.
19. Upplýsingaveita fyrir almenning.
20. Útgáfustarfsemi, prentun gagna.
21. Úthringingar vegna funda.
22. Úthringiþjónusta (gæti nýst opinberum aðilum, t.d. Alþingi.
23. Úthringiþjónusta, sbr. spurningavagnar.
24. Úthringiþjónusta, t.d. vegna þarfagreiningu.
25. Þjónusta við aðila sem þurfa húsnæði og aðstöðu (tölvuver).
26. Þjónustusímar, sbr. Gula línan og 118.
27. Þjónustuver, sbr. samstarf Íslandssíma og fslenskrar miðlunar.
28. Þýðingar markaðsettar á vefnum.
Tuttugu og átta verkefni eru frekar auðveid í framkvæmd og væru
án verulegs kostnaðarauka.
. Áhugaverð fyrirtæki
1. Vilt þú vinna þér inn aukapening fyirr jól? Til sölu einstaklega fallegur
og seljanlegur vörulager (ekki fatnaður). Hægt að selja hann einum
stórum aðila eða í tilheyrandi verslanir eða opna jólamarkað og
græða sjálfur mest á því. Verð kr. 4 millj. Ekki gefið upp í síma.
2. Dagsöluturn sem hefur góða veltu og hefur verið á sama stað í 40
ár. Stórar stofnanir allt í kring um hann. Lokað kl. 18 og alveg á
sunnudögum. Mjög sanngjarnt verð.
3. Vinsæl sólbaðstofa í Rvík með góða veltu. Er í eigin húsnæði sem
einnig er til sölu. Gott verð. Nýlegir bekkir, snyrtileg stofa. Laus strax
ef vill.
4. Matsölustaður í vinnuumhverfi. Selur heimilismat, samlokkur, matar-
bakka, langlokur og sælgæti. Mjög góð velta og góð afkoma. Opið
til kl. 18.30 á kvöldin, til kl. 2.00 á laugardögum og lokað sunnudaga.
Það eru margir sem hafa verið að leita að svona stað enda auðveldur
og gefur vel af sér. Mjög snyrtilegur.
5. Ein þekktasta skóverslun borgarinnar á langbesta stað í borginni.
Góð velta. Mikill annatími framundan. Góð álagning og mikil veltu-
aukning. Er með góð merki og fína skó.
6. Ert þú í vaktavinnu? Hefur þú góðan tíma og vilt þú auka tekjurnar?
Til sölu fyrirtæki sem hægt er að hafa heima og selur kaffivélar og
áfyllingarefni til fyrirtækja og stofnana. Góðir tekjumöguleikar.
7. Alhliða vélsmiðja til sölu í Hafnarfirði. Mikið af tækjum og góð stað-
setning. Lág leiga. Góð aðstaða.
8. Járnsmíðaverkstæði í Rvík sem hefurverið í eigu sama aðila í áratugi.
Vel staðsett. Traustir viðskiptavinir. Tækjalisti á staðnum. Sanngjarnt
verð.
9. Vörum að fá í sölu góða verslun sem selur sælgæti og nýlenduvörur,
er einnig með videóhorn. Frábær staðsetning og góð velta.
10. Og rúsinan í pylsuendanum. Frábært innrömmunarfyrirtæki til sölu.
Er á góðum stað í borginni og vel þekkt. Næg verkefni. Frábærtæki
og góð vinnuaðstaða. Góðar tekjur fyrir réttan aðila.
Mikið af fyrirtækjum á skrá. Þú ert ávallt velkominn.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAlAIM
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.