Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Tískufatnaður
o g myndlist
fléttast saman
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Þorkell
Anna María Helgadóttir, Egill Tdmasson, Berglind Hasler og Rui Pedro Andersen reka fyrirtækið
101 ehf. þar sem bæði er seldur tískufatnaður og haldnar myndlistarsýningar.
Midbær
í PORTI á miðjum Lauga-
veginum er að finna stað
þar sem fataverslun og
myndlistargallerí eru sam-
fléttuð. Frá því í vor hafa
þau Egill Tómasson, Berg-
lind Hasler, Rui Pedro And-
ersen og Anna María Helga-
dóttir rekið fyrirtækið 101
ehf. þar sem bæði er seldur
tískufatnaður og haldnar
myndlistarsýningar.
Að sögn Egils er hugs-
unin sú að blanda saman
fötum og myndlist og jafn-
vel einhverju fleiru þegar
fram í sækir. Hann segir
föt og list tengjast sérstak-
lega vel og eiga það sam-
eiginlegt að hafa mikil
áhrif á lífsstíl fólks.
Fötin sem eru til sölu í
versluninni eru bæði ný og
gömul og koma frá
London, New York, Kaup-
mannahöfn og Islandi.
Meðal annars er að finna
sérhönnuð föt bæði frá er-
lendum og íslenskum fata-
hönnuðum. Þau segjast op-
in fyrir öllu mögnlegu og
að vel sé tekið á móti fata-
hönnuðum sem vilji koma
hönnun sinni á framfæri.
Lifandi gallerí
Stefna þeirra er að opna
nýja myndlistarsýningu á
fjögurra vikna fresti og
hafa þrjár nú þegar verið
haldnar. Sú fyrsta var sýn-
ing með verkum Húberts
Nóa Jóhannessonar, á eftir
henni kom sýning með
verkum Hallgríms Helga-
sonar og þá sýning með
verkum Gabríellu Friðriks-
dóttur og Magnúsar Sig-
urðarsonar. A laugardag-
inn opnaði svo sú fjórða,
með hljóðinnsetningar-
verki eftir Pál Thayer.
Þau segja að hugmyndin
sé sú að gefa ungu fólki
tækifæri til að kynnast
myndlist og að góð leið til
þess sé að hafa myndlistina
innan um eitthvað annað
sem ungu fólki finnist eft-
irsóknarvert, til dæmis
tískuföt. Viðbrögð unga
fólksins hafi svo verið
mjög góð ogjákvæð, því
þau segja nær alla sem
koma inn í verslunina gefa
sér tíma til að skoða þá
myndlistarsýningu sem sé í
gangi. Þau segja unga
fólkið óhrætt við að segja
hug sinn og spyrja út í
verkin sem sé mjög já-
kvætt, því ekki þurfi alltaf
að setja sig í ákveðnar
stellingar þegar myndlist
sé skoðuð.
Þau segjast ánægð með
þá afslöppuðu stemmningu
sem ríkir þarna og að þeim
sé kappsmál að hafa þetta
lifandi gallerí. Þau eru op-
in fyrir hugmyndum ungra
myndlistarmanna og segja
að gallerí af þessu tagi sé
einmitt vettvangurinn fyrir
þá. Einnig séu ýmsar fleiri
hugmyndir í bígerð um
meiri og fjölbreyttari
starfsemi og að þær muni
smám saman koma í Ijós
þegar fram líða stundir.
í ,JL—
É0’-------!
' Eilífsdalur)
Hjarðarnes
Möðruvalla-
háls
Sandsfjall
Tindstaða
tindur
Lokafjall
Þórnýjar-
tindur
Kistufell
Mógilsá
% KÖllafjörðu?
Skeggjastaðir
Leirvogs-
vatn
Fjalllendið sem Hreggviður Jónsson vill gera að almenningi Reykjavíkur nær frá
vesturhluta Esjunnar að Skálafelli í austri.
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Trjárækt í hlíðum Esjunnar við Mógilsá setur skemmti-
legan svip á útivistarsvæðið þar. Hreggviður bendir í
átt að Gunnlaugsskarði og segir það tilvalda gönguleið
að fara þar upp. Til hægri sést Kistufell.
aldrei ganga sjaldnar þarna
en einu sinni í viku og að með-
altali gangi hann á Esjuna
tvisvar í viku, allt árið um
kring. „Það er auðvitað mis-
jafnt veðrið, en ég myndi
kalla þetta heilsustofu
Reykjavíkur, rétt eins og
menn kölluðu laugarnar
heilsubrunna borgarinnar.
Það er afskaplega góð æfing
fyrir alla að ganga þarna upp
og niður og ekki til hollari
hreyfíng," segir Hreggviður.
Hann segir að það hafí aukist
gríðarlega mikið að fólk gangi
þarna um frá því að hann kom
þarna fyrst fyrir um 40 árum.
Þá hafí tæplega verið hægt að
merkja að menn hefðu farið
þar um, en nú sé sums staðar
orðinn helst til mikill átroðn-
ingur, sem hægt væri að laga
með því að gera stíga og beina
umferðinni á ákveðna staði.
Skíðasvæði í Blikdal
Þá segir Hreggviður að í
Blikdal séu ótrúlega
skemmtileg skíðasvæði og
sérstaklega þá fyrir göngu-
skíði. Þarna stendur landið
Hreggviður Jónsson er
mikill áhugamaður um
útivist og telur að fjall-
lendi Esjunnar sé ein-
stakt útivistarsvæði.
hærra og það þýðir að snjór-
inn kemur fyrr og stendur
lengur. Hreggviður segist
hafa farið þarna á skíði í
októbermánuði og í nóvem-
ber hafi hann æði oft farið á
skíði í Blikdal. Hins vegar sé
aðgengi þar ekki nægilega
gott til að menn geti stundað
þar skíði reglulega.
Hreggviður segir að lítill
hluti þessa svæðis sé í eigu
borgarinnar, þó að það sé inn-
an borgarmarkanna. En
skipulagið verði auðvitað allt
að vera í samhengi og það
verði ekki þannig nema skipu-
lagsaðilar borgarinnar geri
eitthvað í málinu. Hann segist
hafa lagt þessar hugmyndir
fyrir borgarstjóra, sem hafí út
af fyrir sig tekið jákvætt í
þær og sagt að allar hug-
myndir væru vel þegnar varð-
andi svæðið. Hreggviður segir
að menn verði að þekkja
svæðið vel til að geta unnið að
skipulagi þess og hefur boðist
til að veita hugsanlegri skipu-
lagsnefnd forystu. Hann telur
að huga beri að nýrri öld með
stórhuga hugmyndum um
svæðið, sem taki tillit til þarfa
og sýnar næstu aldar, til
heilla almenningi og komandi
kynslóðum.
„Miðað við það að næsta ár
er menningarár Evrópu yrði
það auðvitað synd ef ekki á að
undirstrika þessa sérstöðu Is-
lands, eða Reykjavíkur, á
menningarái'inu 2000,“ segir
Hreggviður.
Dalsmynni ■ S
/ -J /
Bakki»
Andríðisey \\
Kjalarne:
Brautarholt Jörfi-
tarholt Jörfi -
/ -Vaiiá Keíbóla- Þverfel1
K/éberg Skrautholar kambur .
resthus Þverfells-
L‘ Sjávarhólar .cé' h°m
Esjúberg 'V
Hofsvík
S.r . j A
H^"9a Hátindur \ |>
Kerhóla- % % /
\
Stardals-
hnúkur
Saltvík
Brimnes
Vill stofna almenning
Reykjavíkur í fjalllendinu
frá Skálafelli að Esju
Stórkostlegt
landsvæði til
útiveru
Reykjavík
HREGGVTÐUR Jónsson,
áhugamaður um útivist og
fyrrum formaður Skíðasam-
bands íslands, hefur sent
borgaryfírvöldum hugmyndir
er lúta að því að friðlýsa svæð-
ið frá vesturhluta Esju að
Skálafelli og breyta því í al-
menning Reykjavíkur. Hann
telur heppilegt að nota menn-
ingarárið 2000 til þess að
hrinda þessum hugmyndum af
stað, enda sé Reykjavík eina
höfuðborgin í Evrópu sem
státað getur af því að hafa slíkt
fjalllendi innan sinna borgar-
marka. Sjálfur segist hann
hafa notið hins óendanlega
fjölbreytileika sem þar er að
finna á fjölmörgum ferðum
sínum um svæðið. Hann sér
fyrir sér að almenningur
Reykjavíkur verði gjöf til
fólksins í borginni og lands-
manna allra árið 2000.
Hreggviður telur að borgar-
búar og borgarfulltrúar hafí
ekki áttað sig á því hversu gíf-
urlegt fjalllendi færðist inn
fyrir borgarmörkin þegar
Reykjavík sameinaðist Kjalar-
nesi. Hann telur að landsvæðið
austan úr Skálafelli vestur að
vestasta hluta Esju, og þá
íjalllendið sem slíkt, sé stór-
kostlegt útivistarsvæði. Það
svæði er í dag lítið skipulagt
sem slíkt, ef undan er skilið
skíðasvæðið við Skálafell og
gönguleiðir upp með Mógilsá.
„Þetta er gífurlega mikið
svæði, bæði í fjalllendinu og of-
an á Esjunni og víðar. Þetta
tel ég að setja þurfi undir eitt
skipulag. Mikilvægt er líta
lengra fram í tímann og gefa
út yfirlýsingu um að þetta sé
friðlýst svæði og setja um það
ákveðnar skipulagsreglur,"
segir Hreggviður.
Aðstaða fyrir fjallagolf
Hann segir að á svæðinu
séu ótal möguleikar varðandi
útivist, þó að svæðið sé allt
meira og minna í fjalllendi.
Hægt sé að auka fjölbreytni í
gönguleiðum og að mjög auð-
velt sé að koma við göngustíg-
um víða.
Hreggviður telur einnig að
setja mætti upp aðstöðu fyrir
fjallagolf á svæðinu, t.d. fyrir
ofan Mógilsá. Þar mætti setja
upp brautir sem liggja upp og
niður hlíðarnar og að slíkur
völlur geti orðið skemmtileg
nýbreytni fyrir golfáhuga-
menn. Þá má útbúa aðstöðu
fyrir fjallahjól og klettaklifur
á svæðinu. Hreggviður bendir
á að þarna séu afskaplega
skemmtileg klettabelti sem
henta myndu vel til fjallaklif-
urs. Hann segir að fjallaklifur
sé í mikilli sókn í Evrópu og
að menn byggi þar sérstaka
sali til æfinga á meðan Esju-
hlíðar geymi tilvalda aðstöðu
til að iðkunar fjallaklifurs.
Þá telur Hreggviður að
möguleikar svæðisins felist
ekki síst í aukinni trjárækt.
Hann bendir á að mönnum
hafí þótt það út í hött þegar
farið var að skipuleggja Heið-
mörk fyrir hálfri öld, en þar
sú nú orðið mjög aðlaðandi
útivistarsvæði með miklum
gróðri. Því eigi að halda áfram
að rækta upp slíkan gróður
sem nú sést við Mógilsá.
Hreggviður segir að uppi á
Esjunni sé gífurlegt víðerni
og að hægt væri að auðvelda
aðgengi þangað og jafnvel að
gera eitthvað þar uppi, t.d. út-
sýnishús. Hann segist sjálfur